Morgunblaðið - 28.06.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ég hef lært að vera þaðsem kallast á enskuOlympic PerformanceCoach. Það mætti segja
að ég sé styrkleika- og ástand-
sþjálfari en samt er ég svolítið sér-
hæfðari en það,“ segir Mark spurður
út í þjálfaramenntun sína. „Mitt sér-
svið er að hjálpa íþróttamönnum að
ná sínum besta árangri á líkamlega
sviðinu. Ég er ekki íþróttaþjálfari.
Ég sé um líkamlega frammistöðu.
Ætli það mætti ekki kalla mig þrek-
þjálfara upp á íslensku. Þegar ég
kom hingað fyrst hafði enginn heyrt
um þetta áður, en það eru einhverjir
búnir að læra þetta núna en það eru
ekki margir sem vinna við það sem ég
geri,“ segir Mark. Hann kom í fyrsta
skipti til Íslands árið 1999, kom og
fór í nokkur ár en er nú sestur hér að.
Býr í paradís í Mosfellsbæ eins og
hann orðar það sjálfur.
Aðeins á eftir öðrum löndum
„Það er gott fyrir mig að vinna
hér á landi. Ég ætla ekki að móðga
neinn en á Íslandi eru íþróttir í raun-
inni aðeins á eftir íþróttum í öðrum
löndum. Hér eru þær enn að þróast.
Það er góð staða fyrir mig og gerir
kröfur til minnar menntunar. Hér er
þörf á minni hjálp.
Ég hjálpa íþróttamönnum við að
ná hámarki líkamlegrar frammi-
stöðu, að ná alla leið. Ef við tökum
sem dæmi fótboltamann sem er mjög
góður í fótbolta en hefur aldrei gert
neitt sérstakt til að bæta meiðsli sem
hann hefur orðið fyrir, koma í veg
fyrir meiðsli, til að auka styrkinn eða
Aðstoðar íþróttafólk
við að ná alla leið
Mark Kíslich er þýskur þrekþjálfari sem hefur starfað hér á landi í nokkurn tíma.
Hans sérsvið er að ná því mesta og besta út úr hverjum íþróttamanni eða hverju
keppnisliði. Mark hefur staðið sig vel í þeirri vinnu, hann aðstoðar íþróttamenn
við að ná alla leið og hefur meðal annars komið að þjálfun á handboltakapp-
anum Loga Geirssyni og knattspyrnuliði KR.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Mark Kíslich Sérsvið hans er að ná því mesta og besta út úr hverjum
íþróttamanni eða hverju keppnisliði og hefur hann staðið sig vel í því.
Á vefsíðu bresku samtakanna The
Soil Association má finna ýmiss
konar fróðleik um lífræna ræktun.
Til að mynda hvað flokkist sem slík
ræktun, hvar megi finna markaði
með lífrænum vörum og fyrir hvað
samtökin sjálf standi. Á vefsíðunni
er að finna ótal áhugaverðar greinar
sem snúa að lífrænni ræktun. Ættu
þær að geta nýst áhugafólki sem og
öðrum sem langar að forvitnast.
Samtökin voru stofnuð árið 1946
af framsýnum hópi sem hafði
áhyggjur af áhrifum aukinnar tækni-
væðingar í landbúnaði á heilsu fólks
í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.
Fyrstu 30 árin áttu samtökin sér
samastað á sveitabæ í Suffolk en
áhugi á lífrænni ræktun hefur auk-
ist statt og stöðugt síðan á sjöunda
áratugnum. Í dag fer lífræn ræktun
fram á 4% alls ræktarlands í Eng-
landi.
Vefsíðan www.soilassociation.org
Grænmeti Æ fleiri kjósa að bæði rækta og neyta lífræns grænmetis.
Fróðleikur um lífræna ræktun
Í kvöld fer Fjallahjólaklúbburinn í
sína árvissu hjólaferð til Viðeyjar.
Verður hjólað um eyna og sagan
skoðuð, bæði hús og minjar.
Hjólaleiðin er hvorki löng né
strembin og því geta allir notið
ferðarinnar, hjólagarpar jafnt og
byrjendur.
Lagt verður af stað um kl.
19:30 frá Viðeyjarstofu og tekur
ferðin eina og hálfa til tvær
klukkustundir. Viðeyjarstofa
verður opin þannig að eftir hjóla-
ferðina er tilvalið að fá sér hress-
ingu og njóta kvöldsólarinnar yfir
sundunum áður en haldið er heim
á leið.
Fyrir þá sem hafa hug á að
hjóla er rétt að benda á að siglt er
frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19.15.
Endilega …
… hjólið um
Viðey í kvöld
Þægilegt Hjólaferð um Viðey hentar
hjólagörpum á öllum aldri.
Nú hafa sumardagarnir tekið við,
langir og á tíðum letilegir. Í það
minnsta ef við erum í sumarfríi. Á
þessum árstíma verða dagarnir oft
dálítið auðveldari þó nóg sé að gera.
Enda gefur birtan okkur jú kraft og
góða veðrið þegar sólin sýnir sig. Full-
orðna fólkið fer dálítið í sama gír og
börnin við skólalok. Sumarið er komið
og þá ætlar fólk sko að slæpast og
hafa það gott. Þegar kemur að hreyf-
ingu og heilbrigðu líferni er þó betra
að sleppa ekki alveg fram af sér beisl-
inu. Breyta frekar til en ekki leggja
t.d. líkamsræktina alveg niður. Þá
verður nefnilega svo miklu erfiðara að
koma sér aftur af stað í haust. Hér eru
nokkur góð heilsuráð af vefsíðunni
WebMD bæði fyrir líkama og sál. Þeim
ætti að vera auðvelt að fylgja eftir í
sumarsólinni.
Ber og garðvinna
1. Bættu berjasprengju á matseð-
ilinn á hverjum degi. Á sumrin er nóg
til af girnilegum berjum og um að
gera að borða nóg af þeim. Bláber og
jarðarber eru alltaf góð og gómsætt
að búa sér til berjasalat úr þeim og
bæta út í t.d. hindberjum eða öðrum
berjum sem eru í uppáhaldi hjá hverj-
um og einum. Berin eru holl og góð og
meðal annars stútfull af andoxunar-
efnum. Ber má líka setja í blandarann
með skyri eða nota sem léttan eft-
irrétt með grískri jógúrt og hnetum.
2. Ræktaðu garðinn þinn í orðsins
fyllstu merkingu. Dútlaðu í garðinum
þínum eða fáðu að koma í heimsókn
til fjölskyldu eða vina og hjálpa til að
snyrta til, reyta arfa, raka gras og slá.
Sama hver vinnan er nákvæmlega þá
er mjög afslappandi að róta í mold
eða raka gras. Það er líka svo gott að
geta andað að sér fersku lofti og sum-
um finnst þeir líka ná ákveðnu jarð-
sambandi við náttúruna. Sem er
ágætt þegar segja má að við tökumst
nærri á loft við allt amstur og stress
hins daglega lífs.
3. Mikilvægt er að vernda augun og
hafa augnheilsuna í huga. Í sólskini er
því réttast að vera með góð sólgler-
augu. Mælt er með að fólk noti gler-
augu sem útiloka í það minnsta 99%
af sólargeislunum. En auðvitað er
best að nota yfirleitt einhver sólgler-
augu frekar en engin.
4. Það finnst mörgum freistandi að
nota björtu sumarkvöldin til ýmissa
verka. Erfitt getur verið að koma sér í
bólið sem auðvitað ruglar öllu svefn-
skipulagi. Þetta er ekki nógu gott
þegar fólk þarf að mæta í vinnuna
daginn eftir. Svo að yfirleitt er best að
reyna að halda í rútínuna þó maður
fari ef til vill aðeins seinna að sofa en
ella. Þá er mælt með að sleppa því að
lúra yfir daginn, nema fólk geti alltaf
tekið lúr á sama tíma og haft þá
stutta.
Sumarheilsa
Best að halda í rútínuna eins og hægt er
Hollusta Ber eru stútfull af andoxunarefnum, sérstaklega bláber og jarðarber.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
GAMANAÐ SPARA
fyrst og fremst ódýrt