Morgunblaðið - 28.06.2011, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
✝ Þórdís Magn-úsdóttir fædd-
ist á Ingunn-
arstöðum í
Múlasveit í Aust-
ur-Barðastrand-
arsýslu 11. októ-
ber 1927. Hún lést
á Hrafnistu í
Reykjavík 21. júní
síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Björn Einarsson, f. 16. mars
1896, d. 19. mars 1973, og
Áslaug Bjarnadóttir, f. 31.
október 1898, d. 25. september
1982. Systkini Þórdísar: Hall-
dór, f. 25. mars 1924, d. 19.
mars 2003, Björgvin, f. 5. sept-
ember 1925, Sigurgeir, f. 10.
apríl 1936, og Svanlaug, f. 6.
júní 1938.
Eiginmaður Þórdísar er Jón
Finnbogason frá Vattarnesi í
Múlasveit, fæddur 10. ágúst
1917. Börn: 1) Skúli Birgir
Kristjánsson, f. 15.2. 1946, d.
5.11. 1998, kona hans Steinunn
Pétursdóttir, börn þeirra Pét-
ur, f. 2.6. 1977, kona hans Lára
Evu, f. 4.8. 1975, maður hennar
Bjarni Davíðsson, börn þeirra
Sölvi, f. 2000, og Sæfinna, f.
2004. 4) Nanna Áslaug Jóns-
dóttir, f. 27.4. 1960, maður
hennar Gísli Ásberg Gíslason,
börn þeirra Svanhildur Björk,
f. 6.5. 1992, maður hennar Lár-
us Helgason; Pálmi Jón, f. 16.2.
1994. Áður átti Nanna Áslaug
soninn Steindór, f. 10.10. 1980,
dóttir hans Margrét Rún, f.
2007; og dótturina Jódísi, f. 4.5.
1983, maður hennar Guðjón
Halldórsson, dóttir þeirra Inga
Malín, f. 2010, áður átti Jódís
dótturina Guðbjörgu Heru, f.
2000.
Þórdís ólst upp á Ingunnar-
stöðum, hún starfaði í Reykja-
vík á yngri árum en þau Jón
hófu búskap á Skálmarnesmúla
í Múlasveit 1949 og bjuggu þar
óslitið til 1975. Þá brugðu þau
búi og fluttu suður, bjuggu í
Hraunbæ 20 í Reykjavík þar til
á síðasta ári að þau fluttu á
Hrafnistu. Þórdís og Jón vörðu
öllum sumrum frá 1976 til 2009
á Skálmarnesmúla, oftast frá
maí fram í október eða jafnvel
nóvember.
Útför Þórdísar fer fram frá
Árbæjarkirkju í Reykjavík í
dag, þriðjudaginn 28. júní
2011, og hefst athöfnin kl. 15.
Jarðsett verður síðar í Skálm-
arnesmúlakirkjugarði.
Þorgeirsdóttir,
börn þeirra Daníel,
f. 2003, og Lilja
Rún, f. 2011; Stein-
unn, f. 12.3. 1983,
maður hennar Stef-
án Jökull Sigurð-
arson. Áður átti
Skúli dótturina
Þórdísi, f. 12.8.
1970, börn hennar
Elsa Björg, f. 1988,
Eyþór Fannar, f.
1998, og Elmar Skúli, f. 1999. 2)
Finnbogi Jónsson, f. 21.6. 1950,
kona hans Þuríður Kristjáns-
dóttir, börn þeirra Anna Freyja,
f. 31.5. 1977, maður hennar
Óskar Halldórsson, börn þeirra
Atli Dagur, f. 2007, og Bryn-
hildur, f. 2010; Jón, f. 26.10.
1980, kona hans Bryndís
Jónatansdóttir, dóttir þeirra Lí-
ney Edda, f. 2009; Auður Elín, f.
27.7. 1988, maður hennar Guð-
jón Þorsteinsson. 3) Kolbrún
Jónsdóttir, f. 21.9. 1955, maður
hennar Þorvaldur Ottósson,
börn þeirra Helgi, f. 2.1. 1985,
og Heiðrún, f. 9.8. 1989. Áður
átti Kolbrún dótturina Þórdísi
Á sólríkum morgni á lengsta
degi sumarsins kvaddi Þórdís á
Múla. Þennan sama dag fyrir
61 ári ól hún sitt annað barn,
sem er maðurinn minn. Mér
finnst þessi dagsetning tákn-
ræn þar sem hún unni sumrinu
og náttúrunni framar öðru.
Fyrst og fremst var Þórdís
náttúrubarn, ég held að hún
hafi aldrei kunnað við sig í
borginni.
Þau hjónin, Þórdís og Jón,
höfðu búið á Skálmarnesmúla
hefðbundnum búskap frá 1949
en brugðu búi sama ár og ég
kynntist þeim, árið 1975, og var
Múli og Múlasveit henni, að
mér fannst, ávallt efst í huga.
Það var mikil tilhlökkun á
hverju vori að komast vestur.
Þar sinntu þau selveiði og dún-
tekju. Þetta var heilmikil vinna
en verkin eru þeirrar náttúru
að þau verða varla unnin nema
þegar veður er gott. Meðal ann-
ars þess vegna hvílir yfir þeim
sérstakur ljómi. Þórdísi fannst
mjög gaman að fara í dúnleit,
hún sinnti því starfi af stakri al-
úð, fór varlega og aðgætti að
styggja ekki kollurnar, þá var
hún lunkin við að finna út hvort
minkur eða tófa hefðu gert sig
heimakomin í eyjunum. Einnig
hafði hún áhuga á gróðrinum og
sinnti meðal annars stórum
rabarbaragarðinum af natni og
þar sáust aldrei fræstönglar á
rabarbaraplöntunum. Ein var
sú tegund gróðurs sem henni
var sérlega lítið gefið um, það
var njólinn sem sækir víða
mjög á tún á eyðisvæðum. Hún
hélt njólanum frá túninu á Múla
og finnst mér það þónokkurt af-
rek. Síðsumars var hún mjög
áhugasöm um að tína ber og
notaði þau allt árið. Á haustin
vildi hún draga það sem lengst
að fara suður.
Eftir að heilsu Þórdísar fór
að hraka féll henni þungt að
geta ekki verið fyrir vestan og
þurfa að vera upp á aðra komin.
Við Finnbogi viljum þakka
starfsfólki Hrafnistu í Reykja-
vík fyrir umönnun hennar og
þægilegt viðmót í alla staði.
Nú er komið að því að hún
komist vestur, heim á Múla,
núna þegar blóm og plöntur eru
í fegursta skrúða.
Ég votta öllum aðstandend-
um Þórdísar samúð mína. Megi
hún hvíla í friði.
Þuríður Kristjánsdóttir.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund, vonandi líður þér
vel núna. Við minnumst tímans
sem við áttum með þér á
Skálmarnesmúla þegar við vor-
um yngri, pönnukakanna sem
þú bakaðir handa okkur,
ömmukaffisins og matarins frá
gamla tímanum sem þú reyndir
að kynna fyrir okkur. Þessar
fallegu minningar munu verða
með okkur til frambúðar, þú
varst alltaf til staðar fyrir okk-
ur og það var gott að geta kom-
ið til þín. Bless, elsku amma,
hvíl í friði.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Steindór og Jódís.
Nú hefur hún amma okkar
fengið hvíldina. Amma var
elskuleg og góð við okkur
barnabörnin. Það var alltaf
gaman að heimsækja ömmu og
afa. Þá tók amma vel á móti
okkur börnunum með rjúkandi
pönnukökum sem hún var
einkar lagin við að baka. Við
eigum margar minningar um
pönnukökurnar hennar ömmu.
Þar sem við krakkarnir fylgd-
umst oft og iðulega með þegar
amma var að baka og rúlla upp
pönnukökum með sykri og
leggja þær á fat. Þá biðum við
óþreyjufull eftir því að fá að
smakka. Hjá ömmu fengum við
líka að smakka allskyns sveita-
mat eins og rabarbaragraut
með bláberjasultu, soðinn sel,
fisk, selspik og signa grásleppu.
Við áttum líka margar góðar
stundir með ömmu í sveitinni á
Skálmarnesmúla. Þar sem hún
amma vildi helst alltaf vera.
Sveitin var hennar líf og yndi
og þar vildi hún helst dvelja.
Það var gaman að fara með
ömmu í berjatínsluferðir. En
amma var mjög iðin og tíndi
ávallt langmest af berjum. Hún
fyllti hverja fötuna á fætur ann-
arri. Amma unni náttúrunni og
naut þess að vera í sveitinni
sinni. Þar sem hún þekkti hvert
kennileiti, hverja þúfu og stein.
Á Skálmarnesmúla dvaldi hún
ásamt afa okkar eins lengi og
þau gátu. Nú kveðjum við þig í
dag, kæra amma, nú ferðu aftur
heim í sveitina þína.
Til ömmu
Í sumarkyrrð á sólskisdegi
við brekkur og berjalyng.
Fjörugur fuglasöngur
hamrinum heyrist í.
Er dagur dvín og kvölda fer
döggin skreytir hagann.
Ó hve, fögur fjaran er
í kvöldsins næturhúmi.
Steinar, skeljar, kuðungar
á milli steina liggja.
Yfir landið leggja sig
gulir geislar sólar.
Breiða yfir holtin birtu frið og
vonar.
Minning björt í hjörtum okkar
lifir.
(Helgi og Þórdís Eva.)
Elsku amma okkar, minning
þín mun lifa með okkur um
ókomna tíð.
Þórdís Eva, Helgi
og Heiðrún.
Elsku amma okkar.
Manstu’ er himins hátign skær
hló við sundum bláum?
Manstu er léttur ljúflingsblær
lék að grænum stráum?
Manstu ungra álfta söng
úti á fjarðarstraumi?
Manstu er kvöldin ljós og löng
liðu í glöðum draumi?
Allt er þetta eins og fyr.
Arfur dýrra minna
bíður enn við opnar dyr
æskustöðva þinna.
Ennþá byggir Breiðafjörð
blómi kvenna og manna
– um hann heldur helgan vörð
hersveit minninganna.
(Jón frá Ljárskógum.)
Nú ertu komin heim í sveit-
ina þína þar sem þú undir þér
alltaf best. Megi minning þín
vera ljós í lífi okkar.
Svanhildur og Pálmi.
Þórdís
Magnúsdóttir
Þórður Snæbjörnsson
✝ Þórður Snæ-björnsson
garðyrkjubóndi
fæddist á Snær-
ingsstöðum í
Vatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu 19.
október 1931.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Suðurlands 19. júní
2011.
Þórður var jarð-
sunginn frá Hveragerðiskirkju
24. júní 2011.
Honum var treyst
til ábyrgðar af
samborgurum sín-
um og hann var
oddviti hrepps-
nefndar síðara
kjörtímabilið. Á
þeim tíma var
íbúatala Hvera-
gerðisbæjar ekki
hálf á við það sem
er í dag. Verkefnin
voru ærin enda
bæjarfélagið ungt og í mörg
horn að líta við uppbyggingu
þess. Við sem stýrum sveitar-
félaginu í dag eigum fyrir-
rennurum okkar margt að
þakka. Án þeirra væri Hvera-
gerði ekki það góða samfélag
sem það er í dag. Þórður lagði
svo sannarlega sitt af mörk-
um.
Hvergerðingar þakka að
leiðarlokum góða samfylgd í
gegnum árin og votta eftirlif-
andi eiginkonu og fjölskyldu
innilega samúð.
Aldís Hafsteinsdóttir.
Þórður Snæbjörnsson var
alla tíð áberandi hér í Hvera-
gerði. Hann var einn af frum-
byggjum bæjarfélagsins og
rak myndarlega garðyrkjustöð
til fjölda ára. Þórður var mað-
ur með miklar skoðanir og
sterka nærveru sem vann sam-
félaginu gagn á mörgum svið-
um. Hann tók virkan þátt í
sveitarstjórnarmálum og sat í
hreppsnefnd frá árinu 1974 til
1982 eða í tvö kjörtímabil.
✝ John Chri-stopher Rom-
ano fæddist í Nor-
walk CT í
Bandaríkjunum 23.
september 1973.
Hann lést á heimili
sínu 13. júní 2011.
Foreldrar Jo-
hnnys eru: Kristrún
Erlingsdóttir, f. 19.
janúar 1949 í
Reykjavík og John
R. Romano, f. 31. júlí 1948 í Nor-
walk CT í Bandaríkjunum.
Bræður Johnnys eru Robert
Antony, f. 10. apríl
1971 og Michael
Richard, f. 4. októ-
ber 1981.
Johnny vann
lengst af við sund-
laugafyrirtæki for-
eldra sinna. Hann
var ókvæntur og
barnlaus.
Johnny var jarð-
sunginn í Norwalk
CT í Bandaríkj-
unum 18. júní 2011. Minning-
arathöfn verður í Guðríðarkirkju
í dag, 28. júní 2011, kl. 13.
Okkur langar að kveðja Jo-
hnny frænda með litlu ljóði sem
okkur finnst eiga ótrúlega vel við
miðað við hvernig bróðir hans
minntist hans. Við erum öll búin
til úr orku og þó að líkaminn sé
ekki lengur þá er orkan áfram á
meðal okkar.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki
með tárum, hugsið ekki um dauð-
ann með harmi eða ótta.
Ég er svo nærri, að hvert eitt tár
ykkar snertir mig og kvelur, þótt
látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með
glöðum hug, lyftist sál mín upp í
mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran)
Minningarnar sem við eigum
um þig skína skært í hjörtum
okkar.
Þínu lífi verður fagnað að
hætti Erlingsættar þegar við
mætum til USA í haust.
Hvíl í friði, kæri frændi.
Dagný og Bergþór.
John Christopher
Romano
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
SNORRI KRISTJÁNSSON
bakarameistari,
Dvergagili 9,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn
26. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Heba Bjarg Helgadóttir,
Kristján Snorrason, Anna Lísa Óskarsdóttir,
Júlíus Snorrason, Linda Ragnarsdóttir,
Birgir Snorrason, Kristín Petra Guðmundsdóttir,
Kjartan Snorrason, Sveindís I. Almarsdóttir,
Anna Lára Finnsdóttir, Davíð Valsson,
Kristín Sveinsdóttir, Einar Viðarsson
og afabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALHEIÐUR LÁRUSDÓTTIR
frá Sjávarborg,
Neskaupstað,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
26. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður Ottósson, Alda K. Helgadóttir,
Hermann Ottósson, Jóhanna G. Þormar,
Dagbjört Lára Ottósdóttir, Ingólfur Arnarson,
Friðrik Jón Ottósson, Helen Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
HELGA KARLSDÓTTIR,
áður til heimilis að
Gnoðarvogi 76,
lést að kvöldi miðvikudagsins 22. júní.
Guðmundur Karl Guðjónsson, Margrét Gísladóttir,
Vilhjálmur Guðjónsson, Louisa Einarsdóttir,
Ásdís Guðjónsdóttir,
Ásgeir Guðjónsson,
Örn Guðjónsson, Sigurósk Garðarsdóttir
og ömmubörn.
✝
Móðursystir mín,
ÞURÍÐUR STEINUNN VIGFÚSDÓTTIR
frá Hrísnesi,
sem lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
19. júní, verður jarðsungin frá Fíladelfíu,
Hátúni 2, miðvikudaginn 29. júní kl. 11.00.
Glúmur Gylfason.
✝
Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
SVEINN SÆMUNDSSON
löggiltur endurskoðandi,
Sóltúni 10,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 19. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 29. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Sigríður H. Jóhannsdóttir,
Gyða Þorgeirsdóttir, Hallur Karlsson,
Ragnheiður Hallsdóttir,
Jóhann Karl Hallsson,
Hafdís Svava Ragnheiðardóttir,
Jón Sæmundsson,
Tómas Sæmundsson,
Sigrún Sæmundsdóttir,
Baldur Sæmundsson.