Morgunblaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
3 7 5 1 8
9 6 3
8 9
6 4 3 1
5 7 8
6 1 7
5 4 6
1
4
8 4 1
9
4 7 5
5 6 4 1 8
7 1
8
2 5 8 6
5 6 7 1
1 2
1 6
2 9
7 8
7 5 4
3
4 8 6 2 5
5 2 6
4 6 8 5 1
5 2 8 6 4 9 3 7 1
6 9 3 1 7 2 5 8 4
4 7 1 8 3 5 6 2 9
1 5 4 3 8 7 2 9 6
7 6 9 5 2 4 1 3 8
8 3 2 9 6 1 7 4 5
9 4 7 2 5 6 8 1 3
3 1 5 7 9 8 4 6 2
2 8 6 4 1 3 9 5 7
1 9 7 8 4 6 5 3 2
4 8 2 5 7 3 9 6 1
3 5 6 1 9 2 7 8 4
6 1 9 4 3 8 2 5 7
2 3 5 9 1 7 8 4 6
8 7 4 6 2 5 3 1 9
7 2 1 3 5 4 6 9 8
5 4 8 7 6 9 1 2 3
9 6 3 2 8 1 4 7 5
5 6 2 3 4 1 8 9 7
7 1 4 6 9 8 3 2 5
8 3 9 7 2 5 1 4 6
4 9 3 5 8 6 2 7 1
6 5 7 2 1 4 9 3 8
1 2 8 9 3 7 5 6 4
3 7 6 1 5 2 4 8 9
2 8 5 4 7 9 6 1 3
9 4 1 8 6 3 7 5 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 28. júní, 179. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11, 1.)
Víkverji hafði heyrt mikið látið afkaffihúsinu Laundromat í mið-
bænum og ákvað að kíkja þar inn á
dögunum, ekki til að þvo föt heldur
fá sér kaffisopa og eitthvað með því.
Þetta var ekki á háannatíma og borð
fékkst fljótlega þó að staðurinn væri
ágætlega vel setinn. Kaffihúsið er
skemmtilega innréttað og hlýlegt en
það sem kom Víkverja á óvart er að
þetta er meiri matsölustaður en eig-
inlegt kaffihús. Fjölbreyttir réttir á
matseðli og greinilega reynt að
höfða til barnafjölskyldna.
Pöntuð var grilluð samloka handa
barninu og te handa hinum fullorðnu
ásamt smá bakkelsi.
x x x
Fljótt komu réttir hinna fullorðnuen ekkert bólaði á samlokunni.
Þá var Víkverja mál og var vísað nið-
ur á salernin. Rambaði hann inn á
karlaklósettið þó að engar sæjust
merkingar á hurðum hvort um
karla- eða kvennaklósett væri að
ræða. Ódaunn mætti Víkverja og
þungt loft, en hann lét sig hafa það
og settist á eitt klósettið. Að því
verki loknu var komið að því að
sturta niður og í fyrsta sinn á ævinni
hitnaði verulega undir Víkverja, í
orðsins fyllstu merkingu. Steig upp
heit gufa og hugsaði Víkverji með
sér hvort þetta væri hluti af
nýjungagirni vertsins á Laundromat
að sturta niður með sjóðandi heitu
vatni. Svo reyndist nú ekki vera,
sem betur fer, heldur var greinilega
einhver bilun í lagnakerfinu sam-
kvæmt skiltum yfir pissuskálum fyr-
ir framan klósettin, sem voru óvirk-
ar. Einnig var varað við heitu vatni í
vöskunum og ekki vanþörf á.
x x x
Er upp var komið eftir þessa„heitu“ klósettferð var grillaða
samlokan ekki komin á borðið og
hafði þjónustustúlka þá viðurkennt
að hafa gleymt þeirri pöntun. Í sára-
bót fékk barnið mjólkurhristing og
við uppgjör þurfti Víkverji ekki að
borga fyrir samlokuna síðbúnu.
Víkverji vissi að þetta væri heitur
staður en ekki svona heitur. Vonandi
er búið að gera við klósettin.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 handleggur, 4 hnik-
ar til, 7 kvensemi, 8 svalinn, 9
kvendýr, 11 hæverska, 13
eyðimörk, 14 skriðdýr, 15
heilnæm, 17 glötuð, 20 berg-
máls, 22 sekkir, 23 trúar-
leiðtogar, 24 lofað, 25 lélegar.
Lóðrétt | 1 atburður, 2
fugl, 3 skrifaði, 4 þakklæti,
5 dýs, 6 glerið, 10 trúar-
brögð, 12 álít, 13 þrif, 15
flokkur, 16 svipuðum, 18
urr, 19 bjálfar, 20 leynd-
ardómsfull, 21 far.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 makalaust, 8 njóli, 9 tjáði, 10 nær, 11 rósin, 13 aldan,
15 skins, 18 skatt, 21 auk, 22 grugg, 23 eflir, 24 mannalæti.
Lóðrétt: 2 atóms, 3 asinn, 4 aftra, 5 skáld, 6 gnýr, 7 kinn, 12 iðn,
14 lek, 15 segi, 16 iðuna, 17 sagan, 18 skell, 19 atlot, 20 tóra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Franskur sigur. S-Allir.
Norður
♠109854
♥ÁKD9543
♦--
♣K
Vestur Austur
♠ÁG73 ♠KD2
♥82 ♥G107
♦G6 ♦Á1085
♣G10964 ♣753
Suður
♠6
♥6
♦KD97432
♣ÁD82
Suður spilar 3G.
Opna Evrópumótið stendur nú yfir í
Poznan í Póllandi, tveggja vikna törn
þar sem keppt er í ólíkum greinum. Á
morgun klárast opna sveitakeppnin (en
þar er Jón Baldursson meðal keppenda,
einn Íslendinga) og mótslok eru á laug-
ardaginn þegar opni tvímenningurinn
klárast. Mótið hófst með blandaðri
sveitakeppni (mixed teams) og vann
frönsk sveit undir forystu efnamanns-
ins Pierre Zimmermanns (Multon,
Willard, Cronier-hjónin og D́Ovidio).
Norsku hjónin Gunn og Tor Helness
voru meðal keppenda. Þau héldu á spil-
um N-S í viðureign við írska sveit. Tor
vakti á 1♦ í suður, Gunn svaraði með
1♥, Tor sagði 2♦ og Gunn 2♠. „Mis-
fitt,“ hugsaði Tor, sagði 2G og frúin
lyfti í 3G! Laufgosi út og Tor tók níu
fyrstu slagina, en hinum megin fóru 4♥
einn niður.
28. júní 1541
Klerkar Skálholtsbisk-
upsdæmis samþykktu nýja
kirkjuskipan. Þar með hófust
siðaskiptin formlega.
28. júní 1947
Landbúnaðarsýning var opn-
uð í Reykjavík. Hún stóð í tvær
vikur og 60.300 manns sáu
hana (landsmenn voru þá 135
þúsund).
28. júní 1965
Byrjað var að afhenda nafn-
skírteini til allra Íslendinga
tólf ára og eldri, alls um 140
þúsund. Tilgangurinn var m.a.
að auðvelda framkvæmd
ákvæða um barnavernd og að
nota hið svonefnda nafnnúmer
„sem tæki til að koma á víð-
tækri vélvæðingu skrifstofu-
starfa,“ eins og sagði í frétt
frá Hagstofunni.
28. júní 1977
Stór stafur var aftur tekinn
upp í þjóðaheitum og nöfnum
á íbúum landa og landshluta
þegar menntamálaráðuneytið
gaf út auglýsingu um breyt-
ingar á þriggja ára gömlum
reglum um íslenska stafsetn-
ingu.
28. júní 2001
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
var formlega opnaður. Með
honum voru friðlýst svæði orð-
in um 12% landsins.
28. júní 2008
Björk Guðmundsdóttir og Sig-
ur Rós héldu útitónleika í
Laugardal í Reykjavík undir
heitinu Náttúra. Tugir þús-
unda komu í dalinn og millj-
ónir fylgdust með á vefnum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Suðurnesjamærin Elín Óla Klemenzdóttir fagnar
tvítugsafmæli sínu í dag. Raunar hefur hún þegar
haldið heljarinnar teiti á heimili sínu í Keflavík með
vinum og vandamönnum en í kvöld hyggst hún
snæða góðan kvöldverð í faðmi fjölskyldunnar og
taka á móti vinkonunum í kjölfarið. Elín segir að á
dagskránni sé að láta renna í heita pottinn og láta
líða úr sér á meðan spjallað er um dægurmálin.
Aðspurð segist Elín vera mikið afmælisbarn og
þykir henni „afskaplega gaman“ að eiga afmæli.
Hún hefur því á undanförnum árum alltaf gert eitt-
hvað til að fagna því að vera ári eldri, þó ekki alltaf
jafn veglega og í ár.
Elín vinnur í sumar sem gjaldkeri hjá Íslandsbanka í Keflavík – líkt
og síðasta sumar – en hún er í ársfríi frá námi. Liðinn vetur starfaði hún
hins vegar sem leiðbeinandi í leikskólanum Vesturbergi. Segir hún tím-
ann í leikskólanum hafa verið afskaplega fjörugan og skemmtilegan. Í
haust hyggst Elín hins vegar snúa aftur á námsbekk en hún þreytti fyrr
í sumar inntökupróf í læknisfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur ekki
enn fengið niðurstöðuna úr prófinu en segist hóflega bjartsýn á inn-
göngu. andri@mbl.is
Elín Óla Klemenzdóttir tvítug í dag
Góður matur og pottapartí
Nýirborgarar
Reykjavík Hugrún Ísleif Róberts-
dóttir fæddist 13. nóvember 2010
kl. 1.46. Hún vó 3495 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Gróa
Valgerður Ingimundardóttir og Ró-
bert Pálmason.
Flóðogfjara
28. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.16 3,0 10.25 1,1 16.42 3,4 23.02 1,1 3.01 24.02
Ísafjörður 0.29 0,8 6.23 1,7 12.32 0,6 18.50 1,9 1.36 25.36
Siglufjörður 2.29 0,4 8.49 1,0 14.34 0,5 21.00 1,2 1.19 25.19
Djúpivogur 1.23 1,6 7.25 0,7 13.56 1,9 20.14 0,8 2.16 23.46
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú getur ekki stjórnað því hvað öðr-
um finnst um þig. Nú sérðu akkúrat hvernig
þið bætið hvort annað upp. Hresstu upp á
sjálfstraustið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hreinskilni þín virðist koma illa við
kaunin á fólki. Láttu ekki aðra ráða þínum
málum. Farðu sérstaklega varlega í umferð-
inni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Flottur stíll felst í fleiru en að kaupa
réttu flíkurnar. Ekki liggja á liði þínu, heldur
kastaðu þínum málum fram til umræðu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér finnst allt vera mögulegt í dag og
því er svolítil hætta á því að þú missir tengsl-
in við raunveruleikann. Ástinni fylgir glaðara
hjarta.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Samtal við vin breytir öllu hjá þér. Láttu
vin njóta vafans, sannleikurinn kemur í ljós.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Vertu ekki með stöðugar áhyggjur af
því hvað öðrum kann að finnast um þig. Bet-
ur sjá augu en auga og aðrir geta bent á hlið-
ar sem huldar voru.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Til að minna þig á að þú ert sterk/ur og
hæf/ur, verður þú að gera eitthvað á þínum
sterku sviðum. Þú efast allt of oft um getu
þína.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er margt sem þú þarft að
afgreiða í skyndi. Settu markið nógu hátt svo
þú getir gortað af mistökunum síðar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Velgengni á viðskiptasviðinu get-
ur lukkast með einu litlu námskeiði. Með
einni setningu gætir þú látið sár gróa.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú átt auðveldara með að koma
þínum málum á framfæri, ef þú temur þér
glögga framsögn. Vertu eins nákvæm/ur og
þú getur, og vertu svo ánægð/ur með hversu
vel heimurinn hlustar á þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Óskammfeilin persóna getur
kennt þér sitthvað. Reyndu að finna þér skjól
meðan þú meltir málin og finnur þínar lausn-
ir.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að geta lokað þig betur af svo
þú náir að sinna þeim fjölmörgu verkefnum,
sem þú hefur tekið að þér. Mundu að hól skil-
ar betri árangri en ávítur.
Stjörnuspá
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f4 Bg7 5.
Rf3 O-O 6. Bd3 Ra6 7. O-O c5 8. d5 Rc7
9. a4 b6 10. De1 e6 11. dxe6 fxe6 12. e5
Rfd5 13. Re4 dxe5 14. fxe5 Bb7 15. Bg5
Dd7 16. Dh4 Rb4 17. Had1 Dc6 18.
Rf6+ Bxf6
Staðan kom upp á ofurmóti sem lauk
fyrir skömmu í Medias í Rúmeníu. Ser-
gey Karjakin (2776), sem nú teflir fyr-
ir Rússland, hafði hvítt gegn sínum
fyrrverandi landa, Vassily Ivansjúk
(2776) frá Úkraínu. 19. Bxg6! hxg6 20.
Bxf6 Hxf6 21. exf6 Hf8 22. Dg5 og
svartur gafst upp. Lokastaða mótsins
varð þessi: 1.-2. Magnus Carlsen (2815)
og Sergey Karjakin (2776) 6 1/2 vinn-
ing af 10 mögulegum. 3.-4. Teimour
Radjabov (2744) og Hikaru Nakamura
(2774) 4 1/2 v. 5.-6. Liviu-Dieter Nisi-
peanu (2659) og Vassily Ivansjúk
(2776) 4 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik