Morgunblaðið - 28.06.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
TIL AÐ
ÖÐLAST AFLAUSN
ÞÁ ÞARFTU AÐ
PANTA PIZZU
BEETHOVEN
VAR VÍST
GEFINN FYRIR
STELPUR
AF HVERJU ERT ÞÚ ÞÁ EKKI
GEFINN FYRIR STELPUR? NÁÐI ÞÉR!!
HVAÐ KALLAR MAÐUR
MANN SEM ÆTLAST TIL ÞESS AÐ
HANN FÁI BARA ALLT UPP Í
HENDURNAR?
MÁG MINN
ÉG GET EKKI
BEÐIÐ EFTIR ÞVÍ AÐ
FÁ AÐ SPÓKA MIG Í
KANSAS CITY
PABBI
HVAÐ ERTU
AÐ BRALLA?
ÉG VAR
FENGINN TIL AÐ VERA
PLÖTUSNÚÐUR Á
LJÓSAHÁTÍÐARBALLINU
ÉG ER AÐ BÚA TIL
LAGALISTA. HANN ER
SVOLÍTIÐ ÓHEFÐBUNDINN EN
ÉG HELD AÐ FÓLK EIGI
EFTIR AÐ FÍLA HANN
ÞÚ ÆTLAR ALLA
VEGANA AÐ SPILA ADAM
SANDLER LJÓSAHÁTÍÐAR-
LAGIÐ, ER ÞAÐ EKKI?
ÞAÐ ER EKKI SÉNS AÐ ÉG SPILI
ADAM SANDLER LJÓSAHÁTÍÐARLAGIÐ
Á ÞESSU BALLI
ÞÁ ER ÚT
UM ÞIG
ÉG ÆTLA AÐ TREYSTA ÞÉR SANDMAN OG
SLEPPA ÞÉR ÚR POKANUM
NÚ SKULUM
VIÐ FARA OG BJARGA
DÓTTUR ÞINNI
ELDAMENNSKUGUÐIRNIR
ERU MÉR REIÐIR Týnd kisa
Eins árs gamall
Maine Coon-högni
hvarf frá Brattholti 6c
í Mosfellsbæ 22. júní
sl. Ef einhver verður
var við kisuna er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í Frímann í
síma 566-7323 eða
690-9038.
Leita eftir myndum
Við leitum að myndum af flugvél af
þessari gerð (sjá mynd), Sea Hornet,
breskri sprengjuflugvél sem stóð í
kálgarðinum okkar á Sindra við
Nesveg (þar sem nú er bílastæði
Hagkaups við Eiðistorg) á árunum
1955-1957. Fjöldi stráka af höf-
uðborgarsvæðinu lagði leið sína út á
Seltjarnarnes til að
skoða vélina. Ekki er
óhugsandi að ein-
hverjir hafi haft
myndavél í farteskinu
og viðkomandi eigi
mynd af sér í eða við
vélina. Flugsögufélag
Íslands er að reyna að
skrá feril hennar eftir
að hún nauðlenti á
Keflavíkurflugvelli
haustið 1953. Hafi ein-
hver upplýsingar um
vélina frá þessum tíma
yrðum við þakklát að
heyra af því. Hafa má
samband hvort sem er
við Jóhann hjá Flug-
sögufélaginu, jipalsson@gmail.com,
eða Ragnhildi, rjk9@simnet.is.
Ragnhildur Kolka.
Ást er…
… það sem heldur ykkur
ungum í hjarta.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Botsía kl. 9.45. Handavinna kl. 13. Opinn
púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Tískusýning, sölusýn-
ing, 30. júní kl. 13. Uppl. í s. 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé-
lagsvist kl. 14.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl.
8-16.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Farþeg-
ar í Vestfjarðaferð, fundur með fararstjóra
verður haldinn á morgun, miðvikudag, kl.
10 að Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, hádegisverður og heitt
á könnunni.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Jónshús opnað kl. 9.30.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Skólabraut:
Molasopi og spjall í Króknum kl. 10.30.
Jóga kl. 11. Samverukaffi karla í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 14-16. Púttvöllur.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30 m.a. perlusaumur og stafganga kl.
10.30. Vegna sumarleyfa starfsfólks er
lokað frá 1. júlí. Uppl. um starfsemina á
staðnum og í s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Bón-
usbíll kl. 12.15. Púttvöllur er opinn alla
daga.
Hraunsel | Leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30,
brids kl. 12.30.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin kl.
8-16. Hádegisverður kl. 11.30, kaffi kl.
14.30. Böðun fyrir hádegi, fótaaðgerðir,
hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Listasmiðjan opin. Bónus og bóka-
bíll. Hádegisverður og síðdegiskaffi. Fóta-
aðgerðastofa og hárgreiðslustofa. Hæð-
argarður er lokaður frá og með 4. júlí til 3.
ágúst.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt á æf-
ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 13
er opið hús á Korpúlfsstöðum. Ýmisleg
vinna í gangi.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgun-
kaffi, vísnaklúbbur kl. 9.15, leikfimi kl. 11,
handverksstofa, fjölbreytileg verkefni, kl.
13, „Opið hús“ bridge/vist kl. 13, kaffi kl.
14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Félagsvist kl.
14. Dagsferð til Vestmannaeyja 30. júní,
uppl. í síma 411-9450.
Þorbergur Hinriksson leigubíl-stjóri á Akureyri hafði sam-
band við Vísnahornið í tilefni af sól-
stöðudeginum. Hann rifjaði upp er
hann var austur á Tjörnesi árið
1960 að heyja Bakkatúnið. Er hald-
ið var að bænum Eyvík, þar sem
hann var í sveit, fékk hann sér far á
heyvagninum, lá þar í heyinu og
dáðist með sólarlaginu:
Ljúfur dagur líður hjá
ljóma slær á sæinn.
Það er fögur sjón að sjá
sólina kveðja daginn.
Hallmundur Kristinsson yrkir
um bjartsýnina, sem hann segir af
hinu góða, en þó í hófi eins og ann-
að:
Ok er mörgum illa drægt.
Ýmsir bera hlekki.
Góðir hlutir gerast hægt
og gerast stundum ekki.
Vísan minnir nokkuð á vísu sem
hann orti fyrir nokkrum áratugum:
Stundum hef ég stelpur elt.
Storma lífsins þekki.
Sumir hundar geta gelt
en gera það samt ekki.
Og vert er að rifja upp vísu séra
Hjálmars Jónssonar:
Andagift ég ekki skil
eða þekki.
Stundum verða stökur til
og stundum ekki.
Lok vísu Hafsteins Stefánssonar,
hins mæta hagyrðings sem fallinn
er frá, en var vinur vísnaþáttarins,
er líka blátt áfram:
Flestir byggja á blekkingu
biðja, treysta og vona
þótt menn hafi þekkingu,
þetta er bara svona.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Að vera eða vera ekki
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is