Morgunblaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Þriðjudaginn 28. júní halda
Kitty Kovács píanóleikari og
Balázs Stankowsky fiðluleikari
tónleika í Selinu á Stokkalæk á
Rangárvöllum. Þau eru ung-
versk og menntuð í tónlist frá
heimalandi sínu en fluttu til Ís-
lands árið 2006.
Kitty og Balázs hafa starfað
sem tónlistarkennarar á Hvols-
velli, Vík í Mýrdal og Garðabæ
og haldið allmarga tónleika
bæði hér á landi og erlendis. Á efnisskrá tón-
leikanna eru verk eftir Bach, Brahms, Rachm-
aninov og Elgar.
Á tónleikunum verða veitingar og eru miða-
pantanir í síma 8645870 og 4875512.
Tónlist
Kitty og Balázs
í Selinu
Edward
Elgar
Opið verður í Sveinshúsi í
Krýsuvík nk. sunnudag, frá kl.
13:00-17:30. Þar stendur nú yf-
ir sýningin Huldufólk og tal-
andi steinar og lýkur henni í
sumar. Sýningin lýsir mynd-
heimi Sveins Björnssonar þeg-
ar hann var í mótun um og upp
úr 1960. Á sýningunni getur
m.a. að líta portrettmyndir af
þekktum Hafnfirðingum frá
gamalli tíð auk málverksins
Þjóðarhagur, sem hefur nýlega komist í eigu
safnsins.
Opið er í Sveinshúsi fyrsta sunnudag í mánuði á
sumrin. Sveinshús blasir við, ljósblátt að lit, frá
Krýsuvíkurvegi nálægt Gestsstaðavatni.
Myndlist
Huldufólk
og talandi steinar
Sveinn
Björnsson
Fimm íslenskar stuttmyndir
hafa verið valdar til að taka
þátt í alþjóðlegu stutt-
myndakeppninni „Corti and
cigarettes 2011“ sem fram fer í
Róm í 22.-25. september.
Myndirnar eru Kennitölur eft-
ir Hall Örn Árnason, Uniform
Sierra eftir Sigríði Soffíu
Níelsdóttur, Permille (Prómill)
eftir Martein Thorsson, Dolor
eftir Ingvar E. Sigurðsson og
Á Njáluslóð eftir Guðleif Rafn Einarsson.
Á hátíðinni munu íslensku myndirnar keppa við
aðrar myndir um verðlaun sem forseti Ítalíu af-
hendir í lok hátíðarinnar. Einnig verða þær einu
myndirnar í skandinavískum flokki.
Stuttmyndir
Íslenskar stutt-
myndir í keppni
Kynningarspjald
hátíðarinnar.
Sögufélag Eyfirðinga fagnar á
þessu ári 40 ára afmæli og efnir af
því tilefni til samkeppni um athygl-
isverðar minningar. Þátttakendur
þurfa ekki að vera Eyfirðingar, en
atburðurinn sem sagt er frá verður
að byggjast á persónulegri reynslu
og hafa gerst á tuttugustu öldinni
og í Eyjafirði, en reyndar er Siglu-
fjörður talinn með að vestanverðu
og Gjögur að austan.
Þeim sem eiga í fórum sínum
eldri frásagnir sem uppfylla fram-
antalin skilyrði er velkomið að taka
þátt í keppninni.
Sögufélagið áskilur sér rétt til að
birta innsendar greinar í Súlum,
ársriti félagsins, sér að kostn-
aðarlausu.
Miðað er við að hver frásögn sé
um þrjár blaðsíður, en má þó vera
styttri eða lengri ef efnið krefst
þess. Nafn höfundar fylgi með í lok-
uðu umslagi. Seinasti skiladagur er
22. október næstkomandi og verða
úrslit kunngerð í desember. Senda
skal frásagnir til Hauks Ágústs-
sonar, Galtalæk, 600 Akureyri.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Minnisverð Kirkjan á Grund er
meðal merkishúsa í Eyjafirði.
Athyglis-
verðar
minningar
Samkeppni Sögu-
félags Eyfirðinga
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Útgáfan Dimma hefur gefið út tvær
nýjar hljóðbækur: Skáldsöguna
Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur í
lestri höfundar og smásagnasafnið
Milli trjánna eftir eftir Gyrði Elías-
son í lestri Sigurðar Skúlasonar leik-
ara.
Þetta er annar miðill
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
eigandi Dimmu, segir það hafa verið
í bígerð síðan í fyrra að gefa út
Ljósu og Milli trjánna og bætir við
að sumarbyrjun sé góður tími til að
gefa út hljóðbækur. „Hljóðbækur
eru góðar til að taka með í ferðalag-
ið. Svo er þetta lítill markaður og
það verður að sæta lagi og gefa út
þegar það er pláss fyrir þær og ein-
hver tekur eftir þeim.“
Hann bætir við að nauðsynlegt sé
að gera greinarmun á hljóðbókum
og venjulegum bókum. Þær séu
mjög ólíkar og hljóðbækurnar í
rauninni annar miðill. „Það er allt
annað að hlusta á bók en lesa bók og
mér finnst hljóðbækur vera mjög
þörf viðbót við hefðbundnu bókina.“
Aðalsteinn segir að þrátt fyrir að
markaðurinn sé lítill telji hann að
hljóðbækur eigi sér framtíð. Hann
bendir á að t.d. sé markaðurinn í
bæði Þýskalandi og Bandaríkunum
stór og þeir sem eyði miklum tíma í
samgöngur nýti tímann til að hlusta.
„Það er kannski ekki alveg raunin
hér þannig að það var svolítið erfitt
að koma þessu inn,“ segir hann.
Er trú uppruna sínum
Dimma var stofnuð árið 1992 í
þeim tilgangi að gefa út tónlist og
bókmenntir eins og kemur fram á
heimasíðu. Gefnir hafa verið út tæp-
lega 50 geisladiskar með tónlist og
yfir 30 hljóðbækur auk ljóðabóka,
nótnabóka og örfárra annarra bóka.
Aðalsteinn segist hafa byrjað að
gefa út hljóðbækur þar sem honum
fannst skortur á þeim. „Mig langaði
til að gera það svona samhliða tón-
listarútgáfunni, fannst það fara vel
saman. Það hefur alveg gengið
ágætlega í þessum smáa stíl sem við
höfum verið að vinna. Við höfum ein-
beitt okkur að því sem við höfum
áhuga á og áhuginn liggur mest í
barnaefni og ljóðum og svo einstaka
skáldverkum, hann liggur ekkert í
glæpasögunum,“ segir Aðalsteinn og
hlær.
Samkvæmt heimasíðunni hefur
Dimma verið uppruna sínum trú
þrátt fyrir aukin umsvif og að sögn
Aðalsteins hefur markmið hans aldr-
ei verið að gefa aðeins út það sem er
söluvænlegast. „Það verður að reyna
að halda sig á sinni línu,“ segir hann.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Áhugi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, eigandi Dimmu, segir að sumarbyrjun sé góður tími til að gefa út hljóðbækur.
Allt annað að hlusta en lesa
Dimma gefur
Ljósu og Milli
trjánna út sem
hljóðbækur
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari
og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
eru í tónleikaferð um Kína þessa
dagana. Fyrstu tónleikar þeirra
voru sl. föstudag í tónleikahöll Ti-
anjin-borgar, sem er hafnarborg í
nágrenni við Peking, og á laug-
ardagskvöld komu þær fram í Þú-
saldarhöll Pekingháskóla fyrir fullu
húsi.
Næstu tónleikar þeirra verða í
kvöld í tónlistarakademíunni í
Tsjengdu, héraðshöfuðborg Sitsjú-
an-héraðs í vesturhluta Kína, en þar
munu þær einnig halda meist-
aranámskeið fyrir nemendur aka-
demíunnar. Þess má geta að í
Tsjengdu er íslensk-kínverski-
barnaskólinn Vonin, sem reistur var
fyrir framlög íslenskra fyrirtækja í
kjölfar jarðskjálfta sem reið yfir
héraðið fyrir þremur árum.
Frá Sitsjúan halda þær stöllur til
Hangsjú, Ningbo og Husjú, en síð-
ustu tónleikarnir í ferðinni verða í
Peking 8. júlí þar sem þær leika í Al-
þjóðlegri listamiðstöð borgarinnar,
sem er kölluð „Eggið“ í daglegu tali
kallað sökum hönnunar hússins.
Sigrún og Selma fara víða
í tónleikaferð um Kína
Ljósmynd/Jeffrey Chen
Eggið Þær Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir leika í tónlistar-
húsinu Alþjóðlega listamiðstöðin í Peking í næstu viku.
Halda tónleika víða um land og ljúka ferðinni í Peking
Síðastliðinn laugardag var opnuð í Ásgarði í Mosfellsbæ svonefnd Kjósar-
stofa, en hún er á vegum áhugafélags um að efla samfélagið í Kjós og miðla
upplýsingum um sögu og náttúru svæðisins. Í Ásgarði hefur einnig verið sett
upp sýning um SÓL í Hvalfirði og þar er ný upplýsingamiðstöð.
Kjósarstofa í Ásgarði
Stjórn og varastjórn Kjósarstofu Bergþóra Andrésdóttir, Ólafur Oddsson,
Katrín Cýrusdóttir, Sólveig Dagmar Þórisdóttir og Ólafur J. Engilbertsson.
Við kynntumst í
lengsta sándtjekki
sögunnar. 32
»