Morgunblaðið - 28.06.2011, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Músíkölsku mennirnir Pétur Þór
Benediktsson og Einar Tönsberg,
betur þekktir sem Pétur Ben og
Eberg, eru tvö stór nöfn í íslenskri
tónlist. Þeir tóku upp á því að gefa
út plötu saman og hefur verkið,
Numbers Game, nú litið dagsins
ljós.
Þegar blaðamaður sló á þráðinn
til Péturs hafði hann rétt í því lent
í smá umferðaróhappi. Hann lét
það þó ekki á sig fá og var til í smá
spjall.
– Hvernig kom það til að þið fór-
uð að gera plötu saman?
„Við kynntumst í lengsta sánd-
tjekki sögunnar. Við vorum á Air-
waves, ég man ekki, kannski 2005
eða eitthvað og vorum að spila á
sama stað og José Gonzales. Hann
tók sér svo góðan tíma í sánd-
tjékkið að við gáfum okkur tíma til
að kynnast og svo kom upp ákveðið
verkefni sem ég átti að vinna með
einhverjum og þá datt mér hann í
hug, sem varð síðan ekki að neinu.
En við héldum bara áfram því það
gekk svo vel og það kom plata úr
því samstarfi“.
Félagarnir byrjuðu að fikta við
plötuna fyrir um tveimur árum en
á síðasta ári ákváðu þeir að klára
hana. Pétur segir það hafa verið
auðvelt verk að semja plötuna og
næstum því aðeins formsatriði að
gera lögin. „Það var rosalega auð-
velt að semja plötuna. Það kom
alltaf eitthvað upp úr hverju ein-
asta „sessjoni“ hjá okkur.“
– Getur það verið útaf því að þið
hafið jafnvel svipaðan tónlistar-
smekk?
„Já og nei. Við erum bara með
passlega ólíkar áherslur. Ég held
að á sama tíma hafi það aldrei ver-
ið neitt vandamál. Það var alltaf
mjög auðvelt að vinna með Einari.
Við eigum mjög gott skap saman.“
Allskonar kett-
ir á plötunni
Pétur hefur
unnið mikið með
Mugison í gegn-
um tíðina. Að-
spurður hvort
hann hafi sett
vin sinn á hilluna
í kjölfar þessa
samstarfs þver-
tók hann fyrir
það. „Nei, alls ekki. Ég heyrði bara
í honum fyrir 2 mínútum. Við erum
alltaf miklir vinir og svo sjanghæj-
aði ég líka Mugison að gera eitt lag
með okkur. Það koma allskonar
kettir (e. cats) þarna inn. Einar
vinnur í stúdíói sem er orðið ákveð-
ið samfélag og það kemur svolítið
af fólki þaðan við sögu á þessari
plötu.“
Áfram viðloðandi verkefni
hvor hjá öðrum
Pétur útilokar ekki frekara sam-
starf þeirra félaga enda mjög góðir
vinir. „Það er aldrei að vita. Við er-
um allavega mjög góðir vinir og
eigum örugglega eftir að gera eitt-
hvað meira og vera viðloðandi
verkefni hvor hjá öðrum í framtíð-
inni. Það get ég rétt ímyndað mér.
Síðan ætlum við bara að fylgja
þessari plötu eftir og einnig gefa
hana út erlendis“.
– Þið stefnið þá væntanlega á
tónleikaríkt sumar saman?
„Já, við erum með útgáfutónleika
í Tjarnarbíói 21. júlí og spilum síð-
an á Græna hattinum fyrir norðan
daginn eftir. Svo kemur vonandi
eitthvað gott í kjölfarið af því og
með hækkandi sól þessarar plötu.“
Vinsælir Eberg og Pétur Ben eru góðir vinir og ná vel saman. Búast má við frekara samstarfi þeirra á milli í framtíðinni.
Vinir í eilífri hljóðprufu
Pétur Ben og Eberg sameina krafta sína á plötunni Numbers Game
Ólíkar áherslur en eiga skap saman og samstarfið auðvelt og þægilegt
Sirkus Íslands setur upp fjöl-
skyldusýninguna Ö-Faktor í Tjarn-
arbíói og verður hún frumsýnd 1.
júlí. Þetta er í þriðja sinn sem sirk-
usinn setur upp sýningu, en í fyrra
fékk sýningin Sirkus Sóley góð við-
brögð og um 6.000 manns sóttu sýn-
inguna.
Sýningin er sögð í anda hæfi-
leikaþátta sem eru vinsælir í sjón-
varpi. Listamenn Ö-Faktor keppast
þar um að ná hylli dómara og
áhorfenda sinna með ýmsum sirk-
usbrögðum. Sýningin verður full af
húmor, liprum loftfimleikum,
áhættuatriðum, skrautlegum bún-
ingum þar sem einstæðar mæður
húlla, ofurhugar leika listir sínar
og blindir dansa.
Ekki X-Faktor
heldur Ö-Faktor í
Tjarnarbíói
Pétur Ben gaf út fyrstu plötu
sína, Wine For My Weakness, ár-
ið 2006 og hefur unnið með
fjölda tónlistarmanna í gegnum
tíðina, þar á meðal Bubba Mort-
hens og Ellen Kristjánsdóttur.
Eberg hefur verið með samning
erlendis í yfir áratug og hefur
tónlist hans oft og tíðum ratað í
stórar erlendar auglýsingar og
þætti. Eberg er einnig helm-
ingur dúettsins Feldberg.
Numbers Game var unnin í
Drekabælinu, Stúdíó Vofffff og
Sundlauginni. Tónlist-
armenn á borð við Mugi-
son, Sigtrygg Baldursson,
Gísla Galdur, Hildi og Mar-
íu úr hljómsveitinni Ami-
inu og fleiri koma við sögu
á plötunni. Platan inni-
heldur lagið „Come on
come over“, sem margir
kannast eflaust við úr
Nova-auglýsingum.
Gott teymi
HÆFILEIKARÍKIR
Hin árlega blúshátíð verður haldin í
Ólafsfirði í tólfta sinn dagana 30.
júní til 2. júlí. Það sem gerir þessa
hátíð frábrugðna hinum er að tvær
hljómsveitir gefa út blúsplötu þessa
daga, Blúsmenn Andreu og Beggi
Smári. Báðir þessir aðilar verða
gestir hátíðarinnar í ár. Í fyrra var
blússkóla komið á laggirnar með
stuðningi Menningarráðs Eyþings
við góðar undirtektir. Blússkólinn
verður því í boði aftur í ár, föstudag
og laugardag, og mun Andrea
Gylfa ásamt blúsmönnum sjá um
kennslu og fræðslu. Heimamenn
munu stíga á svið á fimmtudeginum
og meðal annars leika lög eftir KK
og Magga Eiríks.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blúsaður Ólafs-
fjörður býður upp
á blús í bland
Slæmi kennarinn er frábærunglingamynd. Kannski ekkiuppeldislega séð, en alveg ánvafa ef horft er á hana út frá
skemmtanagildinu. Myndin fjallar um
fullkomlega siðlausan kennara sem er
leikinn af Cameron Diaz. Hún er ein-
göngu í kennslustöðunni tímabundið á
meðan hún reddar sér peningum fyrir
brjóstastækkun og situr fyrir nýju
fórnarlambi; karlmanni með stóra
buddu til að halda uppi útgjaldamikl-
um lífsstíl hennar. Hún hefur engan
áhuga á krökkum eða vinnufélögum,
eiginlega engan áhuga á neinu nema
sjálfri sér og drekkur og dópar á
meðan hún lætur nemendur sína
horfa á bíómyndir í kennslustundum.
Eða allt þangað til hún fréttir að það
séu peningaverðlaun fyrir þann kenn-
ara hvers bekkur er hæstur á próf-
unum. Myndin fékk misjafna dóma
vestanhafs þannig að ég bjóst ekki við
miklu en hún var mun betri en ég
bjóst við. Diaz getur verið slöpp á
köflum og um miðbik myndarinnar
verður þetta frekar þreytt efni áður
en vel skrifað, klassískt formúlu-
handritið kemur með tvist sem fang-
ar athygli manns á ný. Auka-
hlutverkin eru mjög vel leikin,
sérstaklega lítil rulla Phyllis Smith
sem fer með hlutverk feitlaginnar
kennslukonu í sama skóla. Jason Se-
gel fer vel með sitt en hann hefur ver-
ið þokkalega vinsæll eftir frábæran
leik í myndinni Forgetting Sarah
Marshall. Justin Timberlake líður
ekki vel í hlutverki sínu og virðist
hafa verið valinn í það út á nafnið sitt,
en hann nær ekki að eyðileggja mikið
fyrir. Lucy Punch fer ágætlega með
sitt sem andstæða Cameron Diaz í
skólanum og á endanum harður
keppinautur um karlmann og pen-
ingaverðlaun skólans.
Það er einstaklega vel til fundið hjá
handritshöfundunum, sem eru Gene
Stupnitsky og Lee Eisenstein og eru
þekktastir fyrir aðkomu sína að The
Office, að gera kennaraheim bíó-
myndarinnar að unglingaheimi. Eng-
inn kennaranna er fullorðinn, heldur
láta þau öll eins og unglingar og öll
samskipti þeirra á milli eru á sama
plani og hjá óþroskuðum ungum
krökkum. Þetta gerir myndina mjög
aðgengilega fyrir þann aldurshóp
enda er ég ekkert viss um að myndin
sé ætluð neinum öðrum en þeim. Hún
fer líka mátulega mikið yfir strikið í
nekt og dónaskap til að kitla hlát-
urstaugar unglinga. Þótt ekki sé
hægt að mæla með henni fyrir
krakka.
Slæmur kennari en góð skemmtun
Smárabíó, Háskólabíó, Laug-
arásbíó og Borgarbíó Akureyri
Bad Teacher
bbbbn
Leikstjóri: Jake Kasdan, Leikarar:
Cameron Diaz, Jason Segel, Justin Tim-
berlake, Lucy Punch og Phyllis Smith.
92 mínútur. Bandaríkin, 2011.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Siðlaus Diaz leikur kennara sem drekkur, dópar og líkar ekki við börn.