Morgunblaðið - 29.06.2011, Page 9
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Á þetta fellst dómurinn ekki.“ Segja
má að þetta hafi verið einkunnarorð
niðurstöðukafla Héraðsdóms Suður-
lands í máli Íslandsbanka gegn hjón-
um sem tóku lán hjá bankanum í byrj-
un árs 2008 og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær. Deiluefnið
snerist um það frá hvaða tímamarki
beri að endurreikna vexti skuldabréfs
þess sem Íslandsbanki gaf út, og líkt
og fram kom í frétt um málið í gær
féllst dómurinn á kröfu bankans um
að reikna þá frá útgáfudegi.
Í forsendum dómsins er farið yfir
þau lög sem sett voru í desember síð-
astliðnum um endurúteikninginn.
Vísað er í greinargerð með frumvarp-
inu þar sem segir að ef annaðhvort
ákvæði samninga um vexti eða verð-
tryggingu eru ógildanleg á grundvelli
laganna verði að koma til heildarend-
urskoðunar og litið svo á að ekki hafi
verið samið um tiltekna vexti eða
verðtryggingu. „Er þessi regla í fullu
samræmi við þá niðurstöðu sem kom-
ist var að í dómi Hæstaréttar frá 16.
september 2010.“
Lögmaður hjónanna benti á ýmis-
legt í málflutningi sínum en dómurinn
féllst ekki á neitt. Meðal annars var
bent á að ef fallist yrði á kröfu bank-
ans reiknist í raun vanskil frá hverj-
um mánaðamótum allt til þess dags
að lánið var endurútreiknað. „Á þetta
getur dómurinn ekki fallist. Ekki er
um að ræða vanskil í hefðbundnum
skilningi þess hugtaks,“ segir í dómn-
um og vísað í lögin umræddu frá því í
desember þar sem segir: „Kröfuhafa
er jafnframt óheimilt við uppgjör [...]
að bæta við kröfuna liðum sem tengj-
ast vanskilum.“
Þá töldu hjónin að um óréttmæta
auðgun Íslandsbanka væri að ræða ef
fallist yrði á kröfur hans. „Á þetta
fellst dómurinn ekki. Um er að ræða
endurútreikning sem ekki verður
undan komist samkvæmt framan-
greindum ákvæðum laga [...] þar sem
lýst er hinum órjúfanlegu tengslum
verðtryggingar og vaxta. Ekki er um
að ræða samningsatriði milli kröfu-
hafa og skuldara, heldur mæla
ákvæði laga fyrir um endurútreikn-
inginn.“
Hvað varðar að raska á afturvirkan
hátt uppgerðum gjalddögum þá vísar
dómurinn enn í greinargerð með
frumvarpi til laga þeirra sem sam-
þykkt voru í desember. Þar segir: „Þá
var í dómi Hæstaréttar í máli 5/1953
[...] staðfest sú niðurstaða bæjarþings
Reykjavíkur að afturvirk lagasetning
væri réttlætanleg þar sem lögin væru
þáttur í margþættri tilraun til að lag-
færa fjárhagskerfi þjóðarinnar og
koma því í fastari skorður.“ Taldi
dómurinn að líkja megi þessu við það
ástand sem skapaðist haustið 2008.
Einnig vísuðu hjónin til eignarrétt-
ar sem bundinn er í stjórnarskrá og
töldu það vera í andstöðu við hana ef
lögin umræddu verði látin mæla fyrir
um eða heimila að krefjast vaxta fyrir
liðna og uppgerða tíð. „Þetta fellst
dómurinn ekki á. Ekki er um það að
ræða að eignarréttur stefndu sé
skertur að neinu leyti eða að þeim sé
gert skylt að láta af hendi eign sína.
Um er að ræða kröfuréttarsamband
sem hefur breyst efnislega fyrir til-
stilli löggjafans, en það felur ekki í sér
brot á stjórnarskrárvörðum eignar-
réttindum lánþega.“
Eftir að hafa svarað flestum ábend-
ingum lögmanns hjónanna á sama
hátt var fallist á kröfu Íslandsbanka.
Dómurinn féllst ekki
á neitt og vísaði í lögin
Morgunblaðið/Eggert
Lesið Dómurinn var í héraðsdómi.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Léttar, sumarlegar
skyrtur og blússur
St. 36-52
www.feminin.is
feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi
sími 544 2222
Opið:
mán.-fös. kl. 11-18
lau. 10-16
ÚTSALA-ÚTSALA
hefst í dag
30-40% afsláttur af nýjum vörum
50-70% af eldri vörum
Str. 38-56.
vera • Laugavegi 49
Sími 552 2020
Útsalan
er hafin
Das Auto.
3.390.000 kr.
Verð á Golf frá:
www.volkswagen.is
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Volkswagen Golf Trendline TDI
Golf sem eyðir aðeins frá 3.8l
pr. 100 km til afhendingar strax
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
Á
lfe
lg
ur
Komdu og prófaðu betri og sparneytnari bíl!
Andri Karl
andri@mbl.is
Héraðsdómur Suðurlands féllst síð-
astliðinn laugardag á gæsluvarð-
haldskröfu ríkissaksóknara yfir
karlmanni á fimmtugsaldri sem
grunaður er um gróf kynferðisbrot
gegn tveimur stjúpdætrum sínum og
vinkonu annarrar þeirrar. Úrskurð-
urinn var kærður til Hæstaréttar.
Fréttablaðið greindi fyrst frá mál-
inu í gær og sagði m.a. frá því að í
fórum mannsins hafi fundist fjöldi
ljósmynda og hreyfimynda sem mað-
urinn tók af sér og ungri stjúpdóttur
sinni. Hún var átta og níu ára þegar
ofbeldið gegn henni stóð yfir, þ.e. á
síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta
ársins 2010. Þá greindi fréttastofa
RÚV frá því í gærdag að fyrrverandi
stjúpdóttir mannsins hafi einnig
komið fram og sagt manninn hafa
brotið gegn sér þegar hún var tíu
ára, fyrir átta árum.
Maðurinn neitar sök.
Niðurstaða héraðsdóms skýr
Málið kom upp síðasta haust en
það var ekki fyrr en það var sent frá
embætti sýslumannsins á Selfossi til
ríkislögreglustjóra að farið var fram
á gæsluvarðhald. Raunar liðu átta
mánuðir frá því að rannsókn hófst
þar til maðurinn var úrskurðaður í
varðhald. Var það gert á grundvelli
almannahagsmuna enda rannsókn
málsins lokið.
Spurður um það hvers vegna ekki
var farið fram á gæsluvarðhald við
rannsókn málsins segir Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður á Selfossi:
„Niðurstaða Héraðsdóms Suður-
lands er skýr. Reynist það endanleg
niðurstaða hjá Hæstarétti er ljóst að
ég hefði átt að fara fram á gæslu-
varðhald fyrr.“ Ólafur Helgi vildi
ekki tjá sig efnislega um málið enda
sé eðlilegur vettvangur fyrir mála-
rekstur fyrir dómstólum.
Ekki náðist í Huldu Elsu Björg-
vinsdóttur, settan saksóknara. Hún
sagði í samtali við RÚV að krafa um
gæsluvarðhald hefði verið borðleggj-
andi. Tengist það mati samfélagsins
á því hvað brot teljist alvarleg og
hvaða brot teljist ekki vera það.
Í gæsluvarðhaldi vegna barnaníðs
Málið komst upp
» Á liðnu hausti upplýsti
vinkona stjúpdóttur manns-
ins, sem gisti á heimili henn-
ar, að maðurinn hefði káfað
á sér.
» Í framhaldinu hófst rann-
sókn máls og fundust upp-
tökur af barnaníði á tölvu
mannsins.
» Hann er grunaður um að
hafa brotið gegn þremur
ungum stúlkum, þar af einni
fyrir átta árum síðan.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111