Morgunblaðið - 29.06.2011, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
✝ Erla Jenna-dóttir Wiium
fæddist á Patreks-
firði 7. júlí 1930.
Hún lést á dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Ási í Hvera-
gerði 20. júní
2011.
Erla var einka-
dóttir foreldra
sinna Jenna Krist-
ins Jónssonar, f.
1.9. 1906, d. 11.1. 1982, frá
Ólafsvík og Sigfríðar Sigurð-
ardóttir frá Patreksfirði, f.
1.1. 1908, d. 23.1. 1982. For-
eldrar Erlu skildu og hún
fluttist með móður sinni til
Reykjavíkur. Jenni Kristinn
Jónsson giftist síðari eig-
inkonu sinni Svövu Sveins-
dóttur, f. 17.2. 1917, d. 31.12.
1994. Þau eignuðust saman
drenginn Erling Aldar Jenna-
son, f. 8.8. 1946. Fyrir átti
Svava dreng, Kristin Stef-
ánsson, f. 7.10. 1937.
Eiginmaður Erlu var Krist-
ján Stefánsson Wiium frá
Fagradal í Vopnafirði, f. 27.7.
1933, d. 5.11.
2001. Saman eign-
uðust þau fimm
dætur, en þær eru:
Sigfríður Inga, f.
1.1. 1954, Margrét
Sigrún, f. 31.12.
1954, Stefanía
Gunnlaug, f. 5.7.
1956, Jenný Hug-
rún, f. 5.2. 1964 og
Elín Ósk, f. 11.11.
1966. Erla átti fyr-
ir tvo drengi Vilhelm Gunnar,
f. 14.12. 1947, og Ásbjörn
Ragnar, f. 1.4. 1949. Faðir
þeirra var Kristinn Vilhelms-
son, f. 29.4. 1929, d. 27.7.
2004. Erla átti 12 barnabörn
og 12 langömmubörn.
Erla Jennadóttir Wiium
starfaði sem húsmóðir og
ræstir meðan börnin voru að
vaxa úr grasi. En síðustu 18 ár
starfsferils síns starfaði hún
sem bókavörður á Heilsustofn-
un NLFI í Hveragerði.
Útför Erlu fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag, 29.
júní 2011, og hefst athöfnin kl.
13.30.
Móðir mín kæra er farin á braut,
til mætari ljósheima kynna.
Hún þurfti að losna við sjúkdóm og þraut,
og föður minn þekka að finna.
Vönduð er sálin, velvildin mest,
vinkona, móðir og amma.
Minningin mæta í hjartanu fest,
ég elska þig, ástkæra mamma.
Þakka þér kærleikann, hjartalag hlýtt,
af gæsku þú gafst yl og hlýju.
í heimi guðsenglanna hafðu það blítt,
uns hittumst við aftur að nýju.
(Höf. ók.)
Guð blessi þig, elsku mamma.
Þínar dætur,
Elín og Jenný.
Elsku mamma.
Það er sárt til þess að hugsa að
leiðir okkar skilji. En það, sem er
gott á sorgarstund, er að við vor-
um alltaf góðir vinir og náðum
vel saman. Þegar við hugsum til
þín þá er brosið þitt, kærleikur-
inn og þakklæti það fyrsta sem
kemur upp í hugann.
Það var alltaf stutt í þitt fal-
lega bros og þú hafðir mikla
kímni. Við höfum upplifað margt
skemmtilegt og við höfum hlegið
mikið saman. Oft var eldhús-
krókurinn þétt setinn fram á
rauða morgunn. Það er góður
eiginleiki að geta notað kímnina,
ekki síst ef á móti blæs.
Þig einkenndi líka glöð og blíð
augu sem skildu og sáu líðan ann-
arra án þess að orð þyrftu að
fylgja. Þú varst næm á fólk og
barst með þér mikinn kærleik.
Þú hefur reynst okkur yndisleg
móðir. Þú elskaðir barnabörnin
þín og langömmubörnin mikið.
Þeim þótt mikið til þess koma að
koma í heimsókn til ykkar
„ömmu og afa á Hveramörkina“.
Þau vildu gjarnan hjálpa til bæði
inni og úti. Svo að verki loknu var
sest í eldhúskrókinn til að fá sér
bita. Þá var kryddkakan hennar
ömmu það besta sem á borð kom.
Börnunum fannst alltaf að amma
og afi hefðu svo mikinn tíma. Það
lá ekkert á! Þau hafa fengið með
sér í veganesti kærleik og virð-
ingu fyrir fjölskyldunni.
Heimilið var þér alltaf mjög
kært. Þú varst nútímaleg í þér og
það var ekki svo sjaldan þegar
við komum heim úr skólanum, að
þú varst búin að mála og gera
fínt. Það var líka oft bakað svo
ilmurinn mætti okkur í hlaðinu,
vinum okkar til mikillar gleði.
Þú gerðir svo margt gott og
sýndir fólki kærleika og virðingu.
Þetta sýndi sig oft í fallegum
kveðjum sem þér bárust frá dval-
argestum HNLFÍ í Hveragerði.
Þar starfaðir þú í 18 ár sem bóka-
vörður. Þessar notalegu kveðjur
fengum við stelpurnar oft að lesa
og í gegnum þær sáum við að þú
hafðir gefið gestunum tíma og
upplyftingu sem gerði þeirra
daga ríkari og betri. Á þessu
sviði varst þú snillingur, elsku
mamma. Þú hlakkaðir alltaf til að
fara að vinna og huga að bókum
og góðu fólki. Heim komst þú
með nýja fyllingu í lífið og ýttir
að okkur góðu lestrarefni.
Þú hafðir líka mjög gaman af
því að ferðast. Þið pabbi voruð
dugleg að ferðast bæði innan-
lands og til okkar í Noregi og í
Englandi. Þú hefðir gjarnan vilj-
að getað haldið ferðalögunum
áfram. En því miður veiktist þú í
fótum og áttir að lokum mjög erf-
itt með gang. En þú lifðir á góð-
um minningum ferðalaganna og
gafst aldrei upp þann draum að
þau ættu eftir að verða fleiri.
Lífsreynslu þinni og lærdómi
hefur þú verið dugleg að koma á
framfæri við okkur. „Stelpur
mínar, lofið þið mér því að fara
vel með fæturna og hvíla ykkur
vel“.
Þú varst alltaf drífandi kona
og það átti ekki vel við þig að
þurfa að vera upp á aðra komin,
nokkuð sem kom oft fram eftir að
þú misstir heilsu og dvaldir á
hjúkrunarheimilinu Ási í Hvera-
gerði. Þar starfaði yndislegt fólk
sem annaðist þig af alúð. Og eiga
þau þakkir skilið fyrir góða
umönnun.
Elsku mamma, minning þín
mun lifa í hjörtum okkar allra um
ókomna tíð.
Kveðja.
Inga, Margrét, Stefanía.
Elsku Erla mamma.
Ég veit að það var erfitt fyrir
þig að gefa mig frá þér nýfædd-
an, en ég veit líka að þú áttir ekki
annarra kosta völ. Það var okkar
beggja lán að ég eignaðist ynd-
islega kjörforeldra sem frá upp-
hafi vildu að ég væri meðvitaður
um uppruna minn. Þau, ásamt
Jenna afa, sáu til þess að þú gast
fylgst með mér úr fjarlægð
fyrstu árin. Síðar kynntist ég
Villa bró og stuttu seinna fór ég
að heimsækja ykkur stóru fjöl-
skylduna í Hveramörk þar sem
ég eignaðist allt í einu fimm syst-
ur. Líf þitt var ekki alltaf dans á
rósum en þú, með þitt stóra
hjarta, tókst á við það af æðru-
leysi og umhyggju fyrir þínum.
Það var mér mikils virði að fá
að kynnast þér og eignast þig
sem vin, fyrir það vil ég þakka.
Ásbjörn Ragnar.
Elsku amma. Það er alltaf sárt
þegar góðar manneskjur hverfa
úr lífi manns. Minning um góð-
hjartaða og yndislega ömmu sem
vildi allt fyrir fólkið sitt gera lifir
þó áfram og mun gera um
ókomna tíð.
Þegar ég hugsa til baka á ég
margar hlýjar minningar um
samveru okkar. Þú tókst alltaf á
móti mér, og barnabörnunum
þínum öllum, opnum örmum. Ég
minnist þess að hafa komið til
ykkar afa, þá sérstaklega á föstu-
dögum, og gist hjá ykkur. Þá
skreið ég oftar en ekki upp í afa-
stól eftir matinn og horfði á „fjöl-
skyldumynd“ með ykkur. Að
henni lokinni „skreið maður upp í
holu“, eins og þú orðaðir nætur-
svefninn svo skemmtilega. Ég
man svo vel eftir því að hafa sofið
vært á eggjabakkadýnu, en svo-
leiðis hafði ég hvergi séð nema
hjá ykkur afa.
Ég er þakklátur fyrir allan
þann tíma sem ég fékk að eyða
með þér. Ég mun alltaf minnast
tímans þegar ég kíkti til þín að
loknum skóladögum. Í marga
vetur rölti ég til þín úr skólanum
og eyddi með þér fjölmörgum
gæðastundum sem ég mun aldrei
gleyma. Fyrir þær er ég þakk-
látur.
Það eru litlu hlutirnir sem
maður minnist oft svo heitt. Áður
en fæturnir fóru að gefa sig
minnist ég þess að hafa verið
kallaður inn eftir að hafa tínt
orma eða eitthvað álíka gagnlegt
í gróðurhúsinu úti í garði, með
afa. Margoft beið manns volg,
kringlótt kryddkaka sem þú bak-
aðir með þínum sérstaka brag,
hún var best! Þó að árin síðan þá
séu allnokkur, þá hef ég hvergi
nokkurs staðar fundið samsvar-
andi kræsingar sem talist geta
veitt nokkra samkeppni.
Þrátt fyrir að heilsu þinni
hrakaði verulega undir það síð-
asta, þá sást alltaf vel hversu
sterk persóna þú varst. Brostir
alltaf og gerðir góðlátlegt grín að
þér sjálfri og fólkinu í kringum
þig.
Ég gæti eflaust rifjað upp svo
mikið meira af unaðslegum minn-
ingum, en í stað þess að setja
þær á prent mun ég geyma þær í
mínum innstu hjartarótum alla
mína tíð. Takk fyrir allt elsku
amma.
Þinn
Jan Hinrik.
Elsku, elsku amma.
Svo margs að minnast og svo
margt sem þú gafst okkur. Þú átt
stóran og sérstakan stað í hjört-
um okkar – engin er eins og þú.
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Prýðið þér lengi landið það,
sem lifandi guð hefur fundið stað
ástarsælan, því ástin hans
allstaðar fyllir þarfir manns.
Vissi ég áður voruð þér,
vallarstjörnur um breiða grund,
fegurstu leiðarljósin mér.
Lék ég að yður marga stund.
Nú hef ég sjóinn séð um hríð
og sílalætin smá og tíð. –
Munurinn raunar enginn er,
því allt um lífið vitni ber.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
(Jónas Hallgrímsson.)
Ástarkveðja,
Erla og Jakob.
Marga góða sögu amma sagði mér,
sögu um það er hún og aðrir lifðu hér.
Alltaf var hún amma mín svo ósköp væn
og í bréfi sendi þessa bæn:
Vonir þínar rætist, kæri vinur minn,
vertu alltaf sanni góði drengurinn.
Þó í lífsins straumi bjáti eitthvað á,
ákveðinn og sterkur sértu þá.
Allar góðar vættir lýsi veginn þinn,
verndi og blessi elskulega drenginn minn.
Gefi lán og yndi hvert ógengið spor,
gæfusömum vini hug og þor
(Jenni Jóns.)
„Guð geymi þig og englarnir
passi,“ elsku amma.
Þínir ömmustrákar,
Alexander Freyr
og Hlynur Snær.
Erla Jennadóttir
Wiium
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJÖRG JÓHANNSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 13,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 30. júní kl. 13.00.
Þeir sem vilja minnast hennar láti Rauða krossinn eða
Minningarsjóð Hrafnistu njóta þess.
Jóhann Ólafsson, Jeanne Miller,
Sigrún Ólafsdóttir, Helgi Bergþórsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RAGNHILDUR ODDNÝ
GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Hraunbæ 103,
áður Hábæ 33,
andaðist í Holtsbúð fimmtudaginn 23. júní.
Jarðsungið verður frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 5. júlí kl. 13.00.
Jónína Haraldsdóttir, Vilhjálmur Albertsson,
Stefanía Haraldsdóttir, Halldór Ármannsson,
Sigurður Már Haraldsson, Rósa Friðriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Yndislegi drengurinn okkar, bróðir og barna-
barn,
SINDRI DAGUR GARÐARSSON,
Jörundarholti 202,
Akranesi,
lést á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins
að morgni föstudagsins 24. júní.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 5. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarreikning
nr. 552-14-601309, kt. 111177-5709.
Garðar Garðarsson, Guðleif Hallgrímsdóttir,
Guðmundur Gestur Garðarsson,
Dagný Björk Garðarsdóttir,
Hallgrímur Hafliðason, Sigurbjörg Þórðardóttir,
Dagný Guðmundsdóttir.
Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
MARÍA FINNSDÓTTIR
leikskólakennari,
lést sunnudaginn 26. júní.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 5. júlí kl. 13.00.
Ragnar Hólmarsson,
Svavar Ragnarsson, Lillian Ragnarsson,
Finnur Ragnarsson, Harpa Dögg Kjartansdóttir,
Kári Hólmar Ragnarsson, Elín Ósk Helgadóttir
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, dóttir og
systir,
BRYNHILDUR INGADÓTTIR
lífeindafræðingur,
til heimilis að Fjallalind 88,
Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi föstudaginn 24. júní, verður
jarðsungin frá Lindakirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins
eða líknardeild Landspítalans.
Þorkell L. Magnússon,
Margrét Stefanía Þorkelsdóttir,
Guðrún Þorkelsdóttir,
Friðrik Ó. Þorkelsson,
Ingi Kristinsson, Hildur Þórisdóttir,
Þórir Ingason, Þorbjörg Karlsdóttir,
Kristinn Ingason, Bergdís H. Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
SKARPHÉÐINN SIGURÐSSON,
Úlfsbæ,
Bárðardal,
varð bráðkvaddur sunnudaginn 26. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Herbertsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
MARGRÉT KLARA BERGSDÓTTIR,
Hrauntúni 4,
Vestmannaeyjum,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
miðvikudaginn 22. júní, verður jarðsungin frá Landakirkju
Vestmannaeyjum laugardaginn 2. júlí kl. 11.00.
Hjartans þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestmanna-
eyja fyrir frábæra umönnun og viðmót.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Kvenfélagið Líkn.
Birgir Símonarson,
Elva Björk Birgisdóttir,
Jóhanna Birgisdóttir,
Rúnar Þór Birgisson, Íris Pálsdóttir
og barnabörn.
✝
Minn elskulegi eiginmaður og besti vinur,
sonur, bróðir og mágur,
JÓHANNES ÁGÚST STEFÁNSSON,
Foldahrauni 42 D,
Vestmannaeyjum,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmanna-
eyja fimmtudaginn 23. júní, verður jarðsung-
inn frá Landakirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta MS-félagið
njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Rósa Friðjónsdóttir.