Morgunblaðið - 29.06.2011, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
✝ Einar ÓlafsStefánsson
fæddist í Hafn-
arfirði 22. sept-
ember 1925. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 23. júní
2011.
Foreldrar hans
voru Kristín Sig-
urðardóttir,
húsfrú, f. 28. ágúst
1893 í Miðhúsum í Hvolhreppi,
d. 21. mars 1962, og Stefán Jó-
hann Jóhannsson, bílstjór-
akennari og bifreiðasali, f. 22.
júní 1896 á Gunnsteinsstöðum
í Langadal, d. 27. júlí 1963.
Hálfsystkin Einars, börn Krist-
ínar og fyrri manns hennar
Einars Ólafssonar, eru: Ólafur
G. Einarsson, f. 25. apríl 1913,
d. 14. september 1974, Þórunn
Einarsdóttir, f. 24. mars 1916,
d. 9. desember 1978 og Mar-
grét G. Einarsdóttir, f. 20. maí
1918, d. 18. mars 2009. Al-
systkin Einars eru: Ingibjörg,
f. 20. ágúst 1923, d. 10. maí
1998 og Friðrik Jóhann, f. 9.
desember 1927. Einar kvæntist
1. nóvember 1952 Ástu Krist-
jánsdóttur, fulltrúa, f. 1. sept-
ember 1931. Foreldrar hennar
voru Sigríður Einarsdóttir,
Þorkelsdóttur er Guðrún
Berglind Einarsdóttir, sjúkra-
liði á Heilbrigðisstofnun Suð-
urlands, f. 9. júlí 1949. Einar
ólst upp í Reykjavík og lauk
sveinsprófi í húsgagnabólstrun
með ágætiseinkunn árið 1947.
Kennari hans var Ásgrímur P.
Lúðvíksson. Einar fékk meist-
araréttindi í iðn sinni 1950.
Árið 1948 starfaði Einar hjá
Nordiska kompaniet í Nyköp-
ing í Svíþjóð. Hann nýtti sum-
arlokun fyrirtækisins til þess
að kynnast landi og þjóð og
ferðast hundruð kílómetra á
reiðhjóli með starfsfélaga sín-
um Eggerti Ólafssyni. Einar
stofnaði eigið verkstæði með
Sigsteini Sigurbergssyni á
Vitastíg árið 1951, verkstæðið
fluttist síðan á Njálsgötu 49 og
að lokum á Laugarnesveg 98,
þar sem Einar rak verkstæðið
einn. Einar vann jafnt fyrir
einstaklinga sem fyrirtæki og
stofnanir, m.a. Eimskip, Há-
skóla Íslands og Þjóðminja-
safnið. Einar var þekktur fyrir
fagmennsku og vönduð vinnu-
brögð og sögðu kunnugir að
hendur hans gætu gert hvern
gamlan stól að listaverki.
Margir heimsóttu verkstæðið í
miðborg Reykjavíkur og á
Laugarnesveginn, mest í við-
skiptaerindum með húsgögn
en einnig til þess að þiggja
kaffi og vínarbrauð og spjalla
um daginn og veginn.
Útför Einars fer fram frá
Áskirkju í dag, 29. júní 2011,
og hefst athöfnin kl. 13.
húsfrú, f. 12. des-
ember 1899 í
Reykjavík, d. 10.
júlí 1970, og Krist-
ján Ebenezersson,
sjómaður og beyk-
ir, f. 27. apríl 1893
í Þernuvík, Ög-
urhreppi, d. 23.
júlí 1972. Börn
Einars og Ástu
eru: 1) Stefán, sér-
fræðingur í um-
hverfisráðuneytinu, f. 7. apríl
1953. Eiginkona hans er Inga
Þórsdóttir, prófessor við Há-
skóla Íslands. Börn þeirra eru:
Ásta, lögfræðingur, f. 1978,
Þór, menntaskólanemi, f. 1992
og Kolbeinn, mennta-
skólanemi, f. 1994. 2) Sigríður,
sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, f. 4. júní 1956.
Eiginmaður hennar er Þorgeir
Kristjánsson, bifreiðastjóri hjá
MS Selfossi. Börn þeirra eru:
a) Kristján Eldjárn, búfræð-
ingur og rafveituvirki, f. 1978.
Sambýliskona Kristjáns Eld-
járns er Rósa Sif Jónsdóttir,
skrifstofumaður. Sonur þeirra
er Þorgeir, f. 2010. b) Einar,
húsasmiður, f. 1982. Sambýlis-
kona hans er Steinunn Erla
Kolbeinsdóttir, lögfræðingur.
Dóttir Einars og Guðrúnar
Hörpu þinnar ljúfa lag
lengi finn í muna.
Því ég minnist þín í dag,
þökk fyrir kynninguna.
(ÁK)
Við fráfall afa rifjast upp
margar minningar um góðan
mann og því ákváðum við
bræðurnir, á Selfossi, að setjast
niður saman og minnast hans í
nokkrum orðum.
Þegar við vorum litlir strák-
ar áttum við gleðistundir hjá
afa og ömmu. Það var alltaf
stutt í glettnina hjá afa og þá
flugu gjarnan á milli okkar
brandarar og önnur gamanyrði,
stundum var gengið helst til of
langt að mati ömmu ef húm-
orinn varð of svartur. Afa
heimsóttum við stundum á
bólstrunarverkstæðið hans inni
á Laugarnesvegi á meðan
mamma útréttaði í Reykjavík,
þessar stundir voru okkur
bræðrum ógleymanlegar. Í
þessum heimsóknum okkar
rölti afi oft með okkur í næstu
sjoppu og keypti handa okkur
Leo-súkkulaði og litla kók í
gleri sem stundum fylgdi lakkr-
ísrör.
Afi var mikill sælkeri og hjá
þeim afa og ömmu var yfirleitt
alltaf boðið upp á kökur og
annað sætabrauð með kaffinu.
Ef afi hafði farið út í bakarí þá
spurði hann okkur að því hvort
okkur fyndist kaffimeðlætið
ekki gott, ávallt voru svör okk-
ar bræðra jákvæð, þá brosti afi
og sagði að það væri vegna
þess að það væri svo vel keypt.
Hjá afa og ömmu fengum við
líka alltaf eftirrétt ef við borð-
uðum hádegis- eða kvöldmat
hjá þeim.
Eftir matinn spurði afi
ömmu að því hvað væri í graut,
en afi kallaði eftirréttinn alltaf
graut, sama hvort það var ís
eða annað. Þegar við vorum hjá
afa og ömmu í Reykjavík var
stundum farið með okkur í
sund. Í Laugardalslauginni
þekkti afi hvern einasta mann,
fannst okkur, en hann var þar
tíður gestur. Það var eins þeg-
ar við fórum í Hagkaup, afi
heilsaði nánast öllum og spjall-
aði við suma. Við bræður héld-
um að afi hlyti að þekkja alla í
Reykjavík. Á sumrin fórum við
stundum með afa og ömmu í
bústaðinn í Fljótshlíðinni, þar
gerðu afi og amma ýmislegt
með okkur strákunum. Við
kíktum eftir berjum niðri á
Markarfljótsaurum, veiddum í
Bleiksánni, fórum í gönguferðir
og margt fleira. Í hlíðinni átt-
um við margar góðar stundir
með afa og ömmu.
Afi var áhugasamur um það
sem við höfðum fyrir stafni
hverju sinni. Hann fylgdist vel
með hvernig okkur gekk í námi
og í íþróttum. Hin seinni ár
spurði hann okkur alltaf út í
ferðalög þegar við hittumst og
hvort við ætluðum að fara á
eitthvað flakk eins og hann orð-
aði það. Afi hafði mikinn áhuga
á ferðalögum og fannst gaman
að fara til útlanda. Við gætum
rifjað upp margar fleiri minn-
ingar um hann afa okkar en lát-
um staðar numið hér. Elsku afi,
takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við höfum átt, þú munt
ávallt eiga stað í hjörtum okk-
ar.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Kristján Eldjárn og
Einar Þorgeirssynir.
Einar Ó. Stefánsson hús-
gagnabólstrari er borinn til
grafar í dag, en hann lést hinn
23.júní, þegar sól var í hádeg-
isstað. Hann sofnaði inn í sól-
skinið. Hann hafði hætt störf-
um á verkstæði sínu við
Laugarnesveg fyrir nokkrum
árum, þegar hann taldi, að ellin
færi að láta á sér kræla.
Einar var í hópi hinna hóg-
væru og sístarfandi iðnaðar-
manna, sem um langt skeið
hafa myndað fylkingu sér-
menntaðra og sérþjálfaðra
manna, sem hafa treyst sam-
félagið og tryggt að hér á landi
sé unnið með réttum aðferðum
og af smekkvísi. Hann lauk iðn-
námi hér í Reykjavík, meistari
hans var Ásgrímur P. Lúðvíks-
son.
Einar hlaut meistararéttindi
og vann um skeið í Svíþjóð. Síð-
ar rak hann verkstæði í
Reykjavík, fyrst með Sigsteini
Sigurbergssyni og seinna á eig-
in vegum. Verkstæðið var fyrst
við Vitastíg, svo við Njálsgötu
og loks við Laugarnesveg. Ein-
ar naut mikils trausts og hafði
oft samninga við stór fyrirtæki,
sem þurftu að hafa náið eftirlit
með húsgögnum sínum og láta
halda þeim í hinu besta
ástandi. Einstaklingar leituðu
einnig til hans, ekki síst til að
endurgera gamla vandaða hluti
og tryggja sem best samræmi í
efni og litum.
Höfundur þessara kveðju-
orða þekkti hannyrðakonu í
gamla miðbænum, sem þurfti
alloft að fá púða og sessur sett-
ar upp, sem svo var kallað og
kom þá ekki annað til greina
en að skipta við Einar.
Einar ólst upp í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Kristín
Sigurðardóttir húsfrú og Stef-
án Jóhann Jóhannsson bílstjór-
akennari og bifreiðasali í Hafn-
arfirði og Reykjavík. Kristín
var fædd í Miðhúsum í Hvol-
hreppi og Stefán á Gunnsteins-
stöðum í Langadal. Nánir ætt-
menn Einars voru margir, því
að systkini hans voru fimm.
Hann var gæfumaður í einkalífi
sínu. Hann kvæntist hinni
ágætustu konu, Ástu Kristjáns-
dóttur, Ebeneserssonar frá
Þernuvík í Mjóafirði við Ísa-
fjarðardjúp. Voru þau einstak-
lega samhent og höfðu góð
áhrif í kringum sig. Þau voru
áhugasöm um heilbrigða lífs-
hætti og stunduðu sund dag-
lega árum saman. Þau lögðu
stund á gönguferðir með vina-
hópi um Reykjavík og nágrenni
og lengri ferðir víða um land.
Enda unnu þau fegurð lands
síns og náttúru. Þess nutu þau
í ríkum mæli í áratugi er þau
döldust í sumarbústað sínum í
landi Háamúla í Fljótshlíð. Þar
réð fegurðin ríkjum hvert sem
litið var.
Einar og Ásta ferðuðust
einnig um önnur lönd. Hann
naut þess nú í vor að komast til
Spánar ásamt Ástu, en veiktist
þar.
Höfundur þessara minning-
arorða þekkti Einar í hartnær
fjörutíu ár vegna fjölskyldu-
tengsla. Hann var hvers manns
hugljúfi. Það og sameiginlegur
áhugi okkar á mönnum og mál-
efnum í Reykjavík þá rúmlega
átta áratugi sem við höfum
verið höfuðborgarbúar, gerði
öll okkar samskipti ánægjuleg
og bætti enn við þá gleði að
sameiginlegir afkomendur okk-
ar gáfu sig að gömlu körlunum.
Með lífi sínu og starfi gaf Ein-
ar unga fólkinu sínu gott for-
dæmi. Minningarnar um hann
munu hér eftir sem hingað til
auka trúna á gildi þess að eiga
tengsl við gott fólk. Blessuð sé
minning hans.
Þór Vilhjálmsson.
Heima hjá mér standa þau
og eru notuð alla daga, hús-
gögn sem Einar afi minn lagaði
og gerði falleg. Nettur stóll
sem var hálfgert brak áður en
afi kippti honum með sér, kom
aftur undurfagur, með rauð-
röndótt fínlegt áklæði við
glansandi dökkan viðinn. Afi
tengist kaffilykt og hádegis-
fréttum, í frumbernsku minni
þegar ég var á hverjum degi
hjá ömmu. Ég sá hann vinna
þegar ég var lítil. Þá sat ég við
saumavélina sem var gömul en
á hana mátti sauma hvað sem
var. Þaðan horfði ég á hann
líma, negla og hefta, pússa,
nota pensil og blýant. Hann var
nákvæmur og vann án þess að
hika. Brosti og sýndi mér að
það mátti hitta ljósaperu með
heftibyssu, af nokkuð löngu
færi, þannig að small í. Seinna
tók ég eftir höndum hans, og að
hann hafði afar næmt auga fyr-
ir fegurðinni. Hann keyrði bíl
af sömu leikni og hann gerði
aðra hluti. Hann fór oft með
okkur austur, inn fyrir Miðhús
og Stórólfshvol í Fljótshlíð, þar
sem mamma hans fæddist og
ólst upp.
Við fórum eftir gamla Fljóts-
hlíðarveginum, í bústaðinn í
miðri grösugri brekkunni. Ef
ég væri sagnfræðingur sem
hefði áhuga á sögu Reykjavíkur
á síðustu öld myndi ég sjá eftir
þekkingunni á fólki, húsum,
stígum og strætum, sem glatast
þegar menn eins og afi deyja.
Mér skilst að pabba hans hafi
einhvern tíma boðist að kaupa
húsnæði, en heldur viljað
leigja, og af þessum sökum
fluttu þau oft. Afi virtist muna
hverjir höfðu búið í flestum
húsum og hvað hafði á daga
þeirra drifið. Hann sagði helst
sögurnar sem skemmtu okkur.
Hann lýsti því þegar ítölsku
flugmennirnir komu og vanga-
veltum krakkanna í götunni um
tengsl þessara manna við barn-
ið sem fæddist um svipað leyti í
næsta húsi.
Minntist á hestafólk sem áði
á Hlemmi, vínarbrauð sem
fengust, og ég held að hann
hafi munað hvernig húsin voru
á litinn um árið 1930. Að eigin
sögn var hann svo þægur að
þegar hann fór út að leika sér
gekk hann fram og aftur fyrir
utan eldhúsgluggann hjá
mömmu sinni. Vegna þess að
ég heyrði hann stundum tala
um hana, er mér ljóst að það er
eitthvað til í þessu. – Og eld-
húsin hennar, þau voru í húsum
við Sólvallagötu og Grjótagötu,
Lindargötu og Ránargötu,
Frakkastíg, Grettisgötu og
fleiri götur í borginni.
Í staðinn fyrir að gráta
þekkinguna sem hverfur á ég
eftir að minnast hans með gleði
og sakna þess að geta ekki
drukkið með honum kaffi í eld-
húsinu, eða úti í sólinni, eins og
einhvern dag síðasta haust,
þegar við sátum á svölunum og
létum sólina skína framan í
okkur. Við ræddum eitthvað,
kannski sundlaugar, eða hjóla-
ferð kringum Vänern. Einhvern
tíma ræddum við jafnvel um
guð, og ég, unglingurinn, fékk
svör sem ég tók mark á. Ég
minnist mildi og vandvirkni,
léttleikans og ástarinnar hans
og ömmu. Á síðustu dögum
hans voru þau ástfangin eins og
alltaf, og honum tókst enn að
skemmta okkur hinum. Svo
kvaddi hann, daginn fyrir Jóns-
messunótt. Ég sé hann fyrir
mér í sumarnóttinni, þar sem
bjartar álfkonur fylgja honum.
Hann hefur mætt þeim
óhræddur, heilsað kurteislega
og sagt eitthvað sem kom þeim
til að hlæja.
Ásta.
Einar Ólafs
Stefánsson
Elsku Dídí langamma, það er
erfitt að vita það að þú sért dáin.
Þú varst alltaf svo glöð og kát og
góð við alla og það var svo gott að
koma í heimsókn til þín, það var
alltaf eittvað gott á boðstólum og
svo var auðvitað skál með nammi
í, svona fyrir okkur yngri kyn-
slóðina.
Það var svo gaman að sjá þig
sitja með hann Kol og lauma upp
í hann ýmsu góðgæti, þú og Kolur
voruð bestu vinir og við vitum að
Kolur saknar þín líka alveg eins
og við. Það verður skrýtið að geta
Sigríður Hjálmars-
dóttir Diego
✝ SigríðurHjálm-
arsdóttir Diego
fæddist í Unuhúsi
í Reykjavík 30.
júní 1920. Hún
lést að Seljahlíð
15. júní 2011.
Sigríður var
jarðsungin frá
Laugarneskirkju
23. júní 2011.
ekki komið við hjá
þér eftir skóla í vet-
ur. Við viljum kveðja
þig með broti af
uppáhalds-sálmin-
um þínum.
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið
til hjálpar hverjum hal og
drós,
sem hefur villst af leið.
Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.
Ó, faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag,
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
(Matthías Jochumsson)
Guð geymi þig.
Íris Lind Sveinsdóttir,
Kristján Páll
Theodórsson og Sigríður
Ásta Theodórsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ODDNÝ JÓNSDÓTTIR,
áður Sæfelli,
Seltjarnarnesi,
sem lést þriðjudaginn 14. júní, verður
jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn
1. júlí kl. 15.00.
Guðni Sigþórsson, Helga Guðmundsdóttir,
Guðrún J. Sigþórsdóttir, Guðmundur Ingi Jónsson,
Sigþóra O. Sigþórsdóttir, Brynjar Sigtryggsson,
Helga Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Föðursystir okkar,
RAGNHEIÐUR HELGA VIGFÚSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Fossvog sunnu-
daginn 19. júní.
Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík
föstudaginn 1. júlí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dísa Sigfúsdóttir,
Inga Jóna Sigfúsdóttir,
Helgi Vigfús Karlsson,
Lárus Jón Karlsson,
Hallur Ólafur Karlsson,
Þorgeir Bergsson,
Halla Bergsdóttir.
✝
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HAFLIÐI ÞÓRÐUR MAGNÚSSON
rithöfundur
frá Bíldudal,
lést á heimili sínu á Selfossi laugardaginn
25. júní.
Minningarathöfn fer fram í Laugardælakirkju fimmtudaginn
30. júní kl. 11.00.
Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 2. júlí kl. 16.00.
Eva Þórarinsdóttir,
Björk Hafliðadóttir, Magnús B. Óskarsson,
Sóldögg Hafliðadóttir, Jónatan Hertel,
Jóna Vigdís Evudóttir, Sigþór Þórarinsson,
Una Rós Evudóttir
og barnabörn.
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir