Morgunblaðið - 29.06.2011, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
Sudoku
Frumstig
4 1 9 8
9 8 6 1
1 3 2
3 6
5 8 2
2 4 5
6 8
5 3 1
9
7 4 1 2 6
8
4 7
8 4
1 7 9
8 6 7 1 4 5
1 5 6
9 2 8
9 7 4
4 3
6 2
4 2 9 6
8 3
7 1
8 5 2 6
3 6 9
5
3 7 2 5 9 1 4 6 8
8 9 6 4 7 2 1 3 5
4 5 1 8 6 3 9 7 2
7 2 8 6 5 4 3 1 9
1 4 5 9 3 7 2 8 6
9 6 3 1 2 8 5 4 7
5 8 4 7 1 9 6 2 3
2 1 9 3 8 6 7 5 4
6 3 7 2 4 5 8 9 1
7 8 5 2 3 6 4 9 1
1 3 9 8 5 4 6 7 2
6 2 4 7 9 1 3 8 5
9 5 6 4 1 3 7 2 8
2 7 1 9 6 8 5 4 3
8 4 3 5 7 2 1 6 9
4 9 7 1 2 5 8 3 6
5 6 2 3 8 7 9 1 4
3 1 8 6 4 9 2 5 7
1 9 6 8 5 7 3 4 2
8 3 4 1 6 2 7 9 5
2 5 7 9 4 3 6 1 8
7 2 1 5 8 9 4 6 3
5 6 9 2 3 4 1 8 7
3 4 8 7 1 6 2 5 9
9 1 3 4 7 5 8 2 6
6 8 5 3 2 1 9 7 4
4 7 2 6 9 8 5 3 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 29. júní,
180. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Víkverji las fyrir skömmu ævi-sögu Pols Pots, hins broshýra
þjóðarmorðingja sem leiddi Kamb-
ódíumenn (í glötun) á árunum 1976-
1979. Sú bók er löng og ítarleg og
höfundurinn, Philip Short, kemst
mjög nálægt viðfangsefninu með
viðtölum við háttsetta menn í stjórn-
kerfi rauðu kmeranna. Um leið og
höfundur gætir hlutleysis eftir
fremsta megni og hefur heiðarlega
nálgun við efnið er bókin of fjarlæg
þeim harmleik sem þar varð. Langir
kaflar fjalla um stöðu Kambódíu í al-
þjóðakerfinu og sturlaða hugmynda-
fræði kmeranna, en líðan fólks
gleymist langtímum saman.
Eftir innrás Víetnama í landið árið
1979 þegar Pol hrekst aftur frá
Phnom Penh út í skóg er mikið
fjallað um samskiptaleiðir og skipt-
ingu landsvæða. Eftir langa mæðu
er svo minnst á hörmulegar að-
stæður liðsmanna Pols og hnýtt við:
„Cannibalism was rampant.“ Á ís-
lensku: „Mannát var hömlulaust.“
Vissulega má segja að ekki þurfi að
eyða mörgum orðum í lífsgæði fólks
þegar þau eru svona hörmuleg, les-
andanum verði fullkunnugt um að-
stæðurnar af stuttum athugasemd-
um. En það er röng nálgun. Maður
vill jú vita meira og bókin er þrátt
fyrir allt ævisaga og ætti því að hafa
manneskjur í forgrunni.
Þar að auki virðist höfundur hafa
lagt upp með að sýna heildstæða
mynd af Pol Pot, en hvernig er hægt
að gera það án þess að lýsa óskapn-
aðinum sem hann kallaði yfir eigin
þjóð, vissi vel af og hélt samt áfram
að framkvæma. Þetta upplegg end-
urspeglast meira að segja í undirtitli
bókarinnar: „Saga skrímslis.“
Að sama skapi er myndin af Pol
ungum skrýtin. Fyrst er hann slakur
námsmaður, áhugalaus um pólitík og
hugmyndafræði. Skyndilega rís
hann svo upp sem foringi þeirra án
útskýringa á því af hverju hann velst
í það hlutverk. Útkoman er fróðleg
og vandlega skrifuð bók, sem skilur
lesandann samt eftir án sterkra
tengsla við voðaverk Pols Pots en
ágætan og þó gloppóttan skilning á
persónunni sjálfri. Víkverji mælir
samt með henni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 eftirlátt, 8 kvelur,
9 starfið, 10 reið, 11 bælir
sig, 13 afferma, 15 gljái, 18
mynt, 21 guð, 22 skjálfi, 23
forföðurinn, 24 ungæðis-
hátt.
Lóðrétt | 2 alda, 3 eggjar, 4
gestagangur, 5 pinna, 6 fita,
7 venda, 12 greinir, 14 leðja,
15 hrogn, 16 koma í veg fyr-
ir, 17 stíf, 18 klór, 19 viljuga,
20 hófdýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 armur, 4 þokar, 7 vífni, 8 kulið, 9 tík, 11 kurt, 13 auðn,
14 eðlur
15 holl, 17 týnd, 20 óms, 22 pokar, 23 páfar, 24 rómað, 25 rýrar.
Lóðrétt: 1 atvik, 2 máfur, 3 reit, 4 þökk, 5 keldu, 6 rúðan, 10 ísl-
am, 12 tel, 13 art, 15 hópur, 16 líkum, 18 ýlfur, 19 dárar, 20
óræð, 21 spor.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Kostakona.
Norður
♠Á7
♥1062
♦K765
♣ÁG102
Vestur Austur
♠D865 ♠1092
♥DG53 ♥84
♦G108 ♦Á9432
♣75 ♣964
Suður
♠KG43
♥ÁK97
♦D
♣KD83
Suður spilar 6♣.
Í blönduðu sveitakeppninni í Pozn-
an spilaði Giorgio Duboin við Mariu
Teresu Lavazza, kaffikonuna og kost-
arann, sem hefur verið bakhjarl
ítalska landsliðsins um langt árabil.
Frú Lavazza spilar ekki oft, en hún
kann ágætlega til verka. Hér var hún
í norður og leiddi Duboin af vand-
virkni upp í laufslemmu, sem reyndar
er nokkuð hörð, en frúin er vön góðu
úrspili.
Vestur kom út með ♦G, austur tók
á ♦Á og spilaði ♥8. Duboin drap með
ás, fór síðan tvisvar inn í borð á lauf
til að trompa tvo tígla. Hann yfirdrap
þriðja trompið, tók það síðasta ásamt
♦K og henti hjörtum. Þá átti hann
heima ♠KGxx og ♥K, en vestur var
þvingaður með ♠Dxxx og ♥DG. Vest-
ur henti spaða og Duboin trompaði út
drottninguna: 12 slagir.
29. júní 1919
Kona varð fyrir bifreið í
Bankastræti í Reykjavík.
„Meiddist konan svo mjög að
hún beið bana af,“ sagði Ísa-
fold. Þetta er talið fyrsta bana-
slys af bifreiðaakstri hér á
landi.
29. júní 1944
Leyndardómar Snæfellsjökuls,
skáldsaga Jules Verne, kom út
í íslenskri þýðingu, einni öld
eftir að hún var samin.
29. júní 1980
Vigdís Finnbogadóttir, 50 ára
leikhússtjóri, var kjörin forseti
Íslands. Hún hlaut 34% at-
kvæða, Guðlaugur Þorvalds-
son 32%, Albert Guðmundsson
20% og Pétur J. Thorsteinsson
14%. Vigdís var fyrsta konan í
heiminum sem kosin var þjóð-
höfðingi í lýðræðislegum kosn-
ingum. Hún var forseti í sex-
tán ár.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Þorbjörn Rúnarsson, áfangastjóri og tenór, er fer-
tugur í dag. Hann segist ætla að taka því rólega
með fjölskyldunni og fagna því að dóttir hans sé
komin af spítala. „Það verður mjög rólegur dagur
hjá mér í dag og lítið skipulagt,“ segir hann. Þor-
björn kveðst mjög ánægður með bata dóttur sinn-
ar og segir það bestu afmælisgjöfina. Þorbjörn,
sem búsettur er á Egilsstöðum, hafði áður planað
að halda upp á afmæli sitt með stórtónleikum.
Hann segist ekki vera hættur við þá, en þeir verða
haldnir í ágúst og hvetur hann alla sem verða á
Egilsstöðum á þeim tíma til að mæta.
Þorbjörn er giftur Helgu Magnúsdóttur og eiga þau tvær dætur,
þrettán og sextán ára.
Spurður hvað hann ætli sér að gera í sumar segist hann vera í óða-
önn að pakka ásamt fjölskyldunni. „Við erum að flytja á þær forn-
frægu slóðir Vancouver í Kanada,“ segir hann. Þangað munu þau
flytjast í lok sumars þar sem Þorbjörn er á leiðinni í nám í skólastjórn-
un. Hann segir mikla tilhlökkun í þeim að flytjast til fyrirheitna lands-
ins. Að lokum vill Þorbjörn auglýsa eftir atvinnu handa duglegri konu
sinni í Vancouver. janus@mbl.is
Þorbjörn Rúnarsson er fertugur í dag
Heima með fjölskyldunni
Hlutavelta
Nokkrir nemendur í 5.
bekk í Borgaskóla í Graf-
arvogi tóku sig til og söfn-
uðu flöskum og seldu kök-
ur sem þau bökuðu sjálf. Á
myndina vantar þrjár
stelpur og tvo stráka sem
einnig tóku þátt í verkefn-
inu. Þau söfnuðu 51.500
krónum sem þau gáfu
Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna.
Flóðogfjara
29. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.03 3,2 11.09 0,9 17.24 3,6 23.42 0,9 3.03 24.01
Ísafjörður 1.13 0,7 7.08 1,8 13.15 0,5 19.27 2,1 1.37 25.37
Siglufjörður 3.20 0,4 9.43 1,1 15.25 0,4 21.44 1,2 1.20 25.20
Djúpivogur 2.10 1,7 8.12 0,6 14.40 2,0 20.55 0,7 2.18 23.44
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er sótt að þér úr öllum áttum svo
þú mátt hafa þig allan við að verja þig og
þína. Þú hefur nægan þokka til þess að eyða
orðum í fólk sem hefur arfavitlausar skoðanir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Taktu mikla áhættu í listinni en farðu
varlega þegar kemur að þinni eigin velferð.
Seinna kemur sá tími sem þú getur blandað
geði við aðra.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér mun farnast vel í viðræðum
sem þú getur þurft að eiga við embættis-
menn og forstjóra í dag. Forðastu að taka að
þér fleiri verkefni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ættir að setjast niður og gera þér
grein fyrir þeim takmörkum sem þú stefnir
að. Gleymdu ekki að hugsa um eigin velferð.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Í dag eru miklar líkur á að þú kaupir eitt-
hvað skemmtilegt handa þér eða einhverjum
sem þér er kær.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú finnur til sívaxandi þarfar fyrir að
leggjast í ferðalög og víkka sjóndeildarhring-
inn á einhvern hátt. Með lagni og léttri lund
hefst þetta allt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert full/ur hluttekningar og vænt-
umþykju í dag og það væri synd að leyfa ekki
öðrum að njóta þess. Líttu á nána vini og
maka sem spegil á hegðun þína.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sérðu pappírshrúguna á borðinu
þínu? Þig vantar ekki fleiri verkefni heldur
klukkutíma í einrúmi og bunka af góða skap-
inu. Einhver léttir þér lund í kvöld.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þarfnast mikillar umhyggju og
af henni færðu nóg. Eru ættingjar að halda
einhverju leyndu, eða er það bara ímyndun?
Talaðu af hreinskilni um tilfinningar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ættir að nota daginn til að
skipuleggja þig betur. Viltu hafa geðstirða
manneskju í kringum þig? Ef ekki gerðu þá
eitthvað í málunum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gefðu eftir í litlu málunum, og
vertu sterk/ur í þeim stóru. Ræddu hagnýtar
lausnir við fjölskyldumeðlimi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gætir uppgötvað alveg nýja tekju-
möguleika í dag. Þjóð veit þá þrír vita. Þú
gætir dottið í lukkupottinn á morgun.
Stjörnuspá
Í dag, 29. júní 2011, eiga 60 ára
brúðkaupsafmæli heiðurshjónin og
fyrrum vitaverðir á Siglunesi og
Dalatanga, Elfríð Pálsdóttir og Er-
lendur Magnússon, bæði fædd 1930.
Hjónin búa á Egilsstöðum og ætla
að fagna þessum merka áfanga með
afkomendum sínum.
Demantsbrúðkaup
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5.
f3 axb5 6. e4 Da5+ 7. Bd2 b4 8. Ra3 d6
9. Rc4 Dd8 10. a3 e6 11. Re3 exd5 12.
exd5 bxa3 13. Hxa3 Hxa3 14. bxa3 g6
15. Bb5+ Bd7 16. Bc4 Bg7 17. Re2 O-O
18. Db3 De8 19. Kf2 Ba4 20. Db6 Rfd7
21. Dc7 Re5 22. Dxd6 Bb5 23. Bxb5
Dxb5 24. Rg4 He8 25. Be3
Staðan kom upp í stórmeistaraflokki
fyrstu laugardagsmótaraðarinnar í
júní sem lauk fyrir skömmu í Búdapest
í Ungverjalandi. Sigurvegari mótsins,
ungverski alþjóðlegi meistarinn Oliver
Mihok (2454), hafði svart gegn Daniel
Siedentopf (2291) frá Þýskalandi. 25…
Rd3+! 26. Kg3 Hxe3! 27. a4 svartur
hefði einnig unnið eftir 27. Rxe3 Be5+.
27…De8 28. Hb1 Rd7 29. Hb7 He7 30.
Da6 Rb4 31. Db5 Rxd5 32. a5 h5 33. a6
hxg4 34. a7 R7b6 35. Hb8 Be5+ og
hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.