Morgunblaðið - 29.06.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2011
Núna ertu hjá mér … Eyfi
Hallur Már
hallurmar@mbl.is
Á dögunum varð Eyjólfur Krist-
jánsson fimmtugur. Í tilefni þess
gaf Sena út veglegt safn 50 valinna
laga úr hans smiðju. Eyjólfur hefur
verið virkur í íslensku tónlistarlífi í
rúm þrjátíu ár og samið mörg lög
sem hafa stimplað sig rækilega inn
í vitund íslensku þjóðarinnar. „Það
var skemmtilegt að fara í gegn um
allt þetta efni en það sem kom
manni helst á óvart var hvað þetta
hefur liðið fljótt. Það undirstrikar
náttúrlega helst að þetta er búið að
vera skemmtilegt tímabil. Ég hef
verið svo lánsamur að fá að vinna
með miklum fjölda af skemmtilegu
og hæfileikaríku fólki,“ segir Eyfi.
Tímalaus lög
Tvö ný lög eru á plötunni, sem er
þreföld, og lagið „Allt búið“, sem
hann flytur ásamt Birni Jörundi
Friðbjörnssyni, tók hann upp að
nýju. „Ég var eiginlega aldrei
ánægður með hvernig það hafði
komið út og mig langaði til að gera
meira úr því. Niðurstaðan varð sú
að ég bætti við nýjum kafla í lagið.
Þetta virðist hafa hitt í mark þar
sem lagið hefur verið eitt vinsæl-
asta lagið á Íslandi í vor.“ Þarna
virðist sannast að góðar lagasmíðar
eru algerlega óháðar tíma en Eyfi
þekkir það vel enda samdi hann
eitt vinsælasta íslenska lag allra
tíma. Það er náttúrlega lagið
Draumur um Nínu, sem var fram-
lag Íslendinga í söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva árið 1991
og Eyfi flutti ásamt Stefáni Hilm-
arssyni. Engu skiptir þótt fólk hafi
fæðst löngu eftir að þeir félagar
fluttu lagið með eftirminnilegum
hætti í Rómaborg, allir virðast geta
sungið með af innlifun. „Það lag er
eiginlega orðið að minni undirskrift
í íslenskri tónlist. Á þessum tutt-
ugu árum sem það hefur lifað er
með ólíkindum hvað það hefur orð-
ið vinsælt. Við erum báðir mjög
stoltir af því, ég og Stefán. Lagið
hefur orðið að svakalega stórum
parti af mínum ferli og ég kemst
ekkert upp með að sleppa því að
spila lagið þegar ég sest niður með
gítarinn.“
Fimmtíu tónleikar á árinu
Í tilefni af afmælinu ákvað Eyfi
líka að spila á 50 tónleikum víðs-
vegar um landið á árinu. Nú hefur
hann lokið 25 tónleikum en mun í
september halda ferðalaginu áfram.
„Það er mikil áskorun, mikil ferða-
lög og þar frameftir götunum en
þetta hefur heppnast vel. Þar er ég
að spila í rúma tvo tíma, sem er
mjög krefjandi þegar maður er
bara einn með gítarinn.“ Eyfi segir
að samskiptin við áhorfendur séu
stór hluti af slíkum kvöldstundum
þar sem ýmsar sögur séu látnar
flakka. „Maður getur varla spillt
ferlinum úr þessu svo maður lætur
bara allt vaða,“ segir Eyjólfur og
hlær. Hann mun þó ekki sitja að-
gerðalaus þangað til og kemur
fram með kassagítarinn í Húsafelli
á hverju laugardagskvöldi í sumar.
Í þessum tveimur tónleikaröðum
mun Eyfi því alls flytja Drauminn
um Nínu 63 sinnum og gera má
ráð fyrir að vel verði tekið undir í
hvert einasta skipti.
Eyfi fimmtugur 50 laga plata og
50 tónleikar Spilar Drauminn um
Nínu minnst 63 sinnum í ár
Morgunblaðið/Frikki
Fimmtugur Eyfi lítur yfir farinn veg og spilar vítt og breitt um landið.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Hljómsveitin Sudden Weather Change held-
ur í hljóðver nú í júlí ásamt tónlistarmann-
inum Ben Frost. Þar verður ný plata hennar
tekin upp en hún er númer tvö í röðinni.
Platan hefur hingað til borið titilinn Sculp-
ture – Not a line but a circle en nafnið er þó
ekki neglt eins og er. Ekki er enn ljóst hve-
nær platan kemur út en félagarnir telja lík-
legt að það verði snemma næsta ár. Þó er
von á stuttskífu (EP-skífu) með sveitinni í
samvinnu við Ben Frost. Skífan mun bera
nafnið Varrior og á að vera nokkurs konar
forréttur fyrir aðalstöffið.
Í kvöld heldur sveitin stórtónleika á Bakk-
us og frumflytur glænýtt efni sem verður á
nýju plötunni. Einnig koma fram Skakka-
manage og Kippi kaninus.
Vildu þróa og þroska tónlistina
Nýja platan verður frábrugðin frumburð-
inum að sögn Loga Höskuldssonar, gítarleik-
ara og söngvara sveitarinnar. „Já, þetta
verður mjög mikið stökk. Þegar við unnum
titilinn „Bjartasta vonin“ á Íslensku tónlist-
arverðlaunahátíðinni 2010 fórum við að skoða
tónlistina okkar betur. Við spurðum okkur
hvort við vildum halda áfram í því sama eða
þróast og þroskast. Þá fórum við að skoða
okkar innri mann og spá mikið í hvað við
vildum geta. Við drógum okkur í hlé hvað
varðar tónleikaspilerí en við vorum marg-
rómuð tónleikahljómsveit á tímabili. Það
skiptir okkur ekki eins miklu máli núna að
vera með eitthvert brjálað „liveshow“, heldur
langar okkur að setja meiri metnað í tónlist-
ina og gera eitthvað sem skilur meira eftir
sig.“
Logi segir það mjög gaman að hlusta á
gömlu plötuna og sjá hvað tónlistin hefur
þróast. „Þegar maður hlustar á hana hugsar
maður með sér: „Vá, þvílík gredda, rosalega
ætluðum við mikið með þessu.“ Síðan platan
kom út árið 2009 hefur maður þroskast mikið
og það eru bara tvö ár síðan! Nú ætlum við
að einbeita okkur að okkur,“ segir Logi.
Hann segir þá félaga afar rólega yfir því
hvort þeir nái frama erlendis. „Við erum
mjög afslappaðir. Ef þetta er eitthvað sem
myndi hleypa okkur lengra þá er það frá-
bært, en fyrst og fremst langar okkur að
gefa frá okkur eitthvað sem situr eftir í
fólki.“
Menntaðir myndlistarmenn
Strákarnir hafa nú unnið mikið með Ben
Frost og tóku upp stuttskífuna Varrior með
honum í Gróðurhúsinu, upptökustúdíói í
Breiðholti. Spurður hvernig hafi verið að
vinna með honum hingað til segir Logi það
mikinn heiður. „Það er bara ótrúlegt. Við er-
um allir myndlistarmenntaðir í hljómsveitinni
og að vinna með honum, sem er líka mennt-
aður í myndlist og tónlist, er frábært. Sam-
starfið virkar ótrúlega vel og er auðvelt. Við
erum að vinna með manni sem skilur okkur
vel og veit hvað tónlistin okkar þarf. Þetta er
það skemmtilegasta sem ég veit,“ segir Logi
ánægður. „Hann er heimsklassatónlist-
armaður og mikill heiður að fá að vinna með
honum. Það má segja að hann hafi komið
eins og himnasending.“
Flottir Hljómsveitina skipa þeir Bergur Thomas Anderson, Benjamin Mark Stacey, Dagur Sævarsson, Logi Höskuldsson og Oddur Guðmundsson.
Forréttur á undan aðalrétti
Hljómsveitin Sudden Weather Change frumflytur splunkunýtt efni á Bakkus í kvöld
Gefur út stuttskífu ásamt Ben Frost í september Aftur í stúdíó í júlí að taka upp nýju plötuna