Morgunblaðið - 29.06.2011, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 180. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Banaslys í Kverkfjöllum
2. Kristrún Ösp er byrjuð aftur …
3. 59 flugmönnum sagt upp
4. Gunnar hjólar í Óla Þórðar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kreppukvöldin halda áfram á Bar 11
á fimmtudagskvöldum og nú heldur
hljómsveitin Vicky uppi fjörinu. Sveit-
in er um þessar mundir að taka upp
aðra plötu sína en lag hennar Feel
Good hefur vakið mikla lukku. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22 og er frítt inn.
Morgunblaðið/Golli
Krepputónleikar með
Vicky annað kvöld
Miðasala á 60
ára afmælistón-
leika Björgvins
Halldórssonar
hefst í dag kl. 10 á
midi.is. Aðeins er
selt í númeruð
sæti og einungis
500 miðar eru í
boði. Tónleikarnir
fara fram í Menningarhúsi Hofsins á
Akureyri laugardaginn 27. ágúst nk.
klukkan 21.00 og kemur þar fram
landslið listamanna.
Miðasala hefst á
afmælistónleika Bó
Eyþór Ingi og félagar koma saman
eftir nokkurra mánaða hlé á Sódómu
annað kvöld og halda tónleika. Stór-
hljómsveitinni Deep Purple verður þar
vottuð virðing og munu þeir
leika lög eftir
þessa sögu-
frægu sveit.
Húsið verð-
ur opnað
klukkan
21:00 og
kostar 1200
krónur inn.
Deep Purple minnst á
Sódóma Reykjavík
Á fimmtudag Breytileg átt, víða 3-8 m/s. Skýjað með köflum og
skúrir, einkum sunnantil. Hiti 5 til 15 stig.
Á föstudag Vaxandi austlæg átt, Rigning sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðvestan 2-8 m/s. Skýjað
með köflum vestantil, en bjartviðri á Suðurlandi. Hiti 4 til 16 stig,
hlýjast SV-til.
VEÐUR
Þór/KA tókst að halda í við
efstu lið Pepsideildar
kvenna í knattspyrnu og
sendi um leið Breiðablik í
fallbaráttu með 4:2 sigri í
Kópavogi. Íslandsmeistarar
Vals eru áfram á toppnum
eftir 3:1 sigur á nýliðum
Þróttar, Stjarnan er stigi á
eftir en hún vann 4:0 úti-
sigur á Aftureldingu, og ÍBV
vann dramatískan 2:1 sigur
á Grindavík. Loks vann Fylk-
ir KR á útivelli, 1:0. »3
Toppliðin fjögur
unnu öll sigra
Handknattleiksmaðurinn Einar Ingi
Hrafnsson er genginn til liðs við
danska liðið Mors-Thy en línumað-
urinn samdi við félagið til tveggja ára
í gær. Hann hefur leikið með Nord-
horn í Þýskalandi und-
anfarin tvö ár. »1
Einar Ingi frá Nordhorn
til Mors-Thy í Danmörku
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram,
nýtur áfram trausts hjá knatt-
spyrnudeild félagsins þrátt fyrir að
fyrsti sigur liðsins í Pepsideildinni í
sumar hafi enn ekki litið dagsins ljós
eftir átta umferðir. Framarar ætla að
styrkja lið sitt á næstunni og verða
með tvo Breta til reynslu hjá sér
næstu dagana. Ívar Björnsson verður
tæplega meira með í sumar. »1
Þorvaldur unnið sér inn
lengri tíma hjá Fram
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Sigur íslenskra íþróttamanna á bæði
Norðmönnum og Dönum er vottur
þess að okkar ungu menn hafa unnið
kappsamlega að þjálfun sinni og eiga
þá vegsemd skilið sem afrek þeirra
hafa í för með sjer,“ var ritað í leiðara
Morgunblaðsins hinn 1. júlí 1951 um
sigur íslenskra frjálsíþróttamanna í
þriggjalandakeppni Norðmanna,
Dana og Íslendinga á Bislett-
leikvanginum í Osló hinn 29. júní
sama ár. Dagurinn hefur verið kall-
aður „sigurdagurinn mikli“ en þenn-
an sama föstudag vann íslenska
karlalandsliðið óvæntan 4:3-sigur á
Svíum á Melavellinum.
Það var Ríkharður Jónsson sem
skoraði öll fjögur mörk Íslendinga í
leiknum og hann man vel þegar frétt-
ist á knattspyrnuvellinum að íslenskir
frjálsíþróttamenn hefðu borið sigur
úr býtum í Noregi eftir tveggja daga
keppni.
„Baldur Jónsson vallarvörður til-
kynnti það í hátalaranum í hálfleik að
Íslendingar væru að vinna Norðmenn
og Dani úti á Bislett, og hann sagði
mér seinna að fagnaðarlætin hefðu
verið þvílík að menn sem voru að
veiða í Elliðaánum hefðu heyrt þau,“
segir Ríkharður. „Við vorum þarna
að vinna allar Norðurlandaþjóðirnar
á einu bretti og ég get alveg fullyrt að
þetta skeður aldrei aftur. Að því leyt-
inu til var þetta út af fyrir sig afrek
fyrir alla.“
Óvænt úrslit
Afrek Ríkharðs að skora
fjögur mörk (mörkin voru
raunar fimm en það
fimmta var dæmt af
vegna rangstöðu) á
móti ólympíu-
gullverðlaunahöfum
Svía er ekki síst
merkilegt í ljósi
þess að hann
mætti beint á Melavöll-
inn eftir fullan vinnudag á Akranesi.
„Ég mætti hálfátta í vinnuna vest-
ur í slipp þar sem ég var að mála bát
og vann fram að kaffi, fór síðan heim
að skipta um föt og mætti í KR-
heimilið klukkan hálffimm,“ segir
hann.
Móðir Ríkharðs tilheyrði afar fá-
mennum hópi sem þóttu Íslendingar
líklegir til sigurs en hún reyndist
sannspá bæði um markamuninn og
að sonur hennar myndi skora öll
mörk íslenska liðsins. Svíarnir vissu
ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
„Þeir voru raunverulega bara
værukærir að ég held og manni
finnst, en við settum allt á fulla ferð.
Mig minnir að staðan hafi verið 2-0 í
hálfleik og þeir komust aldrei í gang
karlagreyin.“
60 ár frá sigurdeginum mikla
Lögðu Norð-
menn, Dani og
Svía sama dag
Morgunblaðið/Golli
Sigrar Ríkharður fremstur í hópi ÍA-manna. Um Ríkharð sagði Sam Hessel fararstjóri Svía 1951: „Það er enginn vafi á
því, að ef ítalskur „veiðari“ hefði sjeð leik Ríkharðs, hefði hann á stundinni boðið í hann 150 þús kr. (sænskar).“
Eftir landskeppnina á Bis-
lett-vellinum í júní 1951,
aðeins sjö árum eftir að
Íslendingar höfðu hlotið
sjálfstæði, voru Norð-
menn og Danir undrandi
yfir getu íslenskra
íþróttamanna.
Fjölmiðlar í Danmörku
spáðu Íslendingum algjör-
um ósigri en sigurvissir
Norðmennirnir töldu
mögulegt að Íslendingarnir myndu
hafa Dani. „Það er undrunarefni,“
stóð í Morgenposten eftir keppn-
ina, „hve svo lítil þjóð á marga
ágæta íþróttamenn.“
Meðal þeirra sem þar fóru
fremstir í flokki voru Gunnar
Huseby í kúluvarpi, Torfi Bryn-
geirsson, sem var nálægt því að
setja nýtt Evrópumet í stangar-
stökki, Örn Clausen og Skúli Guð-
mundsson.
Íslenskir íþróttagarpar
FRJÁLSÍÞRÓTTALANDSLIÐIÐ 1951