Morgunblaðið - 30.06.2011, Síða 1

Morgunblaðið - 30.06.2011, Síða 1
F I M M T U D A G U R 3 0. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  151. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG EÞÍÓPÍSKUR MATUR Í BOÐI Á FLÚÐUM LÆRÐI AÐ VINNA Í FRYSTIHÚSI FÆRASTUR FINNA MEÐ SVERÐIÐ VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS MEÐ ÍSLENSKT RÍKISFANG ÍÞRÓTTIRÞJÓÐLEGIR RÉTTIR 10 Alþingi komi saman » Óumdeildar réttarbætur urðu ekki að lögum vegna ein- stakra plássfrekra mála á loka- metrum þingsins. » Formaður Sjálfstæðisflokks- ins leggur til að þing verði kall- að saman svo hægt verði að af- greiða ýmis mikilvæg mál. Hjalti Geir Erlendsson Önundur Páll Ragnarsson Stjórnvöld leita nú leiða til að bæta fyrir þau mál sem ekki tókst að af- greiða á síðustu dögum þingsins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, vill að Alþingi verði kallað saman sem fyrst, ekki síst til að eyða óvissu um greiðslu hlutaatvinnu- leysisbóta. Ekki náðist að klára það mál áður en þingi var frestað í vor. Guðbjartur Hannesson velferðarráð- herra segir þann möguleika hafa ver- ið ræddan að setja bráðabirgðalög til að tryggja greiðslurnar í ágúst en þau séu ekkert sérstaklega á dagskrá. Of viðurhlutamikið sé að kalla þingið saman vegna þessa máls. Bjarni segir þetta enn eitt dæmið um klúður ríkisstjórnarinnar. Hann segir sífellt bætast í sarpinn af nýjum málum sem valdi tjóni fyrir borgar- ana. Hann vill að þingið afgreiði málið auk annarra mikilvægra mála sem setið hafi á hakanum. Sem dæmi nefnir Bjarni útboðsmálin á dreka- svæðinu sem þurfi að komast í al- mennilegan farveg í sumar. Í gær kom fram að Alþingi hefði ekki tekist að framlengja heimild fólks til að taka út séreignarsparnað. Formenn þing- flokka sömdu um hvaða mál skyldi af- greiða fyrir þinglok. Þuríður Back- man, þingflokksformaður VG, segir málin ekki hafa gleymst heldur hafi þau einfaldlega ekki komist að fyrir öðrum málum. Stjórnarandstaðan hafi fest sig við ákveðin mál og kvóta- málin hafi yfirtekið þingstörfin. MKvótamál yfirtóku »12 Þingið eyði óvissunni  Óumdeild mál viku fyrir umræðum um kvótamálin á lokametrum þingsins  Bráðabirgðalög til greiðslu hlutaatvinnuleysisbóta hafa ekki verið útilokuð Hægt að loka skrif- stofunni Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Vilhjálmur Bjarnason, stjórn- armaður í Samtökum stofnfjáreig- enda í Byr sparisjóði, segir að ef Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms í Exeter- málinu svokallaða geti sérstakur saksóknari þess vegna lokað skrif- stofunni. „Saksóknari vann sína vinnu mjög vel að mínu mati og mál- ið er einfalt. Ef þessi fráleita nið- urstaða verður staðfest þá er borin von að hægt sé að ákæra menn í flóknari málum, til dæmis þeim sem tengjast Glitni,“ segir Vilhjálmur. Sýknaðir af öllum ákæruliðum Meirihluti héraðsdóms sýknaði í gær Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrver- andi sparisjóðsstjóra Byrs, og Jón Þorstein Jónsson, fyrrverandi stjórnarformann sjóðsins, af öllum liðum ákæru í Exeter-málinu, en einn dómari vildi sakfella þá. Þá var Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi bankastjóri MP banka, sýknaður. Meirihlutinn taldi að sannað hefði verið að þeir Jón og Ragnar hefðu brotið gegn lánareglum Byrs í ákveðnum atriðum, en hins vegar hefði Ragnari verið heimilt að veita lánið og að ekki hefði verið sýnt fram á að þeir hefðu ætlað sér að misnota aðstöðu sína hjá sjóðnum. Bótakröfu Byrs á hendur þre- menningunum var vísað frá dómi sem opnar fyrir það að höfðað verði einkamál gegn þeim. Vilhjálmur segir hins vegar að það sé undir skilanefnd Byrs komið, því stofnfjár- eigendur megi það ekki. »Viðskipti Eftir dauft og kuldalegt sumar er nú allt að fyll- ast af lífi á Norðurlandi eystra. Fjöldi fólks held- ur til á Akureyri vegna tveggja fótboltamóta sem þar fara fram um helgina, Pollamóts Þórs og N1-móts KA. Eins og sjá má voru krakkarnir í KA spenntir fyrir fyrsta leikinn í gær. Íþrótt- irnar eru þó ekki allsráðandi því fjöldi menning- arviðburða er á dagskránni fyrir norðan og ekki skemmir fyrir að hlýindi eru í kortunum. »14-15 Sólin og fótboltinn færa með sér líf norðan heiða Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Dýragarðurinn í Peking í Kína hefur óskað eftir því að fá lundaegg héðan til að geta verið með íslenska lunda til sýnis. Sótt hefur verið um leyfi til út- flutnings á eggjum fjögur ár í röð en umsóknunum hefur alltaf verið hafnað. Að sögn Sigtryggs R. Eyþórssonar, framkvæmdastjóra XCO ehf., sem hef- ur átt viðskipti við Kína áratugum saman, eru íslenskir lundar í dýra- görðum í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Hann gekk á fund Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra í vetur og lagði fram beiðni en henni var hafnað um síðustu mánaðamót vegna slæms ástands lundastofnsins. Sigtryggur segir að ástandið sé verst á Suður- og Vesturlandi en betra fyrir norðan. Fuglafræðingur sem hann ræddi við og þekkir vel til í lundabyggðum telur það ekki ógna stofninum að flytja út nokkur lunda- egg frá svæði þar sem ástand er gott. Húsdýragarður fái pandabjörn Sigtryggur hefur rætt um að koma á samstarfi milli dýragarðsins í Pek- ing og Húsdýragarðsins. Kom kín- verskur verslunarfulltrúi með þá hugmynd að Húsdýragarðurinn fengi lánaðan pandabjörn í nokkra mánuði og telur Sigtryggur að það myndi vekja mikla lukku hjá ungu kynslóð- inni. »8 Vilja fá íslenska lunda til Peking Lundar Eggin fá ekki útflutnings- leyfi frá umhverfisráðuneytinu. Morgunblaðið/Eggert  „Þarna hefur Héraðsdómur Suð- urlands staðfest þá túlkun á dómi Hæstaréttar frá því í júní á síðasta ári og september á sama ári, að gengisviðmiðunin hafi gert skil- mála lánsins hvað varðar verð- tryggingu og vexti ólögmæta frá fyrsta degi.“ Þetta segir Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður efna- hags- og skattanefndar, um nýfall- inn gengislánadóm. Komst dómstóllinn að þeirri nið- urstöðu að reikna ætti vexti Seðla- banka Íslands frá útborgunardegi gengistryggðra lána. »16 Staðfestir túlkun á dómi Hæstaréttar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.