Morgunblaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 14
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Sumarið hefur farið hægt af stað á Norður-
landi eystra og íbúar þurft að sitja af sér
hryssingslegan júnímánuð þar sem hitinn
skreið sjaldnast upp í tveggja stafa tölu.
Júlímánuður virðist ætla að verða Norðlend-
ingum blíðari og nú ber svo við að Norðaust-
urland er sá landshluti sem kemur best út í
veðurspá helgarinnar. Í ofanálag er sérlega
mikið um að vera á þeim slóðum um helgina og
því óhætt að mæla með því að ferðalangar sem
vilja elta sólina og menningarlífið á lands-
byggðinni taki stefnuna norður. Sólin mun að
vísu aðeins brosa við Norðlendingum á milli
léttra skýja en útlit er fyrir blíðskaparveður
Sólin verður í liði með fót-
boltastrákum á öllum aldri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
FH-ingar fagna Fótboltastrákar láta veðrið ekki skipta máli þegar kemur að því að fagna innilega, en hlýindin spilla eflaust ekki fyrir. Mótið er umfangsmikið því alls eru 168 lið skráð til leiks.
með sæmilegum hlýindum, allt að 15° hita, suð-
austan 5 m/sek og engri úrkomu. Hlýjast verð-
ur í innsveitum norðanlands. Á sama tíma má
búast við rigningu og hvassviðri á Suðurlandi
og alskýjuðum himni víðast hvar annars staðar
á landinu.
Brosa hringinn í hækkandi hita
„Það er þvílík gleði að sjá hitastigið fara
hækkandi með hverjum degi. Við sjáum fram á
indælisveður um helgina,“ segir Hlynur Birg-
isson í Pollamótsnefnd Íþróttafélagsins Þórs á
Akureyri. Pollamót Þórs, sem í reynd er ætlað
„lávörðum“, „öðlingum“ og öðrum sem komnir
eru af pollaaldri, hefst á föstudagsmorgun.
Í gær hófst hinsvegar N1-mót KA, fyrir
drengi í 5. flokki. Óskar Þór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA
fagnar einnig góða veðrinu. „Þetta byrjar
mjög vel, helsti andstæðingur okkar í
þessu er rignin en það hætti að dropa í
dag og spáin er bara góð aldrei þessu vant.
Ég get ekki annað sagt en að ég brosi
hringinn yfir því, við áttum það orðið alveg
inni finnst mér,“ segir Óskar Þór.
Knattspyrnan verður því áberandi norð-
an heiða um helgina en alls ekki allsráð-
andi, því fjöldi fjölbreyttra viðburða verð-
ur á seyði, m.a. fjölmargir tónleikar, lista-
og náttúrulífssýningar og safnasýningar.
Sagt er frá nokkrum spennandi við-
burðum hér en það er hvergi nærri tæm-
andi því Norðurland eystra hefur upp á
margt að bjóða.
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Ungir fótboltakappar fylla nú
götur Akureyrarbæjar því þar
hófst N1-mót Þórs fyrir 5. flokk
í gær. Um er að ræða stærsta árlega
knattspyrnumót landsins, sem tæp-
lega 1.500 drengir frá 37 félögum víðs-
vegar um landið taka þátt í auk tæplega
400 liðsstjóra og þjálfara, að ótöldum
þeim aðstandendum sem fylgjast með.
Þetta er afmælismót því 25 ár eru liðin
síðan mótið var haldið fyrst, árið 1987. Þá
voru þátttakendur 160 talsins og hefur um-
fang mótsins því margfaldast.
Boltanum
sparkað
af kappi
STÆRSTA ÁRLEGA
KNATTSPYRNUMÓT LANDSINS
Loksins hillir undir betri tíð á Norðurlandi eystra
með hlýindum og ekki ólíklegt að sólin láti aðeins
sjá sig. Morgunblaðið ætlar að fylgjast vel með
ferðaveðrinu í sumar
og segja frá spennandi
atburðum og áfanga-
stöðum í hverjum
landshluta.
Langþráð
blíða norð-
austanlands
77°
511° 415° 515°
611°
710°514°
214°
210°
Veðurspá kl. 12 á laugardaginn
Grímsey
Raufarhöfn
Ásbyrgi
Húsavík
Ólafsfjörður
Öxnadalsheiði
Akureyri
Mývatn Möðrudalsöræfi
Heimild: vedur.is
G
ru
nn
ko
rt
:L
M
ÍSkannaðu kóðann
fyrir ferðavef um
Norðurland eystra
Helgarferðin – eltum sólina í sumar