Morgunblaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Græni Hatturinn Akureyri
sími 461 4646 / 864-5758
Forsala í Eymundsson
föstudags- og laugardagskvöld
Hásumargleði
Baggalúts
Tónleikar kl.22.00
Húsið opnað kl.21.00
Miðaverð kr. 2500
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Sirkus Íslands:Ö faktor
Fös 1/7 kl. 19:30
Lau 2/7 kl. 14:00
Lau 2/7 kl. 18:00
Sun 3/7 kl. 14:00
Sun 3/7 kl. 18:00
Brúðuheimar í Borgarnesi
530 5000 | hildur@bruduheimar.is
GILITRUTT
Sun 3/7 kl. 14:00 Sun 10/7 kl. 14:00
Á sunnudag verður Hrafnhild-
ur Schram listfræðingur með
leiðsögn um sýninguna Kona/
Femme - Louise Bourgeois
sem nú stendur yfir í Lista-
safni Íslands. Á sýningunni eru
28 verk eftir Louise Bourgeois,
einkum innsetningar og högg-
myndir, en jafnframt málverk,
teikningar og textílverk.
Hrafnhildur Schram er sjálf-
stætt starfandi fræðimaður og
m.a. höfundur bókarinnar Huldukonur í íslenskri
myndlist og var sýningarstjóri sýningarinnar Með
viljann að vopni - Endurlit 1970-1980 að Kjarvals-
stöðum á síðasta ári sem fjallaði um list kvenna á
tímum samfélagsumróts og kvenfrelsisbaráttu.
Myndlist
Leiðsögn Hrafn-
hildar um Konu
Hrafnhildur
Schram
Kammerklúbburinn heldur
tónleika í Norræna húsinu á
morgun kl. 15:00. Kammer-
klúbburinn er hópur ungra ís-
lenskra tónlistarnemenda úr
fimm tónlistarskólum í Reykja-
vík sem eru á aldrinum 8 til 18
ára og spila á fiðlu, víólu, selló
og píanó.
Í Kammerklúbbnum spila
nemendurnir saman í sex
kammersveitum, þjálfast með
því í að spila tónlist með öðrum og afla sér nýrrar
tónlistarreynslu. Kammerklúbburinn var stofn-
aður í ágúst 2009 að frumkvæði Ewu Tosik-
Warszawiak, listræns stjórnanda klúbbsins, og
foreldra nokkurra af fyrstu þátttakendunum.
Tónlist
Tónleikar
Kammerklúbbsins
Ewa Tosik-
Warszawiak
Hefð er fyrir því að Jazz-
klúbbur Akureyrar haldi Heita
fimmtudaga á Listasumri á
Akureyri og hefjast í kvöld í
Deiglunni í Gilinu kl. 21:30.
Fram kemur tríóið Jónsson &
More sem skipað er þeim Ólafi
Jónssyni saxófónleikara, Þor-
grími Jónssyni bassaleikara og
Scott McLemore trommuleik-
ara. Á efnisskránni eru verk
eftir Monk, Coleman og Ming-
us, en einnig leika þeir félagar frumsamin lög.
Stuðningsfyrirtæki Jazzklúbbsins eru Akureyr-
arstofa, Listasumar á Akureyri, Norðurorka,
Menningarráð Eyþings, FÍH, Flugfélag Íslands,
Goya Tapas bar, Gula Villan og Sella ehf.
Tónlist
Heitur fimmtu-
dagur í Gilinu
Thelonious
Monk
Tónleikaröðin Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju hefst næstkom-
andi sunnudag og verða tónleikar
kl. 17:00 alla sunnudaga í júlí. Þetta
er í 25. sinn sem tónleikaröðin fer
fram.
Á fyrstu tónleikunum leikur Kári
Allansson á orgel Akureyrarkirkju,
sem á 40 ára vígsluafmæli í ár. Kári
lauk burtfararprófi í orgelleik frá
Tónskóla þjóðkirkjunnar fyrir
mánuði.
10. júlí syngur Kammerkór Norð-
urlands íslensk þjóðlög og ný kór-
verk undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar, en þjóðlögin eru í
útsetningu Guðmunda Óla.
Þriðju tónleikarnir verða 17. júlí
og þá flytja Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópransöngkona og Eyþór
Ingi Jónsson, orgelleikari Akureyr-
arkirkju og bæjarlistamaður Akur-
eyrar, norræn sönglög.
24. júlí flytja Margrét Brynj-
arsdóttir og Gísli Jóhann Grét-
arsson óperulög sem Gísli hefur út-
sett fyrir sópran og gítar og einnig
frumsamin lög Gísla en hann hefur
nýlokið meistaranámi í tónsmíðum
við Tónlistarháskólann í Piteå í Sví-
þjóð.
Lokatónleikar tónleikarað-
arinnar verða síðan um versl-
unarmannahelgina. Þá koma fram
Guðrún Ingimarsdóttir, Sigrún Eð-
valdsdóttir og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir og flytja efnisskrá fyr-
ir sópran, fiðlu og píanó. Ókeypis er
á alla tónleikana.
Fjölbreytt Sumartónleikar í Akur-
eyrarkirkju hefjast á sunnudag.
Sumartón-
leikar á
Akureyri
25. tónleikaröðin
í Akureyrarkirkju
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Nú stendur yfir sumarvertíðin hjá
CCCR eða Classical Concert Comp-
any Reykjavík. Um er að ræða 50
tónleika sem fram fara í Kaldalóni í
Hörpu. Tónleikarnir skiptast í fimm
tónleikaraðir: Perlur íslenskra ein-
söngslaga, Ferðalag um íslenska
tónlistarsögu, Íslensk tónlist – A
Cappella, Halldór Laxness og tón-
listin og svo er dagskrá um konur og
íslenska tónlist. Sungið er á íslensku
en tónlistin kynnt á ensku og eru
flytjendur flestir úr röðum ungs og
efnilegs tónlistarfólks sem hefur ný-
lokið eða er við það að ljúka námi.
Þörf fyrir tónleika af þessu tagi
Markmið tónleikanna er að kynna
íslenska tónlist fyrir erlendum
ferðamönnum þótt töluvert sé um að
Íslendingar mæti líka að sögn
Bjarna Thors Kristinssonar, list-
ræns stjórnanda.
CCCR stóð í fyrsta skipti fyrir
tónleikum af þessu tagi í fyrra og
segir Bjarni Thor þá hafa gengið vel.
„Við vorum með lítinn sal og ætl-
uðum okkur ekki nein stórvirki, við
vorum bara svona að prófa þetta og
fengum góðar viðtökur. Maður fann
strax að það var mikil þörf fyrir
svona tónleika.“ Tónleikarnir eru
með stærra sniði í ár og hefur tón-
leikaröðunum fjölgað um tvær síðan
í fyrra. Bjarni Thor hefur fulla trú á
því að tónleikarnir verði enn betur
sóttir en þá og segir aðsóknina hafa
verið góða síðan fyrstu tónleikarnir
voru haldnir í byrjun júní.
Óþarfi að fela tónlistina
Bjarni segir töluvert af erlendum
ferðamönnum sækja tónleikana og á
von á að þeim fjölgi þegar Harpa
kemst betur á kortið hjá ferðaþjón-
ustunni. „Um leið og rútur fullar af
ferðamönnum fara að stoppa fyrir
utan tónlistarhúsið eykst umferðin
um það og þá verður auðvitað enn
meira að gera hjá okkur,“ segir
Bjarni.
Hann bætir við að það séu alltaf
einhverjir Íslendingar sem slæðast
með á tónleikana þrátt fyrir að
kynnt sé á ensku. „Fólki finnst gam-
an að heyra þessa slagara í klass-
íkinni, þessi sönglög sem allir
þekkja.“
Að sögn Bjarna var það hans hug-
mynd að halda tónleika til að kynna
íslenska tónlist fyrir ferðamönnum.
„Í borgum sem maður heimsækir er
alltaf boðið upp á tónlist frá landinu.
Mér fannst engin ástæða til þess að
vera að fela þennan menningararf
okkar fyrir ferðamönnum. Við erum
ekki bara fossar og handrit,“ segir
hann að lokum.
Morgunblaðið/Ómar
Menningararfur Sigríður Aðalsteinsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Ástríður
Alda Sigurðardóttir og Bjarni Thor Kristinsson.
Sumarvertíð í
íslenskri tónlist
Sumarvertíð
» Classical Concert Company
Reykjavík heldur fimmtíu tón-
leika í Kaldalóni í Hörpu.
» Meðal annars verða kynntar
perlur íslenskra einsöngslaga.
» Sungið er á íslensku en tón-
listin kynnt á ensku.
CCCR kynnir íslenska tónlist á 50
tónleikum Erum ekki bara handrit
og fossar, segir Bjarni Thor Kristinsson
Textarnir eru eins
og lítil ævintýri,
fjalla um litla atburði í
daglega lífinu. 34
»
Breski orgelleik-
arinn Stephen
Farr heldur
tvenna tónleika í
Hallgrímskirkju
um helgina, en
tónleikarnir eru
liður í tónlistar-
hátíðinni al-
þjóðlegu Orgel-
sumri í kirkjunni.
Samhliða því að
vera konsertorganisti starfar
Stephen Farr sem tónlistarstjóri
hjá St Paul’s Knightsbridge í Lund-
únum og hjá Worcester College í
Oxford.
Á tónleikunum leikur hann verk
eftir Allcoat, de Grigny, Bach, Al-
bright, Alain, Preston, Liszt og
Locklair.
Tónleikar laugardagsins hefjast
kl. 12:00, en á sunnudag hefjast
tónleikar hans kl. 17:00.
Tvennir
orgeltón-
leikar
Stephen
Farr
Í tilefni af hundrað ára afmæli Sig-
urbjörns Einarssonar verða haldnir
tónleikar í Lindakirkju í Kópavogi í
kvöld kl. 20:00 þar sem fluttir verða
sálmar eftir Sigurbjörn, en hann lést
haustið 2008, þá 97 ára.
Á dagskránni verða sálmar á borð
við Eigi stjörnum ofar, Dag í senn,
Fræ í frosti sefur, Nú hverfur sól í
haf og svo má telja. Fram koma
Kirstín Erna Blöndal, Gunnar
Gunnarsson, Jón Rafnsson og leika
lög af nýútkominni plötu, Hjartað
játi, elski, treysti sem inniheldur 15
sálma Sigurbjörns, en einnig koma
fram Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór
Gunnarsson, Pétur Ben, Toggi, Reg-
ína Ósk og Svenni Þór, Óskar Ein-
arsson, Hrönn Svansdóttir og Fanný
Tryggvadóttir og Áslaug Helga
Hálfdánardóttir. Frumflutt verða ný
lög við fjóra sálma eftir Togga, Pét-
ur Ben, Svavar Knút og Matthías
Baldursson.
Sálmaskáld Sigurbjörn Einarsson biskup var ekki bara mikilsvirtur kenni-
maður heldur var hann líka afkastamikið sálmaskáld.
Sálmaskáldið Sigurbjörn