Morgunblaðið - 30.06.2011, Page 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
HHHH
- BOX OFFICE MAGAZINE
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
FRÁBÆ
TRANSFORMERS 3D kl. 4:45 - 6:45 - 8 - 10 - 11:15 12
SUPER 8 kl. 8 - 10:30 12
MR. POPPER´S PENGUINS kl. 5:30 - 8 L
THE HANGOVER 2 kl. 10:20 12
KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 4:45 L
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5 10
/ ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL
TRANSFORMERS 3 3D kl. 5 - 8 - 10 -11:10* 12 KUNG FU PANDA 2 3D Ísl. tal kl. 6 L
TRANSFORMERS 3 kl. 5 - 8 - 11:10* VIP KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 6 L
BEASTLY kl. 8 10 PIRATES OF THE CARIBBEAN kl. 5 - 8 - 10:40 10
SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
HHH
- ÞÚ MUNT EKKI SJÁ FLOTTARI
HASAR Í SUMAR, OG ÉG VERÐ
MJÖG HISSA EF VIÐ SJÁUM
BETRI BRELLUSÝNINGU ÞAÐ
SEM EFTIR ER AF ÁRINU
-T.V. KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
"THE BEST 3D SINCE AVATAR"
- SCOTT MANTZ,
ACCESS HOLLYWOOD
HHHH
- R.M. - BÍÓFILMAN.IS
HHHH
- TIME OUT NEW YORK
- HOLLYWOOD REPORTER
80/100
H POWERSÝNING
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Indie Rocket
Science er nýjasta
plata rapparans
MC Lars. MC
Lars, sem segist
vera upphafsmaður
post-punk laptop-
rappsins, fær til liðs við sig nokkra
þungavigtarmenn úr tónlistarheim-
inum við vinnslu plötunnar, en þar
ber hæst menn á borð við Krs-One,
Sage Francis og Weerd Science svo
dæmi séu tekin. Platan flokkast
reyndar undir það sem kallast „mix
tape“ og fæst gefins á netinu. Mc
Lars, sem heitir réttu nafni Andrew
Robert Nielsen, hefur í gegnum tíð-
ina fengist við margar mismunandi
tónlistarstefnur, s.s punk-rapp, rapp-
rokk og nerdcore hipphopp, en þessi
plata er glensrapp-plata með rokk-
ívafi í anda Bloodhound Gang. Á plöt-
unni er að finna lög eins og ,,What is
hip hop“, þar sem Krs-One kemur við
sögu og „Black and Yellow T-Shirts“
sem hefur fengið töluverða spilun hér
á landi. Tónlistin og taktarnir eru
góðir og gleður það mig mikið að fá
að heyra í gítar hjá rapparanum.
Textarnir eru snilld og fjalla um allt
og ekki neitt. Mér finnst það hafa
verið venjan hjá röppurum að hrauna
hver yfir annan en það gerir MC
Lars ekki, en hann hraunar aftur á
móti ótt og títt yfir sjálfan sig og fær
þá sem spila og syngja með sér á plöt-
unni til þess að taka þátt því. Þetta er
skemmtileg plata sem aðdáendur
Bloodhound Gang ættu að geta
skemmt sér yfir.
Mc Lars - Indie Rocket Science
bbbmn
Glensrappið
gleður
Róbert B. Róbertsson
Danger Mouse er
kraftaverkamaður.
Afrakstur vinnu
hans með Gnarls
Barkley, Gorillaz,
The Black Keys og
Beck vottar það.
Honum tókst jafnvel að láta David
Lynch hljóma vel á plötunni Dark
Night of the Soul! Plötuna Rome
gerði hann í samstarfi við ítalska út-
setjarann Daniele Luppi sem hefur
áður unnið með Danger Mouse. Plat-
an er nokkurskonar virðingarvottur
við spagettívestramúsík Morricones.
Engin dul er dregin á hvaðan áhrifin
koma. Við hlustun kemur upp í hug-
ann ponsjó-klæddur Eastwood nag-
andi vindil. Í stað hans eru aðal-
hlutverkin leikin af Jack White og
Norah Jones sem þau gera óaðfinn-
anlega. Þetta er að sjálfsögðu þunnur
ís sem verið er að feta en ein-
hvernveginn gengur platan mjög vel
upp. Allt sem White virðist koma ná-
lægt hefur yfirbragð einhverrar
spennu sem erfitt er að koma í orð en
hljómar alltaf jafn vel. Lögin sem
hann syngur standa upp úr á plöt-
unni. Norah Jones kemst líka vel frá
sínu og afslöppuð rödd hennar pass-
ar vel við ponsjó-nostalgíuna. Platan
stendur og fellur með skoðun fólks á
tónlist Morricones. Ekki er verið að
gera neitt nýtt en það þarf ekki alltaf.
Stundum má láta vera að fikta í form-
úlunni og vanda sig nógu mikið, það
heppnast í þessu tilviki.
Ljúf ponsjó-
nostalgía
Danger Mouse & Daniele Luppi
- Rome
bbbbn
Hallur Már
Átta ár eru liðin
frá því bandaríska
söngkonan Gillan
Welch sendi síðast
frá sér plötu; Soul
Journey kom út 3.
júní 2003. Það er
því vonum seinna að hún sendir frá
sér plötu með nýrri tónlist, en fagn-
aðarefni að The Harrow & The Harv-
est kemur út á þriðjudaginn.
Líkast til þekkja flestir Gillan
Welch fyrir framlag hennar til tón-
listarinnar í kvikmyndinni O Brot-
her, Where Art Thou?, hún söng þar
eitt lag ein og annað með Alison
Krauss, en kom líka að lagavali í
myndina almennt. Þar er hún að fást
við gamla hefð, svonefna Appalch-
ian-tónlist, en svo er nefnd þjóðlaga-
tónlist frá austanverðum Bandaríkj-
unum, fjallahéruðum Kentucky,
Tennessee, Virginíu, Vestur-Virginíu
og Norður-Karólínu. Hljóð-
færaskipan er alla jafna einföld, tón-
listin rólyndisleg og textarnir
þrungnir depurð og vonleysi – það er
eins og lífið verði bærilegra þegar
maður veltir fyrir sér hörmungum
annarra.
Welch hefur gefið út fjórar sóló-
skífur, The Harrow & The Harvest
er sú fimmta, og fyrstu þrjár plöt-
urnar voru mjög í stíl við hefðina, lág-
stemmdar og uppfullar af myrkri.
Fjórða skífan, áðurnefnd Soul Journ-
ey, var aftur á móti fjörlegri, því lík-
ust sem hún væri hljóðrituð af góðra
vina hópi í aftanhúmi úti á verönd,
nánast glaðvær, en á The Harrow &
The Harvest snýr Welch sér aftur að
einfaldleikanum með frábærum ár-
angri. Ég nefni plötur hennar sóló-
plötur hér að ofan, en réttara kannski
að kalla þær tvíeykisskífur, því Dave
Rawlings, sem starfað hefur með
Welch alla tíð, er ekki síður mik-
ilvægur, hvort sem það er með frá-
bæru gítarspili eða snyrtilegri rödd-
un eða framúrskarandi útsetningum.
Þó ekkert hafi heyrst frá Welch
svo lengi hefur hún fengist við sitt-
hvað tónlistartengt á síðustu árum,
leikið með Rawlings í hljómsveit
hans, Dave Rawlings Machine, meðal
annars á plötu sveitarinnar sem kom
út í hitteðfyrra, sungið lög í kvik-
myndum og svo má telja. Það tók
hana hinsvegar svo langan tíma að
smala í nýja sólóskífu að hún var víst
ekki með nógu góð lög í höndunum,
eða svo hefur hún lýst því.
Á plötunni er hvert lagið öðru
betra og flest, ef ekki öll, hljóma þau
eins og verið sé að dusta rykið af
gamalli klassík, draga fram í dags-
ljósið perlur liðins tíma og sýnir um
um leið að góð tónlist nær út yfir rúm
og tíma. Nefni sem dæmi upphafslag
plötunnar, Scarlet Town, þar sem
Rawlings spilar dulcimerlega á gít-
arinn, nú eða Tennessee sem hljómar
einhvernveginn eins og það hafi alltaf
verið til, eða þá The Way it Goes með
frábærlega niðurdrepandi texta við
glaðvært undirspil.
Góð tónlist nær út yfir rúm og tíma
Gillian Welch - The Harrow &
The Harvest
bbbbm
Árni Matthíasson
Einfaldleiki Það er vonum seinna að Gillian Welch sendir frá sér nýja sóló-
skífu, eða kannski réttara að segja tvíeykisskífu með David Rawlings.
Erlendar plötur