Austurland - 03.02.1956, Page 1
Málgagn sósfalista á Anstnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 3. febrúar 1956. 5. tölublað.
Gífurleg skattahœkkun
230-240 millj. kr. ný skattabyrði lögð á þjóðina
Alþingi hefur nú samþykkt til-
lögur ríkisstjórnarinnar um að
leggja nýja, gífurlega skatta-
byrði á þjóðina. Er talið að þessi
nýi glaðningur muni í ár nema
230—240 millj. kr., eða 7 þús. kr.
á hverja meðalfjölskyldu í land-
inu.
Handa ríkissjóði á að hækka
skatta og önnur gjöld um 80 millj.
kr. — Það á að hækka vöru-
magnstoll, verðtoll, söluskatt,
benzínskatt um 20 aura líterinn
og skatt af hjólbörðum á að tvö-
falda. Þá á að hækka símgjöld og
burðargjöld og þannig á að ná 5
millj. og tóbaksskatturinn, sem
lagður var á í fyrrahaust til að
verðbæta Faxasíld, á nú að renna
í ríkissjóð.
Skattahækkunar ekki þörf
í framsöguræðu sinni í eldhús-
dagsumræðunum á mánuds^ginn,
benti Lúðvík Jósepsson á, að ríkið
hefði ekki þörf fyrir þessa skatta-
hækkun. Undanfarin ár hefði
tekjuafgangur ríkissjóðs verið um
og stundum mikið yfir 100 millj.
kr. — Skattahækkunin væri því
tilefnislaus. Þvert á móti hefði
verið hægt að lækka skatta. Þ;ssi
skattur, sem Lúðvík kallaði litla
skatt Eysteins, væri á lagður svo
að Eysteinn gæti borið sig dálítið
mannalega og státað af miklum
tekjuafgangi.
152 millj. til stuðnings
framleiðslunni
Svo er það hinn skatturinn, sem
Lúðvík nefndi stóra skatt.
Stofna skal nýjan sjóð, fram-
'ciðslusjóð. Hlutverk hans skal
vera að greiða styrki, eftir nánari
fyrirmælum laganna, til fram-
leiðsluatvinnuveganna. Útgjöld
þessa sjóðs sru á árinu áætluð
152 millj. kr. — Til eru 15 mlllj.
í bílasjóði togaranna og verður
sú upphæð lögð í framleiðslusjóð
og þarf þá, að því er ríkisstjórnin
telur, að sjá sjóðnum fyrir 137
millj. kr. viðbótartekjum. Þeirra
hyggst ríkisstjórnin afla með þeim
hætti, sem nú verður frá skýrt:
1. Leggja skal á nýjan sölu-
skatt, sem jafngildir tvöföldun
hans. Þannig á að ná 115 millj.
kr.
2. Leggja skal sérstakan skatt
á búsáhöld og verkfæri og sá
skattur á að gefa 10 millj. kr.
3. Hækka skal gjald af innlend-
um tollvörutegundum um 40%
og þannig aflað fjögurra milljóna.
4. Innheimta skal 100% skatt
af fob-verði bifreiða og er gert
ráð fyrir að sá skattur nemi 8
millj. — Hinsvegar hefur verið á
það bent, að þetta sé með vilja
alltof lágt áætlað, því bílaskatt-
urinn mun nema a. m. k. 16 millj.
Ríkistekjur svara til 85%
útflutningsins
Tekjur ríkissjóðs árið 1955
reyndust um 650 millj. kr. en
verða ekki undir 750 millj. á þessu
ári. Munu ríkistekjurnar svara til
þess að 85% útflutningsins rynni
í ríkissjóð. Til samanburðar má
geta þess, að 1949 námu ríkis-
tekjurnar 28% af útflutningnum.
Ástæðulaust að innleysa
B-skírteini
Úr framleiðslusjóði á að verja
26 millj. kr. til að innleysa báta-
gjaldeyrisskírteini. Þetta er með
öllu ástæðulaust, enda hafa út-
vegsmenn ekki óskað þess. Hins
vegar hafa þeir óskað eftir því, að
þeim yrði séð fyrir vaxtalausum
bankalánum út á skírteinin. Rétt-
mætt er að verða við þeirri ósk.
Þarf 85 millj. en innheimta
skal 137 millj.
Þegar tekið er tillit til þess, sem
að framan er sagt, kemur í Ijós, að
sjá þarf fyrir 85 millj. kr. tekj-
um í framleiðslusjóð í stað 137
millj. kr., sem rikisstjórnin ætlar
að innheimta. Til útvegsins þarf
70 milljónir og 15 til landbúnað-
arins,
Kaupið á ekki sök á
verðbólgunni
Því hefur verið haldið fram af
talsmönnum stjórnarinnar, í tíma
og ótíma, að alþýðan beri of mikið
úr býtum. Þess vegna þurfi að
hækka skatta og tolla. Þetta er
hin mesta firra og staðreyndum
snúið við. Kaupið hækkaði vegna
verðbólgustefnu stjórnarinnar.
Annar ræðumaður sósíalista
þetta kvöld, Brynjólfur Bjarna-
son, gerði þessu atriði enn ræki-
legri skil. Benti hann á hve mikið
raunverulegt kaup hefði lækkað
þegar minnkandi kaupmáttur
launa er hafður í huga. Ríkisvald-
ið hefði stöðugt rýrt kjör alþýð-
unnar með sífelldum skattahækk-
unum og aukinni dýrtíð. Árs-
skattar í ríkissjóð nema nú að
meðaltali 27 þús. kr. á hverja
meðalfjölskyldu.
Hið sífellda stríð valdhafanna
á hendur alþýðunni hefur leitt til
Framhald á 3. síðu.
Félagsheimili Neskaupstaðar
Þessi mynd er tekin af líkani, sem gert hefur verið af væntanlegu Félagsheimili Nes-
kaupstaðar og sýnir ljóslega hvernig útlit hússins á að vera. — IJm fyrirkomulag allt
vísast til greinar Gunnars Ölafssonar hér í blaðinu nýlega.