Austurland - 11.02.1956, Blaðsíða 1
Málgagn sósfalista á Anstnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 11. febrúar 1956. 6. tölublað.
F rá bæjarstjórn
Nefndarkosningar — Fjárhagsáætlanir —
Stuðningur við Goðanes til heimalöndunar
Bæjarstjórn Neskaupstaðar hélt
almennan fund í gær og verður
hér á eftir rakið það helzta sem
gerðist.
Forsetakjör og nefndar-
kosningar
Nú var í fyrsta sinn kosið eftir
nýrri samþykkt um stjórn bæjar-
mála. Hefur hún í för með sér
talsverðar breytingar, fyrst þá, að
nú skal kjósa tvo varaforseta í
stað eins áður, en meginbreyting-
in er sú, að nú er sett á stofn
bæjarráð og því falin störf all-
margra nefnda, sem jafnframt
hafa verið lagðar niður.
Flotinn stækkar
Um kl. 9 á fimmtudagsmorgun
bættist norðfirzka flotanum nýr
fiskibátur. Nefnist hann Huginn
og eru einkennisstafir hans N K
110.
Huginn er byggður í Gilleleje í
Uanmörku og er um 65 lestir að
stærð með 240 hestafla Völund
vól. Báturinn var 5 sólarhringa á
leið hingað frá Danmörku og
meðalganghraði á klukkustund
var 9 sjómílur.
Huginn er traustbyggður bátur
°g búinn öllum þeim öryggis og
Siglingatækjum, sem tíðkast i bát-
um af þessari stærð, þar á meðal
asdic-tæki.
Mannaíbúðir eru vistlegar og
rúmgóðar. í lúkar eru rúm fyrir
8 menn, í káetu 4 og í brú er klefi
skipstjóra.
Eigandi Hugins er hlutafélagið
Hrafnkell, en aðaleigendur þess
eru Jón S. Sigurðsson og Ármann
IJagnússon.
Huginn verður í vetur gerður
ut frá Sandgerði og fór áleiðis
þangað í gær. Skipstjóri verður
Jóhann K. Sigurðsson, en skip-
EtJóri á heimleiðinni frá Dan-
mörku var Þórður Björnsson.
Austurland óskar eigendum
Hugins til hamingju með þennan
uýja bát.
Forseti bæjarstjórnar var end-
urkjörinn Lúðvík Jósepsson.
1. varaforseti var endurkjörinn
Jóhannes Stefánsson.
2. varaforseti var kosinn Oddur
A. Sigurjónsson.
Bæjarráð. Minnihlutaflokkarn-
ir í bæjarstjórn lögðu á það all-
mikið kapp að bæjarráð yrði skip-
að 5 mönnum og töldu þriggja
manna bæjarráð þeim óhentugt,
þar sem 3 flokkar væru um þenn-
ar eina mann. Ekki sáu sósíalist-
ar ástæðu til að standa gegn
þessari ósk og eru því 5 menn í
bæjarráði og 5 til vara. Bæjar-
ráðsmenn eru:
Aðalmenn:
Lúðvík Jósepsson
Jóhannes Stefánsson
Jón S. Sigurðsson
Jón S. Einarsson
Oddur A. Sigurjónsson.
Varamenn:
Sigfinnur Karlsson
Vigfús Guttormsson
Bjarni Þórðarson
Jóhann P. Guðmundsson
Ármann Eiríksson.
Aðrar helztu nefndir, sem
kjörnar voru í gær, eru:
Hafnarnefnd:
Aðalmenn:
Einar Guðmundsson
Jón S. Sigurðsson
Hilmar Björnsson
Jóhann P. Guðmundsson
Sigurjón Ingvarsson.
Varamenn:
Sverrir Gunnarsson
Ármann Magnússon
Byggingarnefnd:
Aðalmenn:
Jóhannes Stefánsson
ívar Kristinsson
Jón S. Einarsson
Erlingur Ólafsson.
Varanienn:
Bjarni Sveinsson
Jón Þórðarson.
Bæjarstjóri er sjálfkjörinn for-
maður nefndarinnar,
Rafveitustjórn:
Lúðvík Jósepsson
Bjarni Þórðarson
Oddur A. Sigurjónsson.
S júkrahússst jórn:
Aðalmenn:
Lúðvík Jósepsson
Óskar Jónsson
Jón S. Einarsson.
Varamenn:
Bjarni Þórðarson
Stefán Þorleifsson
Jóhann P. Guðmundsson.
Bókasafnsnef nd:
Aðalmenn:
Gunnar Ólafsson
Magnús Guðmundsson
Oddur A. Sigurjónsson.
Varamenn:
Aðalsteinn Halldórsson
Davíð Áskelsson
Jón S. Einarsson.
Fjaliskilancfnd:
Jón Einarsson, Haugsstöðum
Guðni Einarsson
Eyþór Þórðarson.
Heilbrigðisnef nd:
Jón L. Baldursson. Bæjarfógeti
og héraðslæknir eru sjálfkjörnir
í nefndina.
Kjörskrárnefnd:
Sigfinnur Karlsson
Bjarni Þórðarson
Eyþór Þórðarson.
Endurskoðendur bæjarreikninga:
Aðalmenn:
Jón L. Baldursson
Björn Björnsson.
Varamenn:
Aðalsteinn Halldórsson
Jakob Hermannsson.
Endurskoðendur Sparisjóðs
Norðfjarðar:
Aðalmenn:
Aðalsteinn Halldórsson
Eyþór Þórðarson.
Varamenn:
Þórður M. Þórðarson
Axel Tulinius.
Stjórn bæjarútgerðar: Kosningu
frestað.
Atvinnumálanef nd:
Bjarni Þórðarson
Ölver Guðmundsson.
Byggingarnefnd gagnfræðaskóla.
Nefnd þessi var kosin sam-
kvæmt ályktun síðasta fundar. Á
hún að undirbúa byggingu gagn-
fræðaskóla, sem ráðgert er að
hefjist á næsta ári. 1 nefndinni
eru:
Framd.ald á 4. síðu.
Ottazt um
Hólmaborg
Vélskipið Hólmaborg fór héðan
áleiðis til Skotlands 30. janúar,
en hefur ekki komið fram og eru
menn nú mjög uggandi um afdrif
bátsins. Síðast heyrðist til hans
fimmtudaginn 2. febrúar og var
hann þá að reyna að ná sambandi
við Þórshöfn í Færeyjum, en
stöðin þar heyrði ekki til bátsins.
Undanfarna daga hefur mikil
leit verið gerð að bátnum og hafa
togararnir Austfirðingur og Goða-
nes tekið þátt í henni og flugvél-
ar hafa leitað frá íslandi, Skot-
landi og Noregi. Þrátt fyrir gott
skyggni hefur báturinn ekki
fundizt, né neitt, sem bent gæti
til hver afdrif hans hafa orðið.
Á Hólmaborg er fjögurra
manna áhöfn, þrír Eskfirðingar og
einn Norðfirðingur.
Fjárhagsáætlun
Seyðisfjarðar
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar sam-
þykkti fjárhagsáætlun bæjarins á
fundi sínum 19. janúar.
Niðurstóðutölur áætlunarinnar
eru kr. 1.534.250.00. Otsvör eru
áætluð kr. 990.000.00 og er það
90 þús. kr. hærra en í fyrra. Auk
þess er útsvar Áfengisverzlunar-
innar áætlað 90 þús. kr. — Aðrir
tekjuliðir eru samtals kr. 59.250.
00. Áætlunin er afgreidd með 385
þús kr. tekjuhalla og má af því
draga þá ályktun, að bæjarstjórn-
in treystir sér ekki til að jafna
fyrirsjáanlegum útgjöldum niður.
Helztu gjaldaliðir eru: Stjórn
bæjarmála 171 þús., en þar frá
dragast 60 þús. kr., sem er end-
urgreiðsla bæjarstofnana fyrir
störf bæjarskrifstofunnar í þeirra
þágu, framfærslan 150 þús., fram-
lag til Almannatrygginga 110 þús.
og til Sjúkrasamlags 43 þús. —-
Kostnaður við barnaskólann er
áætlaður 113 þús. að frádreginni
endurgreiðslu ríkissjóðs, miðskól-
inn 38 þús. einnig að frádreginni
endurgreiðslu. Halli sundhallar er
áætlaður 60 þús.
Framh. á 4. síðu.