Austurland


Austurland - 11.02.1956, Síða 3

Austurland - 11.02.1956, Síða 3
AUSTURLANB Neskaupstað, 11. febrúar 1956, 3 Landhelgismálið Framhald af 2. síðu. og stofna í beinan voða öllu sínu kjörfylgi. Enginn nauður rekur okkur til neinskonar fórna í sam- bandi við þetta mál. Löndunar- bannið hefur ekki orðið okkur til tjóns, heldur þvert á móti til góðs. Vegna viðskiptasamninga okkar við Sovétríkin kom ekki að sök þó Bretar hættu að kaupa af okk- ur fisk. I stað þess að flytja af- urðirnar sem hráefni á valta upp- boðsmarkað í enskum hafnarborg- um, hafa þær verið unnar í land- inu, útflutningsverðmæti þeirra stóraukið og mikil vinna verið við togarafisk víða um land. Sú stefna ríkisstjórnarinnar að vilja stuðla að þvi að aflinn sé fluttur út óunninn, hlýtur að hafa í för með sér mikinn samdrátt í atvinnu víða á landinu. Það er því hætt við að margur maðurinn eigi erfitt með að fá það inn í kollinn, að brýn nauðsyn hafi knú- ið ríkisstjórnina til að fórna Þjóðarhagsmunum íslendinga í þeim eina sjáanlega tilgangi að svipta verkafólk atvinnunni. Og eins og sjá má á því hve togara- eigendur brugðust fljótt við með nefndarskipun þá, er sagt var frá í upphafi greinarinnar, eru þeir staðráðnir í að selja fiskinn óunn- inn úr landi. Vitað er, að hin miklu og hag- kvæmu viðskipti okkar við Sovét- ríkin eru Bandaríkjunum og fleiri þjóðum mikill þyrnir í augum. Ekki er ósennilegt, að þau hafi hér hönd í bagga og beiti áhrifum sínum á stjórnendur Islands — og auðvitað hlýða þeir eins og vant er. Búðafell Á mánudag kom annar stálbát- nrinn til Fáskrúðsfjarðar af sömu gerð og stærð og Sigurbjörg, sem kom þangað fyrir skömmu og áJur hefur verið frá sagt. Þessi nýi bátur heitir Búðafell, eign samnefnds hlutafélags og niun kaupfélagið aðaleigandi. Búðafell verður gert út við í’axaflóa : vetur. BJaðið óskar Fáskrúðsfirðing- Um til hamingju með bátinn. NorSfjarSarbió i • • ■ I Paradísarfuglinn I Amerísk litmynd frá 20th : j Century Fox. j Sýnd sunnud. kl. 3 fyrir börn. j Geimfararnir : : ■ ■ : Þessi sprenghlægilega skop- • : jnynd verður nú sýnd í allra ■ : síðasta sinn. : : Synd sunnudag kl. 5. i j I Draumadísin mín I : : Skemmtileg amerísk söngva- : ■ mynd er fjallar um ameríska j • ljóðskáldið Gus Kahn. ■ ■ Doris Day og fleiri syngja : i 23 lög í myndinni. Sýnd sunnudag kl. 9. i Til ■ ■ ■ ■ Vil selja stórt og vandað ■ barnarúm með dýnu. Sveinbjörg Stefánsdóttir ■ Svalbarði. I Efnalaugin opnar í dag. : : Tekið á móti fatnaði til 17. ■ i í febrúar. Samkomudagur Alþingis 1956 Framhald af 1. síðu. lega stjórnarkreppa verður varla leyst nema farin verði ein leið af þremur. I fyrsta lagi að núverandi ríkisstjórn sitji áfram sem bráðabirgðastjóm fram yfir kosningar. Mundi það almennt talin óbein yfirlýsing um að íhald- ið og Framsókn ætluðu að mynda nýja stjórn eftir kosningar. I öðru lagi kæmi til greina að krat- ar og Framsókn myndi bráða- birgðastjórn með a. m. k. óbein- um stuðningi sósíalista. Mundi það talið benda til að eftir kosn- ingar yrði mynduð vinstri stjórn. I þriðja lagi kæmi svo til greina myndun utanþingsstjórnar að mestu skipaðri embættismönnum og er líklegt að stjórnarflokkarn- ir telji það fýsilegast. Fataefni: ■ ■ ■ ■ Pipar og saltefni, 3 litir, o. fl. alullarefni. ■ ■ Pipar og salt-efnin kosta aðeins 198.00. Sendum gegn póstkröfu. ■ ■ Pöntonarfélag alþýðu, Neskanpstað | ■ : ■ Nr. 2/1956. Tílkynning ■ ■ : : Innflutningsskrifstofan hef ur ákveðið eftirfarandi há- : ■ ■ marksverð á benzíni, og gildir verðið hvar sem er á landinu: : ■ : : Benzín, hver lítri ............... kr. 1,98 i : Sé benzínið afhent í tunnum má verðið vera 5 aurum ; ■ : : hærra hver lítri. : . : Söluskattur er innifalinn í verðinu. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 29. janúar 1956. : ■ , : Reykjavík, 28. janúar 1956. ■ Verðgæzlustjorinn. (---------------—-------—---------------------- Útsvör 1956 Bæjarstjórn Neskaupstaða r hefur, með tilvísun til 28. gr. laga nr. 66, 12. apríl 1945, um útsvör, ákveðið að haga inn- heimtu útsvara fyrir árið 1956 þannig: Hver gjaldandi, sem á þessu ári er útsvarsskyldur til Bæj- arsjóðs Neskaupstaðar, skal greiða fyrir fram upp í útsvar sitt 1956 sem svarar helmingi þess útsvars, sem honum bar að greiða árið 1955. Greiðsla þessi skal innt af hendi með fjórum jöfnum greiðslum, sem falla í gjalddaga 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní n. k. Lögtaksréttur er á greiðslum þessum. Þetta birtist hér með öllum hlutaðeigandi til eftirbreytni. Bæjarstjórinn í Neskaupstað, 11. febr. 1956. Bjarni Þórðarson. __ ———i— -----—,——----------——— ---------------------1 Kvikmyndasýning ■ ■ ■ ■ Rússneska sirkusmyndin j verður sýnd í dag — laugardag — kl. 5 fyrir börn og kl. 9 . fyrir fullorðna. MÍR-deildin. Sprengikvöld Saltkjöt, rófur og baunir borðið þér úr Pan n. k. þriðjudagskvöld. Pöntunarfélag alfsýðu, Neskaupstað 1— Lakaléreft 200 cm. breitt, 43.25 Léreft 140 cm. breitt 20.00 Léreft 140 cm. breitt 15.00 PAN

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.