Austurland - 13.04.1956, Síða 3
AUSTURLANÐ
3
Neskaupstað, 13. apríl 1956.
Dr bænum
7«
Afmæli:
Fanney Guðmundsdóttir, Byrar-
götu 3B, varð 50 ára 11. apríl.
Hún fæddist í Meðalfelli í Nesjum
en fluttist hingað 1947 frá Fá-
skrúðsfirði.
Dánardægur.
Sólveig Benjamínsdóttir andað-
ist að heimili sonar síns Ölvers
Guðmundssonar, Þórsmörk, að-
faranótt 9. apríl. Hún var gift
Guðmundi Magnússyni, ættuðum
úr Helgustaðahreppi, en hann er
látinn fyrir allmörgum árum.
Sólveig var fædd á Ýmastöðum
í Vaðlavík 9. okt. 1875 og varð
því fullra 80 ára, er hún andað-
ist.
Af 6 börnum þeirra Sólveigar og
Guðmundar eru 5 búsett hér í
bænum.
Fisklandanir.
Goðanes landaði hér fyrir síð-
ustu helgi 192 tonnum af fiski til
frystingar og herzlu og fór síðan
aftur á veiðar. Frétzt hefur að
það hafi fengið 120 tonn fyrstu
þrjá daga yfirstandandi veiðiferð-
ar.
Mummi landaði um helgina 14
skp. af handfæraafla.
Hrafnkell landaði á mánudag
25 tonnum af fiski veiddum í net
á Hornafjarðarmiðum. Hefur
Hrafnkell aflað þar vel að undan-
förnu, en er nú kominn suður til
Vestmannaey jar.
Enok hefur róið með línu að
undanförnu, en afli verið tregur.
Afmæli Gagnfræðaskólans,
Gagnfræðaskólinn minnist 25
ára starfsafmælis síns með hófi í
barnaskólanum annað kvöld,
V erklýðsfélagsf undur.
Eins og auglýst er á öðrum stað
verður aðalfundur Verklýðsfélags-
ins haldinn á sunnudag. Á fundin-
um mun Lúðvík Jósepsson skýra
hin merku lög um atvinnuleysis-
tnyggingar, en nauðsynlegt er
fyrir verkafólk að kynnast þeim
sem bezt.
Þess er vænzt að félagsmenn
niæti vel.
NorðfjarSarbió
Havai-rósin
■
■
• ■
j Framúrskarandi þýzk kvik- j
i mynd.
Sýnd sunnudag kl. 3.
• ■
■ ■
i Óskilgetin börn j
j Frábær, ný frönsk stórmynd :
i með dönskum skýringartexta. j
* m
J ■
Sýnd sunnudag kl. 9.
Húsnæöi
Ibúð óskast til leigu nú þegar eða síðar.
DKÁTTARBRAUTIN h.f.
Reiknivél
handsnúin, tekur
til sölu ódýrt.
Guðm.
9.999.999.99,
Sigfússon.
Byggingarfulltrúi
Starf byggingarfulltrúa Neskaupstaðar er laust til umsókn-
ar. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1956.
i
Bæjarstjóri.
»■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■'
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■'
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*
Barna-inniskó r
úr flóka, stærðir 22—30.
Sigfúsarverzlun.
j Gamla, lága verðiö!
■
er enn á öllu, en nú fer 5
hver að verða síðastur.
■
Sigfúsarverzlun.
Til sölu
Barnavagn til sölu.
Borghiidur Hinriksdóttir.
Kjörskrá
Kjörskrá til kosninga til Alþingis gildandi frá 15. júní 1956
tii 14. júní 1957, liggur frammi almenningi til sýnir á skrifstofu
Neskaupstaðar frá 24. apríl til 21. maí n. k. að báðum dögum
meðtöldum.
Kærur út af því, að einhver sé ranglega á kjörskrá, eða að
nafn einhvers, sem þar ætti að standa, vanti á kjörskrá, eða að
eitthvað annað sé ábótavant við hana, skulu komnar í hendur
undirritaðs í síðasta lagi laugardaginn 2. júní 1956.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað, 11. april 1956.
Bjarni Þórðarson.
Aðalfundur
Það sem af er þessum mánuði
hefur lengst af verið norðlæg átt
með lítilsháttar frosti, þó sjaldan
mjög hvasst, en nokkur snjókoma
suma dagana.
Enn hefur því ekki orðið af því
að vegurinn um Oddsskarð hafi
verið ruddur, en það mun gert þeg-
ar er breytir um átt.
Fagradalsvegur, sem lengst af
hefur verið bílfær í vetur, er nú
ófær vegna snjóa.
Ferðabók Orlofs Aðalfundur Verklýðsfélags Norðfirðinga verður haldinn í
, . ., j Bíóhúsinu sunnudaginn 15. apríl kl. 5 e. h.
Ferðabók Orlofs 1956 hefur venð j
send blaðinu. Hefur hún inni að j DAGSKRA:
halda auk almennra upplýsinga um j . , ... .
starfsemi fyrirtækisins, áætlanir j Venjuleg aðalfundarstorf.
um ferðalög á vegum þess. Er þar : 2. 1. maí.
um að ræða 12 hópferðir til út- : 3. Atvinnuleysistryggingarnar, frummælandi Lúð-
landa og verður lagt af stað í þá : vík Jósepsson.
fyrstu 15. þ. m. og farið um Dan- j 4 önnur mál.
mörk, Þýzkaland, Sviss, Italiu og :
Frakkland. j Neskaupstað, 13. apnl 1956.
Auk utanlandsferðanna verða á j Stjormn.
vegum Orlofs farnar margar ferð- j
ir og hringferðir um landið.
Orlof hefur sýnilega skipulagt ............................................■■■■■■.....................
ferðalög sín svo sem bezt má j Nr. 10/1956.
verða og stendur í nánu sambandi j
við ferðaskrifstofur um allan heim. j mmbb •
Það getur því boðið ferðamönnum | IRwlfVlII 11)11
hina ákjósanlegustu fyrirgreiðslu. | Sli^¥
------—-------- : Vegna breytingar á verðjöfnunargjaldi hefur Innflutnings*
skrifstofan ákveðið nýtt hámarksverð á hráolíu sem hér segii.
Hráolía, hver lítri kr. 0.87V2.
Að öðru leyti haldast óbreytt ákvæði tilkynningar nr. 7/1956.
Reykjavík, 31. marz 1956.
Verðgæzlustjórinn.
Hjónaband.
Á skírdag voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju ung-
frú Þóra Guðjónsdóttir frá Nes-
kaupstað og Agnar Öskarsson,
iðnnemi. Heimili þeirra er á Rán-
argötu 2, Akureyri.