Austurland - 13.04.1956, Side 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 13. april 1956.
Braskið með
skalisijórana
Fyrir nokkrum árum var nýtt
embætti — skattstjóraembættti —
búið til hér í Neskaupstað. Ekki
verður þó sagt, að mikil nauðsyn
hafi verið á því embætti. Starfið
var á þeim tíma ekki meira en
svo, að það varð auðveldlega unn-
ið af skattanefnd eins og fram
til þess hafði tíðkazt og enn tíðk-
ast í öllum kaupstöðum af svipaðri
slærð og Neskaupstaður.
Það var íhaldsráðherra, sem
ákvað að búa til þetta embætti.
Ekki mun það hafa verið auglýst
laust til umsóknar, sem títt er um
slík störf, enda tilbúið handa
ákveðnum manni, þáverandi íhalds-
manni, sem var atvinnulaus. Hitt
er svo annað mál, að maður sá, er
hér var skipaður skattstjóri, Jón
Sigfússon, er vel til starfans fall-
inn, glöggur og nákvæmur, en þó
ekki smásmugulegur.
Þegar kaupstaðaréttindum var
þröngvað upp á Kópavogsbúa, sem
frægt er orðið, opnaðist mögu-
leiki til að búa þar til skattstjóra-
embætti og var það auglýst laust
til umsóknar, raunar fyrir siðasak-
ir, því Eysteinn, sem veitir skatt-
stjóraembættin, hafði heitið að
skipa Jón Sigfússon í það, sem
hann og gerði.
Eysteinn hefur áreiðanlega ekki
fyrst og fremst haft í huga hæfi-
Ieika Jóns til að gegna þessu emb-
ætti, enda ótrúlegt að í þeim 50—
60 manna hópi, sem sagt er að
hafi sótt um starfið, hafi ekki ver-
ið margir jafnokar Jóns. En með
því að losa skattstjóraembættið
hér, fékk Eysteinn tækifæri til að
skipa í það pólitískan trúboða og
verður komið að því síðar.
Víkur nú sögunni upp á Hérað.
Maður er nefndur Sigurbjörn
Snjólfsson, bóndi á Gilsárteigi í
Eiðaþinghá. Hann hefur verið einn
ötulasti stuðningsmaður Eysteins
í kjördæminu og mjög lagt sig í
líma til að þjóna honum sem bezt,
enda hefur verið reynt að sjá það
við hann.
Sigurbjörn í Gilsárteigi á marga
sonu og heldur þeim mjög til
mannvirðinga og verður honum
ekki láð þó hann vilji koma sonum
sínum til manns.
Einn sona Sigurbjörns heitir
Guttormur. Hann varð fyrir nokkr-
um árum skattstjóri á ísafirði af
náð Eysteins. í fyrra var svo kom-
ir, að honum var tekið að leiðast
að reikna út skatta Isfirðinga og
gerðist erindreki Framsóknar-
flokksins. — I embætti hans sækir
svo Eysteinn annan Gilsárteigs-
pilt, Vilhjálm að nafni, kennara að
Eiðum. — Er svo að sjá að þeir
Sigurbjörnssynir séu öðrum
mönnum betur af guði gerðir til
að reikna út skattana handa Ey-
steini.
Nú gerist það að í þann mund,
sem skattstjóraembættið í Kópa-
vogi er auglýst laust til umsóknar,
er hið sama gert við skattstjóra-
embættið á ísafirði. Þóttust nú
glöggir menn sjá, að Vilhjálmi,
sem í fáa mánuði hafði verið
skattstjóri á Isafirði, væri ætlað
að gerast pólitískur trúboði Ey-
steins hér í bæ. Fékkst og skjótt
staðfesting á þessu, m. a. á þann
hátt, að Framsóknarmenn hér hófu
að bjóða í hús hér og skyldi þar
verða embættisbústaður hins nýja
trúboða. Var það látið fylgja, að
verðið skipti litlu.
Skattstjóraembættið í Neskaup-
stað er svo auglýst laust til um-
sóknar, en fyrirvarinn hafður svo
stuttur, að Lögbirtingablaðið barst
ekki í hendur kaupenda þess hér
fyrr en fresturinn var úti. Með
því var fyrir það girt að Norð-
firðingar hefðu tækifæri til að
sækja um starfið. Vitað er að
nokkrir menn héðan höfðu hug á
að sækja um það og standa þeir
áreiðanlega fyllilega á sporði Vil-
hjálmi þessum frá Gilsárteigi. Einn
Norðfirðingur, Eyþór Þórðarson,
hafði þó fyrir tilviljun spurnir af
því úr símtali, að embættið hefði
verið auglýst laust og sendi um-
sókn í símskeyti daginn áður en
umsóknarfrestur var úti.
Hvað sem um Eyþór má segja,
mun öllum bera saman um að
hann sé vel til þess fallinn á
margan. hátt að vera skattstjóri.
Hann er duglegur og nákvæmur
og vel kunnugur högum manna
hér. Má Vilhjálmur standa sig,
eigi hann að jafnast á við Eyþór.
Og Eyþór á vissulega líka hönk
upp í bakið á Eysteini og er ekki
ólíklegt að hann hafi sett ráð-
herrann í nokkurn vanda með um-
sókn sinni.
Þetta brask Eysteins með skatt-
stjóraembættin er hin fyrirlitleg-
asta misbeiting veitingavaldsins.
Hér hefði að réttu lagi átt að
leggja niður skattstjóraembættið
fyrst það losnaði, því enda þótt
starf skattstjóra hafi farið vaxandi
á undanförnum árum, er hér um
að ræða embætti, sem er ekki um-
fangsmeira en svo, að einn maður
getur auðveldlega rækt það með
því að vinna sæmilega hálft árið.
— En úr því embættinu er haldið,
er með öllu ástæðulaust að ganga
fram hjá innanbæjarmönnum við
veitingu þess.
Hitt á svo eftir að sýna sig
hvort vonir Eysteins um árangurs-
ríkt trúboðsstarf hins nýja skatt-
stjóra rætast.
Byrjað að veiðast
við Langanes
Mummi kom norðan frá Langa-
nesi fyrir síðustu helgi með fyrsta
aflann sem þaðan berst á þessu
ári. Voru það 14 skippund.
Auk Mumma eru Björn, Dröfn
og Ver byrjaðir þessa róðra og
fleiri munu bætast í hópinn innan
skamms.
Allir eru bátarnir með handfæri.
Góður fundur
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið boðaði til al-
menns fundar hér í bænum á
mánudaginn og mun það fyrsti al-
menni fundurinn, sem boðað hefur
verið til á þess vegum.
Veður var mjög óhagstætt til
fundarhalda þennan dag, stormur
og snjóbylur. Þess er og að gæta,
að fjöldi manna er fjarverandi á
vertíð. Þrátt fyrir það sóttu fund-
inn um 80 manns og verður það
að teljast ágæt fundarsókn miðað
við kringumstæður.
Lúðvík Jósepsson flutti athygl-
isverða ræðu um stjórnmálavið-
horfið þar sem hann m. a. rakti
tildrögin að stofnun Alþýðubanda-
lagsins. Aðrir ræðumenn voru
Jónas Árnason, Bjarni Þórðarson
og Oddur A. Sigurjónsson, sem
lýsti yfir því, að það væri ósk hans
og von, að vinstri menn næðu að
sameinast.
Fundurinn fór ágætlega fram.
Fundarstjóri var Jóhannes Stef-
ánsson.
Barnaskemmtun
Nemendur barnaskólans efna til
skemmtunar á sumardaginn fyrsta
í þeim tilgangi að afla fjár í
ferðasjóð sinn.
Verða þar ýmis skemmtiatriði,
sem börnin annast sjálf, s. s.
söngur, upplestur og leikþáttur.
Það er alltaf góð skemmtun að
sjá og hlýða á börn skemmta, og
ættu bæjarbúar að sækja vel þenn-
an sumarfagnað og slá þar með
tvær flugur í einu höggi, gleðjast
með börnunum og styrkja ferða-
sjóð þeirra.
Alþýdubandalagiö
Hvað er alþýðubandalagið ?
Það er kosningaflokkur, sem \instri menn hafa myndað
og þátt tekur í Alþingiskosningunum í sumar.
Er Alþýðubandalagið þá ekki nýr stjórnmálaflokkur?
Raunveru'iega ekki. Vegna kosningalaganna verða þau
að heita stjórnmálaflokkur því annars gætu þau ekki
haft landslista. En þau eru kosningasamtök manna sem
eru í öðrum flokkum og utan flokka.
En hvað um Sósíalistaflokkinn ?
Hann hefur ekki verið lagður niður, slíkt er algjör
misskilningur. Hann hefur aðeins ákveðið að bjóða
ekki fram í kosningunum í sumar, heidur vera aðili að
Alþýðubandalaginu.
En hvernig er þá samband Alþýðusambandsins og Alþýðu-
bandalagsins ?
Þar er ekkert skipulegt samband á miili. — Alþýðu-
sambandið hefur aðeins beitt sér fyrir stofnun kósn-
ingasamtaka vinstri manna. Það er að öllu leyti óháð
og óbundið Alþýðubandalaginu.
En mörg verklýðsfélög styðja þó Alþýðubandalagið.
Að sjálfsögðu geta verklýðsfélög gert samþykktir um
allt sem þau sjálf telja sér til hagsbóta. — Þau viður-
kenna að Alþýðubandalagið hefur tekið upp málefna-
yfirlýsingu Alþýðusambandsins um uppbyggingu at-
vinnuveganna. — Verklýðsfélögin \ita að þingmenn
Aiþýðubandalagsins munu verða fullatrúar þeirra á
Alþingi og af því vilja J)au vinna að sigri frambjóð-
enda Alþýðubandalagsins.
Hverjir eru aðilar að Alþýðubandalaginu ?
Þeir eru sósíaiistar, vinstri Alþýðuflokksmenn, ýmsir
Þjóðvarnarmenn og utanflokkamenn. Auk þess er
vítað, að margir vinstri Framsóknarmenn munu styðja
Alþýðubandalagið.
Allir vinstri menn, sem \ilja samstarf vinstri flokk-
anna og vinstri stjórn, allir sem vilja vinsamleg sam-
skipti við vinnandi fólk og samtök þess, hljóta að styðja
Alþýðubandalagið.