Austurland - 25.05.1956, Blaðsíða 1
Málgagaa sésíaltstta á Anstnrlandi
8. árgangur. Neskaupstað, 25. maí 1956. 17. tölublað.
Gela verkamenn
kosið Framsókn?
Geta verkamenn, sem í félagi
sínu hafa barizt fyrir hækkuðu
kaupi og bættum kjörum, kosið
Framsóknarflokkinn ? Geta þeir
verkamenn, sem í dag telja kaup
sitt sízt of hátt stutt Framsókn-
armenn ?
Er mögulegt fyrir nokkurn
heiðarlegan verkamann, eða
verkakonu, sem í einlægni vill
vinna að hagsmunamálum sjálfs
sin og stéttarsystkina sinna, að
efla þann flokk, sem beint og opin-
skátt berst gegn hagsmunum
verkafólks ?
Þessar spurningar hljóta að
ryfjast upp nú fyrir kosningarn-
ar 24. júní n. k.
Hér skulu tilfærðar nokkrar
staðreyndir um afstöðu Fram-
sóknar til hagsmunamála verka-
fólks.
1. I verkfallinu mikla s. 1. vor
stóð Framsóknarflokkurinn við
hliðina á íhaldinu og barðist hat-
rammlega á móti launakröfum
verkamanna. \ Þá gekk Eysteinn
fram fyrir skjöldu og varði íhald-
ið, en réðist á verkamenn fyrir of
miklar kaupkröfur og sagði að
þeir væru að setja efnahagskerfið
úr skorðum.
2. 1 öllum stærri vinnudeilum
síðustu ára hefur Framsóknar-
flokkurinn staðið með íhaldinu en
á móti verkafólki.
3. Framsókn samþykkti gengis-
lækkunina sem beinlínis þýddi
lækkun á kaupi.
4. Framsókn samþykkti í vetur
að leggja 250 milljón króna nýja
tolla og skatta á almenning.
5. Hér í bæ liafa foringjar Fram-
sóknar alltaf verið andstæðingar
verkamanna þegar rætt hefur ver-
ið um kaupgjaldsmál.
Þessar staðreyndir, sem þó eru
aðeins nokkrar af mörgum, nægja
til þess að sýna afstöðu Fram-
sóknar til hagsmunamála verka-
fólks.
Getur svo nokkur verkamaður,
sem hefur í huga þessar stað-
reyndir, leýft sér þá framkomu að
styðja Framsóknarmenn t. d. til
þingsetu og vinna þannig beinlín's
á móti sínum eigin hagsmunum og
málstað félaga sinna?
Sá verkamaður sem kýs Fram-
f ókn berst gegn sínu félagi, hann
leikur þann heimskulega leik, að
vilja sjálfur fá viðunandi kaup og
réttlát atvinnukjör, en efla þó
jafnframt þá menn sem gegn slíku
vinna á Alþingi.
Þetta skilja flestir verkamenn
og því er það fátítt að þeir kjósi
Framsóknarflokkinn.
En þeir verkamenn, sem gera sig
líklega til stuðnings við Framsókn,
ættu að athuga vel hvað þeir
raunverulega eru að gera.
Jóhannes Stefánsson.
Þórður Þórðarson.
Framboð Alþýðubanda-
lagsins í N-Múlasýslu
Lista Alþýðubandalagsins
Norður-Múlasýslu skipa.
Á varp
til stuðningsmanna Alþýðubandalagsins
1. Kosningaskrifstofa
Alþýðubandalagið hefur opnað kosningaskrifstofu í Sam-
komuhúsinu í Neskaupstað. Verður hún fyrst um sinn opin
daglega kl. 5—7 e. h. í fyrsta sinn á morgun, 26. maí.
Kosningaskrifstofan lætur í té allar upplýsingar varðandi
kosningarnar m. a. um utankjörfundaatkvæðagreiðslu. Er fólki,
sem er á förum úr bænum og ekki gerir ráð fyrir að vera
heima á kjördegi, bent á að leita til skrifstofunnar um upp-
lýsingar og fyrirgreiðslu.
Stuðningsmenn bandalagsins eru beðnir að hafa samband við
skrifstofuna og gefa henni upplýsingar, sem að gagni geta
komið
Utankjörfundakosning hefst sunnudaginn 27. maí.
2. Kosningasjóður
Það kostar talsvert fé að heyja kosningabaráttu, einkum í
jafn víðáttumiklu kjördæmi sem þessu, þar sem ferðalög eru
dýr. Alþýðubandalagið hefur ekki af neinum sjóðum að taka til
að kosta kosningabaráttuna. Þessvegna er hér með leitað til vel-
unnara þess eftir fjárhagslegum stuðningi. Er heitið á alla þá,
sem stuðla vilja að sigri Alþýðubandalagsins, að leggja fé af
mörkum til að efla kosningasjóðinn. Munið að kornið fyllir
mælinn.
Framlögum í kosningasjóðinn er veitt móttaka í kosninga-
skrifstofunni í Samkomuhúsinu.
Kosninganefndin.
Jóhannes Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri, Neskaupstað
Þórður Þórðarson, bóndi Gauks-
stöðum
Davíð Vigfússon, vélstjóri,
Vopnafirði
Sverrir Sigurðsson, vélstjóri
Borgarfirði.
Jóliannes Stefánsson er þekktur
maður í Norður-Múlasýslu. Hann
hefur allt frá 1942 skipað efsta
sæti lista Sósíalistaflokksins í
kjördæminu og getið sér þar hið
bezta orð.
Hér í bæ hefur Jóhannes gegnt
fjölda trúnaðarstarfa bæði á veg-
um bæjarfélagsins og félagssam-
taka, einkum verklýðssamtakanna
og samvinnusamtakanna. Hann
var um árabil formaður verklýðs-
félagsins, síðan lengi pöntunarfé-
lagsstjóri og nú síðustu árin
framkvæmdastjóri Samvinnufé-
lags útgerðarmanna, en það rekur
eitt allra stærsta atvinnufyrirtæki
á Austurlandi. Jóhannes er því ná-
kunnugur öllu, sem snertir verk-
lýðsmál og samvinnusamtök, bæði
á sviði verzlunar og framleiðslu.
Þórður Þórðarson nýtur mikilla
vinsælda í héraðinu og hefur gegnt
fjölda trúnaðarstarfa fyrir sveit
sína og bændasamtökin.
Davíð Vigfússon hefur tekið
mikinn þátt í starfi verklýðssam-
takanna á Vopnafirði og er nú rit-
ari verkamannafélagsins. Hann er
vélstjóri við hraðfrystihúsið á
Vopnafirði,
Framhald á 2. síðu.