Austurland


Austurland - 28.07.1956, Qupperneq 1

Austurland - 28.07.1956, Qupperneq 1
6. árgangur. Neskaupstað, 28. jálí 1956. 26. tölublað. Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar Keyptir verði 15 nýir togarar, landhelgin stækkuð, erlend lán tryggð til stórframkvæmda Ríkisstjórnin mun í utanríkis- málum íylgja fram ályktun Al- þingis 28. marz s.l., „um stefnu íslands í utanríkjsmálum og með- ferð varnarsamningsins við Banda- ríkin“. Ríkisstjórnin mun vinna að því að lokið verði á starfstíma stjórn- arinnar endurskoðun stjórnar- skrár lýðveldisins og kosningalaga og munu stjórnarflokkarnir vinna að samkomulagi sín á milli um iausn þessara mála. Hér fer á eftir stefnuyfirlýsing hilinar nýju ríkisstjómar vinstri flokkanna: „Ríkisstjórnin mun taka upp samstarf við samtök verkalýðs og launþega, bænda, útgerðarmanna og annarra fi amleiðenda, til þess að finna sem heppilegasta lausn á vandamálum atvinnuveganna. Markmið þessa samstarfs skal vera að auka framleiðslu lands- manna, tryggja a' \ innu og kaup- mátt tekna og efla almennar framfarir í landinu. Ríkisstjórnin mun nú þegar í samráði við stéttasamtökin skipa nefnd sérfróðra manna, til þess að rannsaka ástand efnahagsmála þjóðarinnar, með það fyrir augum að sem traustastur grundvöllur fáist undir ákvarðanir hennar í þeim málum. Mun ríkisstjórnln Ieggja sér- staka áherzlu á að leysa efnaliags- vandamálin í náinni samvinnu við stéttasamtök vinnandi fólks. Ríkisstjórnin mun beita sér fyr- Nafn nýja togarans: Gerpir N. K. 106 Eins og auglýst var í síðasta blaði var efnt til samkeppni um nafn á hinn nýja togara bæjarins. Tillögur bárust um 17 nöfn, en uppástungumenn voru 21. Niðurstaðan varð sú, að valið var nafn austasta fjalls landsins, „Gerpii-". Höfðu 5 menn lagt til, að skipinu yrði gefið það nafn, en það voru: Sigurrós Filippusdóttir Sigurfinna Eiríksdótti’r, Friðrik Grétar Óskarsson, Davíð Áskels- son og Guðmundur Magnússon. Hlutað var um hver skyldi hljóta verðlaun þau, er heitið var og kom upp hlutur Friðriks Grétars Ósk- arssonar. Einkennisstafir skipsins verða N. K. 106. ir að skipuleggja alhliða atvinnu- uppbyggingu í landinu, einkum í þeim þremur landsfjórðungum, sem nú eru verst á vegi staddir í atvinnulegum efnum. Ríkisstjórnin mun láta gera heildaráætlun um framkvæmdir á næstu árum og nýmæli í því sam- bandi og birta hana þjóðinni. Nú þegar hefur verið tekin ákvörðun um: 1. Að leita samninga um smíði á 15 togurum og Iánsfé til þess, enda verði skipunum ráðstafað og þau rekin af hinu opinbera og á annan hátt með sérstöku tilliti til þess að stuðla að jafn- vægi í byggð landsins. 2. Að beita sér fyrir því að haf- izt verði handa um framhalds- virkjun Sogsins og lánsútvegun í því sambandi. 3. Að leita eftir erlendum lánum til framkvæmda í landbúnaði, iðnaði og hafnargerð. Ríkisstjórnin iítur á stöðvun verðbólgunnar sem eitt höfuðverk- efni sitt. Hún mun leggja sér- staka áherzlu á að koma í veg fyrir óeðlilegan gróða milliliða og beita sér fyrir, að fjármálastefna bankanna verði í samræmi við þarfir atvinnuveganna og upp- byggingar- og framfarastefnu rik- isstjórnarinnar. 1 því sambandi mun ríkisstjórnin beita sér fyrir breytingum á bankalöggjöf lands- ins m. a. því að seðlabankinn verði settur undir sérstaka stjórn. Lögð verði rík áherzla á lausn húsnæðismáianna. Unnið gegn þraski með byggingar og húsa- leiguokri og að því að tryggja íbúðarhúsnæði með viðráðanlegum kjörum. Rafvæðingu landsins verði hraðað. Áherzla verður lögð á að auka ræktun og bústofn landsmamia. Ríkisstjórnin leggur áherzlu á stækkun islenzku landhelginnar og I íc'ur, að stækkun friðunarsvæðis- ins í kringum Iandið sé nú brýn nauðsyn vegna atvinnuöryggis landsmanna og mun því beita sér fyrir framgangi þess máls. Það er samkomulag stjórnar- flokkanna, svo sem að undanförnu hefur tíðkazt, að forsætisráðherra geri ekki tillögu um þingrof, nema með samþykki allra stjórnarflokk- anna eða ráðherra þeirra“. Hafnarmál Neskaupstaðar Höfn Neskaupstaðar er ekki góð frá náttúrunnar hendi. Fjörður- inn er stuttur og flóinn breiður og lítil mótstaða gegn úthafsöldunni. Þegar þessa er gætt og jafn- framt höfð í huga hin ágætu hafn- arskilyrði á nágrannafjörðunum, Seyðisfirði, Mjóafirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði, get- ur maður ekki annað en furðað sig á því, að hér skuli hafa risið upp langstærsta útgerðarplássið á ! Austfjörðum. i Þessi annmarki á höfni'nni veld- j ur útgerðarmönnum og sjómönn- um miklum erfiðleikum. Talsverð- ar skemmdir verða á bátum þegar þeir li'ggja við bryggjur og oft komast menn að því fullkeyptu, að afgreiða skip og báta. Hver bátur verður að eiga öflug legu- færi, en jafnvel þar eru þeir ekki öruggir, eins og fjölmörg dæmi sanna. Af þessu má sjá, að bætt hafn- arskilyrði eru eitt allra þýðingar- mesta hagsmunamál Norðfi'rðinga. Og þar dugir ekkert smá átak. Það dugir ekkert minna en hafn- argerð. Þetta hefur forráðamönn- um bæjarins lengi ljóst verið, en engar leiðir hafa verið opnar til að afla fjár til svo stórfelldra framkvæmda. Hafnargerð mundi kosta stórfé, | ef hún yrði við það miðuð, að í höfninni gæti legið og athafnað sig allur okkar floti. Að sjálf- sögðu getur enginn, sízt leikmað- ur, gert sér í hugarlund hvað þesskonar mannvirki kostar án undangengiUnar rannsóknar. En gerum ráð fyrir að það kosti 15 millj. kr. — Ríkissjóður mundi greiða 6 millj. en hafnarsjóður yrði að greiða 9 og þá upphæð alla yrði hann að fá að láni. Ef lánið yrði til stutts tíma og vextir háir, væri með öllu útilokað að hafnar- sjóður gæti risið undir því. Segj- um að þetta yrði 15 ára lán með 7% vöxtum. Afborgun og vextir yrðu fyrst í stað 1.2 millj. kr. á ári* 1, en það er margfalt hærri upp- hæð en hægt er að vonast til að höfnin hafi í tekjur. Við þurfum að fá lán til lengri t'ma með lægri vöxtum. Lán til 30 ! ára með 5% vöxtum mundi þýða, ] að fyrst í stað yrðu vextir og af- i borganir um 730 þús. á ári Færi þetta þá að verða viðli't, en þó mundi bæjarsjóður árum saman þurfa að taka mikinn hluta þess- ara greiðslna á sig. Áður en ráðizt er í jafn stór- fellda fjárfestiúgu verður að gera sér fulla grein fyrir möguleikun- um til að láta mannvirkið bera sig. Framhald á 2. síðu.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.