Austurland - 27.10.1956, Page 2
2
AUSfURLAND
Neskaupstað, 27. október 1956.
Stjórnmálaályktun
15. þings Æ.F.
Síðan 14. þing Æskulýðsfylking-
arinnar var háð, hafa gagngerar
breytingar orðið í stjórnmálaþró-
un íslenzku þjóðarinnar inn á við
sem út á við.
Þingið fagnar þeirri nýju ein-
ingaröldu, sem risið hefur meðal
íslenzku verklýðsstéttarinnar og
sem fann farveg í stofnun Alþýðu-
bandalagsins og hinum mikla
kosningasigri þess, er gerði mynd-i
un núverandi ríkisstjórnar mögu-,
lega.
Samtímis fagnar þingið þeirri
ákvörðun Alþingis Islendinga að
segja upp samningnum um dvöl er-
lends herliðs í landinu.
Þingið sér í þessum stóru áföng-
um árangurinn af langri og þrot-
lausri baráttu íslenzkra sósíalista
fyrir einingu verkalýðsins og
sjálfstæði íslands og minnir jafn-
framt á þátt ungra sósíalista í
þessari baráttu.
Þingið vill beina athygli ís-
lenzkrar æsku að því að sigursæl
barátta fyrir framkvæmd á stefnu-
málum ríkisstjórnarinnar og
stefnuskrá Alþýðubandalagsins
felur í sér áður óþekkta möguleika
fyrir lausn á vandamálum unga
fólksins á sviði menntunar, at-
vinnuöryggis, húsnæðismála og fé-
lagslegrar aðstöðu.
Þingið vill ennfremur minna ís-
lenzkan æskulýð á það, að ísland
býr yfir svo miklum auðæfum til
lands og sjávar, að það getur veitt
Miklir flutningar
úr Mjóafirði
Á þessu ári hefur verið áfram-
hald á fólksflutningum úr Mjóa-
firði og er talið að um næstu ára-
mót verði aðeins um 50 íbúar í
hreppnum, en fyrir 4 árum voru
þeir milli 140 og 150.
Hirigað til Neskaupstaðar munu
í ár flytja 10 mat.ms frá Mjóafirði
en enn fleiri flytja til Suðurlands-
ins.
1 haust fer stórbýlið Fjörður
alveg í eyði svo og Hof,
Vegagerð í Mjóafirði
I sumar var lokið við að ryðja
bílveg út á Dalatanga og er hann
jeppafær. Mun hafa verið unnið
fyrir um 100 þús. kr. í sumar.
Allmikið verk er þarna enn óunn-
ið við ofaníburð.
Vegagerð þessi mut.i einkum
vera rökstudd með því, að nauð-
synlegt sé að bæta samgöngumar
við Dalatanga vegna vitanna og
mun vitamálastjóri hafa lagt
mikla áherzlu á að vegur þessi
yrði lagður.
hverjum landsmanni hagsæld og
efnahagslegt öryggi, ef auðlindir
þess eru nýttar fyrir þjóðina, en
ekki lítinn hóp auðkýfinga og
braskara. Þingið hvetur því alla
unga Islendinga til að vísa á bug
þeim kenningum að íslenzka þjóð-
in geti ekki umflúið atvinnuleysi
og skort án þess að vera öðrum
þjóðum háð og að Islendingar séu
ekki sjálfir færir um að nýta auð-
lindir landsins.
Þess vegna telur þingið, að trú
á landið og traust á þjóðinni verði
að móta alla afstöðu íslenzkrar
æsku til þeirra viðhorfa, sem nú
eru fyrir hendi og heitir á æsku-
| lýð landsins að taka höndum sam-
an í baráttunni fyrir framkvæmd
á stefnu ríkisstjórnarinnar, stefnuj
skrá Alþýðubandalagsins, brottför
hersins af íslenzkri grund og fyrir
algerum einingarsigri verkalýðs-
ins.
Áfengissala
Áfengíssala þriðja ársfjórðungs
1956 (1. júlí til 30. sept.):
Selt í og frá Reykjavík fyrir
kr. 23.250.479.00 (á sama tíma í
fyrra fyrir kr. 22.564.461.00).
Selt í og frá Seyðisfirði fyrir
kr. 1.018.708.00 (á sama tíma I
fyrra fyrir kr. 766.577.00).
Selt í og frá Siglufirði fyrir kr.
2.421.309.00 (á sama tíma í fyrra
fyrir kr. 2.044.823.00).
Samtals 3. ársfjórðung 1956 kr.
26.690.490.00. 3. ársfjórðung
1955: kr. 25.375.861.00.
Áfengi til veitingahúsa 3. árz-í
fjórðung 1956 var selt frá aðal-
skrifstofu fyrir kr. 953.069.00.
Á öðrum ársfjórðungi 1956 var
selt alls fyrir kr. 23.582.988.00
og á fyrsta ársfjórðungi 1956
nam salan alls kr. 21.783.756.00.
Fyrstu níu mánuði ársins 1956
hefur sala áfengis til neyzlu frá
Áfengisverzlun ríkisins numið
alls kr. 72.057.240.00, en á sama
tíma í fyrra kr. 63.304.168.00. —
Allt árið 1955 nam salan 89 millj-
ónum króna. Nokkur verðhækk-
un varð á áfengi 18. maí 1955.
Heimild: Áfengisverzlun ríkis-
ins.
(Frá Áfengisvamaráðunaut).
Fjallvegir færir
Allir fjallvegir milli byggða á
Austurlandi munu enn vera færir.
Tvívegis hefur þó snjó verið rutt
af Oddsskarðsvegi.
Vegamálastjóri hefur heitið því
að Oddsskarði skuli haldið akfæru
fram undir áramót syo fremi, að
ekki byn'gi ni'ður naftá'um s«6°-
R.CA.-ísskápar
Easy-þvottavélar
Rófur í heilum pokum
á 3 krónur kg.
Gúmmístígvél
barna og kvenna.
Loftvogir
Eldhúsklukkur
V efnaðarvörubúðin
Slankbelti
Brjósthöld, síð og stutt
Barnasokkar
Bamanáttföt
Barnatreflar
Telpubuxur 25% nylon
no. 2 til 14.
Perlon sokkar
Saumlausir nylonsokkar
Teyjunylonsokkar
Crepenylctisokkar
Milliverk og blúndur
hvítar, mislitar —
margar breiddir
Damask
Fóðurvatt:
grænt, grátt og rautt
Popelin, 6 litir
Herrabuxur, alull —
pipar og saltefni
nokkrir litir
Dralon-kjólaefni á 68 kr.
Flónel, 8 litir.
Pöntunarfélag alþýðu, Neskaupstað
Nr. 21/1956.
Tnkynning
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið að söluverð í heild-
sölu og smásölu á allskonar vinnufatnaði og kuldaúlpum megi
ekki vera hærra en það var 1. júní s. 1.
Reykjavík, 21. sept. 1956.
Verðgæzlustjórinn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
Björgvins HaraldssOnar.
feórey Jónsdóttir. Haraldur Brynjólfsson.
Valborg Haraldsdóttir. Gíslína Haraldsdóttir.
4>-
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu
við atadlát og jarðarför eiginkonu minnar
Önnu H. Brekkan.
Sigdór V. Tteekkan.