Austurland - 02.11.1956, Síða 1
Málgagn sósfalista á Ansíurlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 2. nóvember 1958. 36. tölublað.
Víiaverð framkoma við
Norðfirðinga
Eins og kunnugt er, er Norð-
firðingum ætlað að nota Egils-
staðaflugvöll til loftsamgangna.
Segja má, að þetta sé mögulegt á
meðan vegir eru akfærir, þó fjari
lægðin milli Egilsstaða og Norð-
fjarðar sé æði mikil.
En til þess að flugvöllurinn
geti komið að tilætluðum notum,
verða að eiga sér stað reglulegar
áætlunarfer^Sir milli þessara
staða. Þessar ferðir eru heldur
greiðar yfir sumartímann, en þeg-
ar haustar að eru þær lagðar
ni'ður. Sérleyfishafanum er sem
sé látið líðast það, að halda ferð-
unum uppi þann tíma árs, sem
ætla má að umferð sé mikil, en
svo er honum leyft að hætta þeg-
ar líklegt er að umferð minnki.
Frá því um mánaðamótin sept..-
okt. hafa ekki1 verið áætlunar-
ferðir milli Norðfjarðar og Egils-
staða. Allir vegir á þessari leið
Bygging gagn-
fræðaskóla
undirbúin
Eins og lesendur blaðsins mun
reka minni til, ákvað bæjarstjórn
í fyrravetur að hefjast á næsta
ári (1957) handa um byggingu
gagnfræðaskóla og kaus nefnd til
að undirbúa og standa fyrir bygg-
ingunni.
Á vegum þessarar nefndar
dvaldi hér í nokkra daga í þessari
viku byggingarmeistari frá húsa-
meistara ríki'sins til að athuga að-
stæður. Þetta er Guðmundur Guð-
jónsson, sem á sínum tíma var
byggingameistari barnaskólans
hér. Hefur hann undanfarið dval-
ið í Noregi og Þýzkalandi og
kynnt sér nýjungar í skólabygg-
ingum.
Um áramótin má gera ráð fyrir,
að tillöguuppdráttur og kostnað-i
aráætlun hafi borizt nefndinni.
Helzt er í ráði að reisa skóla-
húsið í Ekrutúni og á Júdasarbala
við Mýrargötu.
hafa þó veri'ð greiðfærir öllum
bílum nær allan októbermánuð.
Og því hefur verið heitið að
halda veginum opnum a. m. k.
til áramóta, ef snjóalög verða
ekki mikil. En ekkert er gert til
að halda uppi skipulögðum sam-
göngum milli staðanna. Maður,
sem ætlar að ferðast milli Norð-
fjarðar og Egilsstaða í sambandi
við flugið, er til þess neyddur að
leigja bíl fyrir 350 krónur og sé
hann einn á ferð er það ekki langt
frá að þýða tvöföldun fargjalds-
ins til Reykjavíkur.
Og ekki nóg með að þetta
óskaplega sleifarlag eigi sér stað
hvað farþegaflutninga áhrærir.
Ekki er það betra með póstinn.
Póstur hingað er látinn flækjast
á pósthúsunum á Egi'lsstöðum,
Reyðarfirði og Eskifirði dögum
og kannski vikum saman án þess
að hirt sé um að flytja hann á
leiðarenda. — Flesta daga eru þó
ferðir milli þessara staða og væri
vilji fyrir hendi, væri auðvelt að
koma póstinum áfram.
Svo er að sjá, að enginn telji
sig hafa skyldur við Norðfirðinga
í þessum efnum.
Flugfélagið telur sínu hlutverki
lokið þegar flugferðin er á enda
og lætur sig engu skipta, þó far-
þeginn sé eftir skilinn í reiðileysi
á flugvellinum. Svo geta menn átt
von á því að það hæli sér af því
að hafa haldið uppi flugsamgöng-l
um við Norðfjörð fram eftir vetri.
Sérleyfishafinn telur sínu hlut-
verkí lokið þegar hann hefur rif-
ið 30. september af dagatali sínu.
Og póststjórnin, sem „skipu-
leggur" áætlunarferðir bifreiða,
lætur sérleyfishafanum haldast
þetta atferli uppi. Og svo bætir
hún gráu ofan á svart með því að
telja sér óskylt að flytja póst,
nema með áætlunarferðum.
Það er krafa Norðfirðinga að
úr þessu verði bætt þegar í stað
af einhverjum framangreindra að-
ila og áætlunarferðir upp teknar
milli Norðfjarðar og Egilsstaða
tvisvar í viku að minnsta kosti.
Að réttu lagi ættu allir þessir að-
ilar að sjá um áætlunarferðirnar í
félagi, en fyrst um sinn, á meðan
samkomulag milli þeirra er ekki
fyrir hendi, ætti' póststjómin að
semja við duglegan bílstjóra hér í
bænum, um að annast þessar ferð-i
ir fyrir t. d. 300 krónur ferðina.
Mundi áreiðanlega vera hægt að
ná þeim kostnaði að mestu leyti
í fargjöldum, en að þessu yrði
mikið hagræði' fyrir ferðamenn og
póstflutningar yrðu viðunandi.
Sjálfsagt hafa póstafgreiðslu-
menn hér eystra ekki svo mikið
vald að þeir geti bundið póstsjóði
slíkan bagga (!), en væntanlega
sjá þeir sér fært að leggja það
eindregið til við póststjómina, að
farið verði þegar í stað að þessari
tillögu.
Framkomu slíka, sem þessir að-
iiar hafa í haust sýnt Norðfirð-i
ingum, þolir enginn án ákveðinna
mótmæla — við ekki heldur.
Síðastliðinn laugardag var
hleypt af stokkunum í skipa-
smiðastöð Dráttarbrautarinnar
nýbyggðum fiskibáti. Hlaut hann
nafnið Jón Ben og heitir í höfuðið
á Jóni Benjamínssyni, einum
mesta aflamanna í hópi norð-
firzkra skipstjóra. Einkennisstaf-
ir bátsins eru N. K. 71.
Jón Ben er 24 lestir að stærð
með 170 hestafla Budadiesilvél.
Hann er vel búinn að siglingar-
og öryggistækjum, hefur Atlas-
dýptarmæli og fisksjá og gúmmí-
björgunarbát, sem fullnægir kröf-
um samkvæmt reglum, sem gert
er ráð fyrir að settar verði á
næstunni um gerð slíkra báta og
skyldu manna til að hafa þá um
borð í fiskibátum.
Eigandi Jóns Ben er hlutafélag-
ið Stapi, en aðalhluthafi er Fisk-
vinnslustöð Samvinnufélags út-
gerðarmanna. 1 stjój*n eru Jó-
hannes Stefánsson, formaður og
framkvæmdastjóri, Óskar Lárus-
son og Vigfús Guttormsson.
Skipstjóri verður Rafn Eihars-
son.
Athugud bygging
síldarbræðslu
Nýlega var hér í bænum Björn
Bergþórsson, efnaverkfræðingur
Fiskifélags Islands. Kom hann
hingað á vegum Samvinnufélags
útgerðarmanna til að athuga
möguleika á því að stækka fiski-
mjölsverksmiðju félagsins eða
byggja nýja, með það fyrir aug-
um, að hér yrði unnt að bræða
nokkurt magn af síld. Eru innan
skamms væntanlegar taikningar
og kostnaðaráætlun verksmiðju,
sem á að geta unnið úr 800—1000
málum síldar á sólarhring.
Mjög mikilsvert væri, ef Sún
gæti tekizt að lirinda þessu máli
í framkvæmd. Hér er að vísu ekki
um mikil afköst að ræða, en slík
verksmiðja mundi gjörbreyta til
batnaðar ailri aðstöðu til sildar-
söltunar hér í bænum.
Yfirsmiður var Sverrir Gunn-
arsson, sem einnig teiknaði bát-
inn.
Báturinn kostar yfir 600 þús.
kr. með öllum útbúnaði, eða um
26 þús. kr. pr. tonn.
Hjá Dráttarbrautinni' er smíði
60 lesta báts komin á góðan rek-
spöl og byrjað er að smíða bát af
sömu stærð og Jón Ben. — Þá
hefur verið pantað efni í nýjan
60 lesta bát.
Þeir feðgar Ásgeir Bergsson og
Guðlaugur Ásgeirsson eiga 55
lesta bát í smíðum á Isafírði, en
hann mun ekki kominn langt á-
leiðis. Fleiri Norðfirðingar munu
hyggja á bátakaup.
Jón Ben er enn ekki tilbúinn
til veiða, en vonazt er til að hann
geti byrjað róðra í næsta smá-
straum. Annars er sjósókn sára-
lítil þrátt fyrir reytingsafla. Að-
eins tvei'r báta.r, Hafbjörg og
Björg hafa róið að undanförnu,
auk einhverra minni báta. I gær
var Björg þó ekki á sjó.
Austurland óskar eigendum og
áhöfn Jóns Ben til hamihgju með
bátinn.
Nýr bátur:
Jón Ben, N. K. 71