Morgunblaðið - 21.07.2011, Side 2
ÍSLANDSMÓTIÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Eyjamaðurinn Þorsteinn Hallgrímsson
úr GOT, er líkast til eini kylfingurinn í
heiminum sem hefur sungið þjóðhátíð-
arlag á 18. flötinni á Hólmsvelli í Leiru.
Það gerði kappinn þegar sigur hans var
í höfn á Íslandsmótinu 1993 og gott ef
hann tók ekki nokkur lipur dansspor í
leiðinni. Mótið fer einmitt fram í Leir-
unni í ár og hefst í dag. Morgunblaðið
fékk Þorstein til þess að spá í spilin fyrir
mótið og rifja upp sigurinn fyrir átján
árum síðan.
„Á síðasta hringnum var baráttan
orðin mikil á milli mín og Sigurjóns Arn-
arssonar. Hann var að spila gríðarlega
vel en þegar við komum á 18. braut þá
átti ég eitt högg á hann. Við urðum jafn-
ir á síðustu holunni og ég verð að segja
að það var ekki leiðinlegt að klára dæm-
ið á föstudegi á Þjóðhátíð, fara svo rak-
leiðis til Eyja og mæta beint í brenn-
una,“ sagði Þorsteinn þegar
Morgunblaðið ræddi við hann. Þor-
steinn sagði einmitt í blaðinu 31. júlí
1993 að ekki gætu allir fagnað sigri á Ís-
landsmótinu með 15 þúsund manns í
þriggja daga veislu.
Spurður um sönginn þá segir Þor-
steinn hann hafa dregið dilk á eftir sér.
„Ég söng þjóðhátíðarlagið á flötinni
þegar titillinn var í höfn en það var
áskorun. Vegna þessa var ég kallaður
upp á svið á Þjóðhátíðinni sjálfri og lát-
inn syngja þjóðhátíðarlagið með hljóm-
sveitinni Hálft í hvoru,“ sagði Þorsteinn
og hló. „Það má ekki gleyma því að golf
er leikur og þetta er gaman. Mér finnst
það vera lykilatriði fyrir kylfinga að
nálgast íþróttina af virðingu og ekki
leyfa sér að fara í fýlu þó illa gangi því
þá skemmir maður næstu brautir. Þetta
kannast flestir kylfingar við,“ útskýrði
Þorsteinn sem byrjaði hreint ekki vel í
Leirunni fyrir átján árum. Hann lék
fyrsta hringinn á 79 höggum eftir að
hafa verið 7 yfir pari eftir 4 holur.
Pollýönnu-hugsunin hjálpaði
Þorsteinn heldur að hann hafi leikið
hina þrjá hringina á pari. Vindurinn blés
nokkuð á kylfinga á öðrum og þriðja
hring en Þorsteinn segist ekki hafa und-
irbúið sig sérstaklega fyrir það. „Ég
gafst ekki upp og ég held að Pollýönnu-
hugsunin hafi hjálpað mér í gegnum
þetta eftir erfiða byrjun. Á öðrum hring
var virkilega hvasst. Ég hef fengið það
orð á mig að vera góður rokspilari en ég
æfði mig ekki sérstaklega með það í
Þórisson, fyrrum GS meðlimur, gjör-
þekkja einnig aðstæður. Svo má nefna
ungu mennina, Guðmund Ágúst Krist-
jánsson, Harald Franklín Magnús og
Andra Þór Björnsson hjá GR og Axel
Bóasson og Rúnar Arnórsson hjá Keil
Heiðar Davíð Bragason og Sigurpáll
Geir Sveinsson þekkja þetta allt saman
Úlfar Jónsson verður með og Sigurjón
Arnarsson er að leika vel. Stefán Már
Stefánsson, Arnar Snær Hákonarson,
Alfreð Brynjar Kristinsson og Hlynur
Geir Hjartarson koma til greina sem o
fyrrverandi meistararnir, Ólafur Lofts
son, Kristján Þór Einarsson og Sig-
mundur Einar Másson.
Hjá konunum verður Tinna Jóhanns
son náttúrlega í baráttunni enda virðis
hún vera að ná því að slíta sig frá öðrum
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Signý Ar
órsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Sunn
Víðisdóttir, Heiða Guðnadóttir og Ólaf
Þórunn Kristinsdóttir eru líklegar til a
láta að sér kveða. Ragnhildur Sigurð-
ardóttir og Þórdís Geirsdóttir hafa
reynsluna en miðað við úrslitin í sumar
þá virðast þær ekki vera líklegar.“
an skolla eða jafnvel meira. Ég hef oft
séð menn í stigamótum eða Íslands-
mótum mæta á 3. brautina verandi einn
undir pari en fá svo 9 á hana og eyði-
leggja hringinn. Í mótinu 9́3 var oft mót-
vindur og ég „pönsaði“ 4 járnið og mið-
aði vinstra megin fyrir framan flöt
síðustu þrjá dagana. Þetta skilaði mér
tveimur pörum í þremur tilfellum. Ég
myndi segja að 4. brautin sé sú erfiðasta
á vellinum, sérstaklega eftir að þeir
komu fyrir glompu vinstra megin við-
braut. Ef menn komast í gegnum fyrstu
fjórar holurnar í kringum parið þá eiga
menn að geta spilað frá tveimur yfir pari
til þremur undir pari, þó menn geti ekki
gefið sér það að björninn sé unninn. Eft-
ir þessar holur er hægt að spila svolítið
frá hættunum.“
Margir til kallaðir – tveir útvaldir
Morgunblaðið bað Þorstein að nefna
nokkra kylfinga sem honum þykja sig-
urstranglegir. „Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson er klúbbmeistari GS og er
því sigurstranglegur. Heimamaðurinn
Örn Ævar Hjartarsson og Helgi Birkir
huga. Í Eyjum var ég ekki með neinn
þjálfara en var bent á það í einni lands-
liðsferðinni, af skoskum þjálfara, að
mjög gott væri að æfa sveifluhraðann. Í
kjölfarið æfði ég mikið að slá með járn-
unum, 5 og upp úr, af svona 80 - 90
metra færi. Þegar vindurinn blæs er
rosalega gott að geta tekið upp 5 eða 6
járn til að slá 100 metra högg. Í dag
sjáum við að bestu kylfingarnir eru
orðnir miklu tæknilega betri. Þeir geta
búið til fleiri högg.“
Ánægður með áherslurnar hjá GS
Þorsteinn lýsir yfir ánægju sinni með
það hvernig suðurnesjamenn setja völl-
inn upp í aðdraganda mótsins. „Ég er
gríðarlega ánægður með hvernig þeir
setja völlinn upp því karginn er ekki
mikill og flatirnar eru það mjúkar að
hægt er að slá inn á þær. Jafnframt eru
þær nokkuð hraðar og þessar upplýs-
ingar sem ég hef fengið eru mjög áhorf-
endavænar. Þetta þýðir að við gætum
fengið gríðarlega gott skor og það er
eitthvað sem allir vilja sjá. Allar for-
sendur eru fyrir því að kylfingar geti
leikið undir pari,“ sagði Þorsteinn og
bendir á að stór karakter í vellinum sé
vindaðstæður.
„Einkenni Leirunnar eins og margra
valla hér á Íslandi er að þar er oft vinda-
samt. Stór karakter í vellinum er vind-
aðstæður rétt eins og við sáum á Royal
St. Georges á opna breska. Rosalega
erfitt er að bera það saman að spila
Leiruna í logni eða stífum vindi. Ef við
fáum einhvern vind að ráði, þá mun
reyna gríðarlega mikið á leikskipulag og
hvort kylfingarnir séu með margar teg-
undir af höggum í vopnabúrinu. Ég hef
trú á því að þau sem standa uppi sem
sigurvegarar á sunnudaginn, verði kylf-
ingar sem geti látið boltann fljúga í
sveig til hægri eða vinstri eftir því sem
hentar hverju sinni.“
4. brautin er sú erfiðasta
Þorsteinn er sammála því mati að
mikilvægt sé að halda dampi á fyrstu
holum vallarins. „Völlurinn byrjar mjög
krefjandi og ef við miðum við góðar að-
stæður þá ætlast kylfingar til þess að fá
fugl á 1. brautinni en á 2., 3. og 4. eru
menn ánægðir með parið. 2. brautin er
þannig að mér finnst sanngjarnt að völl-
urinn sé settur upp þannig að hægt sé
að slá beint inn á flötina í öðru höggi
eins og nú er, því erfitt er að reikna út
hvert boltinn hoppar fyrir framan flöt-
ina. 3. brautin, Bergvíkin er náttúrlega
ein frægasta braut landsins og hún er
stórkostleg. Þeir sem ætla sér að ögra
Bergvíkinni lenda oft í því að fá tvöfald-
Þorsteinn
tók lagið í
Leirunni
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Í þá gömlu góðu Þorsteinn Hallgrímsson í Herjólfsdal á hátindi ferilsins.
Eyjamaðurinn rifjar upp sigurinn 1993
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2011
3. deild karla A
Markaregn – KB .......................................1:4
Staðan:
KB 10 8 0 2 32:9 24
Augnablik 9 7 1 1 40:9 22
Víðir 9 7 1 1 31:7 22
KFG 9 4 2 3 27:18 14
Vængir Júpíters 9 2 2 5 12:20 8
Þróttur V. 9 2 2 5 18:27 8
Markaregn 10 2 2 6 16:32 8
Stál-úlfur 9 0 0 9 12:66 0
3. deild karla B
KH – KFR..................................................1:4
Staðan:
Ýmir 9 6 1 2 30:13 19
KFR 10 6 1 3 25:14 19
Léttir 10 5 2 3 29:17 17
Ægir 9 5 1 3 25:17 16
KV 9 5 1 3 15:13 16
KFS 9 4 1 4 22:19 13
KH 10 3 1 6 18:36 10
Hvíti riddarinn 10 0 0 10 8:43 0
3. deild karla D
Huginn – Sindri .........................................3:5
Staðan:
Sindri 9 8 1 0 25:8 25
Magni 8 4 1 3 19:11 13
Leiknir F. 8 2 3 3 12:14 9
Einherji 8 2 3 3 10:17 9
Huginn 9 1 0 8 10:26 3
Draupnir hætti keppni.
1. deild kvenna A
FH – Álftanes ............................................7:2
Staðan:
FH 8 8 0 0 46:8 24
HK/Víkingur 8 6 1 1 20:10 19
Keflavík 7 5 0 2 20:9 15
Fjarðab./Leikn. 8 2 1 5 6:19 7
Sindri 6 2 0 4 12:25 6
Höttur 9 2 0 7 12:26 6
Álftanes 8 1 0 7 4:23 3
Meistaradeild Evrópu
Forkeppni, 2. umferð, síðari leikir:
Breiðablik - Rosenborg............................2:0
Rosenborg áfram, samtals 5:2.
APOEL Nicosia - Skenderbeu.................4:0
Nicosia áfram, samtals 6:0.
Dacia Chisinau - Zestafoni .......................2:0
Zestafoni áfram, samtals 3:2.
Videoton FC - Sturm Graz .......................3:2
Sturm Graz áfram, samtals 4:3.
Borac Banjaluka - Maccabi Haifa............3:2
Maccabi Haifa áfram, samtals 7:4.
Auk þess eru eftirtalin lið komin áfram
áfram í keppninni: Shamrock Rovers, Ekr-
anas, Maribor, Slovan Bratislava, Dinamo
Zagreb, HJK Helsinki, BATE, Litex,
Malmö FF, FC Viktoria Plzeò, Wisła Kra-
ków, FK Partizan.
Ameríkubikarinn
Copa America í Argrentínu
Undanúrslit:
Perú - Úrúgvæ ..........................................0:2
Luis Suárez 53., 58.
Paragvæ og Venesúela mættust í hinum
undanúrslitaleiknum í nótt eftir að Morg-
unblaðið fór í prentun. Úrslit þess leiks má
finna á mbl.is/sport.
Æfingaleikir
Bröndby - Ajax..........................................0:3
Kolbeinn Sigþórsson var í fyrsta sinn í
byrjunarliði Ajax og skoraði fyrsta mark
sitt fyrir félagið og jafnframt fyrsta mark
leiksins á 39. mínútu.
FCK - West Ham .......................................0:1
- Freddie Sears 89.
Ragnar Sigurðsson lék í vörn FCK allan
leikinn en Sölvi Geir Ottesen var ekki í leik-
mannahópi FCK að þessu sinni.
QPR - Plymouth........................................1:0
Heiðar Helguson skoraði eina mark
leiksins á 90. mínútu en hann hafði komið
inn á sem varamaður á 30. mínútu.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
1.deild karla:
Kópavogsvöllur: HK - Leiknir ..................20
Selfossvöllur: Selfoss - Grótta...................20
2.deild karla:
Grýluvöllur: Hamar - Árborg....................20
3.deild karla:
Kórinn, gervigr.: Stál-úlfur - Þróttur V ...20
Garðsvöllur: Víðir - KFG...........................20
Fjölnisvöllur: V. Júpiters - Augnablik .....20
Leiknisvöllur: Afríka - Björninn...............20
Víkingsvöllur: Berserkir - Kári.................20
Í KVÖLD!
„Það er allt annar andi í bænum. Það eru allir að tala
um fótbolta núna en það var lítið gert af því síðustu
ár. Menn eru að koma til manns og hringja í mann
sem maður hefur ekki heyrt mikið í undanfarin ár, og
það er gaman að því,“ sagði Þórður Þórðarson, þjálf-
ari ÍA. Skagamenn hafa farið á kostum í 1. deild í
sumar, unnið 12 af 13 leikjum sínum og eru með 12
stiga forskot á næsta lið, Selfoss, sem og 17 stiga for-
skot á liðin í 3.-4. sæti. Þeir hafa aðeins fengið á sig 5
mörk en skorað heil 39, síðast 6 mörk í sigri á Þrótti á
þriðjudag. Það var þriðji 6:0-sigur sumarsins hjá ÍA.
Okkar lið er í betra standi en hin liðin
Það er því annað uppi á teningnum en undanfarin
ár hjá ÍA sem varð í 5. sæti í fyrra og 9. sæti þar áður.
„Að hluta til hefur þetta komið á óvart. Við erum
kannski með fleiri stig en við reiknuðum með fyrir
„Þeir hafa báðir spilað mjög vel og Mark hefur ve
ið stigvaxandi. Það var engin svakaleg hamingja í
bænum þegar við tókum hann og menn höfðu mis-
munandi skoðanir á því. En Mark hefur þaggað niðu
í þeim gagnrýnisröddum held ég.“
„Annars get ég talið upp allt liðið. Arnar Már Guð
jónsson er til dæmis búinn að vera ótrúlega duglegu
á miðjunni og svo styrktum við liðið með því að fá
Reyni Leósson og Stefán bróður,“ sagði Þórður sem
er viss um að hans menn muni koma sér í úrvalsdeil
ina þar sem þeir virðast eiga heima.
„Það koma leikir þar sem við spilum á úrvalsdeild
arstandard en svo koma leikir þar sem við erum lé-
legt 1. deildarlið. Strákarnir eru samt það einbeittir
að ég er viss um að við slökum ekkert á fyrr en við
höfum náð okkar takmörkum,“ sagði Þórður sem te
ur líklegt að Selfoss komist einnig upp. sindris@mbl
mót en við vissum að við værum með gott lið. Þetta er
aðeins framar vonum en við höfum verið heppnir með
meiðsli og annað, og svo er liðið bara í hörkustandi.
Við erum með gott leikskipulag og góða leikmenn,
og svo æfðum við alveg rosalega vel í allan vetur. Það
er stór hluti af þessu að menn séu í toppformi og það
hefur sýnt sig í þessum leikjum í sumar. Mér finnst
okkar lið vera í betra standi en hin liðin og það sýndi
sig í þessum leik gegn Þrótti. Maður bjóst kannski
við að þeir myndu bíta meira frá sér í seinni hálf-
leiknum en í staðinn bættum við bara í. Við höfum
unnið mikið með þol og styrkleika leikmanna í tvö ár
og það er að skila sér. Ég fékk frábæran aðstoðar-
mann með mér í vetur, Dean Martin, og hann er gulls
ígildi og frábær karakter,“ sagði Þórður sem hefur
getað teflt fram tveimur frábærum Englendingum,
þeim Mark Donninger og Gary Martin.
„Það er allt annar andi í bænum“
Halldór Smári Sigurðsson og Þor-
valdur Sveinn Sveinsson verða ekki
með Víkingi R., og Atli Sigur-
jónsson og Jóhann Helgi Hannesson
ekki með Þór þegar liðin mætast í
Pepsi-deildinni á sunnudag. Allir
eru í banni líkt og Albert Sæv-
arsson, markvörður ÍBV.
Fimm í banni á
sunnudaginn