Morgunblaðið - 26.08.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.08.2011, Qupperneq 4
Grímsstaðir á fjöllum HerðubreiðHerðubreiðarlindir Dettifoss Ásbyrgi Jökulsárgljúfur Jökulsá á fjöllum Haugsöræfi Hjarðhagaheiði Sandfell Herðubreiðarfjöll Hringvegur (1) Hringvegur (1) Gagndagahnjúkur Há ga ng ah eið i Vopnafjörður Úrskurður óbyggðanefndar Grímsstaðir Grunnkort: LMÍ VIÐTAL Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Huang Nobu, stjórnarformaður kín- versku samstæðunnar Zhongkun Group, samdi á þriðjudag um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Kaupin eru háð leyfi kínverskra og íslenskra stjórnvalda. „Ég mun byggja upp fimm stjarna 120 herbergja hótel með öllu, 18 holna golfvelli, og verð einnig með hesta. Ef við komum niður á heitt vatn þá byggjum við líka heilsulind,“ segir Huang. „Ég geri ráð fyrir að kaupa tvær til þrjár flugvélar sem ég mun geta nýtt bæði til að flytja ferða- menn til landsins og eins til að bjóða þeim ferðir til áhugaverðra staða inn- an Íslands. Hvað arðsemi varðar þá geri ég ráð fyrir að framkvæmdirnar borgi sig upp á 10-20 árum.“ Leitar að lóð í Reykjavík Á meðan beðið er staðfestingar kínverskra yfirvalda mun hann hefja undirbúning en gerir ráð fyrir að hefja starfsemi á þriðja ári. Á meðan leitar hann að landi á Reykjavíkur- svæðinu til að byggja þar höfuð- stöðvar fyrirtækisins. „Þaðan er ætl- unin að halda utan um starfsemina hér og á hinum Norðurlöndunum þar sem ég hygg á fjárfestingar síðar“ segir Huang. „Ég ætla að byggja í Reykjavík fimm stjarna 300 her- bergja hótel sem stílar inn á alþjóð- legar ráðstefnur. Heildarfjárfest- ingin í þessum fasa nemur því nálægt 20 milljörðum króna.“ Huang segist leggja áherslu á um- hverfistengda ferðaþjónustu sem efnaðir kínverskir ferðamenn séu í auknum mæli farnir að sækjast eftir. Hann segist einnig hafa verið að fjárfesta í Bandaríkjunum þar sem hann keypti stóran búgarð. „Í gegn- um þau kaup áttaði ég mig á því að margir efnaðir Bandaríkjamenn eru mjög áhugasamir um íslenska hest- inn. Sumir þeirra eiga jafnvel hesta á Íslandi og koma til að heimsækja þá.“ Jákvæð viðbrögð yfirvalda Huang segist þegar hafa hitt ráðu- neytisstjóra umhverfisráðuneytisins, efnahags- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra og þeir hafi verið jákvæðir. „Ég á eftir að ræða við rík- ið um þann hluta landsins sem er í eigu þess en landinu hefur ekki verið skipt formlega og það verður líklega þannig áfram. Það liggur miðja vegu milli þjóðgarða og ég vildi ræða við stjórnvöld um að tengja þá saman við landareignina. Samningurinn við landeigendurna innifelur vatnsrétt- indi í Jökulsá á Fjöllum en ég er tilbúinn til að afsala mér þeim og semja þá við stjórnvöld um viðhald á tengivegi við þjóðveg og flugvelli og þess háttar. Þetta á hins vegar alveg eftir að ræða.“ Hefur ekki áhuga á orkunni Hann segist gera sér grein fyrir því að Íslendingar séu viðkvæmir fyr- ir fjárfestingu erlendra aðila. „Ég hef hugsað um það. Ég hef ekki áhuga á orkugeiranum og ég hef heyrt af við- kvæmni Íslendinga hvað varðar nátt- úruauðlindir. Ég er stjórnarmeð- limur í kínversku deild náttúru- verndarsamtakanna The Nature Conservation. Ég mun leggja áherslu á að vernda og bæta lífkerfið á Grímsstöðum og verð í samstarfi við Landgræðsluna um uppgræðslu.“ Huang hitti einnig forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, og talaði meðal annars við hann um ljóð. „Hann sagði að glöggt væri gests augað og það væri ekki óeðlilegt að útlendingar sæi betur tækifærin í ferðaþjónustu en heimamenn.“ Huang hefur ekki áhyggjur af því hve afskekktir Grímsstaðir gætu tal- ist. „Ég er ljóðskáld. Þegar ég lít á staðsetningu horfi ég á hana sem ljóðskáld og hvernig ég verð innblás- inn af staðnum. Ég hef klifið hæstu tinda í hverri heimsálfanna sjö, farið á Suðurpólinn og Norðurpólinn. Eftir að hafa farið á alla þessa staði og komið svo til Íslands komst ég að þeirri niðurstöðu að það séu staðir eins og Ísland, þá sérstaklega norð- urhluti þess, sem séu framtíðar- paradís umhverfistengdrar ferða- þjónustu.“ Tengdur Íslandi í þrjátíu ár Huang segist ekki endilega vera að koma til Íslands sem kínverskur fjár- festir heldur sé hann mjög tengdur landinu í gegnum þrjátíu ára vináttu. „Ég og Hjörleifur [Sveinbjörnsson] vorum herbergisfélagar þegar við sóttum Peking-háskóla og þar kynnt- ist ég einnig Ragnari Baldurssyni og Tryggva Harðarsyni á sömu heima- vist. Ég var munaðarlaus og í þá daga mjög fátækur. Hjölli hafði áhyggjur af því að mér væri kalt þegar vetraði. Svo móðir hans prjónaði tvær lopa- peysur og sendi, á hann og herbergis- félagann, mig. Íslenski lopinn hélt því á mér hita á köldum vetrum í Peking á áttunda áratugnum og síðan hefur mér verið hlýtt til Íslands.“ Byggir höfuðstöðvarnar á Íslandi  Huang Nobu sér Ísland fyrir sér sem framtíðarparadís ferðamanna  Íslensk lopapeysa hlýjaði honum á köldum vetrum í Peking  Skilur viðkvæmni Íslendinga gagnvart erlendum fjárfestingum Morgunblaðið/Ernir Fjárfesting Huang Nubo sem á nú Grímsstaði á Fjöllum er í ferðaþjónustu í Japan og Bandaríkjunum auk Kína. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2011 einfaldlega betri kostur 30-70% AFSLÁ TTUR YFIR 10 00 VÖ RUNÚ MER Á LÆKK UÐU V ERÐI RÝMUM F YRIR HAUSTLÍN UNNI 25. ÁGÚST - 4. SEPTE MBER RÝMING AR- SALA ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Athafnamaðurinn Huang Nubo er ljóðskáld og stóð í fyrrahaust fyrir ljóðahátíð Kínversk- íslenska menningarfélagsins en hún verður næst haldin í Kína í október. Hann hefur hug á að halda áfram að styrkja íslenska ljóð- list. „Þegar verkefnið á Gríms- stöðum á Fjöllum er komið á veg stefni ég að því að koma á fót í samvinnu við heimamenn íslenskri ljóðahátíð sem verður haldin annað hvert ár á Norður- landi,“ segir Huang sem segist þegar hafa rætt verkefnið við heimamenn á Norðurlandi. Til að byrja með verður hátíð- in á Akureyri á næsta ári en til framtíðar á Grímsstöðum þegar uppbyggingu þar er lokið. Ljóðahátíð á Fjöllum LJÓÐAUNNANDI Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Það verður að finna eðlilega lausn á þessu,“ segir Kristín Völundardótt- ir, forstjóri Útlendingastofnunar, um fjárlög í sambandi við kostnað stofnunarinnar vegna hælisleit- enda. Hún segir að staðan sé óvið- unandi en er bjartsýn á að málið verði leyst á ríkisstjórnarfundi í dag. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær fékk Útlendinga- stofnun 29 milljónir króna á fjár- lögum líðandi árs til þess að sinna málefnum hælisleitenda, en hefur eytt 65 milljónum það sem af er ári í málaflokkinn. Noregur til eftirbreytni Fyrstu sex mánuði ársins af- greiddi stofnunin 18 umsóknir um hæli en í fyrra barst 51 hælisum- sókn, 35 árið 2009, 76 árið 2008, 42 árið 2007 og 117 árið 2002. Kristín segir að þessi mál hafi allt- af verið óviðun- andi. Fram að hruni 2008 hafi stofnunin fengið aukið framlag samkvæmt fjár- aukalögum en síð- an ekki meir. Þeg- ar hún hafi tekið við starfi forstjóra í júní 2010 hafi fylgt 31 milljónar kr. halli. Það ár hafi hælisleitendur verið færri en gert var ráð fyrir og því hafi hún getað greitt hallann niður um fjórar milljónir sem og umframkostnað vegna hælisleitenda. „Núna eru þeir hins vegar svo margir að við getum ekki borið þennan halla,“ segir hún. Þessi mál eru í sérfjárlagalið í Noregi, að sögn Kristínar, og vill hún taka Norðmenn til fyrirmyndar að því leyti. Hún segir að þar sé ákveðið fjármagn eyrnamerkt mála- flokknum og vanti meira fé sé bætt úr því samstundis. Sé fjárveitingin of há sé mismuninum skilað. Sem dæmi nefnir hún að 2008 hafi hæl- isleitendum fjölgað til muna og strax hafi verið brugðist við og 300 lögfræðingar ráðnir. Útlendinga- stofnun sé með fjóra lögfræðinga og þar af einn fastan í vinnu vegna hæl- isleitenda, en þessir fjórir lögfræð- ingar þurfi að sinna öllum málum stofnunarinnar. Hún bendir á að málsmeðferðartíminn lengist eftir því sem starfsfólkið sé færra og tím- inn sé miklu dýrari en starfsmað- urinn. „Við spörum með því að setja pening í þetta,“ segir hún. Staðan óviðunandi  Forstjóri Útlendingastofnunar segir sparnað fólginn í auknum fjárveitingum og er bjartsýnn á að málið leysist Kristín Völundardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.