Morgunblaðið - 15.10.2011, Side 2
KÖ
Kris
kris@
Fan
Hve
ist a
gen
gek
ceri
dval
„M
enn
er í
fyrir
veg
uð o
frön
finn
Fan
lend
og Þ
þýð
Fan
þarf
ljóst
„
á
F
»
g
F
»
le
1
e
»
fr
d
á
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH í
knattspyrnu, varð efstur í einkunn-
argjöf Morgunblaðsins. M-gjöfinni,
og er því leikmaður ársins í Pepsi-
deildinni að mati íþróttafréttamanna
blaðsins. Matthías fékk samtals 20 M
í 21 leik með Hafnarfjarðarliðinu og
hafði betur í baráttunni við þá Hall-
dór Orra Björnsson, Stjörnunni, og
Blikann Kristin Steindórsson sem
hlutu báðir 19 M.
„Þetta er einn af ljósu punktunum í
sumar og ég lít á þetta sem mikla við-
urkenningu,“ sagði Matthías með
bros á vör við Morgunblaðið þegar
hann tók á móti fallegum bikar frá
blaðinu í viðurkenningaskyni. Matt-
hías segir að leikmenn fylgist al-
mennt vel með einkunnagjöfinni.
Hlýt að hafa verið ágætur
„Það fylgjast allir með einkunna-
gjöfinni og mönnum finnst gaman að
ræða málin hvað þetta varðar. Það
eru oft skiptar skoðanir en ég lít svo á
að fyrst ég skoraði hátt hjá báðum
dagblöðunum í einkunnagjöfinni þá
hlýt ég að hafa verið ágætur í sumar,“
sagði Matthías.
FH-ingar urðu að sætta sig við
annað sætið í Pepsi-deildinni annað
árið í röð eftir að hafa hampað titl-
inum 2008 og 2009. Matthías segir
tímabil ákveðin vonbrigði.
Ekki eins lélegir og fólk heldur
„Annað sæti í deildinni var okkur
FH-ingum vonbrigði enda er yfirlýst
stefna hjá klúbbnum að reyna að
vinna alla þá titla sem í boði eru. Ég
vil samt meina að við höfum ekki ver-
ið eins lélegir og fólk heldur. Við vor-
um aðeins þremur stigum á eftir KR
og spiluðum virkilega vel síðari hluta
mótsins en það var slæm byrjun á
mótinu sem felldi okkur. Við fundum
ekki alveg rétta taktinn í byrjun líkt
og árið áður.“
15 ára í meistaraflokki BÍ
Matti Villa eins og vinirnir kalla
hann hefur verið í herbúðum FH frá
árinu 2004 en þangað kom hann frá
BÍ á Ísafirði þar hann lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik aðeins 15 ára.
„Ég lék nokkra leiki með BÍ undir
lok tímabilsins þegar ég var 15 ára
gamall og spilaði svo heilt tímabil
með liðinu ári síðar. Ég er ekki í vafa
um að þessi reynsla sem ég öðlaðist á
þessum árum hjálpaði mér í fram-
haldinu,“ segir Matthías, sem byrjaði
að spila með 2. flokki FH 2004 en hef-
ur verið með meistaraflokknum frá
árinu 2005 og hefur verið einn besti
leikmaður liðsins undanfarin ár.
Hann segist fylgjast grannt með
sínu gamla liði sem er nú sameinað
Bolungarvík. „Ég á nokkra góða vini í
liðinu. Ísafjörður er minn heimabær
og ég var ánægður með gengi liðsins í
sumar. Vonandi tekst mönnum að
byggja ofan á þann árangur sem náð-
ist þar í sumar.“
Fékk góða reynslu á Englandi
Matthías reyndi fyrir sér í atvinnu-
mennskunni síðastliðinn vetur. Hann
gerði samning við C-deildar liðið
Colchester og lék nokkra leiki með
liðinu eftir áramótin. Spurður hvort
dvölin hjá Colchester hafi haft áhrif á
spilamennsku hans í sumar sagði
Matthías; „Já, ég myndi segja það.
Þetta var lærdómsríkur tími sem
kom mér að gagni í sumar. Mér
fannst ég vera yfirvegaðari í leik mín-
um og þetta var ákveðin reynsla sem
ég fékk að vera þarna úti þó svo að ég
hafi ekki spilað mjög mikið.“
Get vel hugsað mér að semja við
Haugesund
Matthías stefnir á komast út í at-
vinnumennsku. Hann var í vikunni til
skoðunar hjá norska úrvalsdeildarlið-
inu Haugesund en var svo óheppinn
að meiðast á fyrstu æfingu og hélt
heim á leið miklu fyrr en áætlað var.
„Mig langar að fara út að spila og
finnst ég vera tilbúinn til þess. Ég vil
bæta mig sem leikmaður. Það er hægt
hér heima en aðstæður eru ekki þær
sömu og úti. Ef ég fer ekki út í vetur
þá verð ég bara í FH og er stoltur af
því. Forráðamenn Haugasund sögðu
við mig þegar ég fór að þeim lægi
ekkert á og mér stendur til boða að
fara aftur. Ég get vel hugsað mér að
semja við Haugesund ef allar for-
sendur eru réttar. Mér líst vel á félag-
ið og þarna er gamall samherji minn í
FH, Alexander Söderlund. Ég hef
mikið álit á honum þó svo að margir
hér heima séu ekki þeirrar skoðunar.
Hann hefur spilað virkilega vel og ég
veit að stærri lið í Skandinavíu hafa
verið að spyrjast fyrir um hann.“
Matthías er 24 ára gamall. Unnusta
hans er Rakel Tómasdóttir og saman
eiga þau einn þriggja ára snáða. Þau
skötuhjúin, sem búa í Kópavogi, eru
bæði í námi. Matthías er í við-
skiptafræði og unnusta hans klárar
væntanlega verkfræðinám sitt í vor.
Einn af ljósu punktun
Matthías Vilhjálmsson er leikmaður Íslandsmótsins 2011 að mati Morgun-
blaðsins Ísfirðingurinn sem er fyrirliði FH stefnir á atvinnumennsku
Matthías Vilhjálmsson
» Hann er 24 ára gamall Ís-
firðingur og lék með meist-
araflokki BÍ frá 15 ára aldri.
» Matthías kom 17 ára til liðs
við FH-inga og hefur leikið með
meistaraflokki þeirra frá 2005.
Unnið fjóra meistaratitla og
tvo bikarsigra.
» Matthías lék með landslið-
inu gegn Kýpur og Portúgal og
á 8 landsleiki að baki.
Bes
hjá
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Mýrin, úrvalsdeild kvenna, N1-
deildin, föstudaginn 14. október
2011.
Gangur leiksins: 2:0, 6:2, 10:4, 17:9,
21:12, 23:17, 26:21, 26:26, 27:29,
30:31, 32:31, 34:32, 36:32, 36:34.
Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 9/3, Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 6, Sólveig Lára
Kjærnested 6, Hildur Harðardóttir 5,
María Karlsdóttir 5, Rut Steinsen 4,
Ester V. Ragnarsdóttir 1.
Varin skot: Jennifer Holberg 8 (þar
af 2 til mótherja). Kristín Ósk Sæv-
arsdóttir 4 (þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 9/1,
Arna Björk Almarsdóttir 6, Elín Anna
Baldursdóttir 5, Jóna Sigríður Hall-
dórsdóttir 4, Elva Björk Arnarsdóttir
4, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Valgerður
Ýr Þorsteinsdóttir 2, Heiðrún Björk
Helgadóttir 1.
Varin skot: Ólöf Kolbrún Ragn-
arsdóttir 7, Dröfn Haraldsdóttir 3/1
(þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Matt-
hías Teitsson, mistækir.
Áhorfendur: 230.
Stjarnan – HK 36:34
Í MÝRINNI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Stjarnan hósaði sínum fyrsta sigri í
úrvalsdeild kvenna, N1-deildinni, í
handknattleik kvenna í gærkvöldi
þegar hún lagði HK með tveggja
marka mun á heimavelli, 36:34. Um
leið var þetta fyrsta tap HK í deild-
inni á leiktíðinni. Stjarnan var sex
mörkum yfir í hálfleik, 23:17, eftir að
hafa náð níu marka forskoti eftir 24
mínútur. Þá benti fátt til þess að leik-
urinn yrði jafn og spennandi en ann-
að kom á daginn í síðari hálfleik.
Leikmenn HK, sem farið hafa svo
vel af stað í deildinni og m.a. unnið
bikarmeistara Fram, voru lengst af
úti á þekju í fyrri hálfleik. Leikur liðs-
ins var allur í handaskolum, jafnt í
vörn sem sókn. Stjarnan nýtti sér það
og raðaði inn mörkum og virtist ætla
að gera hreinlega út um leikinn.
Undir lok fyrri hálfleiks breytti
HK um vörn, fór í 5/1-vörn í stað 6/0.
Við það sló nokkuð á sóknarþunga
Stjörnuliðsins.
Allt annað og ákveðnara HK-lið
kom til leiks í síðari hálfleik. Vörnin
var betri, sóknarleikurinn yfirvegaðri
og aðeins fór að örla á markvörslu,
sem var engin í fyrri hálfleik. HK tók
að saxa á forskot Stjörnunnar og við
það kom nokkurt óðagot á leikmenn
Stjörnunnar. HK komst tveimur
mörkum yfir, 29:27, eftir um 12 mín-
útur í síðari hálfleik. Gústaf Björns-
son, þjálfari Stjörnunanr, tók þá
leikhlé og skipulagði leik liðsins upp á
nýtt. Það hreif um leið og Stjarnan
komst yfir aftur. Leikurinn var í járn-
um allt þar til sjö mínútur voru til
leiksloka. Þá komst Stjarnan tveimur
mörkum yfir. Greinilegt var að kraft-
ar HK-liðsins voru ekki nægir. Leik-
menn gerðu sig seka um klaufaskap
og að taka rangar ákvarðanir. Leiðir
skildi og Stjarnan náði fjögurra
marka forskoti og HK tókst aldrei að
brúa það bil áður en yfir lauk.
Urðum að vinna
„Við lögðum upp með að þennan
leik yrðum við að vinna ef við ætl-
uðum að vera með í toppbaráttunni,“
sagði Gústaf Björnsson, þjálfari
Stjörnunnar, að leik loknum. „Fyrstu
20 mínúturnar voru afar góðar hjá
okkur, ekki síst var sóknarleikurinn
öflugur, og í fyrri hálfleik skoraði liðið
23 mörk. Í byrjun síðari hálfleiks fóru
menn að reyna að halda fengnum
hlut. Það kann aldrei góðri lukku að
stýra og forskotið molnaði undan
okkur smátt og smátt. En liðið sýndi
mikinn karakter með því að koma sér
inn í leikinn á ný eftir að lenda tveim-
ur mörkum undir og tryggja sér góð-
an sigur þegar upp var staðið,“ sagði
Gústaf.
„Fyrri hálfleikur varð okkur að
falli. Það var alveg sama hvar var litið
á leik okkar fyrstu 20 mínúturnar;
hann var afleitur. En við náðum að
stappa stálinu í okkur í hálfleik og
leika miklu betur í þeim síðari en það
dugði ekki til,“ sagði nýbakaður
landsliðsmarkvörður, Ólöf Kolbrún
Ragnarsdóttir, úr liði HK.
Á mbl.is er að finna myndskeið
með viðtölum við Hilmar Guð-
laugsson, þjálfara HK, og Hönnu
Guðrúnu Stefánsdóttur, leikmann
Stjörnunnar.
Kaflaskipt
í Mýrinni
Stjörnusigur í markasúpu gegn HK
Morgunblaðið/Eggert
Reynsla Hanna Guðrún Stefánsdóttir skorar eitt 6 marka sinna gegn HK.
Undankeppni EM U17 karla
Grikkland – Ísland................................... 0:1
Páll Olgeir Þorsteinsson 48.
Ísrael – Sviss............................................. 3:2
Staðan:
Sviss 2 1 0 1 7:4 3
Grikkland 2 1 0 1 4:2 3
Ísrael 2 1 0 1 4:6 3
Ísland 2 1 0 1 2:5 3
Í lokaumferðinni á mánudag leikur Ís-
land við Ísrael og Sviss við Grikkland. Tvö
efstu liðin komast áfram og þriðja sætið
getur líka gefið þátttökurétt í milliriðli.
England
B-deild:
Doncaster – Leeds ................................... 0:3
Staða efstu liða:
Southampton 10 7 1 2 25:12 22
Middlesbrough 10 5 5 0 13:5 20
Derby 10 6 1 3 14:11 19
West Ham 10 5 3 2 18:10 18
Leeds 10 5 2 3 20:15 17
Þýskaland
A-deild:
Werder Bremen – Dortmund.................. 0:2
Staða efstu liða:
Bayern M. 8 6 1 1 21:1 19
Dortmund 9 5 1 3 15:7 16
Gladbach 8 5 1 2 9:4 16
Werder Bremen 9 5 1 3 16:12 16
Schalke 8 5 0 3 17:13 15
B-deild:
Bochum – Frankfurt ............................... 0:2
Hólmar Örn Eyjólfsson var varamaður
hjá Bochum og kom ekki við sögu.
Noregur
Vålerenga – Viking ................................. 3:0
Veigar Páll Gunnarsson lék í 60 mínútur
með Vålerenga og lagði upp tvö mörk.
Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason
léku allan leikinn með Viking.
Staða efstu liða:
Molde 25 16 4 5 47:32 52
Vålerenga 25 13 5 7 37:26 44
Rosenborg 24 12 6 6 57:28 42
Tromsö 25 12 6 7 44:31 42
Brann 25 11 6 8 40:40 39
Austurríki
B-deild:
Austria Lustenau – WAC/St.Andrä...... 1:1
Helgi Kolviðsson er þjálfari Austria sem
er í 4. sæti deildarinnar.
KNATTSPYRNA
N1-deild kvenna
Úrvalsdeildin, 3. umferð:
Fram – Haukar .................................... 39:21
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 11, El-
ísabet Gunnarsdóttir 7, Ásta Birna Gunn-
arsdóttir 6, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3,
Birna Berg Haraldsdóttir 3, Sunna Jóns-
dóttir 3, Marthe Sördal 2, Sigurbjörg Jó-
hannsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2.
Mörk Hauka: Gunnhildur Pétursdóttir 4,
Sandra Sigurjónsdóttir 3, Elsa Árnadóttir
3, Ásta B. Agnarsdóttir 2, Viktoría Valdi-
marsdóttir 3, Erla Eiríksdóttir 1, Karen
Sigurjónsdóttir 1, Silja Ísberg 1, Ásthildur
Friðgeirsdóttir 1, Marija Gedroit 1.
Stjarnan – HK ...................................... 36:34
Staðan:
Valur 3 3 0 0 102:68 6
HK 3 2 0 1 92:77 4
Fram 3 2 0 1 91:65 4
FH 2 1 0 1 47:58 2
Stjarnan 2 1 0 1 56:62 2
ÍBV 2 1 0 1 45:57 2
Haukar 3 1 0 2 76:91 2
KA/Þór 1 0 0 1 19:30 0
Grótta 3 0 0 3 73:93 0
1. deild karla
ÍR – Selfoss ........................................... 27:27
Stjarnan – Fjölnir................................. 35:22
Staðan:
Víkingur R. 2 2 0 0 52:47 4
ÍBV 2 2 0 0 67:51 4
Stjarnan 3 2 0 1 88:71 4
ÍR 3 1 1 1 89:72 3
Selfoss 3 0 1 2 74:93 1
Fjölnir 3 0 0 3 60:96 0
Þýskaland
A-DEILD:
Magdeburg– RN Löwen .................... 24:29
Björgvin Páll Gústavsson ver mark
Magdeburg.
Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir
Löwen. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálf-
ar liðið.
Wetzlar – Balingen ............................. 23:23
Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt
mark fyrir Wetzlar.
Danmörk
A-deild kvenna:
Aalborg DH – Slagelse ....................... 25:26
Arna Sif Pálsdóttir skoraði ekki fyrir
Aalborg DH.
Svíþjóð
A-DEILD KARLA:
Hammarby – Alingsås ........................ 25:20
Þröstur Þráinsson skoraði 6 mörk fyrir
Hammarby en Elvar Friðriksson ekkert.
Ásbjörn Friðriksson skoraði eitt mark
fyrir Alingsås.
HANDBOLTI