Austurland


Austurland - 01.05.1965, Síða 1

Austurland - 01.05.1965, Síða 1
Amlurland Má/gagn sósíalista á Austurlandi 15. árgangur. Neskaupstað, 1. maí 1965. 16. tölublað. Frá aðalí. Verklýðsfél. Norðf. Orn Scfieving kosinn formaður. Kaupgjaldssaniningum sagt upp Sjúkradagpeníngar tvöfaldaðir. Verklýðsfélag Norðfirðinga hélt aðalfund sinn 26. apríl. Fráfar- andi formaður, Jóhann K. Sig- urðsson, flutti skýrslu stjómar- innar um starfsemi félagsins sl. ár. Af henni mátti ráða, að starf- semi félagsins hefur verið með mesta móti, einkum að kaup- gjaldsmálum. Gjaldkeri félagsins og starfs- maður, Sigfinnur Karlsson, gerði grein fyrir reikningum félagsins og sjóða þess og voru þeir ein- róma samþykktir að umræðum loknum. Stjórn og trúnaðarráð. Jóhann K. Sigurðsson, sem ver- ið hefur formaður félagsins und- anfarin 7 ár, lætur nú af því starfi, vegna þess, að núverandi atvinna hans samræmist ekki for- mennsku í verktýðsfélagi. Einnig hverfa úr stjórn Guðmundur Sig- urjónsson og Karl Jörgensen af sömu ástæðu. Aðeins kom fram einn listi, listi stjórnair og trúnaðarráðs. Varð hann því sjálfkjörinn. Núverandi stjórn skipa: Örn Söheving, formaður, Hilmar Björnsson, varaform., Elías Kristjánsson, ritari, Sigfinnur Karlsson, gjaldkeri, Aðaiheiður Árnad. Blómst. 16, Bjarni Guðmundsson og Fanney Gunnarsdóttir, meðstj. Varastjórn: Jón Ólafsson, Anna Finnsdóttir Sigurður Jónsson, Miðstræti 24. f trúnaðarráð var kosin, auk stjórnar og varastjórnar: Hjálmar Björnsson, Baldvin Þorsteinsson, Karl Marteinsson, Eyþór Svendsaas, Kristján Vilmundarson, Hermann Davíðsson, Halldór Hinriksson, Hatla Guðlaugsdóttir, Tryggvi Vilmundarson, Stefán Halldórsson, Valdimar Eyjólfsson, Herdiís Herjólfsdóttir, Halldór Haraldsson, Friðþór Hjelm, Jóhann K. Sigurðsson, Njáll Stefánsson, Karl Jörgensen. Endurskoðendur voru kosnir: Halldór Hinriksson, Jóhann K. Sigurðsson, Til vara: Kristján Jónsson. Árgjald félagsins var ákveðið kr. 600.00 fyrir karla og kr. 500.00 fyrir konur. Sjóðirnir. Eins og kunnugt er rennur til félagsins sem svarar 1% af laun- um þeirra fél.manna, sem vinna eftir töxtum félagsins. Af þessu fé voru stofnaðir tveir sjóðir, Framh. á 4. síðu. Aðafundur Kvenna- deildarinnar K^annadeild Slysavarnarfél- agsins hér í bænum hélt aðalfund sinn 29. marz og var það 30. að- alfundur félagsins. í stjórn voru endurkosnar Lína Jónsdóttir og Sigríður Vigfús- dóttir, meðistjórnendur. Fyrir voru í stjórn, Ingibjörg Hjörleifs- dóttir, formaður, Unnur Zoéga, gjaldkeri og Soffía Björgúlfsdótt- ir,ritari. Starf deildarinnnar hafði verið blómlegt á árinu, mest unnið að fjörsöfnun fyrir Björgunarskútu- sjóðinn, til talstöðvarkaupa o. fl. Deildinni bárust á árinu gjafir í Björgunarskútusjóðinn frá Árna Daniíelssyni, kr. 10.000.00 til minningar um konu hans, Gyðu Steindórsdóttur, og frá þeim' Árna og Kristínu Daníels- dóttur kr. 6.000.00 til minningar um bróður þeirra Ármann, sem fórst með Skúla fógeta árið 1919. Þá barst deildinni 1.000.00 kr. gjöf frá Kristínu Ágústsdóttur og 100.00 kr. áheit frá Oktavíu Björnsdóttur. Langá Langá, hið nýja skip Hafskip h/f, er væntanlegt tii heimahafn- ar sinnar, Neskaupstaðar, á morgun — sunnudag. — Bæjar- búum er heimilt að koma um borð og skoða skipið. Vertíð að Ijúka Senn lýkur vetrarvertíðinni að þessu sinni. Á Suðurlandi hefur afli verið miklu verri en í fyrra, Við Breiðafjörð hefur vertíðin hinsvegar verið mjög góð og sæmileg á Hornafirði. Barði hefur verið ineð þorska- nót frá því hann kom í marz. Hefur hann veitt um 330 tonn. Báturinn kom heim í gær og mun fara á síld eftir helgina. Bjartur er nú farinn heimleið- is frá Hamborg með viðkomu í Noregi. Heim kemur hann um 10. maí og fer líklega þegar á síld. Haft er í flimtingum að tollayfirvöld bæjarins virð- ist leggja furðulegan skiln- ing í nýju barnaverndar- lögin; að svo líti út sem hér sé risin upp fríhöfn; að þar fái börn sem fullorðnir lljótandi vöru og fasta á „standard“ verði. að kjörorð tollyfirvaldanna sé: Allt fyrir æskuna. 1. maí-ávarp j j Verklýðsfél. Norðfirðinga 1965 Á hinum alþjóðlega baráttu- og hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí 1965, sameinast norðfirzk alþýða stéttasystkinum sínum um heim allan í baráttu fyrir friði, frelsi og þjóðfélagslegu réttlæti. Norðfirzk alþýða vottar alþýðu Vietnam-þjóðanna samúð sína um leið og hún fordæmir árásaraðgerðir Bandaríkjamanna á j Norður-Vietnam. Þá skorar hún á stórveldin að semja þegar | um allsherjar afvopnun og leggja niður allar herstöðvar án tafar. Norðfirzk alþýða harmar það, að þær vonir, sem tengdar voru við júní samkomulagið 1964, hafa algjörlega brostið við aðgerðir ,,viðreisnarinnar“ í skattamálum og fleiri álögum er hún hefur lagt á alþýðu landsins. I dag, 1. maí, krefst samein- ; aður verkalýður alls landsins bættra lífskjara og styttingu vinnuvikunnar í 44 stundir. Norðfirzk alþýða skorar á alla al- þýðu þessa lands að standa sameinuð við samningaborðið á vori komanda og láta engin utanaðkomandi áhrif glepja sig til sundrungar minnug þess, að eining er afl. Norðfirzk alþýða fordæmir þær talnablekkingar, sem for- svarsmenn ,,viðreisnarinnar“ beita óspart er þeir hyggjast reyna að sanna alþýðu landsins (svo og friða vonda sam- vizku) aukna velmegun. I því sambandi vill norðfirzk alþýða benda á, að Hndir „viðreisn" hafa þjóðartekjur vaxið um 25%; en kaupmáttur tímakaups rýrnað um 10%. Norðfirzk alþýða skorar á alla alþýðu landsins að standa saman um að hnekkja þeim áformum ríkisstjórnarinnar að hleypa erlendum auðhringum með verksmiðjurekstur inn í ís- lenzkt atvinnu- og efnahagslíf og afsala þar með sjálfsá- kvörðunarrétti þjóðarinnar. Mótmælir hún því, að íslendingar séu ekki sjálfir færir um að nytja auðlindir landsins, svo sem fallvötnin, og ítrekar, að Island skuli vera fyrir Islend- inga. Norðfirzk alþýða! Fylktu liði í dag um brýnustu hagsmunakröfur þínar, at- vinnuöryggi, réttláta hlutdeild í þjóðartekjunum og afnám vinnuþrælkunar. Lifi eining alþýðunnar. Lifi bræðralag verkalýðs allra landa. í 1. maí-nefnd Yerklýðsfélags Norðfirðinga 1965 Sigfinnur Itarlsson. Hilmar Björnsson. Jóhann K. Sigurðsson. Sigurður Jónsson. Aðalheiður Árnadóttir. Halla Guðlaugsdóttir.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.