Austurland


Austurland - 07.05.1965, Qupperneq 1

Austurland - 07.05.1965, Qupperneq 1
Amlurlm i Málgagn sósíalista á Austurlandi 15. árgangur. Neskaupstað, 7. maí 1965. / 17' tolublað- Aldarfjórðungs hernám Það var 10. maá 1940, á fyrstu mánuðum heimsstyrjaldarinnar síðari, að brezkur her, húinn ný- tízku vopnum, steig á land á Is- landi og tók það herskildi. Þar með var hlutleysisyfirlýsingin frá 1918 óvirt og að engu höfð. Næst- komandi mánudag eru 25 ár lið- in frá þessum atburði. Nokkru síðar, eftir að Banda- i'íkin höfðu dregizt inn í styrjöld- ina, varð það að samkomulagi með Bretum, Bandaríkjamönnum og íslenzku ríkisstjóminni, að Bandaríkin skyldu taka að sér „vernd“ íslands. Samúð alls þorra íslendinga var með Bandamönnum1 í styrj- öldinni. Þeir þoldu því hernámið möglunarlítið sem illa nauðsyn og óhjákvæmilegt framlag af Is- lands hálfu til að brjóta á bak aftur villimennsku fasismans og nazismans. Islendingar almennt voru svo hrekklausir að trúa því, að þann dag, sem nazisminn væri að velli lagður, yrði hernáminu aflétt. Þeir höfðu orð sjálfs Bandaríkja- forseta fyrir þvd. Og þá voru Is- lendingar ekki orðnir svo verald- arvanir, að það hvarflaði að þeim að draga í efa, að við slíkar yf- irlýsingar yrði staðið. Þeir hafa víst ekki verið margir, sem gerðu ráð fyrir þeim möguleika, að 20 árum eftir að nazisminn hafði verið sigraður, væri Island enn hernumið. En í dag stöndum við frammi fyrir þeirri íbláköldu staðreynd. Eftirmenn Roosevelts heitins Bandaríkjaforseta ó- merktu heit hans og ekki var styrjöldinni fyrr lokið, en farið var fram á herstöðvar til 99 ára, en það er víst nokkurn veginn sama sem um aldur og ævi. En ekki má kenna Bandaríkja- mönnum einum um, hvernig kom- ið er. Þeir fundu fljótt inn á það, að hér á landi voru menn, sem óðfúsir vildu, að hernámið héldi áfram og tekið var að bera fé á Islendinga með tilætluðum ár- angri. Hemámsfjötrunum var smeigt á þjóðina nauðuga. Ef hún hefði verið spurð, hefði það aldrei tekizt án nauðungar. Erlendur her í landi á friðar- tímum, getur aldrei samrýmzt þjóðfrelsishugtakinu. Á meðan herinn er í landinu, geta Islend- ingar aldrei fengið það á tilfinn- inguna, að þeir séu í rauninni sjálfstæð þjóð, sem skipar mál- um að vild sinni, enda eru þeir það ekki. 1 kjölfar hernámsins hafa svo fylgt margvísleg erlend áhrif. Vafalaust má benda á eitthvað, sem við höfum fengið gagnlegt, líklega einkum í verkmenningu, en ómenningaráhrifin eru yfir- gnæfandi. Áhrifamesta og ísmeygilegasta vopn hernámsliðsins til að stinga Islendingum svefnþorn og sætta þá við ósómann og innræta þeim „réttan“ hugsunarhátt, er dáta- sjónvarpið á Keflavíkurflugvelli. Islenzk stjórnarvöld hafa opnað allar dyr fyrir sjónvarpinu og svo er nú komið, að meirihluti lands- manna getur horft á það. Menn þurfa að leita lengi til að finna þjóð, sem telur það samrýmast sjálfstæði sínu, að láta erlendan her annast — og það eftirlits- laust — rekstur jafn ýhrifamik- ils áróðurstækis og sjónvarpið er. Allir þingmenn Alþýðubanda- lagsins hafa nú lagt fram þings- Langá kom Langá, hið nýja flutningaskip Hafskip hf. kom í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Neskaup- staðar, síðastliðinn sunnudag. Þetta er fjórða skip þessa unga skipafélags og hið stærsta. Skip þessi hefur félagið eignazt á 6 árum. Langá er 1401 brúttólest að stærð með 1500 ha. Deutz-vél. Ganghraði í reynsluferð var 12.8 sjómílur. Skipið er mjög vel búið að siglingatækjum og útbúnaður til lestunar og losuuar er mjög fuU- kominn. Aðbúnaður skipshafnarinnar er mjög góður og mannaíbúðir eins manns klefar. Langá er, eins og öll hin skip félagsins, smíðuð hjá skipasmíða- stöðinni D. W. Kramer & Sohn í Elmshom, Vestur-Þýzkalandi. Lán til kaupanna fengust í V- Þýzkalandi án ríkisábyrgðar og bankaábyrgðar og bendir það til þess, að félagið njóti mikils trausts. Gert er ráð fyrir, að Langá verði í föstum, mánaðarlegum ferðum milli íslands og nokkurra hafna á meginlandinu. ályktunartillögu um uppsögn her- stöðvarsamningsins. Er hún svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að æskja nú þegar endurskoðunar á varnarsamningi Islands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951, samkvæmt heimild í 7. gr. samningsins, svo og að leggja fyrir Alþingi frumvarp til upp- sagnar samningsins, þegar endur- skoðunarfrestur sá, er í samn- ingnum er ákveðinn, heimilar uppsögn". Hér er lagt til, að samningnum verði sagt upp á fullkomlega lög- legan hátt, samkvæmt hans eigin ákvæðum. Það væri reisn yfir Alþingi okkar, ef það á 25 ára afmæli hernámsins og 20 ára afmæli sig- ursins yfir nazismanum sam- þykkti að undirbúa uppsögn her- námssamningsins, og að láta uppsögnina koma til framkvæmda eins fljótt og kostur er. Með því bætti Alþingi fyrir marga mis- gjörð í þessum efnum. á sunnudag Síðdegis á sunnudag var bæjar- fulltrúum, fréttamönnum og nokkrum öðrum gestum boðið um borð í Langá. Þar voru mættir, auk yfirmanna skipsins, fram- kvæmdastjóri þess, Sigurður Njálsson, og varaformaður stjórnarinnar, Ólafur Jónsson í Bandgerði. Var gestunum sýnt skipið og þeim sagt frá aðdrag- andanum að stofnun félagsins og þróun þess til þessa. Hafskip hefur haft með hönd- um mikla flutninga til landsins og frá. Hefur eigin skipakostur þess engan veginn nægt til að svara eftirspurninni. Sem stend- ur, eru á vegum félagsins sex leiguskip, erlend og innlend. Spá- ir þetta vissulega góðu um fram- tíð félagsins. Steinarr Kristjánsson er sklp- stjóri á Langá. Hann hefur áður verið skipstjóri á öllum hinum „Ánum“. Fyrsti stýrimaður er Örn Ingimundarson og fyrsti vel- stjóri Þórir Konráðsson. Formaður stjórnar Hafskip hf. er Gísli Gíslason, Vestm.eyjum. Umboðsmaður félagsins hér í bæ er Björn Björnsson, kaupm. 1. maí í Nes- kaupstað 1. maí var hátíðlegur haldinn með samkomu í félagsheimilinu í Neskaupstað. Sigfinnur Karlsson setti sam- komuna og stjórnaði henni. Hátíðarræðuna flutti Lúðvík Jósepsson, sem kom frá Reykja- vík gagngert til þess. Til skemmtunar var eftir- hermuþáttur Jóns Gunnlaugsson- ar, upplestur Höskuldar Skag- fjörð og kvikmyndasýning Magn- úsar Hermannssonar, er sýndi myndir úr bænum o. fl. Áður en samfeoman hófst og milli atriða, lék Lúðrasveit Nes- feaupstaðar undir stjórn Haralds Guðmundssonar. Samkoman var ágætlega sótt log fór vel fram. Siðdegis var svo barnasýning á „Fórna.rlambinu“, sem Leikfélag Neskaupstaðar sýnir um þessar mundir. Um kvöldið var dansleikur. Skóloslit Iðnsk. Iðnskólanum í Neskaupstað var slitið fyrir nokkru og luku þá 8 nemendur lokaprófi. Alls stunduðu 20 nemendur nám í skólanum í vetur, en þeii eru nemar í sjö iðngreinum. Hæstu einkunn á lokaprófi hlaut Óskar Helgason, 9.15. HQaut hann bókaverðlaun frá Iðnaðarmannafélagi Norðfjarðar. Sl-ólinn veitti tvenn bókaverð- laun fyrir ágætis frammistöðu í íslenzku. Þau verðlaun hlutu Ósltar Helgason og Ólafur Jóns- son. Skólastjóri Iðnskólans er Þórður Kr. Jóhannsson. Skíðagöngunni lokið Hinn 30. apríl lauk Norrænu skíðagöngunni. Þátttaka hér í bæ var mjög bágborin. Voru þó skil- yrði öll, braut og færi, hin ákjós- anlegustu í lengri tíma. Alls gengu 204, þar af 136 nemendur barnaskólans, eða tæp- lega 78%. Haft er í fiimtingum að „lýðræðisfIokka rnir“ þori ekki að eiga það á hættu, að rödtl verklýðssamtak- anna heyrist í útvarpinu 1. maí; að þanu dag megi helzt ebkert sem almenningur vill hlusta á, heyrast í útvarpinu; að veðurþættirnir, sem Páll Bergþórsson hefur flutt í eftirmiðdagsútvarpi á lamg- ardögum, hafi orðið frábæri- lega vinsælir; að þess vegna haíi flutningur þáttarins verið bannaður 1. maí.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.