Austurland - 04.06.1965, Qupperneq 1
Amlurland
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 4. júní 1965. 21. töhiblað.
Ákveðin siofnun Alpýðu-
bandalags 1 Neskaupsiað
Innan skamms, eða að öllu ó-
breyttu föstudaginn 11. júní,
verður haldinn stofnfrndur Al-
þýðubandalags fyrir Neskaupstað.
Veíöur fundartími og dag-skrá
nánar auglýst í næsta blaði. Til
fundar þessa er boðað af nefnd,
sem unnið hefur að undirbúningi
málsins undanfarnar vikur, en
hún er skipuð fulltrúum frá Sósí-
alistafélagi Neskaupstaðar og
nokkrum stuðningsmönnum Al-
þýðubandalagsins utan þess. Með
stofnun samtaka þessara verður
stigið þýðingarmikið skref til
traustara og lýðræðislegra sam-
starfs allra þeirra aðila, sem
stutf hafa og styðja bæjarstjórn-
armeirihluta Alþýðubandalagsins
og landsmálastefnu þess. Eru all-
ir stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins 18 ára og eldri hvattir til
Sjóniannadagurinn
Hátíðarhöldin á sjómannadag-
inn voru með svipuðu sniði og
venjulega. Hófust þau með kapp-
róðri á laugardagskvöld. Klukk-
an 2 var sjómannamessa í kirkj-
unni og kl. 4 samkoma við sund-
laugina. Mjög mikil þátttaka var
í hátiðarhöldunum og veður gott.
Um kvöldið var mjög fjölsóttur
dansleikur í félagsheimilinu og
stóð hann langt fram á nótt. Var
þar ölvun mikil og sukksamt.
Ekki munu hafa orðið teljandi
slagsmál, en eitthvað var um að
^uenn skærust á glerbrotum og
þurfti að gera að þessháttar sár-
um einhverra á sjúkrahúsinu.
Dagheimilið
Uagheimili Neskaupstaðar tók
til starfa að nýju 1. júni. Aðsókn
er mjög mikil, um 70 börn inn-
rituð.
Forstöðukona er frú Súsanna
Kristjánsdóttir, Kópavogi.
Að undanförnu hefur verið
unnið að mótauppslætti við nýja
barnaheimilið, sem gert er ráð
tyrir að taki til starfa að tveim
únum liðnum.
að mæta á stofnfundinum og
einnig að láta skrá sig sem með-
limi í Alþýðubandalaginu fyrir
fundinn, — sjá nánar auglýsingu
á öðrum stað í blaðinu um það
atriði.
Alþýðubandalagið var stofnað
vorið 1956 sem kosningasamtök
sósíalista og annarra vinstri
manna. Átti miðstjórn Alþýðu-
sambands íslands frumkvæði að
stofnun þess, og þá um sumarið
vann Alþýðubandalagið eftir-
minnilegan kosningasigur, sem
réði úrslitum um myndun vinstri
stjórnarinnar. Frá upphafi stóðu
að bandalaginu tvær félagsheildir,
þ. e. Sósíalistaflokkurinn og Mál-
fundafélag jafnaðarmanna, sem
komu sér saman um yfirstjórn
þess og kosningastefnuskrá. Hef-
ur það samstarf haldizt með
svipuðum hætti síðan, og fyrir al-
þingiskosningar 1963 gerðist
Þjóðvarnarflokkurinn óbeinn að-
ili að bandalaginu. Þrátt fyrir
ýmsar veilur í skipulagi Alþýðu-
bandalagsins, sem vikið verður að
hér á eftir, hefur það fengið
miklu áorkað til góðs fyrir ís-
lenzka launþega og á stjórnmála-
sviðinu almennt og þannig sann-
að tilverurétt sinn sem varanleg-
ur kosningaflokkur. Meðal stuðn-
ingsmanna þess hefur ríkt og
ríkir enn fullur einhugur um öll
stórmál á vr.ttvangi stjórnmála-
baráttunnar, bæði innanlands og
í samskiptum okkar við aðrar
þjóðir. Hitt þarf engan að undra,
þótt í slíkum samtökum kunni að
vera skiptar skoðanir um smærri
atriði og fjarlægari markmið, en
um það skal hér ekkert fullyrt.
Öll störf í nútíma þjóðfélagi
krefjast góðrar skipulagningar og
samhentra vinnubragða, eigi þau
að skila viðunandi árangri, og á
það ekki síður við á vettvangi
stjórnmálabaráttunnar. Borgara-
flokkarnir íslenzku hafa á siðari
árum bætt verulega skipulag sitt
og kosningavélar úti um allt land,
en hið sama verður því miður
ekki sagt um stjórnmálasamtök
sósíalista og samherja þeirra. Al-
þýðubandalagið stendur enn að
mestu í sömu sporum hvað skipu-
lag snertir og þá það var stofn-
að fyrir 9 árum, og það skipulag
var frá upphafi mjög laust í
reipunum. Bandalagið á sér enn
engar mótaðar starfsreglur, eng-
ir landsfundir hafa verið haldnir
með kjörnum fulltrúum og ekkert
samræmt átak verið gert á lands-
mælikvarða til stofnunar samtaka
eða félaga Alþýðubandalags-
manna. Kjördæmisráð eru að
nafninu til starfandi í flestum
kjördæmum, en þó ekki í sjálfum
höfuðstaðnum. — Samstarfið inn-
an bandalagsins hefur því víða
orðið að byggjast á samkomulagi
og samningum nokkurra forustu-
manna þess í þingflokki og bæj-
arstjórnum, en óbreyttir fylgis-
menn of lítil áhrif getað haft á
stefnu þess og störf, ne;ma þá
helzt í kringum kosningar. Að
þessu leyti hefur starf þess feng-
ið of mikinn svip af þeim ólýðræð-
islegu vinnubrögðum, sem tíðkast
innan borgaraflokkanna. Slíkar
starfsaðferðir geta skilað árangri
hjá flokkum, sem hafa yfir miklu
fjármagni og vel smurðum áróð-
ursvélum: að ráða, en þau sæma
engan veginn stjórnmálasamtök-
um, sem þurfa að skipuleggja
baráttu launþega fyrir bættum
hag frá degi til dags og jafn-
frarpt að standa vörð um stjórn-
arfarslegt og efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar. Er heldur ekki
að efa, að þetta skipulagsleysi,
samfara nokkurri óvissu um
framtíð bandalagsins hefur dreg-
ið talsvert úr pólitískri getu þess
og slagkrafti á stjórnmálasviðinu.
Sósíalistaflokkurinn hefur frá
byrjun verið stærsti félagslega
skipulagði aðilinn innan Alþýðu-
bandalagsins og haldið uppi all
öflugu starfi í Reykjavík og á
nokkruim stöðum úti um land. En
þótt gert sé ráð fyrir, að hann
starfi eftir sem áður, getur slíkt
ekki komið í staðinn fyrir upp-
byggingu Alþýðubandalagsins
sem virkra, pólitískra samtaka á
breiðari grundvelli. Um það virð-
ast líka flestir Alþýðubandalags-
menn, bæði innan Sósíalista-
flokksins og utan hans, vera sam-
mála, þótt nokkurs ágreinings hafi
gætt um, hvernig að þeirri upp-
byggingu skuli unnið. Hér verður
ekki rætt um þá hlið málsins í
Framhald á 2. síðu.
Skólaslit
gagnfrœða-
skólans
Gagnfræðaskólanum í Neskaup-
stað var slitið laugardaginn 29.
maí sl.
Alls stunduðu nám í skólanum
sl. vetur 95 nemendur í 5 bekkj-
ardeildum og auk þess 20 nem-
endur í Iðnskóladeild.
I 2. bekk voru 27 nemendur,
og luku þeir allir unglingaprófi.
Hæstu einkunn á unglingaprófi
hlaut Margrét Ólafsdóttir, 9.15.
Nemendur í almennri miðskóla-
deila voru 22, og stóðust þeir
allir miðskólapróf. Hæstu einkunn
hlaut Benedikt Sigurjónsson, 8.46.
Hæstu einkunn yfir skólann
hlaut Margrét Jónsdóttir, 1. bekk,
9.22.
í landsprófsdeild voru 13 nem-
endur í vetur og hlutu 11 fram-
haldseinkunn. Hæstu einkunn í
landsprófsdeild hlaut Árni Svein-
bjömsson, 7.80.
Veitt voru verðlaun fyrir bezt-
an námsárangur og framfarir í
námi svo sem venja er til.
Skólanum hafa á árinu borizt
góðar gjafir, og hefur áður verið
skýrt frá þeim í blaðinu. Systkin-
in frú Anna Ingvarsdóttir og Sig-
urjón Ingvarsson gáfu stóra lóð
sunnan skólahússins (á Júdasar-
bala), og Síldarvinnslan hf. gaf
segulbandstæki.
Skólastjóri skýrði frá því í
skólaslitaræðu, að ákveðið væri,
að 4. bekkur yrði starfræktur við
gagnfræðaskólann næsta vetur og
hefðu þegar 15 nemendur sótt
um skólavist í 4. bekk.
Þá verður byrjað á framkvæmd-
um við byggingu íþróttahúss við
skólann í sumar, og verður það
jafnframt íþróttahús barnaskól-
ans. Ennfremur er unnið að und-
irbúningi að byggingu heimavist-
ar við gagnfræðaskólann. Skap-
ast þá meiri möguleikar fyrir
unglinga úr öðrum byggðarlögum
að sækja skólann.
Skólahúsið er þegar orðið of lít-
ið og er fyrirsjáanlegt, að næsta
Framhald á 2. síðu.
Haft er í
flimtingum
að á sjómannadag blóti menn
Bakkus meir en aðra guði;
að þó hafi messa verið hér eitt
af skemmtiatriðum dagsins;
að börn og unglingar virðist
hafa mátt sæbja dansleik
það kvöld;
að „barnaverndarinn“ hafi
sennilega liaft öðrum hnöpp-
um að hneppa en láta sig
það nokkru skipta;
að ekki komi það lögreglimni
yiðl