Austurland - 11.06.1965, Page 1
Vinnuvikan 44
stundir, 8 pró-
sent kauphœkk-
un
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 11. júní 1965. 22. tölublað.
Nýir kjarasamningar
á Norðurlandi
Tvö Austfjarðafélög aðilar
að samningunum
Að undanförnu hafa staðið yf-
ir í Reykjavík samningaviðræð-
ur um kaup og kjör verkafólks.
Verklýðsfélögin hafa ekki komið
fram sem heild í viðræðunum.
Annars vegar fóru fram viðræð-
ur milli verklýðsfélaganna á
Norður- og Austurlandi og at-
vinnurekenda, en hins vegar milli
verkamannafélaganna í Reykja-
vík og Hafnarfirði og atvinnu-
rekenda. Önnur félög höfðust lítt
að og virtust bíða átekta.
Það, að verklýðsfélögin ekki
komu fram sem ein heild, er veik-
leikamerki, sem lamaði verulega
samheldni þeirra. Rétt hefði ver-
ið, að Verkamannasambandið
befði mótað kröfurnar og fylgt
þeim fram, en ekki fjórðungs-
samböndin eða aðrar skipulags-
einingar. Afleiðingin af því, að
svo var ekki varð sú, að sam-
starfið milli verklýðsfélaganna
var ekki eins náið og nauðsynlegt
var.
Á annan í hvítasunnu náðist
svo samkomulag milli atvinnu-
rekenda og verklýðsfélaganna á
Norðurlandi. Fyrst var þannig
frá málinu skýrt, að aðilar að
samningnnm væru 19 verklýðsfé-
lög á Norður- og Austurlandi, en
það kom fljótt í ljós, að sú fregn
var röng. Aðeins fulltrúar
tveggja verklýðsfélaga á Austur-
landi voru aðilar að samningnum,
þ. e. á Eskifirði og Reyðarfirði.
Meginatriði samningsins eru
þessi:
1. Vinnuvikan styttist um 3
klukkustundir, úr 48 í 45
stundir. Miðað við, að raun-
verulegur vinnutími styttist
ekki, er þetta talið jafngilda
6.7 % hækkun dagvinnu-
kaups.
2. Kauphækkun á alla kaup-
taxta nemur 4%.
3. Kaupgjaldsflokkun breytist
mikið og hefur í för með sér
talsverð hækkun á kaupi í
flestum greinum.
4. Verulega breyting verður á
útreikningi vaktavinnu í
síldarverksmiðjum og er sú
breyting talin jafngilda 6%
hækkun á kaupi.
Nokkrar aðrar breytingar urðu
launþegum í hag.
Þá fékk saimninganefndin í
hendur yfirlýsingu frá ríkis-
stjórninni um úrbætur í atvinnu-
málum Norðurlands og Stranda-
sýslu. Er þar um að ræða tafar-
lausar ráðstafanir til að útvega
fiskvinnslustöðvum norðanlands
hráefni, og loforð um atvinnu-
uppbyggingu. Hefur blaðið heyrt,
að á næstu tveim árum eigi að
verja 80 millj. í þessu skyni.
Verða engin ósköp gerð fyrir þá
upphæð, einkum ef miklum hluta
hennar verður varið til kostnað-
arsamra síldarflutninga. Er með-
al annars ráðgert, að láta Þor-
stein þorskabít flytja ísvarða
síld til söltunar fyrir norðan.
Verður það dýrt ævintýri, ekki
sízt fyrir þá sök, að ætla má að
70—80% aflans gangi úr vegna
smæðar.
Loforðin um úrbætur í atvinnu-
legum efnum eru auðvitað mjög
þýðingarmikil fyrir Norðlendinga
og nokkuð á sig leggjandi fyrir
þær. En þar sem; hér var ein-
göngu um að ræða atvinnulegar
úrbætur fyrir Norðlendinga, og
það ef til viil að einhverju leyti
á kostnað Austfirðinga, hlutu
leiðir að skilja með Austfirðing-
um og Norðlendingum í kaup-
gjaldsmálunum.
I fyrradag var haldinn á Eg-
ilsstöðum fundur með fulltrúum
þeirra verklýðsfélaga á Austur-
landi, sem ekki eru aðilar að
samkomulaginu. Frá þeim fundi
er sagt á öðrum stað í blaðinu.
Hvaða álit sem menn hafa á
samningagerð Norðlendinga,
hljóta menn að gera sér ljóst,
að spor hefur verið stigið aftur á
bak í því, að samræma kaup-
gjaldið. Nú bendir t. d. allt til
þess, að önnur kjör verði í gildi
á Eskifirði en í Neskaupstað.
Stolníundur
; Alþýðubandalagsins í Neskaupstað verður haldinn í, kvöld,
föstudaginn 11. júní, í Egilsbúð og hefst klukkan 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Fundurinn settur.
2. Undirbúningsnefnd skilar áliti.
3. Starfsreglur samtakanna.
4. Stjórnarkjör.
5. Ákvörðun árgjalds.
6. Umræður um bæjarmál. Málshefjandi Bjarni Þórðarson.
7. Önnur mál.
Fjölmennið á fundinn.
Undirbúningsnefnd.
Vorkvöld
Hnígur sól í saltan mar,
sofnar fugl í móa,
unaðsró er alls staðar,
úti um velli og móa.
G. M.
Á fundi fulltrúa nokkurra
austfirzkra verklýðsfélaga, sem
ekki gerðust aðilar að hvítasunnu-
samkomulaginu, og sem haldinn
var á Egilsstöðum í fyrrakvöld,
var rætt um þau viðhorf, sem
skapazt hafa við samningana.
Varð það sameiginleg niðurstaða
fundarmanna, að leggja til við
félög sín, að þau auglýstu sam-
eiginlegan kauptaxta. Aðalatriði
hans yrðu þau, að vinnuvikan
styttist um 4 stundir úr 48 í 44
stundir og kaupgjald hækki um
8%. Ennfremur hliðstæðar til-
færslur milli taxta og samið var
um fyrir Norðurland.
Tillögur þessar verða lagðar
fyrir félögin um helgina.
Flugvél bann-
að að lenda
Einn af Eskifjarðarbátunum
fór til Færeyja að aflokinni ver-
tíð í slipp og til viðgerðar, sem
tók nokkrar vikur.
Þegar fór að líða að því að
báturinn gæti haldið heim, kom
í ljós, að nauðsynlegt var að fá
lítinn vélarhlut. Hann var ekki
fáanlegur í Færeyjum og greip
útgerðarmaðurinn til þess ráðs,
að senda flugvél með hann.
Þegar flugvélin var komin
hálfa leið til Færeyja, fékk hún
þau boð, að hún fengi ekki lönd-
unarleyfi í Færeyjum. Var þá
ekki um annað að ræða fyrir
flugmanninn en að snúa við og
halda til íslands aftur. Var síðan
hluturinn sendur til Færeyja með
áætlunarflugvél.
Ástæðan, sem gefin vár fyrir
lendingarbanninu, var sú, að ver-
ið væri að gera við flugvöllinn og
væri hann lokaður öðrum flug-
vélum en áætlunarflugvélum og
Framhald á 2. síðu.
Haft er í
flimtingum
að sæmileg hagaganga sé nú
orðin fyrir sauðfó í görðtam
bæjarbúa;
að ekki veiti af, því að fjár-
eigendur hafi fengið margt
tvílembt;
að ýmsir séu þó að amast við
búpeningi á lóðum sínum og
finnist lambsjarmið rjúfa
næturkyrrðina;
að heyrzt hafi, að farið verði
að skjóta sauðfé á sama
hátt og dúfur ketti og...
%