Austurland - 25.06.1965, Page 1
Aastarímá
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 25. júní 1965. 24. tölublað.
Enn um kaupg j aldsmálin
Taxtinn vídurkenndur á öllum
vinnustöðum
Það imá með sanni segja, að í
v°r hafi kaupgjaldsmálin verið
mál málanna. Atvinnurekenda-
valdið hefur verið óvenju harð-
snúið og ekki viljað unna verka-
fólkinu sanngjarnra kjarabóta,
sem það á skýlausan, siðferðileg-
an rétt til. Vöxtur þjóðarteknanna
hefur verið mjög ör að undan-
förnu, en hlutur þeirra, sem
skapa þessar auknu tekjur, hefur
farið síminnkandi. En hlutur
þeirra, sem „eiga“ framleiðslu-
tækin, en þó fyrst og fremst ails-
^onar milliliði og mangara, hefur
vaxið að sama skapi.
Það er auðfundið á öllu, að at-
vinnurekendavaldið þykist báðum
fótum í jötu standa. Kemur þar
hvoru tveggja til, að það þykist
geta beitt ríkisvaldinu að vild í
sína þágu, og að það þykist sjá,
að verklýðshreyfingin sé óvenju-
lega veik fyrir, enda hefur tekizt
að valda nokkrum tvístringi í
röðum hennar.
Efalaust hefur atvinnurekenda-
valdið rétt fyrir sér í þessu hvoru
tveggja. Það er veikleikamerki á
verklýðshreyfingunni hve mjög
hún reynir að komast hjá því að
beita verkfallsvopninu, því vopni,
sem bezt hefur dugað til þessa,
en reynir þess í stað að þreyta
andstæðinginn.
(
Ástandið á Austurlandi
Hér skal ekki endurtekið það,
sem áður hefur verið sagt hér í
hlaðinu um hvítasunnusamning-
inn. En svo er nú komið, að meiri-
hluti austfirzku verklýðsfélag-
anna hefur gefizt upp og fallizt á
Þann samning — öll, nema félög-
in í Neskaupstað, á Vopnafirði,
Hreiðdalsvík og Stöðvarfirði.
Þrjú fyrst nefndu félögin aug-
iýstu taxta, sem tók gildi á
öiánudag. Felur hann í sér helm-
ingi meiri kauphækkun en hvíta-
Sunnusamningurinn og klukku-
iíma styttri vinnuviku. Ekki veit
hlaðið hvort taxtinn verður virtur
á Breiðdalsvík og Vopnafirði, en
það mun koma í Ijós við næstu
útborgun, þ. e. í dag.
i
Kauptaxtinn gildir í
Neskaupstað
A mánudag hófst vinna í Nes-
kaupstað eftir kauptaxtanum og
er ekki annað vitað, en að allir
vinnuveitendur virði hann. Hefur
hann þar með hlotið sama gildi
og samningur væri.
Er það tiL mikils sóma fyrir
norðfirzkan verkalýð og norð-
firzka atvinnurekendur, að hafa
orðið fyrstir til að innleiða 44
stunda vinnuviku.
En svo er nú komið, að verka-
fólk norðan Oddsskarðs býr við
mun hærra kaup og styttri
vinnuviku en sunnan skarðsins.
Samþykkt Síldarvinnshinnar
■ Stjórn Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað kom saman á mánu-
dagsmorgun út af þessum málum
og gerði um þau ályktun, sem
rétt þykir að birta hér í heild.
„I tilefni af kauptaxta þeim,
sem 1 Verklýðsfélag Norðfirðinga
hefur auglýst og sent atvinnurek-
endum, ályktar stjórn Síldar-
vinnslunnar hf. eftirfarandi:
1. Stjómin samþykkir að greiða
kauptaxtann unz nýir samningar
hafa verið gerðir, enda telur
stjórnin kjarabætur þær, sem í
taxtanum felast, hóflegar, þegar
höfð er í huga hækkun fram-
færslukostnaðar og aukning þjóð-
arteknanna.
2. Stjóminni er það Ijóst, að
höfnun á taxtanum gæti leit.t til
vinnustöðvunar hjá félaginu, sem
hafa mundi í för með sér óbætan-
legt tjón fyrir fyrirtækið, eins og
á stendur. Vinnustöðvun mundi
leiða til stöðvunar á móttöku og
vinnslu síldar og valda síldarút-
vegsmönnum og síldveiðisjómönn-
um alvarlegu tjóni. Þá mundi
hver dagur, sem verkfall kynni
að standa, rýra gjaldeyrissköpun
þjóðarbúsins svo um munar.
3. Stjórnin bendir á, að Síldar-
vinnslan hf. er ekki í neinum
vinnuveitendasamtökum. Félagið
var því ekki aðili að samningavið-
ræðum þeim, sem fram fóru í
Reykjavík í vor, en engar samn-
ingaviðræður hafa farið fram hér
heima. Það er því óreynt hvort
grundvöllur er fyrir samninga
milli félagsins og Verklýðsfélags
Norðfirðinga.
4. Stjómin telur óviðunandi
fyrir félagið að búa við kaup-
taxta, sem hægt er að breyta hve-
nær sem er, með litlum eða eng-
í Neskaupstað
um fyrirvara. Það ástand skapar
öryggisleysi um vinnufrið og gæti
leitt til fyrirvaralítillar vinnu-
stöðvunar hjá félaginu.
5. Stjórnin óskar mjög eindreg-
ið eftir því við Verklýðsfélag
Norðfirðinga, að teknar séu upp
samningaviðræður við félagið, þar
sem reynt verði að ná samkomu-
lagi um nýjan samning í stað
þess, sem úr gildi féll 5. júní sl.
og sé þar meðal annars samið
um gildistíma samningsins og
uppagnarákvæði.
6. Loks ályktar stjórnin að
leita til annarra helztu atvinnu-
rekenda á staðnum með tilmælum
um, að þeir, ásamt fulltrúum Síld-
arvinnslunnar hf., standi að við-
ræðum við verklýðsfélagið um
samningsgerð. Felur stjórnin for-
manni sínum og framkvæmda-
stjóra Síldarvinnslunnar hf., að
taka þátt í þessum samningavið-
ræðum af sinni hálfu og veitir
þeim fullt og ótakmarkað umboð
til samningsgerðar".
Skömmu síðar hélt stjórn
Dráttarbrautarinnar hf. fund um
málið og samþykkti að virða taxt-
ann og fól framkvæmdastjóra
sínum að taka þátt í samnings-
viðræðum með fullu umboði til
samninga.
Að hverju var stéfnt?
Með því að óska eftir samning-
um, vakti það ekki fyrir stjórn
iSíIdarvinnslunnar hf. að fara að
togast á við verkamenn um aura
og mínútur, heldur hitt, að fá
gildistíma og uppsagnarákvæði
bundin fastmælum og tryggja
þannig vinnufrið. Satt bezt að
segja vænti stjórnin þess, að
verklýðsfélagið samþykkti nokkru
lengri gildistíma, en er í samning-
um gerðum í vor. Er ekki ástæða
til annars en að ætla, að verk-
lýðsfélagið hefði getað fallizt á
þetta sjónarmið.
Það hefur alltaf verið talið
mikils virði fyrir atvinnurekstur-
inn, að búa við samninga til
langs tíma og þar með vinnufrið.
Hefur nokkuð verið talið á sig
leggjandi til að ná slíkum samn-
ingum.
Framh. á 3. síðu.
Bæjarskrifstofurnar
í nýjnm húsakynnum
Bærinn hefur nú flutt skrif-
stofur sínar úr gamla gagnfræða-
skólanum í félagsheimilið. Hefur
verið unnið að því í vetur og vor,
að innrétta húsnæðið til þessara
nota.
Bærinn fær þarna til afnota
rúmgott húsnæði, þrjú fremur lít-
il skrifstofuherbergi og eitt stórt
herbergi, sem er hvort tveggja í
senn, skrifstofa bæjarstjóra og
fundarherbergi fyrir nefndir bæj-
arstjórnar. Bæjarstjórn mun líka
ihalda þarna fundi sína fyrst um
sinn, eða þar til búið er að inn-
rétta fundarsai í húsinu, en það
mun verða gert næsta vetur.
Hið nýja skrifstofuhúsnæði er
mjög vistlegt og vinnuskilyrði
ágæt.
Refaveiðar í
Mjóafirði
I vor hafa 16 refir veiðzt í
Mjóafirði, 6 fullorðnir og 10 yrðl-
ingar.
1 Nípunni fannst eitt greni með
6 yrðlingum. Tókst að vinna
bæði fullorðnu dýrin, en á meðan
veiðimennirnir biðu að ná yrðl-
ingunum, komu tveir fullorðnir
refir í skotfæri og tókst að skjóta
þá báða. Þarna veiddust sem sé
10 dýr.
Annað greni fannst í svonefndri
Afrétt, norðan við Dalatanga.
Bæði fullorðnu dýrin og allir
yrðlingarnir, 4 talsins, náðust.
En þrátt fyrir þetta afhroð,
sem lið refanna í Mjóafirði hefur
goldið, eru þeir þó ekki útdauðir,
því eftir þetta hefur refur sézt
heima á túni á Grund.
Refaskyttur Mjófirðinga eru
Ólafur Hansson og Hjálmar Gísla-
son.
IiULDATÍÐ
Enn er mjög kalt í veðri á
Austurlandi og gróðurlítið, þó
komið sé fram yfir sólstöður,
enda hefur íshafið færst 180 míl-
ur til suðurs, að sögn haffræð-
inga.
Haft er í
flimtingum
að íhaldið hafi ennþá einu sinni
sýnt, hversu mjög það ber
hag verkafólks fyrir brjósti;
að það hóti austfirzku verka-
fólki öllu illu, ef það ilirfist
að vilja hærra kaup en
Norðlendingar sætta sig við;
að vart þurfi verkafólk að
hræðast kokhreysti íhalds-
ins;
að Framsókn hafi nú rétt enn
einu sinni snúizt á sveif
með íhaldinu — á móti
launafólki.