Austurland - 02.07.1965, Blaðsíða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 2. júlí 1965.
Hvað er í
Frá Borgarfirði
Borgarfirði, 30. júní. — G.E./B.S.
Síldin
Hér er nú ibúið að bræða rúm-
lega 11 þúsund mál, en hráefni
þraut sl. föstudag. 1 fyrradag var
skipað út 260 lestum af mjöli.
Nokkrar endurbætur fóru fram
á síldarverksmiðjunni í vetur og
bræðir hún nú 500—700 mál á
sólarhring, en ekki nema 500 í
fyrra.
Tvær söltunarstöðvar eru starf-
ræktar hér eins og í fyrra, og
hefur eitthvað smávegis verið
saltað á þeim báðum.
Hafnarbætur
Unnið er nú af kappi við
stækkun bryggjunnar hér. Verður
hún lengd um 15 metra og
bryggjuhausinn breikkaður nokk-
uð. Þessi nauðsynlega hafnarbót
skapar betri skilyrði við alla
vinnu við höfnina og bætir úr
legurými fyrir bátana.
Þá er verið að koma upp bíla-
vigt, þar sem öll síld, sem á land
kemur, verður vigtuð. Er það
fyrirkomulag heppilegra en mæl-
ingin, sem ekki er nákvæm.
Fólksekla
Atvinna er hér yfirdrifin og
vantar fleira fólk til að vinna að
þeim verkefnum, sem kalla að.
Fátt aðkomufólk er ennþá komið,
en mun koma, þegar síldarsöltun
er komin í fullan gang.
Framkvæmdir við nýja félags-
heimilið standa nú í stað, því að
vinnukraftur er ekki til. Húsið er
komið undir þak, en öll vinna
inni er eftir. Er aðkallandi, að
húsið komist sem fyrst í not, þar
verða t. d. skólastofur, því að
gamli barnaskólinn er orðinn lé-
legur. Auk þess eru bundnar
miklar vonir við félagsheimilið til
ánægjulegri samkomuhalda og
aðstöðu til leiksýninga.
3 fiskar í róðri
Trillurnar hafa verið að róa, en
afli er enginn, stundum hefur
ekki orðið vart á færi. Um daginn
reri bátur með 4—5 bjóð og fékk
3 fiska. Slík er ördeyða á miðum
smábátanna, og verður því ef-
laust engin útgerð frá Borgar-
firði í sumar, ef ekki bregður til
hins betra með afla.
Lélegur gróður
Gróður er lélegur og seint á
ferð hér sem annars staðar á
Austurlandi. Kal er þó ekki mik-
ið hér í túnum, eins og víða er
og valdið hefur miklu tjóni.
Unglingaskóli
Unglingaskólanum lauk á venju-
legum tíma og luku þar 11 nem-
endur prófi. Skólastjóri unglinga-
skólans er séra Sverrir Haralds-
fréttum?
Enginn læknir
Sama ófremdarástandið ríkir
enn í læknismálum Borgarfjarðar.
Egilsstaðalæknir þjónar héraðinu,
en allir sjá, hversu sú þjónusta
er umhent og hlýtur að vera ó-
fullnægjandi. Segja má þó, að
samgöngur á landi séu nú orðnar
allgreiðar, en vegir eru þó enn
vondir á Ut-Héraði.
I Borgarfirði búa um 300
manns og margt aðkomufólk
dvelst þar yfir sumarið. Auk þess
koma þar mörg skip og bátar.
Athafnalífið hefur í för með sér
aukna slysahættu og um leið
aukna þörf fyrir greiðan aðgang
að lækni.
Samt er Borgarfjörður látinn
búa við fullkomið öryggisleysi í
þessum málum.
Óánægja með kaup-
gjaldsniálin
Hér hefur ekki enn verið geng-
ið frá samningum, en fullvíst má
telja, að hvítasunnusamningurinn
verði fullgiltur hér. Óánægja rík-
ir þó meðal fólks með þá samn-
ingsgerð og ekki síður það, að öll
samstaða um samræmingu kaup-
gjalds er nú gjörsamlega rofin.
Dálítið hafði þó áunnizt í þeim
málum.
Misjafnt er álit manna á stöðv-
un síldveiðiflotans. Saltendum og
verksmiðjueigendum finnst síldar-
verðið víst nógu hátt, en verka-
fólk skilur afstöðu sjómanna.
Það er ákaflega álappalegt hjá
ríkisstjórninni að láta verð-
ákvörðun síldarinnar fyrst koma,
þegar veiðar hafa staðið í nokkr-
ar vikur. Þetta hefur oft gerzt
áður, bæði á síldarvertíð og á
vetrarvertíð.
FLJUGID með
FLUGSÝN
til Rcykjavik
Ferðir alla
yirka daga
Fró Reykjavík kl. 9,30
Fró Neskaupstað kl.'12,00
Umboð Neskaupstað:
Öm Scheving, símar 79 og 263.
A1 Héraði
Hallormsstað, 30. júní S.Bl./S.Þ.
Loksins er farið að hlýna í
veðri hér eftir iangan kuldakafla.
Til þessa hefur gróðri sáralítið
farið fram og hefur óvenjulítil úr-
koma lagzt þar á sveif með kuld-
anum. Vorið er tvímælalaust eitt
hið þurrasta, sem menn muna eft-
ir hér í Hallormsstað. Úrkoman í
maí reyndist aðeins vera 1 mm
og í júní innan við 10 mm, en
meðalúrkoma í mai er um 22 mm
og júní 25 mm.
Eins og talað hefur verið um í
fréttum undanfarið, er kalið í
túnum á fjölmörgum bæjum hér
á Héraði gífurlegt og má jafnvel
segja, að framundan sé hreint
neyðarástand. Verst er þetta á
Mið-Héraði og má segja, að á
sumum bæjunum séu tún bókstaf-
lega ónýt. Ástandið nú er miklu
verra en 1962, en segja má, að nú
fyrst hafi þeir, sem verst fóru út
úr því þá, verið farnir að rétta
við fjárhagslega og er erfitt að
segja hvernig menn komást frá
þessu áfalli. Vonandi hleypur hið
opinbera undir bagga. Landbún-
aðarráðherra, ásamt mörgum
helztu framámönnum í landbún-
aðinum hafa litið eyðilegginguna
eigin augum og munu þess vegna
hafa getað gert sér gleggri grein
fyrir hinu alvarlega ástandi.
Hér á Hallormsstað er nú
unnið af krafti við byggingu
heimavistarbarnaskólans og mun
hann komast undir þak í næsta
mánuði. Einnig er unnið að
byggingu íbúðarhúss fyrir skóla-
stjóra húsmæðraskólans.
Nú, að afloknu húsmæðraorlof-
inu sem hér hefur verið undan-
farnar vikur, en því lýkur nú um
helgina, mun gistihúsið hér verða
opnað. Hótelstýra verður Ingveld-
ur Pálsdóttir, skólastjóri hús-
mæðraskólans.
Auglýsing
frá Hótel Egilsbúö
Það fólk, sem ætlar að leigja herbergi handa ferðafólki í
sumar, vinsamlegast hafi samband við okkur sem fyrst í síma
i; 22i. v
HÓTEL EGILSBÚÐ.
NÝTT NYTT
Erum ad taka upp
mikið únal af dömu og herraskóm.
; Kjólum, kápum, herravestum, herrapeysum og ódýr- í;
Ium vinnuskyrtum frá kr. 130.00 til kr. 160.00.
VERZLUNIN FÖNN,
Neskaupstað.
Slysavarnafélagskonur,
Norðfiröi
Fyrirhuguð er eins dags skemmtiferð um Fljótsdalshérað.
Konur eru beðnar að tilkynna þátttöku fyrir miðja næstu
viku í Bakaríinu og í síma 30.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Frá Kvennadeildinni
Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur félagsfund í Tónabæ
mánudaginn 5. júlí kl. 9 e. h.
Fundarefni:
Undirbúningur 30 ára afmælishátíðar deildarinnar í haust.
. ..._____ 1. Stjórnin.
son.