Austurland - 16.07.1965, Síða 1
Amlurlmd
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 16. júlí 1965. 27. tölublað.
Samið í Reykj avík og
Hafnarfirði
Samningar í kjaradeilu verka-
fólks í Reykjavík og Hafnarfirði
tókust sl. föstudag.
Meginbreytingar frá fyrri
samningi eru þessar:
1. Vinnuvikan styttist úr 48
stundum í 44.
2. Grunnkaup hækki um 4%.
3. Eftir tveggja ára starf hjá
sama atvinnurekanda, hækkar
grunnkaup um 5%.
Þá var samið um, að tími sá,
er verkafólk á rétt á greiðslu í
veikinda- og slysatilfellum, verði
28 dagar í stað 14, sem lögboðið
er, og miklar færslur milli taxta,
sem hafa kauphækkánir í för með
sér. .
Stytting vinnutímans
Stytting vinnuvikunnar mun
verða talin mesti sigur verka-
fólksins. Þar náði það settu
marki. Voru þessir samningar
fyrstu kjarasamningar verka-
fólks, sem kveða á um 44 stunda
vinnuviku. Áður hafði hún tekið
gildi í Neskauþstað og á Vopna-
firði þar sem hún var tekin í
taxta.
Hvítasunnusamningarnir, eða
Norðurlandssamningarnir, eins og
þeir eru almennt kallaðir, fela í
sér ákvæði um 45 stunda vinnu-
viku. Frá beinu, hagsmunalegu
sjónarmiði er munurinn á kaupi
fyrir 44 og 45 stunda vinnuviku,
ekki mikill, en mestu máli skiptir,
að þarna tókst að ná settu marki.
En fyrirfram er vitað, að
hvorki í Reykjavík né annars
staðar hafa hin nýju ákvæði um
styttingu vinnuvikunnar teljandi
áhrif á lengd vinnutímans. Fyrst
CR BÆNUM
Afmæli
Ásbjörn Tómasson, sjómaður,
Nesgötu 20A varð 60 ára 14. júlí.
Hann fæddist hér í bæ og hefur
alla ævi átt hér heima.
Happdrætti SÍBS
Þegar dregið var í 7. fl. Happ-
drættis SÍBS komu eftirtalin núm-
er upp í umboðinu hér á 1000 kr.
hvert:
2586 9380 9383 9395 13312
13320 16422 52096 52862 52871
53889 63123 63179 63180
(Birt án ábyrgðar).
um sinn a. m. k. hefur þetta á-
kvæði það eitt í för með sér, að
fleiri stundir verða greiddar með
yfirvinnukaupi en áður var.
En í þessari launadeilu fékk
verkafólk að kynnast þvi, hvaða
gildi hóflegur vinnutími hefur.
Yfirvinnubannið varð til þess, að
í nokkrar vikur vann þáð venju-
legan dagvinnutíma og hlýtur að
hafa komizt að raun um, að það
er allt annað líf.
Kauphækkun
Samið var um sömu almenna
kauphækkun og felst í hvíta-
sunnusamningnum þ. e. 4%. Það
getur ekki talizt neinn sigurvinn-
ingur, enda hafði sú kauphækk-
un lengi staðið til boða. En
ákvæðið um 5% hækkun eftir
tveggja ára starf er mjög mikill
sigur og hefur í för með sér veru-
legar kjarabætur, þegar á heild-
ina er litið. Þá hefur tilfærsla
milli taxta í för með sér talsverð-
ar kjarabætur í mörgum tilfell-
um.
Það er ástæða til að óska
verkafólkinu fyrir sunnan til
hamingju með þennan samning.
Enda þótt mikið vanti á, að það
hafi fengið öllum kröfum sínum
framgengt, hefur þó náðst mjög
verulegur árangur, sem ástæða
er til að fagna.
Umbætur í húsnæðismálum
Þá var í sambandi við lausn
deilunnar gengið frá samkomu-
lagi milli Alþýðusambandsins og
ríkisstjómarinnar um verulegar
umbætur á húsnæðislöggjöfinni
og framkvæmd hennar. Samkomu-
lag þetta hefur án efa greitt
mjög fyrir samningum, en hart er
það aðgöngu, ef verkafólk á að
kaupa sjálfsagðar, félagslegar
umbætur því verði, að slá af kröf-
uro sínum um bætt launakjör.
Slíkar umbætur eiga að fara fram
óháðar þeim málum og hver fram
farasinnuð ríkisstjóm myndi
leggja sig fram um slíkar um-
bætur, án þess að gera þær að
skiptimynt við samningaborðið.
Nokkur meginatriðin í sam-
komulaginu um húsnæðismálin
eru þessi:
1. Lán til þeirra, sem hófu bygg-
ingaframkvæmdir á tímabilinu
1. apríl til 31. des. 1964 hækki
úr 150 þús. kr. í 200 þús. kr.
2. Hámarkslán Húsnæðismála-
stjórnar verði endurskoðuð frá
og með 1. jan. 1966, með hlið-
sjón af hækkun bygginga-
kostnaðar frá 1. júlí 1964.
Lánsupphæðir verði síðan end-
urskoðaðar árlega. Næstu
fimm ár skulu lánin hækka um
a. m. k. 15 þús. kr. árlega.
3. Ákvæði eru um samvinnu rík-
isins og Reykjavíkurborgar
um byggingu hagkvæmra og
ódýrra íbúða í fjölbýlishúsum
og á að byggja a. m. k. 250
íbúðir á ári á tímabilinu 1966
—1970. Ákvæði um þessar
byggingar eru nokkuð ítarleg
og verður ekki greint nánar
-frá þeim hér, enda fjalla þau
um Reykjavík eina. En ákvæði
eru um það, að meðlimir verk-
lýðsfélaganna skuli eiga kost
á að kaupa þessar íbúðir með
mjög hagkvæmum kjörum.
Víða ósamið
Mörg verklýðsfélög hafa enn
ekki gengið frá samningum og
hafa sennilega beðið eftir því, að
semdist í Reykjavík og Hafnar-
firði.
Strax eftir að samið hafði ver-
iö í Reykjavík, var samið um
sömu kjör og í Reykjavík á Vest-
fjörðum. Vestfirðingar beita
þeirri hagkvæmu, en lítt karl-
mannlegu aðferð, og hafa gert
það nokkuð lengi, að halda að sér
höndum í kjaramálum unz aðrir
hafa brotið ísinn, en taka svo
sinn hlut á þurru landi.
Vafalaust hafa samningarnir í
Reykjavík mikil áhrif á gerð ann-
arra samninga og líklegt er, að
nú semjist alls staðar greiðlega.
Nýjar baráttuaðferðir
1 þeirri deilu, sem nú er nýlega
afstaðin, beittu verklýðssamtökin
nýrri baráttuaðferð, sem telja
verður, að gefizt hafi vel. I stað
þess að efna til harðvítugra verk-
falla vikum saman, var nú efnt
til skyndiverkfalla í 1—2 daga
og bann lagt við allri yfirvinnu.
Hafa þær aðgerðir án efa valdið
atvinnurekendum miklum erfið-
leikum og rekið mjög á eftir
samningum. Verklýðshreyfingin
þarf líka að geta tileinkað sér
nýjar bardagaaðferðir þegar þörf
krefur, og hún þarf að vera
sveigjanleg og hörð í senn. .
Ný hlutafélög
I Lögbirtingablaðinu, sem út
kom 19. júní, er sagt frá stofn-
un þriggja austfirzkra hlutafé-
laga.
Sólbrekka, Mjóafirði
„Tilgangur félagsins er fisk-
verkun, útgerð og útflutningur
sjávarafurða, svo og lánastarf-
semi“. Hluthafar eru fimm, Vil-
hjálmur Hjálmarsson, Mjóafirði,
Dýrleif J. Hallgríms og Gunnar
Ölafsson, Reykjavík, og Þórður
Óskarsson og Björn J. Björnsson,
Akranesi. í stjórn eru: Þórður
Óskarsson, formaður, Vilhjálmur
Hjálmarsson og Björn J. Björns-
son. Framkvæmdastjóri er Gunn-
ar Ölafsson. -
Hlutafé er 500 þús. kr. — Það
er þetta félag, sem komið hefur
á fót söltunarstöo í Mjóafirði.
Þór, Fáskriiðsfirði
„Tilgangur félagsins er verzlun-
arrekstur". Hluthafar eru fimm,
Margeir Þórormsson, Þór Þór-
ormsson, Þóra Jónsdóttir, Finn-
bogi Jónsson og Helgi Guðlaugs-
son og eiga þau öll heima í Búða-
kauptúni. Stjórn félagsins skipa:
Helgi Guðlaugsson, formaður,
Þór Þórormsson og Finnbogi
Jónsson. Framkvæmdastjóri er
Margeir Þórormsson.
Hlutafé er 100 þús. kr.
Jón Eiríksson, Hornafirði
„Tilgangur félagsins er útgerð,
fiskverkun og skyld starfsemi".
Hluthafar eru fimm, Ástvald
Valdimarsson, Þóra Sigurðardótt-
ir, Guðmundur Jónsson og Sigrún
Eiríksdóttir, öll á Höfn og Egill
Jónsson, Nesjahreppi. Stjórnina
skipa: Ástvald Valdimarsson, for-
maður, Guðmundur Jónsson og
Sigrún Eiríksdóttir. Framkvæmda
stjóri er Guðmundur Jónsson.
Hlutafé er 300 þús. kr.
Félagið hefur keypt v/s Ljósa-
fell af Fáskrúðsfirði og heitir
skipið nú að sjálfsögðu Jón
Eiríksson og er við síldveiðar.
Haft er í
flimtingum
að viðreisnarsinnar séu nú allir
í sáruni eftir ósig'rana í
kaupgjadsmáíunum;
að samt reyni þeir áð beita
klónum eins og vængbrotnir
veiðibjölluungar;
að nú ætli „viðreisnin“ að
hefna sín á heimtufrekum
launþegum og lirinda af
stað nýrri verðbólguskriðu;
að trúlega fái þeir viðreisnar-
menn að vita, hvar Davíð
keypti ölið, áður en lýkur.