Austurland - 23.07.1965, Blaðsíða 1
Amlurlmd
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 23. júlí 1965. 28. tölublað.
Sj ómannastofa opnuð í
Neskaupslað
Mánudaginn 19. júlí var opnuð
sjómannastofa að Hólsgötu 5, þar
sem áður voru skrifstofur bæjar-
ins.
Bæjarstjórn og fréttamönnum
var boðið til kaffidrykkju í til-
efni opnunarinnar. Voru veiting-
ar hinar beztu og aðbúnaður ail-
ur hinn vistlegasti, Hefur hús-
næðinu verið breytt nokkuð, mál-
að og lagfært. Eitt herbergi er
innréttað sem eldhús, og er þar
einnig selt tóbak og sælgæti. í
stóru herbergjunum tveim eru ný
stálhúsgögn, borð og stólar. Eru
sæti fyrir um 70 manns. Þá er
þarna knattborð, töfl, skrifborð
og ritföng og einangraður síma-
klefi. Veggir eru prýddir mál-
verkum og blóm skreyta glugga.
Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri
opnaði sjómannastofuna með
stuttri ræðu og sagði þar frá til-
drögum að opnun stofnunarinnar:
Er síldveiði jókst hér fyrir
austan og veiðiflotinn var nær
allur orðinn fyrir Austurlandi,
sáu menn nauðsynina fyrir sjó-
mannastofu hér.
Að undanförnu hefur síldveiði
á Austfjarðamiðum verið lítil og
farið minnkandi dag frá degi.
Aftur á móti hefur verið mikil
síldveiði við Hjaltland og á Vest-
mannaeyjamiðum. A. m. k. þrír
bátar eru farnir til Hjaltlands til
veiða og í fylgd með þeim flutn-
ingaskip til að flytja væntanlegan
afla heim til íslands.
Margir bátar hafa einnig farið
suður til veiða og hefur því síld-
veiðiskipum á Austurlandsmiðum
fækkað til mikilla muna.
Engin ástæða er til að ætla, að
síldveiðarnar bregðist, þótt veiði
sé treg um skeið. Það er algengt,
að tímabil komi, sem engin veiði
er, þó mikil veiði sé á undan og
eftir. Menn gera sér miklar von-
lr um veiði í ágúst og svo í haust
°g vetur.
Talsvert hefur verið saltað af
sild og að heita má allri síld, sem
veiðzt hefur upp á síðkastið, hef-
ur verið skipað upp á söltunar-
Á fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Neskaupstaðar fyrir 1965 voru
veittar 200 þúsund kr. til sjó-
mannastofu. Kosin var nefnd til
að undirbúa reksturinn. Hana
skipa: Bjarni Þórðarson, Haukur
Ólafsson og Jóhann Karl Sigurðs-
son. Þegar ákveðið var að flytja
skrifstofur bæjarins í félagsheim-
ilið, ákvað bæjarstjórn einnig að
nota húsið að Hólsgötu 5 fyrir
sjómannastofu. Fiutningi skrif-
stofanna seinkaði frá því, sem
upphaflega var ákveðið, og þvi
dróst einnig á langinn, að unnt
yrði að opna sjómannastofuna,
en nokkrar breytingar og lagfær-
ingar varð óhjákvæmilega að
gera á húsnæðinu.
Bæjarstjóri kvað þetta hús-
næði mundu reynast of lítið, þeg-
ar landlégur væru og mörg skip
í höfn, en flestir opinberir staðir
geta orðið of litlir við einstök
tækifæri. Hann sagði ennfremur,
að í framtíðinni yrði að rísa hér
sjómannaheimili, stórt og rúm-
gott. Og slík stofnun verður ef-
stöðvarnar, en úrgangur hefur
verið mikill.
Síldarverksmiðjurnar og sölt-
unarstöðvarnar norðan Seyðis-
fjarðar standa illa að vígi, þegar
veiðin er jafn sunnarlega og ver-
ið hefur. Söltun er þar lítil eða
engin og svo til öll bræðslusíld,
sem þangað hefur borizt, er af
júníveiðinni, en þá voru gæði hrá-
efnisins ekki meiri en það, að
beint tap var á vinnslu þess.
Ekki bætir það úr skák, að' flutn-
ingaskipin hafa setið um veiðina
eins og gammar um bráð, og
hirt kúfinn, sem ella hefði farið
til þessara staða.
Gæftir hafa verið góðar, svo
ekki verður ótíð um kennt, að
illa veiðist.
Síldarverksmiðjan hér mun
ljúka bræðslu um helgina, ef ekki
berst hráefni, sem um munar.
Hún hefur nú tekið á móti um
120 þús. málum,-
laust orðin að veruleika, áður en
langt líður.
1 sjómannastofunni geta sjó-
menn komið saman og rætt sín á
milli, spilað, teflt og leikið við
knattborðið í tómstundum. Síma-
klefi er þarna, og geta menn tal-
að heim til sín þaðan. Trúlega
mun það verða mikið notað, því
að lengi þarf oft að bíða eftir-
langlínusamtölum og er heimilis-
legra að sitja í sjómannastofunni
en á símstöðinni. Þá er gert ráð
fyrir, að sjómenn hafi þarna
næoi til bréfaskrifta, og koma
starfsstúlkur bréfum í póst, ef
þess er óskað. Ennfremur geta
sjómenn látið senda sér bréf til
sjómannastofunnar og vitjað
þeirra þar.
Öll dagblöð og blöð gefin út
utan Reykjavíkur, en það eru
flest vikublöð, munu liggja
frammi í sjómannastofunni.
Og síðast en ekki sízt geta sjó-
mennirnir svo keypt sér kaffi,
mjólk og brauð, sem eflaust verð-
ur rausnarlega framreitt.
Reglugerð hefur verið sett upp
í húsinu, þar sem gestir eru á-
minntir um hreinlega umgengni
og kynnt sú þjónusta, sem stofn-
unin veitir.
Algjörlega er bannað að hafa
áfengi um hönd í sjómannastof-
unni.
Þá greindi bæjarstjóri frá því,
að sjómannastofunni hefði þegar
borizt góð gjöf. Frú Kristrún
Hel£adóttir gaf mjög fagra slag-
klukku og loftvog til minningar
um föður sinn, Helga Flóvents-
son. Þessir munir prýða nú einn
vegg sjómannastofunnar og gefa
henni hlýlegan og heimilislegan
svip.
Forstöðukonur sjómannastof-
unnar eru frú Kristrún Helga-
dóttir og frú Ragnheiður Sverris-
dóttir, ’báðar húsmæður hér í bæ.
Sjómannastofan verður opin
frá M. 9 til kl. 23.30 alla daga.
Þessi sjómannastofa er sú
fyrsta á öllu Austurlandi, sem
starfrækt er af Islendingum, en
Norðmenn reka sjómannaheimili
á Seyðisfirði, sem kunnugt er.
Sjómenn kunna eflaust að meta
það, að þeim er gefinn kostur á
athvarfi í landi, og fyrir stofnun
sem þessa er mikil þörf. B.6,
U.I.A. heldur
æskulýðssam-
komu í Atlavík
Útisamkomur hafa oft í för
með sér drykkjuskap og slark, og
því miður er hlutur unglinga þar
oft æði mikill. Þetta hefur valdið
mörgum áhyggjum og reynt hef-
ur því verið að bæta úr til batn-
aðar.
Áfengislausar æskulýðssam-
komur hafa verið haldnar í
Vaglaskógi og Húsafellsskógi, og
hafa þær gefizt vel. Æskulýðs-
félög og samtök í Borgarfirði og
Norðurlandi eystra stóðu fyrir
þessum samkomum.
Segja má, að áfengisbannið
hafi valdið því, að allt annar
svipur varð á þessum samkomum.
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurland hefur ákveðið að fara
nú inn á þessa braut hér eystra
og heldur tveggja daga samkomu
í Atlavík um verzlunarmanna-
helgina, 31. júlí og 1. ágúst.
Skemmtunin er fyrst og fremst
sniðin fyrir unga fólkið, en auð-
vitað er öllum heimill aðgangur,
sé áfengi ekki haft um hönd.
Reynt verður að vanda til dag-
skrár báða dagana, eftir því sem
föng eru á, og er ýmis nýbreytni
fyrirhuguð í því sambandi.
Dagskrá samkomunnar verður
auglýst síðar.
Samkoma sem þessi verður dýr
í framkvæmd, t. d. verður öflug
löggæzla. ÚÍA hefur notið fyrir-
greiðslu og stuðnings frá sýslu-
nefnd Suður-Múlasýslu í þessu
máli, en sýslunefndin veitti 35
þúsund króna styrk til þessa
samkomuhalds.
Vonandi heppnast þessi tilraun
UÍA til áfengislauss samkomu-
halds vel, undir því er mikið
komið. Þess er þá og að vænta,
að fullorðna fólkið almennt hjálpi
til, að svo megi verða, flykkist í
Atlavík þessa helgi og virði þar
settar reglur. Þá mun unga
Framhald á 2. síðu.
Haft er í
flimtingum
að ráðamenn þjóðarinnar eigi
nú annríkt vegna komu ým-
issa erlendra sendiboða;
að ráðamennirnir séu mun
snúningaliprari í slíkum til-
fellum en ef um skyldu-
störfin er að ræða;
að menntamálaráðherrann hafi
ekki við að láta prenta
ræður á skandinavisku;
að hinum erlendu gestum séu
sýndir merkustu staðir
landsins svo sem KEA og
forargöturnar á Seyðisfirði.
Tregða á síldarmiðunum