Austurland - 30.07.1965, Blaðsíða 1
Amlurland
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 30. júlí 1965. 29. tölublað.
Úisvarsskráin er komin úí
Heildarupphœð útsvara 13.2 millj. krónur
Afsláttur 16 prósent, ekki lagt á fjölskyldubœtur
Útsvarsskrá Neskaupstaðar
1965 hefur nú verið birt, svo og
skrá um aðstöðugjöld í Neskaup-
stað.
Alls var jafnað niður kr.
13.200.000.00. Aðstöðugjöld nema
kr. 3.369.400.00.
Á fjárhagsáætlun er gert ráð
fyrir útsvarstekjum :að upphæð
kr. 12.000.000.00. Lögum sam-
kvæmt er skylt að leggja á til
viðbótar 5—10% fyrir vanhöld-
um. Sú heimild var notuð til
fullnustu.
Aðstöðugjöld voru áætluð kr.
2.600.000.00 og Hafa því farið kr.
769.400.00 fram úr áætlun.
I '
Breytt lög
Við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unarinnar lýsti bæjarstjórnar-
meirihlutinn yfir því, að hann
mundi hlutast til um það, að út-
svör yrðu lækkuð frá þágildandi
lögum um a. m. k. 20% og að
fjölskyldubætur skyldu undan-
þegnar útsvari. Yrði iögum
breytt skyldi lágmarkslækkun
verða tilsvarandi, en vitað var að
Alþingi, sem þá sat, mundi gera
einhverjar breytingar á þeim
kafla tekjustofnalaganna, sem
fjallar um útsvör, en ekki var
vitað hverjar þær breyt.ingar
mundu verða.
Breytingar þær, sem gerðar
voru á lögunum, fela í sér veru-
^ega hækkun á persónufrádrætti
°g nokkra lækkun á tekjuútsvari.
Persónufrádráttur fyrir hjón
hækkaði úr 35 þús. kr. í 50 þús.
kr., fyrir einhleyping úr 25 þús.
kr. í 35 þús. kr. og fyrir hvert
barn á framfæri úr 5 þús. kr. í
10 þús. kr.
Tekjuútsvarinu var breytt
þannig, að í stað þess að áður
skyldi greiða 20% af útsvars-
skyldum tekjum upp að 40 iþús.
kr. og 30% af því sem umfram
er, greiðast nú 10% af útsvars-
skyldum tekjum upp að 20 þús.
kr-, 20% af 20—60 þús. kr. tekj-
um og 30% af tekjum yfir 60
þús. kr.
Lagabreytingin felur í sér mjög
verulega lækkun á útsvari lág-
launamanna og á útsvari manna
með mikla ómegð.
Engin breyting var gerð á út-
svarsgreiðslu fyrirtækja og má
því segja, að nokkur hluti út-
svarsbyrðarinnar hafi verið
fluttur af einstaklingunum yfir á
fyrirtækin.
Fjölskyldubætur
undanþegnar
Framtalsnefnd breytti álagn-
ingarreglum sínum sáralítið frá
fyrra ári, umfram það, sem lög-
in mæla fyrir um. Eina breyting-
in, sem máli skiptir, var sú, að
fjölskyldubætur voru undanþegn-
ar útsvari. Jafngildir það því að
persónufrádráttur fyrir börn,
ssem voru á framfæri gjaldanda
allt árið, hækki um 3 þús. kr. í 13
þús. kr. — Rétt er að taka það
fram, að eftir að Alþingi hafði
hækkað persónufrádrátt fyrir
börn um 100%, mátti leggja á
fjölskyldubæturnar án iþess að í
bága kæmi við yfirlýsingu bæjar-
stjórnar, sem áður var getið.
Undanþága fjölskyldubóta frá
útsvarsálagningu hefur í för með
sér 340—350 þús. kr. lækkun
samtals á útsvörum þeirra, sem
fjölskyldubóta njóta, eftir að til
greina hefur verið tekinn af-
sláttur sá, er síðar getur.
Fjölskyldubætumar eru einu
tryggingarbæturnar, sem á und-
anförnum árum hafa verið út-
svarslagðar hér í bæ. Nú eru því
allar tryggingarbætur, hverju
nafni sem þær nefnast, undan-
þegnar útsvari.
Að sjálfsögðu var haldið þeirri
reglu, sem upp var tekin þegar
árið 1946, að leggja ekki útsvar
á menn, sem náð höfðu 67 ára
aldri um næstu áramót fyrir á-
lagningu.
Mikil hækkun útsvara
Heildarupphæð útsvara hækk-
ar mjög mikið frá því, sem var
í fyrra. Þá var jafnað niður kr.
7.766.000.00. Útsvörin hafa því
hækkað um kr. 5.434.000.00, eða
urn 70%. Öll þessi hækkun og
meira til kemur í hlut félaga, en
heildarupphæð útsvara ein
staklinga lækkar til muna, sem
síðar mun sýnt.
Þessi mikla hækkun útsvara,
stafar af því, að bæjarstjórn var
í stórum dráttum ljóst hvernig
háttað var tekjum gjaldenda og
taldi sjálfsagt, að taka þá stefnu,
að afla bænum aukinna tekna,
jafnframt því að útsvarsbyrð-
inni var í hóf stillt, þannig að
útsvör á sömu tekjur yrðu lægri
hér en í flestum kaupstöðum
öorum.
Álagningarreglur 1964 og
1965
Ef jafnað hefði verið niður nú
eftir sömu reglum og í fyrra og
veittur 10% afsláttur eins og þá
hefðu útsvörin orðið um 17,7
millj. kr. Einstaklingar hefðu þá
borið um kr.9.950.000.00 og fé-
lög um kr. 7.750.000.00. Nú eru
útsvörin því kr. 4.500.000.00
lægri en orðið hefði, ef farið
hefði verið eftir reglum þeim,
sem í fyrra giltu. Svarar það til
um 25,5% lækkunar.
Lækkunin kemur fyrst og
fremst fram á útsvörum einstakl-
inga. Útsvör þeirra í ár eru kr.
5.945.400.00, en hefðu eftir regl-
unum í fyrra átt að ver kr.
9.950.000.00, eins og áður er sagt.
Lækkun þeirra er því kr.4.004.
600.00, eða rúm 40%.
Lækkunin er þó mjög misjöfn.
Langmest er hún á 'láglauna-
mönnum og fjölskyldumönnum,
sérstaklega ef saman fara frekar
lág laun og mikil ómegð. Getur
lækkun í sumum tilfellum numið
70—80%. Miklu minni er lækk-
unin á einhleypingum með góðar
tekjur, en allsstaðar er þó um
verulega lækkun að ræða.
Eins og áður er sagt, hefðu út-
svör fyrirtækja, ef jafnað hefði
verið niður eftir sömu reglum og
í fyrra, numið um kr. 7.750.
000.00, en þau eru kr. 7.254.600.
00. Lækkunin er kr.495.400.00,
eða um; 6,4%. Staðfestir þetta
það sem áður er sagt, að með
síðustu breytingunum á útsvars-
löggjöfinni hefur verulegum
hluta útsvarsbyrðarinnar verið
velt af einstaklingunum yfir á
félögim
Framh. á 4. síðia.
Hœstu út-
svörin
Félög:
Síldarvinnslan hf. 6.314.000
Netag. Fr. Vilhj.s. hf. 174.300
Sæsilfur hf. 135.200
Kaupfélagið Fram 126.100
Máni hf. 119.200
Einstaklingar:
Ölver Guðmundss. útg.m. 115.200
Sveinbj. Sveinss. útg.m. 76.500
Jón Ölversson, skipstj. 85.200
Birgir Sigurðsson skipstj. 58.800
Guðgeir Jónsson bifr.stj. 57.500
Sigurþór Sigurðss., vélstj. 51.500
Guðm. Stefánss., stýrim. 44.800
Axel Magnússon, matsv. 42.500
Baldur Óli Jónss., tannsm. 42.300
Færeyjaíerð
Um síðustu helgi fór „Norð-
firðingur" hin nýja fjögra
hreyfla flugvél Flugsýnar, tvær
leiguferðir til Færeyja, og flutti
12 farþega í hvorri ferð.
Var lagt upp í fyrri ferðina kl.
16.30 á laugardag, en sökum
þoku hér heima, var frestað að
fara seinni ferðina til sunnudags-
morguns og gisti áhöfn vélarinn-
ar í Vogey. Ferðin frá Neskaup-
stað til Vogey flugvallar tók um
1,50 klst.
Flugstjóri í þessum ferðum var
Sverrir Jónsson, og sagði hann
að ferðirnar hefðu gengið með
ágætum og lendingarskilyrði á
Vogey flugvelli væru sæmilegar.
Svo skemmtilega vildi til er
fluvélin var að lenda, að mikið
grindadráp stóð yfir skammt frá
flugvellinum og höfðu sjálfsagt
fæstir af ferðalöngunum séð slíkt
áður.
Áformað er að ná í farþegana
aftur til Færeyja n. k. laugardag.
Haft er í
flimtingum
að nýlega hafi verið slegið upp
balli í Mjóafirði og mun
langt síðan slíkt hefur skeð;
að slegizt hafi verið af mikilli
tilfinningu og sumir hlotnn
ærinn áverka;
að þetta sé tákn þess, að
Mjóafjörður sé að komast
í þjóðbraut.