Austurland - 01.10.1965, Síða 1
Amturlmd
Málgagn sésíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 1. október 1965. 38. tölublað.
Stórbœtt aðstaða
til skrúfumœlinga
Á austurkanti gömlu bæjar-
bryggjunnar í Neskaupstað stend-
ur timburhús og lætur lítið yfir
sér innan uim. síldarnætur og ið-
andi mannlífið. En ef við göngum
niður bryggjuna og lítum inn í
skúrinn, sjáum við mörg tor-
kennileg tæki og mæla og þekkj-
um þar naumast nema segul-
bandstæki, litla talstöð og hljóð-
nema, sem leiddur er úr skúrn-
um og látinn í sjó niður.
Hver á svo þennan skúr og
hvaða hlutverki þjónar hann?
Eigandinn er Baldur Böðvan-
son, útvarpsvirki, og er þetta
nokkurs konar útibú frá verk-
stæði hans, ætlað til greiðari
þjónustu við bátaflotann.
Inni í skúrnum sitja þeir Baldur
og Hrafn, sonur hans, með öll
tæki í gangi og hljóðnemann
niðri í sjó, en skammt undan
bryggjunni keyrir einn síldarbát-
urinn hvern hringinn af öðrum,
með mismunandi hraða og skrúfu-
stillingu eftir tilsögn Baldurs.
Hávaðinn, sem vél og skrúfa or-
Kennarar o
skólabekk
Um síðustu helgi, eða nánar til
tekið þrjá daga samfleytt, sátu
um 20 austfirzkir kennarar á
skólabekk suður í Breiðdal. Kenn-
arar voru Óskar Halldórsson,
cand. mag., sem kenndi hljóð-
fræði og framburð, og Þorsteinn
Sigurðsson kennari úr Reykjavík,
sem leiðbeindi um lestrarkennslu
byrjenda og treglæsra barna.
Námskeiðið sóttu kennarar allt
frá Hornafirði til Borgarfjarðar.
Það var einróma álit þeirra
sem námskeiðið sóttu, að þeir
hefðu haft af því ómetanlegt
gagn, enda hafa kennarar alltaf
vitað það, að eitt það þýðingar-
mesta í þeirra starfi er sífelld
endurnýjun og kynning nýrra að-
ferða og vinnubragða við kennslu.
Að námskeiði loknu var haldinn
Framli. á 4. síffiu.
saka er tekinn á segulband og
mældur á mælitækin.
Og nú skulum við ræða við
Baldur um stund.
— Hvenær settirðu upp þenn-
an skúr?
— Við settum hann upp seinni
hluta sumars. Hann átti eiginlega
að vera kominn upp fyrir sild, en
það tókst nú ekki.
Tilgangurinn með þessum skúr
er, að hafa í honum rafmagn og
aðstöðu fyrir ýmiskonar imæli-
tæki, t. d. til mælinga á skrúfu-
hávaða. Einnig er ætlunin að
reyna hér að gera mælingar á
botnstykkjum síldarleitartækj-
anna og geta gengið úr skugga
um ástand þeirra sem ég tel að
hafi mjög mikla þýðingu fyrir
síldveiðiflotann. Og síðast en ekki
sízt er ætlunin að hafa hér að-
stöðu til að nota fullkomin mæli-
tæki við viðgerðir almennt.
— Það er auðvitað allt önnur
aðstaða að vinna þetta svona
heldur en á verkstæði lengra frá?
— Já, gjörólík, hér getum við
gert mælingar og athuganir, sem
útilokað væri annars staðar vegna
kostnaðar t. d. vegna misimun-
andi spennu á tækjum. En hér
getum við farið með tæki um
borð og einnig úr skipunum í
skúrinn.
Bæði við og skipstjóramir
þurfum að1 venjast þessari að-
stöðu hér, áður en hún fer að
koima að virkilegum notum. Það
er t. d. mikilvægt, að það sé að-
gengilegt að komast hér að til að
gera þær mælingar og athuganir,
sem með þarf. Það er hugmynd
mín, að þegar bátar þurfa á okk-
ar aðstoð að halda, komi þeir hér
að bryggjunni, fái sína þjónustu
og rými síðan. Ef þeir em t. d.
að landa, förum við auðvitað eftir
sem áður og gerum við tæki bát-
anna, þar sem þeir liggja. En hér
gengur viðgerðin fljótar, þegar
allt er við höndina og í vissum
tilfellum er nauðsynlegt að bát-
arnir komi hér að. Það skiptir
t. d. miklu máli varðandi skrúfu-
mælingar, að þær séu alltaf fram-
kvæmdar á sama stað við söimu
aðstæður til að fá samanburðinn.
— Þið byrjuðuð á þessum
skrúfumælingum í fyrra, var það
ekki? Og þær hafa gefið góða
raun?
— Já, við mældum í fyrra og
skipstjóramir telja margir, að
þeir hafi haft mikil not af þessu.
Við höfuim skrúfumælt allmarga
báta í sumar og eru þeir misjafn-
ir. En raunverulega vantar okkur
að mæla skrúfuhljóð aflabátanna
til að fá nákvæmari samanburð
og vita nákvæmlega, hvað er eðli-
legur hávaði og hvað ekki. Það
er margt, sem kemur til greina
varðandi skrúfuhávaða bátanna,
t. d., hvað rúmt er ujm skrúfu-
blöðin, og einnig held ég, að bygg-
ingarlag bátsins komi hér einnig
til. Svo getur skrúfuhávaðinn
truflað ,,asdicið“, ef það er stað-
sett of aftarlega í bátnum.
Ég vil geta þess, að það er
ekki nóg til frambúðar aðeins að
mæla skrúfuhávaða bátanna og
bera saman, heldur þarf einnig
að taka mál af öllum umbúnaði
skrúfxmnar og finna þannig út,
hvað raunverulega veldur þessum
óeðlilega hávaða og hvað er til
úrbóta. Á síðustu fjárlöguim voru
veittar 150 þús. kr. til skrúfuat-
hugana og starfandi er nefnd í
þessu máli. 1 henni er skipaskoð-
unarstjóri, og verður það vænt-
anlega verkefni hans að hafa
framkvæmdir með höndum.
Það hefur heyrzt, að koma eigi
á fót rannsóknarstöð í þessu
skyni í Hvalfirði.
Gott væri, að úr því yrði, en
aðra slika stöð þarf örugglega
eins á Austurlandi og jafnvel víð-
ar. En trúað gætum við því, að
rkipum væri ætlað að sigla til
Hvalfjarðar til skrúfumælinga, ú:
miðri aflahrotu e. t. v.!
— Og að lokuim, Baldur, hvað
vinnið þið margir á verkstæðinu?
— Við vorum fjórir, en erum
nú orðnir þrír. Ég reyndi mikið
til að fá fimmta manninn í sumar
til að geta sinnt viðgerðum á út-
varpstækjum, en fékk engan
mann. B.S.
Enn er góð síldveiði
Eftir nokkurra daga brælur
skánaði veður fyrir miðja vikuna
og var þá ekki beðið boðanna með
að halda á miðin. Veiði hefur ver-
ið góð þessa daga, en síldin er
mjög blönduð.
Flutningaskipin hafa legið á
miðunum og tekið síld og hefur
því minna ve.rið um landanir hér
eystra en ella. Nú munu þau hafa
fengið fylli sína í bili og hefur
því meiri síld borizt hér að landi
í nótt en áður.
I nótt fengu 55 skip 60 þús.
mál og tunnur 60—70 mílur und-
an landi í Norðfjarðar- og Reyð-
arfjarðardýpi.
Söltun að Ijúka ?
Mjög hefur nú dregið úr söltun
síldar og veldur því einkum
tvennt: Mikil fólksíæð og smæð
síldarinnar. Ein söltunarstöðin í
Neskaupstað, Máni, mun hafa
hætt söltun og dauft hljóð er í
öðrum saltendum.
Sveinn skipar --
Bjarni hlýðir
Misjafna dóma fær sú ákvörðun
menntamálaráðuneytisins, að heim
ila framhaldsgkólanemendum að
vinna í síld til miðs október. Er
enn svo að sjá, að Sveinn Ben.
hafi vald til að segja ríkisstjórn
landsins fyrir verkum. Hann ger-
ir Bjarna bróður sínum orð,
Bjarni hnippir í kratana og þeir
gef.a út tilskipanir til að verða
við skipunum Sveins.
Vegleg gjöf
Nýlega færði Jóhann Eyjólfs-
,son, Hafnarbraut 32 hér í bæ
sjúkrahúsinu að gjöf 10 þúsund
krónur.
Éig undirritaður leyfi mér í
nafni sjúkrahússins að færa Jó-
hanni kærar þak.kir fyrir þessa
veglegu gjöf.
Stefán Þorleifsson,
sjúkrahússráðsmaður.
BERKLAVARN-
ARDAGURINN
Hinn árlegi berklavarnardagur
er á sunnudaginn kemur. Verða
þá seld merki Sambands íslenzkra
berklasjúklinga og tímarit þess til
ágóða fyrir starfsemina. SÍBS
væntir þess, að njóta enn sem
fyrr stuðnings landsmanna og að
hver og einn leggi fraim sinn
skerf með1 því að kaupa merkin
og tímaritið.
Bæjarstjórnarfundur
hefur verið boðaður í dag ,kl. 4.
Á dagskrá eru fundargerðir
nefnda.