Austurland - 08.10.1965, Blaðsíða 1
Amturlmd
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 8. október 1965. 39. tölublað.
Síldveiðin gengur nú
mjög vel
Síldveiði var mjög góð síðustu
viku. Nam vikuaflinn 274.247
málum og tunnum, en 88.466
sömu viku í fyrra. Þessa viku
mun þó aflinn verða enn meiri,
enda hafa verið stöðugar gæftir
alla vikuna, en löndunarerfið-
leikar hafa mjög tafið veiðar.
Alls höfðu 223 skip tilkynnt
einhvern afla, þar af 217 1000
mál og tunnur eða imeira.
Heildaraflinn á miðnætti að-
faranótt sl. sunnudags var 2.374.
253 mál og tunnur, en á sama
tíma í fyrra 2.523.758 mál og
tunnur. Er þetta ár tekið að
nálgast hið fyrra hvað aflamagn
snertir og mun raunar nú hafa
farið fram úr því.
Þrátt fyrir mikla fólkseklu og
imjög blandaða síld hefur söltun
verið þó nokkur og eru menn
farnir að vona, að' takast megi
að salta upp í samninga.
Aflinn hefur verið hagnýttur
sem hér segir: 1 -salt 330.810
(342.062) uppsaltaðar tunnur, í
frystingu 18.496 (36.169) upp-
mældar tunnur, í bræðslu 2.024.
947 (2.140.527) mál.
Skrá um afla Austfjarðabáta
eins og hann var í lok síðustu
viku, fer hér á eftir:
Akurey, Homafirði 9.126
Bára, Fáskrúðsfirði 21.413
Barði, Neskaupstað 28.873
Bjartur, Neskaupstað 26.191
Björg, Neskaupstað 15.491
Björg n, Neskaupstað 5.571
Einir, Eskifirði 8.376
Gissur hvíti, Hornafirði 5.611
Glófaxi, Neskaupstað 7.538
Guðrún Þorkelsd., Eskif. 10.316
Gullberg, Seyðisfirði 20.657
Gullfaxi, Neskaupstað 12.412
Gullver, Seyðisfirði 30.029
Gunnar, Reyðarfirði 15.568
Hafrún, Neskaupstað 5.596
Heimir, Stöðvarfirði 32.571
Hoffell, Fáskrúðsfirði 5.105
Hólmanes, Eskifirði 16.509
Hvanney, Hornafirði 2.130
Jón Eiríksson, Homafirði 9.073
Jón Kjartansson, Eskif. 41.783
Kambaröst, Stöðvarf. 7.634
Krossanes, Eskifirði 26.403
Sig. Jónsson, Breiðd.v. 15.624
Sigurfari, Homafirði 3.868
Skálaberg, Seyðisfirði 7.863
Snæfugl, Reyðarfirði 9.187
Stefán Árnason, Fáskr.f. 4.079
Sunnutindur, Djúpavogi 16.105
Sæfaxi II, Neskaupstað 9.035
Þráinn, Neskaupstað 9.241
Auk þess hafa 4 bátar lagt upp
lítilsháttar magn síldar sunnan-
lands, Akurey 146 tunnur, Giss-
ur hvíti 258, Heimir 492 og
Kambaröst 989.
21. aðalfundur Kennarasam-
bands Austurlands var haldinn
að heimavistarskólanum Staðar-
borg í Breiðdal, dagana 27.—28.
sept. síðastlicinn. Fundinn sóttu
20 kennarar og skólastjórar víðs-
vegar að af sambandssvæðinu.
I sambandi við aðalfundinn var
haldið námskeið í móðurmáls-
kennslu. Leiðbeinendur voru þeir
Óskar Halldórsson, cand. mag.
og Þorsteinn Sigurðsson, kennari
í Reykjavík. Námskeð þetta, sem
stóð í tvo daga, tókst með þeim
ágætum, að ákveðið var að
Kennarasamb. Austurl. beitti sér
sem oftast þegar tök væru á fyr-
ir hliðstæðri fræðslustarfsemi.
Auk þess mættu á fundinum
þeir Skúli Þorsteinsson, náms-
stjóri, sem flutti erindi um launa-
mál o. fl. og Stefán Ólafur Jóns-
son, námsstjóri í starfsfræðslu,
sem flutti erindi um það efni.
Helztu áiyktanir fundarins
voru þessar:
1. Aðalfundur K.S.A. haldinn að
Staðarborg í Breiðdal 27. og
28. sept. 1965 vill, sökum
hinnar miklu og almennu
barnavinnu sem nú tíðkast í
landinu, beina þeirri ósk til
heilbrigðisyfirvalda, að þau
hlutist til um, að engum ung-
lingum innan 16 ára aldurs
verði hleypt inn á hinn al-
menna vinnumarkað, án um-
sagnar læknis um að viðkom-
andi sé ekki búin heilsufars-
leg hætta af þeim störfum,
sem honuim er ætlað að leysa
af hendi.
2. Aðalfundur K.S.A. haldinn að
Staðarborg í Breiðdal 27. og
28. sept. 1965 telur brýna
Langmestan afla allra síld-
veiðiskipa hefur Jón Kjartansson,
Eskifirði.
Sumir minni bátanna eru hætt-
ir síldveiðum. T. d. eru tveir
Norðfjarðarbátar hættir, annar
fyrir um þrem vikum.
Menn eru bjartsýnir á fram-
hald síldveiðanna í haust.
Nokkuð af stórufsa hefur kom-
ið í næturnar. Hafa menn reynt
að hagnýta hann eftir föngum og
er hann bæði saltaður og frystur.
nauðsyn á að unnið verði upp
hjálpargagnakerfi til stuðn-
ings lestrarkennslu og beinir
þeirri áskorun til forstöðu
fræðslumála og Ríkisútgáfu
námsbóka að unnið verði að
útgáfu gagna hið allra fyrsta.
3. Aðalfundur K.S.A. haldinn að
Staðarborg í Breiðdal 27. og
28. sept. 1965 skorar á
fræðsluyfirvöld í landinu að
skipa nefnd uppeldis- og bók-
menntafróðra manna, sem
semji leiðbeinandi skrá yfir
heppilegar bækur fyrir skóla-
bókasöfn.
4. Aðalfundur K.S.A. haldinn að
Staðarborg í Breiðdal 27. og
28. sept 1965 endurtekur fyrri
tilmæli sín til menntamála-
ráðherra, að hann gangist
fyrir því, að landinu verði
skipt niður í fræðsluuimdæmi.
I hverju fræðsluumdæmi verði
búsettur fastráðinn fræðslu-
stjóri og í sambandi við hans
embætti verði komið á sem
fjölbreyttastri og fullkomn-
astri þjónustu fyrir skóla um-
dæmisins.
5. Aðalfundur K.S.A. haldinn að
Staðarborg í Breiðdal 27. og
28. sept. 1965 mótimælir harð-
lega viðbrögðum menntamála-
ráðuneytisins gagnvart beiðni
atvinnurekenda á Austurlandi
um að nemendur í framhalds-
skólum fái leyfi úr skóla til
14. okt. ef þeir eru starfandi
við síldveiðar eða síldar-
vinnslu. Telur fundurinn að
slíkar aðgerðir skaði fyr-st og
fremst námsaðstöðu viðkoim-
andi nemenda, en valdi einnig
truflun á öllu skólahaldi í
Gagnfrœða-
skólinn settur
Gagnfræðaskólinn í Neskaup-
stað var settur 1. okt. Nemendur
eru 117 í 7 bekkjadeildum auk
iðnskóladeildar. Tveir nýir kenn-
arar eru settir við skólann, Stella
Eymundsdóttir og Stefán Hann-
esson. Fastir kennarar eru því 5
auk skólastjóra. Stundakennarar
eru 7. Skólahúsið er nú þegar
oroið of lítið, þó ekki sé það
ýkja gamalt og er nærri því fuli-
komin tvísetning í skólann í vet-
ur.
Merkur áfangi má það teljast
í sögu skólans, að nú er í fyrsta
sinn starfræktur við hann 4.
bekkur og munu því fyrstu gagn-
fræðingar skólans útskrifast á
næsta vori. Er það von forráða-
manna skólans, að nemendur og
foreldra.r kunni að imeta þessa
auknu menntunarmöguleika og að
deildina þurfi ekki að leggja nið-
ur vegna áhugaleysis þeirra.
Austurlands
þessum landsfjórðungi. Jafn-
framt telur fundurinn algjör-
lega óviðeigandi að ráðuneyt-
ið taki til slíkra aðgerða án
samráðs við skólastjóra og
fræðsluráð eða skólanefndir
viðkomandi skóla.
Fundarstjórar voru: Björn
Magnússon, skólastj. Eiðum og
Kristján Ingólfsson, skólastjóri
Eskifirði.
Núverandi stjórn sambandsins
skipa: Árni Stefánsson, formað-
ur, Auður Jónasdóttir, ritari,
Rafn Eiríksson, féhirðir og til
vara Torfi Steinþórsson, öll frá
Hornafirði.
.
Haft er í
flimtingum
að í yfirstandandi vérðhækk-
unarhríð hafi stórhækkað
verð á öllu áfengi öðru en
koníaki og líkjör;
að menn hafi brotið heilann
um hvers vegna þessi vín
hafi sloppið við hækkanirn-
ar;
að spakir menn hyggi helzt, að
koníak og líkjör séu vísi-
töluvörur, sem gegni álíka
þýðingarmiklrj hlutverki í
þjóðarbúskapnum og kart-
öflijrnar hér á árunum;
að menn bíði þess nú í ofvæni
að Magnús á Mel fari að
greiða niður verð á koníaki
og líkjör á sama hátt og á
nýmjólkinni.
Frá Kennarasambandi