Austurland - 19.01.1968, Page 1
Austurland
malgagn alþýcubandalagsins á austurlandi
18. árgangur.
Neskaupstað, 19. janóar 1968.
3. tölublað.
Víða hefur bryddað d aívinnuleysi í vetur
Talsvert bólar nú á atvinnu-
leysi víða um land og er það
sums staðar orðið alllangvinnt.
Ástæða er til að gera sér vonir
um, að þegar lengra kemur fram
á veturinn, dragi úr atvinnuleysi
og vonandi hverfur það með öliu.
Þegar vertíð hefst af fullum
krafti, og þegar byggingavinna
og önnur útivinna eykst með
hækkandi sól, ætti að mega gera
sér vonir um næga atvinnu. En
það breytir ekki þeirri staðreynd,
að atvinna er nú víða af skom-
um skammti og hefur verið svo
um skeið.
Á fyrsta fundi Alþingis eftir
hátíðafríið, gerði Lúðvik Jóeps-
son þessi mál að umtalsefni,
vakti athygli á því hve alvarlegt
atvinnuleysið er nú víða oröið og
vitnaði til margendurtekinna yf-
irlýsinga einstakra ráðherra og
ríkisstjórnarinnar í heild, að hún
mundi ekki láta það viðgangast,
að atvinnuleysi ríkti í landinu.
Spurði Lúðvík hvaða ráðstafanir
stjórnin hyggðist gera til þess að
bægja atvinnuleysinu frá.
Forsætisráðherra varð fyrir
svörum og kvað það satt vera,
að því hefði oft verið lýst yfir,
að stjórnin teldi það skyldu sína
að tryggja næga atvinnu. Annað,
sem hægt var að marka af fyrir-
ætlanir stjórnarinnar, sagði ráð-
herrann ekki, talaði um nauðsyn-
legar rannsóknir og minntist á
Búrfell og Straumsvík. Helzt
komst maður að þeirri niðurstöðu,
að ríkisstjórnin hefði ekkert gert
í málinu og ætlaði sér ekkert að
gera. i
Mikil brögð virðast að því að
atvinnulaust fólk vanræki að láta
skrá sig og láti undir höfuð leggj-
ast að hirða þær atvinnuleysis-
bætur, sem það kann að eiga rétt
til. Hafa mörg verklýðsfélög hvatt
atvinnulitla meðlimi sína til þess
að láta skrá sig svo þeir gætu
orðið aðnjótandi atvinnuleysis-
bóta. ' P
Blaðið hefur reynt að afla sér
upplýsinga um atvinnuástandið á
Austurlandi. Á þeim stöðum, sem
blaðið hefur haft samband við, er
hvergi um alvarlegt atvinnuleysi
að ræða, en víðast hvar fer at-
vmna dvínandi og yfirvinna er
víðast hvar sáralítil. Hornafjörð-
ur sker sig alveg lir. Þar er næg
atvinna, enda er vertíð þar hafin
af fullum krafti og aflabrögð
ágæt. Hornafjörður mun sá stað-
ur hér á Austurlandi þar sem at-
vinna er jöfnust og öruggust.
Á þeim stöðum þar sem um-
talsverð síldarsöltun hefur verið,
er enn allmikil vinna við síldina,
en viða er mikið af saltsíldinni
enn ófarið. Einnig er víða tals-
verð skipavinna öðru hvoru, eink-
um við útskipun afurða. En þegar
síldarvinnunni lýkur, er dökkt í
álinn á þeim stöðum, sem engin
vetrarútgerð verður frá. Vetrar-
útgerð mun víða verða með meira
móti. T. d. er nú gert ráð fyrir
talsverðri útgerð frá Norðfirði, en
var engin í fyrravetur, þar sem
allir Norðfjarðarbátar lögðu þá
upp afla sinn fyrir sunnan. Vetr-
arútgerð mun einnig verða frá
flestum eða öllum höfnum sunnan
Norðfjarðar og sums staðar eru
róðrar hafnir. Róðrar með línu
eru byrjaðir frá Djúpavogi og Fá-
skrúðsfirði, auk Hornafjarðar, og
tveir Eskifjarðarbátar búast nú
á veiðar með línu. Margir bátar
liggja enn yfir síldinni, en veiði
er engin vegna þess hve síldin
heldur sig á miklu dýpi, en Jakob
telur líklegt að um mánaðamótin
næstu verði hún veiðanleg í
grennd við Færeyjar.
Að öllu athuguðu virðist mega
gera ráð fyrir því, að þrátt fyrir
verulegan samdrátt í atvinnu víða
á Austurlandi, sé ástandið óvíða
mjög slæmt og líkur til að úr
rakni fljótlega. En tekjur vinn-
andi manna eru miklu lægri en
um þetta leyti í fyrra. Sjómenn
hafa litlar tekjur og tekjur
tímavinnumanna hafa stórlækkað
vegna þess, live yfirvinna er lítil.
En veturinn í vetur hefur fært
okkur heim sanninn um það, að
því fer fjarri að við búum við
nokkurt atvinnulegt öryggi. Ekki
má mikið út af bera til þess að
atvinnuleysi geri vart við sig.
Stjórnarvöld bæði ríkis og sveit-
arfélaga verða að hafa þetta í
huga þegar þau ráðgera fram-
kvæmdir. Eftir því sem tíðarfar
og aðrar aðstæður leyfa þarf að
vinna að þessum framkvæmdum
á þeim árstíma, sem helzt er
ástæða til að óttast atvinnuleysi.
Og enn á ný vill blaðið hvetja
meðlimi þeirra stéttarfélaga, sem
aðild eiga að atvinnuleysistrygg-
ingunum, að notfæra sér bætur
þaðan, þegar þeir eiga rétt á
þeim. Atvinnuleysistryggingasjóð-
urinn er eign verklýðsfélaganna,
ávöxtur kaupdeilu og kom í stað
kauphækkunar. Það er því á eng-
an hátt niðurlægjandi að þiggja
bætur úr sjóðnum. Það ætti að
vera svo sjálfsagt, að enginn, sem
rétt á til bóta, láti hjá líða að
hirða þær. Þessi sjóður er orðinn
mjög öflugur, um 1000 milljónir
króna og er vel fær um að standa
undir verulegum bótum.
Atvinnuleysisbætur eru að vísu
ekki háar, innan við 1000 krónur
á viku fyrir hjón, en þó geta þær
orðið til nokkurrar hjálpar á at-
vinnuleysistímum. ,
En umfram allt ber að leggja
áherzlu á að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi og tryggja næga og
örugga atvinnu. ,
Frá Æskulýðsráði Neskaupstaðar
Vetrarstarf Æskulýðsráðs hefst
frá og með mánudeginum 22. jan.
Áætlað er, að eftirfarandi klúbb-
ar verði starfandi:
1. Tauþrykk. Þar verður Mar-
grét Sigurjónsdóttir leiðbeinandi.
Sá klúbbur mun verða tvískiptur
og verða eldri nemendur á mánu-
dagskvöldum kl. 8, en yngri á J
fimmtudögum kl. 5.
2. Steinasöfnun. í þessum klúbbi
var allmikið starf sl. sumar og
voru þá farnar söfnunarferðir og
eru þegar allmörg börn og ung-
lingar skráðir í hann. Hann mun
nú starfa á þriðjudagskvöldum
kl. 8. Leiðbeinandi er Karl
Hjelm.
3. Módelsmíði verður á mið-
vikudagskvöldum kl. 8 og verður
þar Jóhann Jóhannsson, leiðbein-
andi.
4. Sjóvinna verður á mánudags-
kvöldum kl. 8. Leiöbeinandi er
Sigurjón Ingvarsson.
5. Hjúkiianarnámskeið fyrir
stúlkur 15 ára og eldri er.nýjung
hjá Æskulýðsráði og munu
hjúkrunarkonur frá Sjúkrahúsinu
leiðbeina. Ekki er enn víst hvenær
eða hvar það verður haldið en
Framh. á 4. síðu.
Byðgingaframkvsmdjr
í Neshaupstað 1967
Óvenjumikið hefur verið um
byggingaframkvæmdir í Neskaup-
stað á síðasta ári. Eftirfarandi
upplýsingar hefur Ivar Kristins-
son, byggingafulltrúi látið blað-
inu í té.
Alls var unnið að smíði 52ja
íbúða á árinu, þar af var hafin
smíði 21 íbúðar á árinu, en smíði
hinna hófst áður. Ekki var flutt í
nema 8 íbúðir, sumar ófullgerðar,
og eru því enn í smíðum 44 íbúð-
ir, sem ekki hefur verið flutt í.
Auk þess var byggt við rafstöð-
ina og verzlunarhús kaupfélags-
ins.
Ennfremur var unnið að smíði
barnaheimilis og íþróttahúss, síld-
arverksmiðja var byggð, tvær
skemmur o. fl.
Rúmmál allra bygginga er um
48.764 rúmmetrar.
Flatarmál íbúða er yfirleitt 110
—120 fermetrar.
Heldur mun nú horfa þunglega
fyrir húsbyggjendum hvað fjár-
magn snertir og má búast við að
sumir þurfi að fara sér hægt.
Orðsendiiig
til íbúfl Neshéroðs
Undanfarna mánuði hefur
gengið influenzufaraldur í norð-
urálfu og hefur veiki þessi ný-
lega borizt til Islands.
Að sögn landlæknis hefur far-
aldur þessi verið haégfara og
vægur, og hefur fólk ýfiríeitt
ekki verið veikt lengur én 2—4
daga. Mjög lítið hefur borið á
fylgikvillum.
Heilbrigðisstjórnin telur því
ekki rétt að mæla með víðtækum
ónæmisaðgerðum gegn veikinni,
en mælir þó með því, að lasburða
fólk, einkum aldrað fólk og
þroskalítil ungbörn, verði bólu-
sett. Örðugt hefur reynzt að út-
vega influenzubóluefnið hjá
framleiðendum erlendis og er þess
því ekki að vænta, að bóluefnið
verði fáanlegt hér fyrr en um
næstu mánaðamót, og er óvíst
hversu mikið magn verður þá á
boðstólum.
Reynt verður að gefa þeim íbú-
um Neshéraðs, sem uppfylla fyrr-
greind skilyrði heilbrigðisstjórn-
arinnar, kost á því að verða
bólusettir. Er þeim hér með bent
á að láta skrá sig í þessu skyni
í síma 150 mánudaginn 22. jan.
nk. kl. 9—10 f. h.
Sérstök athygli skal vakin á
því, að ekki verður hægt að sinna
pöntunum annarra en þeirra, sem
lasburða eru.
Bóluefnispantan'r verða bind-
andi fyrir hlutaðeigendur.
Rögnvaldur Þorleifsson,
yfirlækpir.