Austurland - 12.07.1968, Síða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 12. júlí 1968.
Hvaö er í fréttum?
Frá Reyðarfirði
Reyðarfirði, 10. júlí — HS/HG
Dræm atvinna
Hér er dauft yfir atvinnulífinu,
eins og víða annars staðar, og
áreiðanlega vá fyrir dyrum sums
staðar, ef ekki rætist úr. Á næst-
unni á að hefja framkvæmdir við
vatnsveituna nýju. Er ætlunin að
leggja nær kílómeters langa að-
alæð um kauptúnið. Töluverðar
framkvæmdir hafa verið við nýja
íþróttavöllinn, sem er staðsettur
utan við nýja barnaskólann.
Framh. af 1. síðu.
geir Sigurðsson; Lúðrasveit Nes-
kaupstaðar, stjórnandi Haraldur
Guðmundsson, og að lokum léku
allar lúðrasveitirnar saman nokk-
ur lög undir stjórn Geirharðs
Schmidt Valtýssonar, Jan Kisa,
Jóns Sigurðssonar og Karls O.
Runólfssonar.
Alls munu um 200 menn hafa
skipað þessa Lúðrasveit Islands
1968.
Um kvöldið voru allir lúðra-
sveitarmenn og fylgdarlið þeirra
í boði Lúðrasveitar Siglufjarðar
á músíkskemmtun, sem iúðra-
sveitin hélt í Nýja bíói.
Þessi skemmtun vakti mikla
hrifningu áheyrenda, enda gafst
þarna á að hlýða ágæt sýnishorn
af því, sem s'glfirzkt músíkáhuga-
fólk er að fást við, og auk þess
var sviðsbúnaður sérstæður og
skemmtilegur.
Auk Lúðrasveitar Siglufjarðar
komu þarna fram: Karlakórinn
Vísir undir stjórn Geirh. Schmidt
Valtýssonar, kvennakór undir
stjórn frú Silke Óskarsson, bland-
aður kvartett, sem frægur er orð-
inn fyrir ágætan söng með Vísi
og nú síðast af eigin plötu, sem
nýlega er komin á markaðinn, —
hljómsveitin Gautar, sem lands-
þekkt er orðin, frú Silke Óskars-
son, söngkona, sem naut undir-
leiks hljómsveitar og Jóns Heim-
is Sigurbjörnssonar, flautuleik-
ara, og söngtríó — þrjár ungar
og efnilegar, siglfirzkar stúlkur,
Anna Margrét Skarphéðinsdótt-
ir, Elín Gestsdóttir og Guðný
Helga Bjarnadóttir.
í trompetþríleikslagi með lúðra-
sveitinni léku á trompetana þeir
Geirh. Schmidt Valtýsson, Hlynur
Óskarsson og Sigurður Hlöðvers-
son.
Þá höfðu þeir Júlíus Júlíusson,
Jónas Tryggvason og Baldvin
Júlíusson miklum hlutverkum að
gegna í þessari skemmtun og
leystu þau af hendi með sóma og
prýði, , . , , t.
Verður hann gerður nothæfur nú
í sumar, og bætir það mikið alla
aðstöðu unglinga hér til íþrótta-
æfinga.
Sú nýlunda var upp tekin í vor
á vegum hreppsins að efna til
unglingavinnu, og hefur hún ver-
ið mikið stunduð af unglingum
12—16 ára. Hafa þeir unnið að
hreinsun gatna, lagfæringu veg-
kanta, við íþróttavöllinn o. fl.
Verkstjóri er Kristinn Einarsson
kennari.
Álögur
Nýlega hefur verið lögð fram
skrá um útsvör einstaklinga og
Hugmyndir að efni og sviðs- ,
mynd áttu þeir Hafliði Guðmunds-
son og Geirharður Valtýsson, og
sá Hafliði einnig um málningu
sviðstjaldsins.
Skemmtun þessi heppnaðist
mjög vel og réði þar mestu um
ágæt samstarfsgleði alls hins
mikla fjölda, sem að skemmtiat-
riðum stóð og biður Lúðrasveit
Siglufjarðar Austurland fyrir
kærar þakkir til þeirra allra.
Aðalfundur Sambands ísl. lúðra
sveita var haldinn á sunnuaag. I
sambandsstjórn voru kosnir: for-
maður Reynir Guðnason, Reykja-
vík, ritari Jónas Magnússon Sel-
fossi og gjaldkeri Ragnar Eð-
valdsson, Reykjavík.
Bæjarstjórn Siglufjarðar bauð
þátttakendum til kaffidrykkju að
Hótel Höfn eftir hádegi. Þar á-
varpaði Stefán Friðbjarnarson
bæjarstjóri gestina og síðan
fluttu margir ávörp og hamingju-
óskir til Siglufjarðarbæjar og
þakkir, og einnig var Lúðrasveit
Siglufjarðar þökkuð skipulagning
mótsins og henni færðar skilnað-
argjafir.
Að síðustu mælti Stigur Her-
lufsen nokkur ávarpsorð og sagði
6. landsmóti Sambands íslenzkra
lúðrasveita slitið.
Veðrið var svo gott sem helzt
varð á kosið föstudag og laugar-
dag, og réði það mestu um hversu
yfirbragð mótsins allt varð á-
nægjulegt, en á sunnudag var
veðri brugðið til austanáttar,
kominn allhvass vindur og fór að
rigna upp úr hádeginu.
Almannarómur er að þetta hafi
verið mjög skemmtilegt og vel
heppnað mót, lúðrasveitirnar
fluttu mörg og fjölbreytt verk-
efni af vandvirkni og góðum leik.
Formaður Lúðrasveitar Siglu-
fjarðar er Hlynur Óskarsson, tón-
listarkennari og í mótsstjórn auk
hans voru Einar M. Albertsson og
Kristján Sigtryggsson, en fram-
kvæmdastjóri mótsstjórnar var
Baldvin Júliusson, rafvirki.
fyrirtækja á staðnum. Álögð út-
svör nema um þremur milljónum
og 600 þúsundum, álögð aðstöðu-
gjöld um það bil 1 milljón og 300
þús., álagður fasteignaskattur
nemur 47 þús. kr. Veittur var
10% afsláttur frá lögboðnum út-
svarsstiga, en afsláttur í fyrra
mun hafa verið 25%. 1 niðurjöfn-
unarnefnd voru Asgeir Methú-
salemsson, Egill Jónsson og sveit-
arstjórinn Sigurjón Ólason.
Nýbyggingar húsa eru vart
teljandi, og segir þar til sín hin
almenna atvinnu- og lánsfjár-
kreppa, sem yfir dynur.
Sjávarútvegur
Um veiðiskap er ekki margt að
segja. Eini minni báturinn, Lax-
inn, sem er 9,5 lestir, í eign
Hreins Péturssonar og fleiri, hóf
línuveiðar héðan fyrir skömmu,
en afli var sáralélegur. Báturinn
fór síðan á handfæraveiðar við
Langanes og er væntanlegur aft-
ur í dag. Fjórir menn eru á bátn-
um. — 'ímsir róa hér í fjörðinn,
og virðist afli vera að glæðast. —
Um hina stærri báta er þetta að
segja: Snæfuglinn er sem flestir
vita í síldarleit, en Gunnar er nú
lo.ks væntanlegur úr mikilli við-
gerð eftir áfallið í vetur. Hefur
Gunnarsútgerðin orðið fyrir mikl-
um skakkaföllum af völdum
þessa. Báturinn missti af allri
vetrarvertíð, og það sagði til sín
í ólíkt minni atvinnu hér heima,
og veitti þó ekki af henni. Bát-
urinn mun fara til síldveiða.
Stórhýsi
Söltunarstöð GSR hf. og Snæ-
Steinn Stefánsson, skólastjóri á
Seyðisfirði varð sextugur í gær.
Hann er Skaftfellingur að ætt,
fæddur og upp alinn í Suðursveit,
en mestan hluta ævistarfs síns
hefur hann unnið á Seyðisfirði.
Hér verða ekki rakin æviatriði
Steins eða greint frá störfum
hans í einstökum atriðum. Þeir,
sem óska nánari kynna af mann-
inum, eiga greiðan aðgang að
upplýsingum um þau atriði.
Steinn er maður félagslyndur.
Jafnhliða starfi sínu hefur hann
lagt fram dýrmætan skerf til fé-
lagsmálastarfsemi í sinni byggð.
Söngelskur er hann og hefur afl-
að sér talsverðrar menntunar á
því sviði. Lengi hefur hann verið
driffjöðrin í söngmálum á Seyð-
isfirði.
Af stjórnmálum hefur Steinn
haft mikil afskipti. ilann skipaði
sér snemma í raðir liinna róttæku
í þjóðfélagsmálum og hefur verið
forustumaður sósíalista á Seyðis-
firðí, átt sæti í bæjarstjórn og
fugl hf. eru nú að reisa mikið
stálgrindarhús á Bakkagerðiseyr-
inni. Stærð þess er um 840 fer-
metrar. Hugsa þessir aðilar sér
þarna sína aðal miðstöð fyrir
hvers kyns vinnslu sjávarafla. Er
fyrirtækjunum að húsi þessu hið
mesta hagræði. Kaupfélag Hér-
aðsbúa, er nú teygir arma sína æ
víðar, hyggst í sumar reka sölt-
unarstöð á Bakkagerðiseyri, og
mun Reynir Gunnarsson veita
henni forstöðu. Aðrar söltunar-
stöðvar munu verða þær sömu og
í fyrra. Enn er allt í fullkomnu
dái hjá Síldarverksmiðju ríkisins.
Hér starfar nú dagheimili eins
og undanfarin sumur, og er til
húsa í barnaskólanum. Forstöðu-
kona er Þuríður Guðlaugsdóttir
fóstra. Þar munu vera að stað-
aldri 25 börn.
Þjóðleg íþrótt
Flokkaglíma uÆgmennafélagsins
Vals fór fram sl. sunnudag. Hef-
ur Aðalsteinn Eiríksson bifvéla-
virki, eins og undanfarna vetur,
æft drengi sem fullorðna af kappi
og ósérhlífni. Einar Friðbergsson
bar í þetta sinn sigur úr býtum
í flokki fullorðinna, Sigurður Að-
alsteinsson í 1. flokki sveina, Guð-
laugur Erlingsson í 2. flokki
sveina og Jóhann Hlöðversson í
3. flokki. Áður hafði farið fram
glímukeppni drengja 8—11 ára.
Aðalsteinn mun fara með glímu-
flokk í Eiða á landsmótið, og sýn-
ir hópurinn þar islenzka glimu.
Að lokum má geta þess, að al-
menn ánægja ríkir hér yfir kjöri
Kristjáns Eldjárns til forseta,
enda þykjast Reyðfirðingar hafa
lagt sinn skerf honum til glæsi-
legs brautargengis.
sem slikur gegnt fjölmörgum
trúnaðarstörfum.
Steini er létt um mál og hann
er ágætlega ritfær, en hefur látið
Steinn Stefánsson.
minna að sér kveða á ritvellinum
en skyldi. Þó hefur hann ritað
Framh. á 3. síðu.
Um 200 manns . . .
Sextugur í gœr