Austurland - 16.08.1968, Qupperneq 1
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI
18. árgangur.
Neskaupstað, 16. ágúst 1968.
33. tölublað.
Irfiðleikar fiskfraileiðenda
Fyrirtæki, sem gegna því hlut-
verki, að vinna markaðshæfa vöru
úr fiskafla landsmanna, eiga nú
í miklum erfiðleikum og að sjálf-
sögðu bitna þessir erfiðleikar
harkalega á þeim, sem afla fisks-
ins, sjómönnum og útgerðarmönn-
um.
Það er einkum tvennt, sem
veldur þessum erfiðleikum, í
fyrsta lagi verðfall á framleiðsl-
unni á erlendum mörkuðum og í
öðru lagi söiuörðugleikar, eða of-
framleiðsla, e:ns og venjan er að
kalla það.
Við íslendingar getum að sjálf-
sögðu lítil áhrif haft á markaðs-
verð erlendis, nema þá með þeim
hætti, að vinna nýja markaði þar
sem hærra verð er í boði. En
hvað markaðsöfiun varðar, er á-
reiðanlega s’.ælega á málunum
haldið. Engin ástæða er til að
ætla, að ekki sé hægt að selja
allan þann fisk, sem við getum
aflað, ef vel er að unnið. En til-
burða í þá átt verður lítt vart.
Sumir vilja skella skuldinni af
sofandahætti í markaðsmáiunum
á sölusamtökin. Og vafalaust
hefðu þau getað gert betur. En
höfuðsökin er hjá ríkisvaldinu.
Ríkisstjórnin gerir alla milliríkja-
samninga um verzlun og það er
fyrst og fremst hennar að tryggja
landsmönnum markað fyrir fram-
leiðs'.una. En fast virðist sofið á
þe:m bæ og er tími til kominn, að
fólk þar fari að bregða blundi.
Að nokkru leyti stafa vand-
ræðin af fordómum ríkisstjórnar-
innar og heimskulegri stefnu í
viðskiptamálum. Hún hefur sett
sér það mark, að selja aðeins
gegn greiðslu í pundum og doll-
urum, en vöruskiptaverzlun hefur
hún fordæmt og með því spillt
ýmsum okkar beztu mörkuðum.
Sölusamtökin hafa yfirleitt verið
andvig afnámi vöruskiptaverzlun-
ar. Þau hafa hvað eftir annað
mótmælt þeirri stefnu. Afnám
vöruskiptaverzlunarinnar, sem á
sinn þátt í vandræð inum, er því
á ábyrgð ríkisstjórnarinnar einn-
ar.
Svo er að sjá, að ríf'sstjórnin,
eða a. m. k. viðskiptamáíaráðheri'-
ann, sé nú að átta sig á. að þessi
Etefna endar í blindgötu.
Söluerfiðleikarnir hafa orðið Lil
þess, að birgðir hafa hlaðizt upp
í frystihúsunum. Hafa sum þeirra
fyllzt af fiski og orðið að hætta
fiskmóttöku.
Fyrir nokkru er lokið víð að
framleiða upp í alla sölusamninga
og með öllu óvíst um frekari sölu.
Hraðfrystihúsin halda þó áfram
að taka á móti á meðan bank-
arnir lána. En Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hefur gert þá kröfu
til ríkisstjórnarinnar, að veitt
verði verð- og sölutrygging á öll-
um frystum bolfiskafurðum eftir
31. júlí. Þá hefur SH krafizt leið-
réttingar á starfsgrundvelli frysti-
húsanna og endurskoðun á láns-
fjármálum þeirra.
Viðræður SH við ríkisstjórnina
hafa enn ekki borið árangur. Fé-
lag Sambandsfiskframleiðenda
Enn hefur mikil þurrkatíð vald-
ið alvarlegum neyzluvatnsskorti í
Neskaupstað. Hver einasta lækj-
arspræna í fjallinu er löngu þorn-
uð, líka þær, sem menn muna
varla eða ekki til, að áður hafi
þornað. Og jarðvegurinn er skræl-
þurr og hefur litlu vatni að miðla.
Þó hefur miklu minna borið á
vatnsleysi i húsum en oft áður,
þegar meira vatn hefur verið að
hafa, og kvartanir yfir vatnsleysi
hafa mjög litlar verið, enda skil-
ur fólk hvernig ástatt er. En ef
eitthvað hefði verið um að vera í
atvinnulífinu væri fullkomið vand-
ræðaástand og atvinnufyrirtæki
eins og síldarbræðslan hefðu
stöðvazt, ef ekkert hefði verið að
gert. Undir þeim kringumstæðum
er þó líklegt, að ráðin hefði verið
bót á vatnsskortinum, því auð-
velt er að gera það á örfáum dög-
um. Þá hefði dælustöð nýju vatns-
veitunnar verið sett; í gang, en
hún má heita tilbúin. Hefði þá
sildarverksmiðjan fengið vatn og
auk þess hefði vatni verió dælt á
allt bæjarkérfið, því bráðabirgða-
hefur iíka fjallað um þessi vanda-
mál fiskiðnaðarins. 1 ályktun fé-
lagsins segir m. a.:
„Þrátt fyrir óvenjulega hag-
stæða þróun markaðsverð erlend-
is á árunum 1962—:66 reyndist
fiskiðnaði Islendinga ekki mögu-
legt vegna dýrtíðar og síhækk-
andi tilkostnaðar, að byggja sig
upp fjárhagslega, þannig að hann
yrði þess megnugur að mæta þeim
miklu erfiðleikum, sem skapazt
hafa af verðfalh 2ja síðustu ára
. . . Á þessum árum fylgdi verð-
lag innanlands fast á eftir hækk-
andi erlendum markaðsverðum og
bættum rekstri fiskvinnslustöðv-
anna, þannig að fyrirtækin höfðu
ekki möguleika á að bæta fjár-
Framh. á 2. síðu.
En máttarvöld ríkisfyrirtækir,-
ins, sem framleiðir og selu: ork-
una, neitaði þverlega að tengja
dælurnar, nema bærinn jafnfra.mt
greiddi rafmagnsskuldir sínar,
sem einkum stafa af kostnaði við
götulýsingu. Bærinn hefur oft
skuidað rafveitunum tiltöiulega
mikið fé, en nú nokkra tugi
þús. kr. þegar allt kemur til alls,
og á þó bærinn óuppgerðar sakir
við fyrirtækið vegna skemmda á
götum og gangstéttum. Hafa raf-
veiturnar nú hafizt handa um að
jafna þessa reikninga og skal
þeim ekki láð það. Hafa þær
myrkvað bæinn með því að taka
straum af götuljósakerfinu og
gera sig nú líklegar til að taka
straum af öllum veitum, sem eru
á vegum bæjarins. Þá hefur
höfnin verið myrkvuð.
Þótt maður viðurkenni rétt raf-
veitnanna til að innheimta raf-
magnsgjöld með þeim hætti, sem
hér heíur verið lýst, og þótt mað-
Framh. á 2. síðu.
Vatmsktrtur í Heskaupstaö
Dœlustöðii tilbúin, en neitoð aó tengja,
neiut skuldir séu greiddar
tenging hafði verið undirbúm.
Þrottnr 4J m
Iþróttafélagið Þróttur í Nes-
kaupstað var stofnað árið 1923,
að því er talið er. Fyrsta fundar-
gerðarbók félagsins er löngu
glötuð og hefur ekki verið ljóst
hvaða dag félagið var stofnað.
En nú hafa forráðamenn félags-
ins grafið upp, að stofndagurinn
muni hafa verið 9. ágúst, en ekki
mun það alveg víst. En hvað sem
því líður, mun 9. ágúst talinn
afmælisdagur félagsins, nema
annað sannist.
Framan af mun félagið hafa
starfað af talsverðum þrótti.
Kom það sér upp íþróttavelli á
Bakkabökkum og mun einkum
hafa verið lögð stund á knatt-
spyrnu.
En þegar frá leið dofnaði yfir
félaginu og lagðist það loks nið-
ur. Var það síðan endurstofnað
um 10 árum eftir að það var
fyrst stofnsett. Síðan hefur fé-
lagið verið við lýði, en mikill
bylgjugangur í starfseminni, eins
og verða vill. Stundum starfaði
það vel, en þess á m:lli lá það
í dvala.
Að undanförnu hefur verið
mikið líf í félaginu, og líklega
hefur það aldrei starfað jafn vel
og um þessar mundir.
Þróttur á miklu hlutverki að
gegna í þágu æskulýðs þessa bæj-
ar og bæjarbúar verða að leggj-
ast á eitt til að hjálpa honum til
þess að rækja það hlutverk.
Fyrsti formaður Þróttar var
Jónas Guðmundsson, sem þá var
kennari hér í bæ. Núverandi for-
maður félagsins er Sigurður G.
Björnsson.
Sólríkt sumar
Um það bil viku af júlí brá
t’l betri tíðar á Austurlandi, en
fram að þeim tíma hafði verið
kuldatíð. Síðan veður breyttist,
hefur verið að heita má stöðugt
sólskin og stillur miklar þar til í
gær, að vindátt sneri til norðurs
og norðausturs með lítilsháttar
rigningu. I nótt rigndi talsvert,
en gránaði í fjöll. I morgun var
logn á Norðfirði, loft þungbúið og
lítilsháttar rigning. Er langt síðan
Austfirðingar hafa fengið jafn
sólríkt sumar.
Þessi góða tíð hefur gjörbreytt
lieyskaparhorfum. Sláttur hófst
óvenjulega seint vegna þess hve
seint spratt, en heyskapartíð hef-
ur verið hin ákjósanlegasta og
má heita, að hirt hafi verið af
Ijánum, e:ns og það er kallað.
Heyfengur verður þó sennilega i
minna lagi, en heyin verkast mjög
vel og fóðurgildi þeirra eins mik-
ið og á verður kosið.
Lítil síldveiði
Enn heldur síldin sig í órafjar-
lægð frá íslandsströndum. Og þar
i Fratuh. á 2. síðu.