Austurland - 11.10.1968, Qupperneq 1
MALGAGN alþyðubandalagsins a austurlandi
18. árgangur.
Neskaupstað, 11. októ'ber 1968.
41. tölublað.
Atvinnuiudladlyktui aðalfundar $51
Á aðalfundi Sambands sveitar-
félaga í Austuriandskjördæmi 7.
og 8. september, var einróma
samþykkt ályktun sú, sem hér
fer á eftir, um atvinnumál kjör-
dæmisins:
Iðnaðarmál
Fundurinn leggur áherzlu á, að
komið verði upp á Austurlandi
iðnaðarfyrirtækjum og ýmiskonar
þjónustustofnunum. Einkum sé
þeim iðnaðarfyrirtækjum, sem nú
eru til, hjálpað til að fá nægileg
stofn- og rekstrarlán svo að þau
geti starfað á eðlilegan hátt.
Telur fundurinn, að ríkisvaldinu
beri að veita sérstaka aðstoð til
iðnaðaruppbyggingar í fjórðungn-
um m. a. til að koma á fót neta-
hnýtingarverksmiðju, fóðurblönd-
unarstöð, stálskipasmíðastöðvum,
niðursuðu- og rækjuverksmiðju og
margskonar vinnslu úr landbún-
aðar- og sjávarafurðum.
Sjávarútvegsmál
Fundurinn telur, að það hafi
sýnt sig, að atvinnulífið á Aust-
fjörðum verði að byggjast að
miklu leyti á bátaútgerð og frysti-
húsum þannig, að smábátaútgerð
verði á sumrum, en vetrarútgerð
á stærri fiskiskipum. Leggur
fundurinn ríka áherzlu á að öll-
um frystihúsum og öðrum fisk-
vinnslustöðvum í fjórðungnum
verði gert kleift að starfa á eðli-
legan hátt með auknum lánum og
frestun á afborgunum eldri lána
og þannig, að þau beri sig fjár-
hagslega. Þá verði smábátum
fjölgað og aðstaða þeirra í landi
bætt.
Landbúna ðarmál
Undanfarin 2—3 ár hefur meg-
inhluti bænda 1 Austurlandskjör-
dæmi orðið fyrir miklum búsifj-
um vegna harðræðis af völdum
kals í túnum, hafíss og ómildrar
veðráttu. Ef ekki verður nú þeg-
ar gripið til róttækra aðgerða til
hjálpar bændum, er ekki annað
sýnt, en stórvanrjræði hljótist af.
Fundurinn telur alveg óhjákvæmi-
legt, að frestað verði greiðslu á
afborgunum Jána næstu 2—3 ár-
in, lausaskuldum bænda breytt í
föst lán og aukið við afurðalán
til samræmis við núverandi verð-
lag í landinu.
—o—
Fundurinn felur stjórn sam-
bandsins að hefja nú þegar öflun
gagna um ástand og horfur í at-
vinnumálum hinna einstöku
byggðarlaga í fjórðungnum. Verði
þessu starfi hraðað svo, að hægt
verði að hefjast handa um úr-
bætur á hausti komanda.
Fundurinn væntir þess, að þing-
menn kjöræmisins vinni af alefli
með stjórn sambandsins og sveit-
arstjórnum að framangreindum
málum. Einnig telur fundurinn
nauðsynlegt að þau stóru fiski-
skip, sem eru í eigu Austfirðinga
verði gerð út yfir veturinn frá
heimahöfn og fiskurinn verkaður
þar. Til þess að unnt sé að fá
Mjög alvarlegt ástand er nú í
læknamálum Austurlands og fer
æ versnandi. Læknaskorturinn
verður m. a. til þess, að allt of
mikil störf hlaðast á þá lækna,
sem enn haldast hér við, en það
eykur á hættuna á því, að einnig
þeir hverfi á braut, gefist hrein-
lega upp, því takmörk eru fyrir
því, hvað hægt er að hlaða mikl-
um störfum á einn mann.
í Neskaupstað er ástandið
þannig, að enginn héraðslæknir
hefur verið þar starfandi árum
saman. En íbúar læknishéraðsins
hafa notið þess, að í bænum er
sjúkrahús þar sem tveir læknar
hafa starfað. En fyrir nokkrum
Prestshosnina ó Seyðisf.
Nýlega fór fram prestskosning
á Seyðisfirði, en séra Heimir
Steinsson sagði brauðinu lausu og
hélt utan til frekara náms.
Umsækjandi var aðeins einn,
séra Rögnvaldur Finnbogason á
Hofi í Vopnafirði.
Á kjörskrá voru 486, atkvæði
greiddu 294 og hlaut umsækjandi
285, en 9 seðlar voru auðir. Var
því séra Rögnvaldur löglega kjör-
inn prestur Seyðfirðinga.
útgerðir, sem eiga stóru bátana
á hverjum stað til að leggja upp
vetrarvertíðaraflann í frystihúsin
á Austfjörðum, telur fundurinn
að gera eigi kröfu til þess, að At-
vinnujöfnunarsjóður styrki vetr-
arútgerð á Austfjörðum á sama
hátt og gert hefur verið á Norð-
urlandi.
Fundurinn telur að leggja beri
áherzlu á, að síldarverksmiðjum
og söltunarstöðvum verði gert
mögulegt að taka á móti síld
þegar hún kemur, m. a. með því
að fá lán til að byggja yfir sölt-
unarstöðvar, bæði til söltunar og
geymslu á haustsíld. Einnig verði
síldariðnaðarfyrirtækjum gert
mögulegt að fá næg reksturs- og
stofnlán.
mánuðum sagði yfirlæknirinn
starfi sínu lausu og réðist að
Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík.
Lét hann af störfum í Neskaup-
stað um sl. mánaðamót. Þrátt
fyrir miklar tilraunir til þess að
ráða lækni í stað hans, tókst það
ekki. Og nú er aðeins einn læknlr
í Neskaupstað, starfsmaður
sjúkrahússins. Auk þess að gegna
störfum á sjúkrahúsinu, en þau
fara nú vaxandi þegar komur
síldveiðiskipa verða tíðari, verð-
ur hann að annast læknisstörf
fyrir 1700—-1800 manna hérað.
Austurland vonast til að geta
mjög fljótlega gert grein fyrir
því, hvernig nú er ástatt í kjör-
dæminu hvað læknisþjónustu
snertir.
Alþingi sett
Alþingi var sett í gær. Að þing-
setningarathöfn lokinni var þing-
störfum frestað til mánudags.
I upphafi þings eru lögð fram
15 stjómarfrumvörp, þar á með-
al frumvarp til fjárlaga, 5 frum-
vörp til staðfestingar bráðabirgða-
lögum, svo og ný frumvörp og
endurflutt frumvörp, sem ekki
náðu því að verða útrædd á síð-
asta þingi. 1 f [
Læknaskoriur
Fdáesa erfiít tíMrfir
Veðrátta hefur verið mjög
stirð bæði til lands og sjávar.
Síldveiði hefur verið svo gott
sem engin vegna storma, en þeg-
ar lægt hefur, hefur engin síld
fundizt. Er svo að sjá sem hún
hafi dreifzt. En vongóðir eru
menn enn um veiði, ef tíðarfar
verður með skaplegum hætti.
Víða um land setti niður tals-
verðan snjó í stormi og frosti.
Tepptust þá fjallvegir á Norður-,
Vestur- og Austurlandi um skeið,
fé fennti, talsverðir fjárskaðar
urðu sums staðar, og kartöflur
lentu undir snjó. — Miklir erfið-
leikar urðu á að flytja sláturfé í
sláturhúsin vegna ófærðar og taf-
ir urðu á slátrun. Kýr voru tekn-
ar á gjöf eftir aðeins þriggja
mánaða beit, og bera varð hey
fyrir sláturfé, og minnast menn
hér um slóðir þess ekki, að þess
hafi áður þurft.
Það er fyrst nú tvo til þrjá síð-
ustu dagana, að snjó hefur tekið
upp á láglendi. Hér í Norðfirði
er snjór nú að mestu horfinn af
láglendi, þótt enn sé snjór í gilj-
um og víðar. Til fjalla hefur snjó
líka tekið upp.
Vetrardstlan f. I.
Hinn 1. okt. sl. gekk vetrará-
ætlun Flugfélags íslands á flug-
leiðum innanlands í gildi. Eins
og í áætlun síðastliðins sumars
verða allar ferðir frá Reykjavík
flognar með Friendship skrúfu-
þotum. Allar ferðir frá Reykja-
vík eru til eins staðar úti á landi
án viðkomu nema flug til Horna-
fjarðar og Fagurhólsmýrar á
miðvikudögum, sem er sameinað.
Önnur DC-3 flugvél Flugfélags-
ins mun áfram verða staðsett á
Akureyri og annast flug til staða
á Norð-Austurlandi í framhaldi
af flugi frá Reykjavík. Ennfrem-
ur verður flugvélin í ferðum milli
Akureyrar og Egilsstaða.
Til Egilsstaða verða ferðir alla
virka daga.
Til Fagurhólsmýrar á miðviku-
dögum og til Hornafjarðar á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum.
Úr bœnum
Afmæli.
Arnfinnur Antoníusson, Mýrar-
götu 11 varð 85 ára 6. október.
Hann fæddist á Arnhólsstöðum í
Skriðdal, en hefur verið búsettur
hér í bæ samfellt frá 1945, en
áður hafði hann átt hér heima
allmörg ár.
Steinunn Símonardóttir Zoega,
ekkja, Þiljuvöllum 14, varð 85
ára 7. október. Hún fæddist í
Bakkakoti, Skorradal, Borgar-
fjarðarsýslu, en hefur verið bú-
sett hér síðan 1910.
Ingibjörg (Juttormsson, hús-
móðir, Strandgötu 32, varð 65
ára 8. október. Hún fæddist í
Klakksvík. Færsyjuno, en hefur
átt hér htúma siðaii 1925.