Austurland - 25.10.1968, Page 1
ÆJSTURLAND
MALSflBW ALÞÝÐUBAMDALAGSINS k AUSTUBLANDI
18. árgangur. Neskaupstað, 25. október 1968. 43. tölublað.
Nýr stjórnmálaflokkur í mótun:
Alþýðubandalagið undirbýr landsfund
Þann 1. nóvember næstkomandi
hefst í Reykjavík landsfundur Al-
þýðubandalagsins, en fyrir honum
munu liggja tillögur um, að Al-
þýðubandalaginu verði breytt úr
kosningasamtökum í stjórnmála-
flokk og því sett ný lög og
stefnuskrá. Hér verður ekki um
nein þýðingarlítil formsatriði að
ræða, eins og einhverjir kynnu að
halda, heldur mun fylgja gjör-
breyting á starfsháttum Alþýðu-
bandalagsins, sem tryggi í senn
fullt lýðræði innan þess og virkni
og samhæfingu kraftanna í
flokkslegu starfi út á við, en á
hvort tveggja hefur mjög skort í
Alþýðubandalaginu á undanförn-
um árum.
endurmats sósíalískra viðhorfa,
sem hátt hefur borið hjá róttæk-
um flokkum í Vestur-Evrópu síð-
ustu ár. Sósíalísk úrræði mega
aldrei fela í sér skerðingu á al-
mennum lýðréttindum, heldur
þvert á móti festa þau réttindi í
sessi og tryggja efnalegan
grundvöll þeirra. I samræmi við
það á það að vera sjálfsögð
grundvallarregla hjá Alþýðu-
bandalaginu, að hafna öllum sam-
skiptum við erlenda stjórnmála-
flokka, sem hafa í verki að engu
sósíalískar lýðræðishugmyndir,
hverju nafni sem þeir annars
nefnast.
I dægurbaráttu sinni hlýtur
Alþýðubandalagið að styðja allt
það, sem til framfara horfir fyrir
vinnandi fólk í landinu, og skipt-
ir þar miklu þróttmikil þátttaka
félaga þess í öllum hagsmunasam-
tökum almennings, svo sem stétt-
arfélögum launþega og samvinnu-
félögum. — Sjálfstæðismál Is-
lands, stjórnarfarsleg, efnahags-
leg og menningarleg, verða áfram
veigamikill þáttur í baráttu Al-
þýðubandalagsins, svo að nokkuð
sé nefnt.
Ungt fólk hefur að undanförnu
kvatt sér hljóðs í vaxandi mæli
Framh. á 3. síðu.
Gjöf til
Sjúkrahússins
Fyrir nokkrum vikum barst
Sjúkrahúsinu í Neskaupstað dýr-
mæt gjöf frá Kvenfélaginu
Nönnu. Hér er um að ræða lækn-
inga- og hjúkrunartæki sem kall-
ast respirator og er nokkurs kon-
ar lungna- eða öndunartæki. Er
það notað við öndunarlamanir
sem fyrir geta komið við slys eða
sjúkdóma. Tæki af þessari gerð
eru tiltölulega ný uppfinning,
og þykja taka langt fram eldri
tækjum sem notuð hafa verið í
sama tilgangi.
Það er sannarlega mikils vert,
að Sjúkrahús okkar skuli með ári
hverju eflast af góðum útbúnaði,
því það eykur að sjálfsögðu gildi
þess, sem þeirrar lækninga- og
heilbrigðismiðstöðvar, sem það er
og hefur verið fyrir Austurland.
Við, stjórnendur Sjúkrahússins,
þökkum Kvenfélaginu Nönnu
þann stóra þátt, sem það hefur
átt í því að bæta útbúnað Sjúkra-
hússins, en það hefur nú á fjórum
sl. árum gefið Sjúkrahúsinu út-
búnað og lækningatæki fyrir á
þriðja hundrað þúsund krónur.
Stjórn Fjórðungssjúkra-
hússins Neskaupstað,
Þessi umsköpun Alþýðubanda-
lagsins er löngu tímabær. Alltof
lengi hefur starf þess einkennzt
af heldur ófrjórri og málefna-
snauðri þrætu milli einstakra for-
ystumanna, sem lítið tillit hafa
tekið til hagsmuna og vilja ó-
breyttra fylgjenda bandalagsins.
Það lýðræði, sem nú þarf að
tryggja í Alþýðubandalaginu, á
að gilda jafnt um störf þess og
stefnumótun og kjör manna í
trúnaðarstöður. Hinn nýi flokkur
Alþýðubandalagsmanna þarf að
tryggja ótvíræðan og eðlilegan
rétt allra félaga á flokksstarfið
og veita minnihlutasjónarmiðum
rétt til áhrifa innan flokksins.
Þannig er þess að vænta, að nýj-
ar hugmyndir eigi greiða leið til
áhrifa á flokksstarfið og for-
ystumönnum verði tryggt það að-
hald, sem nauðsynlegt er, og
mjög hefur verið fyrir borð borið
í stjórnmálaflokkum hérlendis.
Á þessu stigi verður ekki fjöl-
yrt um stefnu Alþýðubandalags-
ins til einstakra mála, enda verð-
ur það landsfundarins að móta
hana. En nokkur meginatriði virð-
ist ljóst, að þar verði lögð til
grundvallar. Sem flokkur vinstri-
manna í landinu hlýtur Alþýðu-
bandalagið að byggja þjóðmála-
stefnu sína á félagslegum úrræð-
um og skipulagshyggju, en það
þýðir að flokkurinn aðhyllist
sósíalíska stefnu. Slík sósíalísk
stefnumótun'Verður þó að vera
víðsýn, taka fullt tillit til sér-
stöðu íslenzks þjóðfélags og þess
Sumarið kveður — vetur heilsar
Árstíðirnar á Islandi fylgja
sjaldnast almanakinu, en sam-
kvæmt því kveður sumarið í dag
og vetur heilsar með gormánuði á
morgun. Liðið sumar mun vafa-
lítið vera í tölu þeirra köldustu á
þessari öld. Hér austanlands kom
það fádæma seint og kvaddi
snemma. Um mánaðarskeið, eða
frá miðjum júlí fram um miðjan
ágúst skartaði þó veður og nátt-
úra sínu fegursta, og því mun
þetta sumar lifa bjart í minning-
unni sem flest hin fyrri.
í miðjum þessum góðviðriskafla,
þann 2. ágúst, er myndin sem hér
birtist, tekin. Þar má líta fríðan
hóp í sólskinsskapi: Unga Norð-
firðinga af Dagheimilinu í Nes-
kaupstað í fylgd með fóstrum
sínum inni í Fannardal. Forstöðu-
kona Dagheimilisins, María
Bjarnadóttir, sést í öftustu röð
til vinstri. — Ljósm. H. G,