Austurland - 22.11.1968, Side 1
ÆJSTURLAND
MÁLBAGN ALÞÝBUBANPflLAGSINS A AUSTUBLflWDI
18. árgangur. Neskaupstað, 22. nóvember 1968. 47. tölublað.
NflBösyn JteínBbreytinjdr og breyttror /orystu í AlþýðusdmbflndinB
Alþýðusambandsþing, hið 31. í
röðinni, hefst í Reykjavík mánu-
daginn 25. nóv. og verður áreið-
anlega fylgzt með störfum þess
af meiri athygli en gert er að
jafnaði.
Það kemur í hlut þessa þings, að
marka afstöðu verklýðssamtak-
anna til þeirra fruntalegu árása,
sem gerðar hafa verið æ ofan
í æ á lífskjör launþega, og nú
síðast með gengislækkuninni og
hinum svokölluðu „hliðarráðstöf-
unum.“ Sú árás er hin stærsta,
sem gerð hefur verið á launþega,
og er þá langt jafnað.
Alþýðusambandið bregzt for-
ustuhlutverki sínu í kjara- og
réttindabaráttu verkalýðsins, ef
það ekki tekur mannalega á móti
þessu áhlaupi og hrindir því.
Furðuleg ummæli.
Ummæli, sem forseti Alþýðu-
sambandsins, Hannibal Valdi-
marsson, viðhafði á Alþingi við
umræður . um ráðstafanir vegna
gengislækkunarinnar, hafa vakið
mikla furðu launþega, en að sama
skapi hefur velþóknun stjórnar-
flokkanna verið mikil. Hann sagði:
„É,g mun verða spurður að því
sem forseti Alþýðusambandsins:
Ja, er nokkuð hægt að gera ann-
að en hækka kaupið til þess að
mæta þeirri stórfelldu kjaraskerð-
ingu, sem leiðir af þessari gengis-
lækkun? É,g fyrir mitt leyti verð
að játa það strax, að ég held að
við það ástand, sem nú hefur
skapazt, sé kauphækkun ekki fær
og ekki raunhæf leið, því miðnr.“
Er þetta stefna Alþýðusam-
bandsins ?
Ummæli þessi viðhefur Hanni-
bal sem forseti Alþýðusambands-
ins. Það verður því ekki komizt
hjá því að álykta, að miðstjórn
Alþýðusambandsins standi að
baki þessari skoðun og að Hanni-
bal sé hér að túlka viðhorf mið-
stjórnarinnar, nema hún lýsi yfir
því gagnstæða. Þjóðviljinn hefur
spurt miðstjórnina, hvort líta beri
á ummæli Hannibals sem stefnu
stjórnarinnar, en mér vitanlega
ekkert svar fengið. Á meðan mið-
stjórnin ekki tekur af skarið,
verður að telja, að hún sé andvíg
kauphækkunarbará,ttu til þess að
hamla á móti 20% kjaraskerð-
ingu. Og þá ber miðstjórninni
siðferðileg skylda til þess að gera
grein fyrir því með hverjum hætti
hún ætlar sér að rétta hlut urn-
bjóðenda sinna. Og þá greinar-
gerð þarf að birta fyrir þing ASl
eða í síðasta lagi í upphafi þings.
1 stað þess að svara fyrir-
spurnum Þjóðviljans, samþykkir
miðstjórnin einróma vítur á Þjóð-
viljann fyrir fullkomlega réttmæt
ummæli um verðlagsnefndina og
ofmat „Verkamannsins" á gildi
hennar og starfa Björns Jónsson-
ar á þeim vettvangi. Ummæli
„Verkamannsins“ voru á þá leið,
að kjarabaráttan væri nú kornin
á nýtt stig, hún færi nú fram í
verðlagsnefndinni.
Reynslan að undanförnu hefur
fært launþegum heim sanninn um
það, að þrátt fyrir gott starf
fulltrúa launþega í nefndinni getur
hún aldrei komið í staðinn fyrir
kjarabaráttuna.
Flugfélag Islands hefur nú
ákveðið að halda uppi áætlunar-
ferðum milli Norðfjarðar og
Reykjavíkur í vetur. Verður flog-
ið tvisvar í viku, á miðvikudögum
og laugardögum, og er fyrsta
ferðin áformuð á morgun. Til
ferðanna verða að jafnaði notað-
ar vélar af sömu gerð og Norð-
firðingur er, flugvél sú, er hélt
uppi ferðum á vegum Flugsýnar.
Höfum við Norðfirðingar reynslu
fyrir því, að það eru góðar og
traustar flugvélar.
Flogið verður milli Norðfjarð-
ar og Reykjavíkur beint, án
millilendingar.
Þegar Flugsýn hafði tilkynnt,
að félagið sæi sér ekki fært að
haida áfram áætlunarferðum til
Norðfjarðar, átti forseti bæjar-
stjórnar, Jóhannes Stefánsson, í
samráði við bæjarstjóra, tal við
framkvæmdastjóra FI um mögu-
leika á því, að það félag tæki upp
Það er grátbroslegt, að mið-
stjórn Alþýðusambandsins skuli
sjá ástæðu til þess að samþykkja
vítur á eina dagblaðið sem aldrei
hefur brugðizt málstað verkalýðs-
ins. Sýnir það, að andi Hannibals
svífur þarna yfir vötnum og að
hann ræður meiru í miðstjórninni,
en maður hefði haldið.
Þörf nýrrar forystu
Því er ekki að leyna, að um
langt skeið hefur verið ríkjandi
mikil óánægja með forystu mið-
stjórnar Alþýðusambndsins. Sér-
staklega var þessi óánægja áber-
andi í nóvember í fyrra, þegar
miðstjórnin allt í einu og án sam-
ráðs við einstök verklýðsfélög,
hvatti þau til að hverfa frá fyrir-
huguðum og vandlega undirbún-
um varnaraðgerðum og hafði það
að yfirvarpi, að ástæður hefðu
breytzt við það að kjaraskerð-
ingin varð miklu meiri en upphaf-
lega var ætlað.
Það er brýn nauðsyn að gera
Framhald á 3. síðu.
áætlunarferðir til Norðfjarðar.
Var þeirri málaleitun strax tekið
með skilningi og velvild og málið
síðan lagt fyrir stjórn félagsins.
I fyrradag var svo bæjarstjóra
tilkynnt að stjórnin hefði sam-
þykkt að taka upp áætlunarflug
til Norðfjarðar, og síðan hefur sú
ákvörðun verið staðfest bréflega.
Nú er liðinn um það bil mánuð-
ur síðan Flugsýn hætti við Norð-
fjarðarflugið. Þann tíma hafa
samgöngur verið óvenju erfiðar
og hafa menn fundið sárt til þess,
að flugferðum var hætt. — Því er
það öllum Norðfirðingum fagn-
aðarefni, að flugferðir skuli nú
hefjast að nýju.
Blaðið vill hvetja Norðfirðinga,
sem fljúga milli Rvíkur og Norð-
fjarðar til að haga ferðum sín-
um svo, að þeir ferðist með Norð-
fjarðarvélinni, svo í ljós komi
hver er hin raunverulega flutn-
ingsþörf.
FrflBihviEmdflstjórn
Alþýðiflmiidfllflðsjns
Á fundi miðstjórnar Alþýðu-
bandalagsins í fyrrakvöld voru
eftirtaldir menn einróma kjörnir
í framkvæmdastjórn flokksins:
Ragnar Arnalds, formaður
flokksins, Adda Bára Sigfúsdótt-
ir, varaformaður hans og Guðjón
Jónsson, ritari hans. Eru þau
sjálfkjörin í framkvæmdastjórn-
ina. Ennfremur: Gils Guðmunds-
son, Guðmundur J. Guðmundsson,
Haraldur Steinþórsson, Sigurður
Magnússon, Jón Snorri Þorleifsson
og Björn Ólafsson.
Varamenn voru kosnir: Sigur-
jón Björnsson, Kjartan Ölafsson
og Svavar Gestsson.
Þá kaus miðstjórnin fjölmenna
verkalýðs- og kjaramálanefnd.
Vantraustið
1 gærkvöld fóru fram útvarps-
umræður um vantrauststillögu
þá, er stjórnarandstaðan flutti á
rkisstjórnina. Attu ráðherrar og
aðrir talsmenn stjórnarinnar mjög
í vök að verjast. — Auðvitað var
vantraustið fellt af þingliði stjórn
arinnar, en þingmenn stjórnar-
andstöðunnar greiddu atkvæði
með því.
Björn Jónsson hafði fyrirvara
með atkvæði sínu, þar sem hann
kvartar undan því, að vegna
flokkslegs ofríkis hafi hann ekki
átt kost á að taka til máls við
umræðurnar. Björn vill sem sé
njóta forgangsréttar í Alþýðu-
bandalaginu, en ekki taka á sig
neinar skyldur innan þess, né
heldur gegna störfum fyrir það.
Þvert á móti gerir hann því til
bölvunar allt sem hann má.
Tveir varaþingmenn Alþýðu-
bandalagsins tóku undir fyrirvara
Björns.
Engin síld
Engin síldveiði hefur verið á
Austfjarðamiðum að undanförnu.
Óhnyttir unglingo
Allmikil brögð hafa að undan-
förnu verið að því, að unglingar
í bænum hafi framið óknytti og
jafnvel bein spjöll, að því er lög-
reglan hefur tjáð blaðinu.
Þá er talsvert um það, að regl-
ur um útivist barna séu brotnar
og ung börn að flækjast úti fram
eftir öllum kvöldum.
Verður ekki hjá því komizt að
taka hart á þessum brotum og
skal á það bent, að foreldrar bera
ábyrgð á því, að reglur um úti-
vist barna séu haldnar.
Grátsöngvarinn
Galdra-Loftur
Sjá 2. síðu.
Norð/jnrðflrflug FÍ hefst d lorgun