Austurland - 23.12.1968, Blaðsíða 17
JÓ LIN 1968
17
AUSTURLAND
vegu. Héðan neðan undan úi'
Kefsstaðarfjalli gefur að líta upp
í Lambadalsskarð þann 18. júlí
sl. Þetta var fyrrum stytzta, en
um leið ein torgengasta póstleið
úr Vopnafirði til Héraðs og prýði-
lega snjóasæl, svq sem sjá má á
myndinni.
niður í af Búri, fjallvegi á leið
til Fagradals. 1 Böðvarsdal eru og
Eyvindarstaðir, og hittum við þar
vaskan bónda, sem taldi sig brátt
verða í þjóðbraut milli Vopna-
fjarðar og Héraðs. Nokkuð vorum
við þó efins um það, hafandi
stefnt sem næst til himins upp
Hellisheiði.
5. Hof í Vopnafirði, — kirkju-
staður og ótvírætt óðal um aldir.
Trjágarðar vitna um gróðursæld
sveitarinnar, og handan Hofsár
og inni í Fossdal eru vanyrktir
skógar. E-aga Hofverja er löng og
mikd. Á 13. öld gerði garðinn
frægan Þorvarður sá Þórarinsson,
sem sumir vilja kenna Njálu.
Maigir mega una við minna. Á
liðnu sumri sat staðinn séra Rögn-
valdur Finnbogason, vinsæll
klerkur en nú burtfluttur til
Seyðisfjarðor.
7. Við, sem byggjum austan
Smjörvatnsheiðar, teljum okkur
með nokkrum hætti óhulta fyrir
eldgosum og ámóta hvekkingum
satans. En þeir í Vopnafirði eru
ögn nær sprungukerfinu mikla,
sem liggur um Atlantshafið endi-
langl og gegnum Island. Og við
Selá í Selárdal vætlar upp lindin
volg úr iðrum jarðar. Vopnfirðing
ar hafa um aldir laugað sig úr
volgrunum á bökkum árinnar, og
fyrir nokkru reist þar sundl-aug
fyrir hérað sitt. Laugarvatnið
mældist 28° á Celsíus þennan dag,
og botninn var gráleitur eftir
sundæfingar ungviðis úr nærliggj-
andi sveitum.
Sundlaug Vopnfirðinga við Selá byggir á jairðhita, sem fágætur
e!r á Austurlandi.
Hof í Vopnafirði. Krossavíkurfjöll í baksýn.
8. Sandvíkurheiði — Lágar jök-
ulöldur með tilheyrandi vötnum á
milli -— í vesturátt Hágangar,
einkennisfjöll þessara heiðlend-a
millum Vopnafjarðai- og Þistil-
fjarðar. En þrífst þá nokkurt
mannlíf þar nyrðra á Langanes-
strönd? Jú, vissulega; hér sunnan
Bakkafjarðar á Digranesi er
kauptúnir Höfn: trilluútgerð, fisk-
verkun og síldarveiksmiðja sem
minnisvarði liðinnar tíðar, en
kannski líka framtíðarvon. — Og
basaltið hefur skotið upp kryppu
sinni við ströpdina, þolinmótt og
gætt þeirri hörku, sem þarf til að
standast úthafið og óblíða nátt-
úru, eins og það fólk, er strönd-
ina byggir.
6. Sunnan Vopnafjarðar hefur
fólk búið frá ómunatíð við þoku-
sælt úthafið. Handan Vindfells
verður Böðvarsdalur, sem hér sér
Böðvarsdalur sunnan Vopnafjarðar. Mælifell og Hágangur syðiri
rísa yfir þokuna langt í norðri.
Stapi við Bakkafjörð. Handan fjarðar er Digiranes með þorpinu
Höfn.