Austurland


Austurland - 31.12.1968, Síða 1

Austurland - 31.12.1968, Síða 1
ÆISTURLAND MALGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSIHS A flUSTURLAMPI 18. árgangur. Neskaupsiað, 31. desember 1968. 52. tölublað. Áramót Líklega er flestum efst í huga í byrjun hins nýja árs, spurn- ingin um það, hvernig nýja árið muni verca. Verður það gott ár, eða erfitt ár? Verður það betra, en árið sem nú er að liða, eða á það kannske eftir að færa okkur nýja og aukna erfiðleika til við'bótar þeim, sem gamla árið skildi hér eftir á ýmsum sviðum ? Enginn veit hvernig nýja árið verður. Margt hefur þar sín áhrif á, — og ekki sízt við sjálf. Við þessi áramót, -— þegar við kveðjum gamla árið og heilsum jafnframt nýju ári, skulum við renna huganum yfir nokkra at- burði gamla- ársins og hugleiða lítillega hvað var að gerast á því ári. Á innlendum vettvangi hófst árið 1968 með gengislækkunar- boðskap. Gengi íslenzkrar krónu hafði verið lækkað nokkru fyrir áramót og síðan fylgdu á eftir, eins og jafnan við slík tækifæri, margskonar viðbótarráðstafanir og héldu þær áfram að birtast almenningi fram yfir áramótin. Gengislækkunarráðstafanirnar í byrjun ársins 1968, áttu að sögn valdhafanna, að verka sem blóð-inngjöf fyrir atvinnuvegina. Þær áttu að bjarga innlendum iðnaði færa fjör í allar greinar sjávarútvegs og tryggja að nýju grundvöll batnandi lífskjara. Reynslan varð þó önnur, eins og öllum er nú kunnugt. Iðnaður landsmanna hélt áfram að dragast saman og vaxandi erfiðleikar gerðu vart við sig vegna skorts á rekstrarfé. Geng- islækíkunin bjargaði ekki heldur útgerðinni. Útgerðarmenn neit- uðu í ársbyrjun að hefja róðra og töldu engan grundvöll fyrir útgerðarrekstri, nema til kæmu nýjar og miklar styrkveiíingar til útgerðarinnar. Svipuð við- horf ríktu hjá eigendum frysti- húsa og annarra fiskvinnslu- fyrirtækja. Þeir töldu óhugsandi að hefja rekstur án verulegra nýrri styrkja, þrátt fyrir alla gengislækkun. Þannig fór fyrsti mánuður hins nýja árs í þref á milli útgerðarmanna og fiskkaup- enda annars vegar og fulltrúa ríkisvaldsins hins vegar. í marz-mánuði hófust síðan 1968 -- verkföll verkafólks um allt land, i þeim tilgangi að hnekkja iþeirrj fyrirætlun stjórnarvalda, aö ætla að svipta launafólk verðtrygg- ingu á luunum og koma á þann hátt fram stórfelldri Ikjaraskerð- ingu. Ríkisst jórnin varð að gefa eftir, fyrir þunga hins mikla verkfalls, og tókust þá samn- ingar um vísitölugreiðslur á laun að nýju, en þó með þeim Ihætti að laur.afólk fékk ekki fulla viísitöluuppbót fyrr en seint á árinu. Þegar komið var fram á sumar var öllum oiðið ljóst, að efnahagsráð ríkisstjórnarinnar,, þau sem ákveðin voru um ára- mótin, voru gjörsamlega runnin út, í candinn. Allt, ef.nahagskerfið var aug- ljóslega helsjúkt. Stefna 'híkis- stjórnarinnar hafði leitt til fram- leiðslustöðvana og að því leyti sem framleiðslan var í gangi var ekki um eðlilegan gang að ræða. Undirstaða - atvinnulífsins í landinu var enn í lamasessi. At- vinnufyrirtæki voru í miklurn fjárhagserfiðleikum og innlend fiamleiðsla fór minnkandi. Gjaldeyriseyðsla var þó í full- um gangi og brask og milliliða - okur blómstraði. —o— Á miðju ári fóru fram kosn- ingar forseta lýðveldisins. Það urðu eftirminnilegar kosningar og komu ýmsum á óvart. Ekki fór á milli mála í þessum kosningum, að ríkisstjórnin og helstu stuð.ningsmenn liennar, höfðu hugsað sér ákveðinn mann í forsetastai-fið. Ráðagerðir ríkisstjórnarinnar í forsetamállinu reynduzit álíka haldlitlar og ráðagerðir hennar í efnahagsmálum höfðu áður reynzt. Þrátt fyrir mikinn undir- búning, allskor.ar undirskriftir og áskoranir og miktar áeggjanir ráðherranna persónulega, urðu úrslitin algjörlega andstæð vilja ííkissl jórnarinnar. óbreyttir liðs- menn úr öllum stjómmálaflokk- um og utanflokka beittu sér fyr- ir framboði gegn frambjóðanda ríkisstjórnarliðsins. Úrslitin urðu eins og allir muna: hið hrak- legasta niðurlag fyrir fram'bjóð- enduina úr gamla rikisstjórnar- liðinu, en einn glæsilegasti kosn- ingasigur, sem um getur fyrir 1969 hinn óháða frambjóðanda fólks- ins. Af afstöðnum forsetakosn- ingum sögðu flestir, að ,nú ætti rj’kisstjórnin að segja af sér hið skjótasta því augljósara van- traust en hún hafði fengið í forsetakosningunum, væri ekki hægt að fá. En ríkisstjórnin sagði ekki af sér. Hún sat sem fastast, þó að öll hennar ráð í efnahagsmálum hefðu mistekist og efnahagur þjóðarinnar undir hennar stjórn væri kominn í algjört öngþveiti. —o— Á árinu 1968 urðu mikil og merkileg umbrot í röðum unga fólksins svo að segja um allan heim. Mest fór fyrir þessum um- brotum meðal stúdenta, sem víða erlendis lögðu undir sig háskóla- byggingar og skutu jafnvel hörð- ustu einræðisherrum skelk í bringu. Órói unga - fólksins fór eins og eldur í sinu um flest þjóð- lönd og hefur þegar haft ótiú- lega mikil áhrif á gang ýmissa heimsmála. Hér á landi hefur svipuð hreyfing í hópi unga fólksins einnnig komið fram. unga fólkið er greinilega óánægt með stjórn hinna eldri. Það heimtar nýjar reglur í skólum, meiri rétt. til handa hinum ungu og um fram allt meiri hrein- skilni, meiri jöfnuð og meira rétt- læti til Ihanda þeim sem nú eru sviptir almennum réttindum. Hér á landi hefur unga fólkið krafist aúkinna pólitískra áhrifa og fordæmt foringjavald stjórn- málaflokkanna. Enn er margt cljóst vaiðandi umrótið í röðum unga fólksins. Það fordæmir og gerir kröfur, það vill umbylta og koma nýrri skipan á, — en þó veit það ekki með vissu hvað á að gera og hvernig það á að gerast. En uppreisnaralda unga fólks- ins er staðreynd — hún er stað- reynd, sem ekki þýðir að neita. —o—■ Þegar líða tók á seinni hluta árs var ríkisstjórninni orðið Ijóst að enn mundi þurfa að gera nýj- ar ráðstafanir í efnahagsmálum, þrátt fyrir gengislækkunina um áramótin og allar aukaráðstaf- anir sem hennj,,fylgdu. Ríkis- stjórnin greip því til þess ráðs, Gleðilegt nýár Lúðvík Jósepsson. að efna til viðræðna við stjórn- arandstöðuflokkanu, um ný úr- ræði í efnahagsmálum. Fljótlega 'kom d ljós, að þær viðræður voru aðeins til mála- mynda af hálfu 'stjórnarflokk- anna, þeir héldu sér enn við gamla Iheygarðshornið og trúðu enn á sína gömlu gengislækkun- arstefnu. Ný gengislækkun var því ákveðin af stjórnarflokkunum, eins og kunnugt er, og standa enn yfir hríðir hennar með nýj- um og nýjum tilskipunum og til- heyrandi verðlagshækkunum. Árið 1968 hefur því verið sann- kallað gengislækkunai-ár, því segja má, að allt árið hafi verið gengislækkun í framkvæmd, eða undirbúningi með venjulegum af- leiðingum — þ. e. framtíðar- stöðvunum — verðlags — hækk- unum — gjaldeyri.sbiaski — og kjaraskerðingu. Og enn við þessi áramót, eru stjórnarvöld landsins svo forhert að halda þvi fram — þvert ofan í alla fyrri reynslu — að nú sé þess að vænta að gengislækkun- in bjargi atvinnuvegunum og muni hleypa nýju lífi í fram- leiðslu landsmanna. Við þcssi ára- mót blasir það við, að allir kjarasamningar sjómanna eru úr gildi felldir. Ríkisstjórnin ihefur knúið fram löggjöf, sem kippir grundvellinum undan hluta- skiptakjörum sjómanna og þar með má telja víst, að langir og erfiðir camningafundii-, um kjara- mal sjómanna, séu framundan. Þá blasir það einnig við, að kjarasamningar verkafólks eru einnig uppsagðir vegna yfirlýs- ingar ríkisstjórnarinnar um að afnema enn um sinn verðtrygg- Framh. á 2. síðu.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.