Austurland - 31.01.1969, Page 2
2
r
AUSTURLAND
Neskaupstað, 31. janúar 1969.
Mikið loðnumagn . . .
Framhald af 1. síðu.
þorsk, sérstaklega þegar fram á
vertíðina kom, enda fylgdu oft
miklar fis'kigöngur í kjölfar loðn-
unnar. Á Hornafirði var loðnan
veidd með ádrætti í landnætur.
Seinna fóru svo útileguibátar
frá Austfjörðum, sem stunduðu
með línu á vetrarvertíðum, að
veiða loðnu í háfa, sem þeir -höfðu
meðferðis, og nota hana til beitu.
I kiingum 1936 eða 1937 mun
þetta „hernaðarleyndarmál" Aust-
firðinga hafa flutzt með þeim til
verstöðva við Faxaflóa. Hef ég
það fyrir satt, að Ölver Guð-
mundsson, útgerðarmaður á Norð-
firði, hafi fyrstur manna látið
beita loðnu í Sandgerði, en hann
gsrði þá út Þráin úr þeirri ver-
stöð. Fiskaði Ölver sjálfur þá * 1
Eins og mö.nnum er kunnugt,
var haldinn fundur á Reyðarfirði
sunnudaginn 19. jan. 1969 um
landhelgismálið. Mættur var fyr-
ir hönd landhelgisnefndar, Lúð-
vík Jósepsson.
1 upphafi máls mælti Lúðvík
Jósepsson að til mála kæmi að
leyfa toigveiðar upp að útskerj-
um og nefndi Kolbeinsey sem
dæmi. En einmitt við Kolbeinsey
er ein mesta uppeldisstöð fyrir
smáfisk. — Er þetta vísindaleg
verndun eða nýting?
Möskvastærð er ekki einhlít til
verndar eftir minni reynslu. Árið
1955, að mig minnir, var möskva-
stærð aukin í 4 tommur. Á því
skipi, sem ég var á, höguðum við
vinnu á eftirfarandi hátt: Þegar
mikið af fis'ki var í trollinu, tók-
um við aðeins einn poka inn í
einu, gert var að hirðandi fiski,
óhirðandi vegna smæðar hleypt
út svo fljótt sem auðið var. Það
sem eftir var geymt í poka og
belg fyrir utan, en ekki sást
nema einn og einn smáfiskur
synda út úr ibelgnum, jafnvel þótt
liðu allt að 4 klst. Þannig var
ekki sjáanlegur munur frá gömlu
möskvastærðinni.
Eins er með öll dýpi fyrir
Norðurlandi, frá Digranesflaki til
Hornstranda, sérstaklega frá
marz-apríl og út júní, þá eru
þessi dýpi meira og minna full af
smáfiski, sérstaklega inn við
kantana. Af eigin' reynslu af
þessu svæði, þá er venjuleg út-
koma sú, að geti maður hirt poka,
fer annað eins og meira út aftur,
sökum smæðar. Hvað segja svo
fiskifræðingar, er þetta visinda-
leg hagnýting landgrunnsins ?
' Ef c'g nían rétt, þá Var 'böniiuð
loðnu í háf, er hann útbjó, og svo
mikils aflaði hann, að aðrir nutu
gcðs af. Strax breytti loðnan
aflabrögðum Suðurnesjamanna og
vildu menn helzt ekki sjá aðra
beitu, ef tök voru á að ná í hana.
1 fyrstu var þetta illa séð af
frystihúsaeigendum sem lágu með
síldarbirgðirnar ónotaðar í frysti-
húsunum og heyrðust þeir stund-
um nefna Ölver „manninn með
lykilinn að frystihúsunum". Síð-
ar kom Ölver m-eira við sögu
loðnuveiðanna- á Faxaflóasvæð-
inu, sem út af fyrir sig væri vel
þess vert að s'krásetja.
Lcðna veidd til mjölvinnslu
Nokkur síðustu ár hefur loðna
verið veidd til mjölvinnslu. Með
1 bættum veiðitækjum hefur sú
veiði með flotvörpu í landhelgi til
verndar fiskistofninum um hrygn-
ingartímann og er það rétt
ákvcirðun. E.n á sama tíma er
leyfilegt að drepa sama fiskistofn
í þorsknót, enda segir hr. fiski-
fræðingur Jón Jónsson, að hann
sé sjálfdauður (sem sé sá fiskur
sem er veiddur í nót).
Eins virðist þurfa að opna út
af Austfjörðum svæði til þess að
ná kolanum, þegar hann syndir
út úr f jörðunum, áður en Bretinn
hirðir hann. Þess þarf ekki. Frá
Bakkafirði og suður úr vantar at-
vinnu. Fyrir trillur og smábáta er
tilvalið að stunda veiðar með
kolanet, síðan vinna kolann nýj-
an eða frys.tan (það hefur verið
gert á Húsavík). Einnig væri hægt
fyrir alla Austfirði að láta bát
eða bát>a sigla með kolann. Það
er sagt í ræðu og riti að nauð-
synlegt sé að takmarka og jafn-
vel banna veiðar með dragnót. En
trollið, eins og allflestir bátar
hafa það í dag, er ekkert annað
en dragnót, að því fráskildu að
hægt er að draga það ótakmark-
aðan tíma, því hlerarnir halda því
opnu, sem dnagnótin lokast á
skömmum tíma. Því hlýtur það
að verða skilyrði fyrir togveiðum
í landhelgi:
1. Aðeins verði notað troll með
bobbingum. i-
2. Ekki leyft að toga á svæðum
þar sem vitað er að eru uppeldis-
stöðvar fyrir smáfisk.
Síðan er ekki úr vegi að friða
viss svæði fyrir öllum veiðum um
hrygningartímann, nema kannski
veiðar með hinum ævafornu hand-
færum. ! i í (
: : : : g. i. g.
veiði aukizt mjög mikið og tekizt
hefur að vinna ágætis mjöl úr
loðnunni í síldarverksmiðjunum.
Yfirleitt fæst lítið lýsi úr loðn-
unni, enda er hún fitulítill fiskur.
Ef til vill má segja að ioðnu-
vinnslan hafi verið á tilrauna-
stigi það sem af er, en nú ætti
að hafa fengizt nægileg reynsla
af þeirri vinnslu.
Hvað veiðarnar sjálfar áhræiir,
má ef til vill segja, að mikil
reynsla sé þegar fengin, sérstak-
lega þar sem notuð er sama veiði-
tækni og notuð er við síldveiðar.
En sennilega skortir okkur enn
mikið á um þekkingu á göngum
og hegðun loðnunnar. Sýnilega
þarf að leggja miklu meiri áherzlu
á loðnurannsóknir en gert hefur
verið og leita þarf uppi loðnu-
göngurnar strax í ársbyrjun eða
fyrr. |
Mikil vinnsluafköst eru fyrir
hendi, þar sem síldarverksmiðj-
urnar geta allar einbeitt sér að
loðnuvinnslunni á þeim árstíma,
sem loðnan veiðist á.
Til 'þessa hefur loðnan eingöngu
verið veidd sunnan við land á
tímabilinu frá miðjum febrúar þar
til fram yfir miðjan marz.
I fyrsta sinn var loðna brædd
á Austfjörðum sl. vetur og gafst
sú vinnsla mjög vel.
Á þeirri vertíð bárust um 8
þúsund tonn af loðnu til Nes-
kaupstaðar, en margt varð til að
hindra eðlilega móttöku. Sú
loðna, sem hingað barst, kom
eingöngu frá miðunum sunnan við
land, enda kom fyrsta loðnan
ekki hingað fyrr en seint í febrú-
ar.
Gera má ráð fyrir, að ihér væri
hægt að taka á móti nokkrum
tugum þúsunda tonna, ef loðnu-
vertíðin væri stunduð eðlilega og
hægt væri að byrja snemma að
veiða loðnuna.
Eigi þarf að geta sér tíl um
hagsmuni Austfirðinga af vænt-
anlegri loðnuvinnslu í síldarverk-
smiðjunum, svo augljósir sem
þeir eru.
Væntanlega verða þessi mál
tekin föstum tökum hér eftir, svo
bægja megi frá þeim vágesti, sem
landlægur er hér á Austfjörðum
yfir vetrarmánuðina, þ. e. at-
vinnuleysinu.
Þá er það ekki svo lítils virði
fyrir sildarverksmiðjurnar, sild-
veiðiskipin og alla aðra, að bæta
sér að einhverju leyti upp það
áfall, sem aflabrestur síldveið-
anna hefur ba'kað þeim á undan-
förnum tveim árum.
Vonandi er, að við Austfirðing-
ar berum gæfu til þess að missa
ekki af því tækifæri, sem (hér
virðist blasa við, en stendur
skamman tíma hverju sinni.
LoðnuveiSair Norðmanna
Þá hafa Norðmenn um all mörg
ár veitt loðnu til mjölvinnslu, að-
allega á Finnmerkursvæðinu. Hef-
ur loðnuveiði Norðmanna aukizt
geysilega ruikið, sérstaklega tvö
síðustu árin, eða úr nokkur
hundruð þús. hektólítra ársafla í
nokkur milljón hektólítra. Hyggj-
ast norskir síldveiðimenn bæta sér
upp minnkandi síldarafla með
stórauknum loðnuafla. 1 haust
lögðu norsku fis'kirannsóknarskip-
in höfuðáherzlu á loðnuleit og að
fylgjast með loðnugöngunum.
Voru gerðir út nokkrir leiðangr-
ar sérstaklega með loðnu- og haf-
ísrannsóknir fyrir augum.
Það var samdóma álit norskra
fiskifræðinga í haust, að sérlega
mikið magn af ungloðnu væri á
svæðinu frá Bjarnarey að Finn-
mörku. Gátu þeir þó efcki gert
sér fulla grein fyrir heildarmagn-
inu, þar sem hafsvæðið undir haf-
ísnum er ókannað, en þar töldu
þeir mikið loðnumagn vera.
Að sögn Hjálmars Vilhjálms-
sonar fiskifræðings, mun ekkert
samband vera á milli loðnunnar
við Noreg og þeirrar, sem hingað
kemur.
R. S.
Þorramót Þróttar
Fyrsta skíðamót vetrarins,
Þoriramótið, var haldið um síðast—
liðna helgi við skíðaskála Þróttar
í Oddsdal. Keppt var í þrem
flokkum karla og einum flokki
kvenna í svigi og stórsvigi.
I svigi karla urðu úrslit þessi:
(Samanlagðui' tími).
1. Rúnar Jóhannsson 85.3
2. Kári Hilmarsson 87.3
3. Þorleifur Ólafsson 88.2
Flo'kkur 14—17 ára:
1. Sigurbengur Kristjánsson 63.9
2. Sigurður Birgisson 76.6
3. Sigurður Sveinbjör.nsson 77.6
Flokkur 11—14 ára:
1. Þorleifur Stefánsson 61.1
2. Jón Grétar Guðgeirsson 62.6
3. Jóhann Krislinsson 73.9
Kvennaflokkur:
1. Brynja Garðarsdóttir 58.4
2. Ragna Halldórsdóttir 75.8
Stórsvig karla:
1. Stórsvig karla :
1. Jón Rúnar Árnason 43.3
2. Ómar Björgólfsson 45.4
3. Rúnar Jóhannsson 46.8
Flokkur 14—17 ára:
1. Sigurbergur Kristjánsson 40.2
2. Árni Guðjónsson 40.8
3. Ríkharður Haraldsson 41.5
Flokkur 11—14 ára:
1. Þorleifur Stefánsson 38.8
2. Jóhann Kristinsson 44.1
3. Jón Grétar Guðgeirsson 44.5
Kvennaflokkur:
1. Brynja Garðarsdóttir 43.8
2. Ragna Halldórsdóttir 45.7
3. Þyri Sigfúsdóttir 67.5
Keppendur voru alls 21. Á
sunnudaginn var mjög gott veður
í Oddsdal og skíðafæri hið bezta.
Brautarlagningu annaðist Stefán
Þorleifsson.
Vísindolegar skrautfjaðrir