Morgunblaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2011
Unnendur Toms Waits hafamátt bíða lengi eftirnýrri hljóðversplötu fráhonum, því sjö ár eru lið-
in síðan hin kröftuga Real Gone leit
dagsins ljós. Í millitíðinni sendi
Waits reyndar frá sér hina þreföldu
Orphans: Braw-
lers, Bawlers &
Bastards, magn-
aða og fjöl-
breytilega blöndu
af allrahanda
upptökum, og
tónleikaplötuna
Glitter and Doom. Nú eftir helgi
kemur út 20. hljóðversplata Waits,
Bad as Me, með þrettán lögum eftir
hann og meðhöfundinn, eiginkonuna
Kathleen Brennan. Þetta er fyrir-
taks gripur sem reynist fyllilega bið-
arinnar virði.
Þrettán lög eru á Bad as Me og
flest í styttri kantinum. Uppbygg-
ingin er kunnugleg; keyrsluslagarar
þar sem allt er á útopnu og huglúfar
blússkotnar melódíur í bland, og inn
á milli lög sem vísa í latínó- og leik-
hústónlist. Waits er söngvaskáld af
guðs náð og svíkur ekki á því sviði. Í
upphafslaginu, Chicago, er sögu-
maður í leit að betra lífi og hvetur
fólk til að koma með sér: We won’t
have to say goodbye / if we all go,
syngur hann en undir liggja efa-
semdir, hvort grasið sé nokkuð
grænna annars staðar. Einstæðings-
skapur utangarðsmannsins er áber-
andi í textunum eins og stundum áð-
ur, írónískar athugsasemdir heyrast
og sögur um hlutskipti manns og
þjóðfélagsástand.
Waits og Brennan eru einhverjir
bestu lagahöfundar dægurtónlistar
síðustu áratugi, með einstaka hæfi-
leika við tregafulla ballöðusmíði. Út-
setningar þeirra hafa þróast mark-
visst, um tíma voru óvenjuleg
hljóðfæri og „beygluð horn“ áber-
andi í hljóðheiminum og kölluðust
vel á við ráma rödd Waits, en hér
snúa þau aftur að hefðbundnari
hljóðfæraskipan með einstaklega
fínum árangri. Athyglisvert er
hvernig þau velja hljóðfæraleikara
sem hæfa andrúmi hvers lags. Gítar-
fitlarinn fimi Marc Ribot leikur í
flestum, rétt eins og fyrrum Los Lo-
bos-liðinn David Hildalgo, sem leik-
ur á gítar, harmónikku og fiðlu, og
Casey sonur Waits og Brennan lem-
ur húðir. Hvorki fleiri né færri en
sex ólíkir bassaleikarar eru kallaðir
til að knýja vélina. James Whiton
leikur í flestum laganna en Flea í
tveimur þeim kraftmestu, Les
Claypool úr Primus í einu og hinn
snjalli djassbassaleikari Marcus
Selby í gullfallegri ballöðu, Kiss me.
Í laginu Satisfied á Waits í sam-
ræðu við frægasta gestinn á plöt-
unni, Keith Richards, sem hann
ávarpar ásamt Jagger í textanum,
vísar í frægt lag þeirra og segir
sannfærandi: I will be satisfied!
Richards leikur í helmingi lag-
anna og þeir eru góðir þessir gömlu
rokkhundar þar sem þeir kyrja
tregafullir að þeir séu síðustu laufin
sem hanga á trénu eftir haustlægð-
irnar. Eflaust eiga margir hlust-
endur eftir að hanga lengi á þessum
diski.
Fantavel útsettir utangarðsmenn
Geisladiskur
Tom Waits - Bad as Me
bbbbn
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
TÓNLIST
Reuters
Loksins Bad as Me var biðarinnar virði. Hér sést Waits taka lagið þegar hann var gerður að meðlimi í frægðarhöll
rokksins við hátíðlega athöfn í Waldorf Astoria hótelinu í New York, 14. mars síðastliðinn.
Í dag og á morgun verða haldnar
sérstakar barnasýningar í Sambíó-
unum Álfabakka á teiknimynd-
unum Konungi ljónanna og Bang-
símon. Bangsímon verður sýnd kl.
11 og Konungur ljónanna kl. 11.30.
Í tilkynningu frá Sambíóunum seg-
ir að sýningarnar séu hugsaðar sem
fyrsta bíóupplifun ungra barna.
Bangsímon Ný teiknimynd um
bangsann er sýnd í Sambíóunum.
Disney-stund að
morgni í Sambíói
Leikarinn River Phoenix lést fyrir
18 árum en síðasta kvikmyndin sem
hann lék í, Dark Blood, hefur aldrei
litið dagsins ljós. Leikstjóri hennar,
George Sluizer, telur sig nú geta
klárað myndina þó hann hafi ekki
náð að ljúka tökum vegna andláts
kvikmyndastjörnunnar Phoenix.
Vinsæll River Phoenix var vinsæll
leikari en lést af völdum fíkniefna.
Lokamynd Phoenix
verður kláruð
- CHICAGO READER
HHHH
- NEW YORK TIMES
HHHH HHHH
- A.E.T
MORGUNBLAÐIÐ
- K.I. PRESSAN.IS
HHH
BYGGÐ Á EINU FRÆGASTA
ÆVINTÝRIALLRATÍMA
HÖRKUSKEMMTILEG ÆVINTÝRAMYND SEM
ALLIR ÆTTUAÐ HAFA GAMANAF EINN FYRIRALLA -ALLIR FYRIR EINN
THREE MUSKETEERS kl. 5:50 - 8 - 10:20 3D 12 JOHNNYENGLISHREBORN kl.1:30-3:40-5:50-8 -10:10 2D 7
THREE MUSKETEERS kl. 1:30 - 3:40 - 8 - 10:20 2D VIP KONUNGURLJÓNANNA Ísl. tal kl. 11:30 - 12 3D - 1:30 - 2 3D - 4 L
FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 10 DRIVE kl. 10:20 2D 16
BANGSÍMON Ísl. tal kl. 11 - 12:30 - 2 - 4 - 6 2D L ALGJÖR SVEPPI kl. 12 - 2 - 4 2D L
REAL STEEL kl. 5:30 - 8 2D 12 CRAZY,STUPID,LOVE kl. 10:20 2D 7
CONTAGION kl. 5:50 VIP - 8 2D 12 BÍLAR Ísl. tal kl. 3:30 2D L
THREE MUSKETEERS kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 3D 12 KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 11:30 - 3:20 3D L
ÞÓR kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D L REAL STEEL kl. 8 - 10:20 2D 12
ÞÓR kl. 1:10 - 5:30 2D L DRIVE kl. 8 - 10:40 2D 16
FOOTLOOSE kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 10 ALGJÖR SVEPPI kl. 1:10 - 3:20 2D L
BANGSÍMON Ísl. tal kl. 11:30 - 1:20 3D L
/ EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr.
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGL-
UNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ROWAN ATKINSON
- J.C. SSP
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUN
AKUREYRI
NÝJASTA
ÆVINTÝRIÐ UM
BANGSANN SEM
ALLIR ELSKA
ÍSLENSK TAL
LADDI - EGILL ÓLAFSSON - ÖRN ÁRNASON
TÖFRANDI
FJÖLSKYLDUSTUND
FRÁ DISNEY
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
HHH
- K.I. -PRESSAN.IS