Morgunblaðið - 22.10.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2011
Haukar – Stjarnan 68:89
Gangur leiksins: 2:5, 11:11, 13:20, 18:24,
22:33, 24:40, 30:42, 35:47, 39:55, 44:63,
46:64, 48:73, 52:74, 60:83, 66:87, 68:89.
Haukar: Jovanni Shuler 22/11 fráköst/7
stoðs./5 stolnir, Steinar Aronsson 10, Örn
Sigurðarson 8, Sævar Ingi Haraldsson 8,
Davíð Páll Hermannsson 6, Emil Barja 6/7
fráköst, Óskar Magnússon 3, Haukur Ósk-
arsson 3, Helgi B. Einarsson 2/6 fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 10 í sókn.
Stjarnan: Keith Cothran 26/4 fráköst, Jov-
an Zdravevski 20/8 fráköst, Justin Shouse
13/4 fráköst/11 stoðs., Marvin Valdimars-
son 12/5 fráköst, Fannar Freyr Helgason 6/
10 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 6/9 frá-
köst, Guðjón Lárusson 4, Dagur Kár Jóns-
son 2/4 fráköst.
Fráköst: 32 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Ágúst
Jensson.
KR – Njarðvík 85:74
Gangur leiksins: 9:4, 13:8, 24:18, 27:22,
31:27, 35:31, 37:33, 41:41, 48:46, 57:48,
63:54, 66:60, 68:63, 75:65, 78:72, 85:74.
KR: David Tairu 23, Hreggviður Magnús-
son 20/9 fráköst, Finnur Atli Magnusson
17/7 fráköst/5 stoðs., Emil Þór Jóhannsson
11/5 fráköst/5 stoðs., Björn Kristjánsson
5/7 fráköst/6 stoðs., Jón Orri Kristjánsson
3/8 fráköst, Martin Hermannsson 2, Krist-
ófer Acox 2/10 fráköst, Skarphéðinn Inga-
son 2/4 fráköst.
Fráköst: 37 í vörn, 15 í sókn.
Njarðvík: Travis Holmes 20/10 fráköst/5
stoðs., Cameron Echols 18/15 fráköst, Ólaf-
ur Helgi Jónsson 13/7 fráköst, Hjörtur Ein-
arsson 10, Elvar Friðriksson 7/7 stoðs.,
Rúnar Erlingsson 4, Maciej Baginski 2.
Fráköst: 25 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Georg Andersen, Einar Þór
Skarphéðinsson.
Þór Þ. – Snæfell 85:83
Gangur leiksins: 2:2, 13:5, 16:11, 18:14,
21:21, 27:27, 37:37, 41:41, 47:47, 51:52,
57:60, 64:68, 70:74, 76:79, 78:81, 85:83.
Þór: Darrin Govens 27/4 fráköst/5 stoð-
sendingar, Guðmundur Jónsson 16/5 frá-
köst, Darri Hilmarsson 13, Michael Ring-
gold 11/11 fráköst, Marko Latinovic 10/7
fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 6/7 frá-
köst, Baldur Þór Ragnarsson 2.
Fráköst: 22 í vörn, 15 í sókn.
Snæfell: Brandon Cotton 35, Palmi Freyr
Sigurgeirsson 13, Jón Ólafur Jónsson 9/9
fráköst, Quincy Hankins-Cole 8/14 fráköst,
Hafþór Ingi Gunnarsson 7, Egill Egilsson
7, Ólafur Torfason 2/6 fráköst, Sveinn Arn-
ar Davíðsson 2/4 fráköst.
Fráköst: 28 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson,
Rögnvaldur Hreiðarsson.
Staðan:
Stjarnan 3 3 0 290:237 6
Grindavík 3 3 0 268:229 6
KR 3 2 1 275:274 4
Snæfell 3 2 1 292:274 4
Þór Þorl. 3 2 1 270:265 4
Keflavík 3 2 1 277:244 4
Njarðvík 3 2 1 273:239 4
ÍR 3 1 2 274:289 2
Fjölnir 3 1 2 274:293 2
Tindastóll 3 0 3 258:289 0
Haukar 3 0 3 248:289 0
Valur 3 0 3 221:298 0
1. deild karla
Ármann – Þór Ak. .................................86:84
ÍA – ÍG................................................... 98:75
FSu – KFÍ............................................. 73:78
Hamar – Höttur.................................... 73:76
„Þetta var eins mikil dramatík og getur orðið.
Marko var í svo miklu dauðafæri að hann var
næstum búinn að klúðra því,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari nýliða Þórs í Þorláks-
höfn, sem unnu ævintýralegan sigur á Snæfelli,
85:83, frammi fyrir 500 háværum áhorfendum í
Þorlákshöfn í gærkvöld.
Snæfell var yfir, 83:78, þegar tvær mínútur
voru eftir en þá skipti Benedikt yfir í svæðisvörn
og heimamenn skoruðu síðustu sjö stigin. Sig-
urkörfuna gerði Marko Latinovic upp úr inn-
kasti við endalínu en 1,2 sekúndur voru eftir
þegar það var tekið.
„Þetta eru skemmtilegustu sigrarnir, ekki síst
fyrir framan alla þessa frábæru áhorfendur. Það
má síðan deila um hvort við áttum þetta skilið
eftir að hafa verið undir nær allan tímann. Ég
get ekki gefið mínum mönnu háa einkunn fyrir
spilamennskuna, þá skorti rétta ákvarðanatöku í
sókninni og einbeitingu í vörninni. En þá skorti
ekki karakter og stemningu og það færði okkur
þennan sigur,“ sagði Benedikt við Morg-
unblaðið. Þór er með fjögur stig eftir þrjár um-
ferðir en þjálfarinn er rólegur. „Við horfum ekki
lengra en á næsta leik. Þetta er svo jöfn deild að
það getur allt gerst en við höfum sýnt að við eig-
um fullt erindi í hana.“ vs@mbl.is
„Skorti ekki karakter og stemningu“
Í VESTURBÆNUM
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
KR náði aftur á beinu brautina í Iceland Express-deild
karla í körfuknattleik eftir sigur á Njarðvík í nokkuð
spennandi leik í gær 85:74. Staðan í hálfleik var jöfn en
þó voru það gestirnir sem oftast voru í eltingaleik.
Hraður leikur í fyrri hálfleik kom e.t.v. aðeins niður á
gæðunum í þeim síðari en þrátt fyrir manneklu hjá KR
stóðust þeir prófið gegn ungum, sprækum og fljótum
Njarðvíkingum.
Hreggviður Magnússon fór fyrir heimamönnum en
hann var með 20 stig og fína skotnýtingu í teignum eða
um 75 prósent. Þá tók hann einnig níu fráköst. Hrafn
Kristjánsson, þjálfari KR-inga, sagði það aðeins hafa
hrjáð liðið í ákvarðanatöku að það vantaði nokkra
reynda leikmenn. „Við erum að reyna okkur með nýja
og unga menn. Eins mikið og ég lét vissa hluti fara í
taugarnar á mér í spilamennsku okkar þá var þetta
súrrealískt á köflum. Það er yndislegt að horfa á fullt
af strákum sem ég var að dæma hjá í drengjaflokki í
fyrra og það í báðum liðum. Það þótti mér jákvætt og
ég held að áhorfendum hafi þótt vænt um það líka.“
Hrafn er bjartsýnn á framhaldið eftir þessa þrjá
fyrstu leiki liðsins. „Ég er bjartur, þetta er mikil
áskorun. Við erum ekki í leikfræðilegu jafnvægi ef svo
má segja. Það hafa orðið gríðarlega miklar breytingar
á þessum kjarna sem skilaði titlinum í fyrra. Það er á
bæði erfitt og gefandi.“
Njarðvík er með virkilega skemmtilegt lið sem verð-
ur afar forvitnilegt að fylgjast með í vetur. Fólk ætti að
leggja nafnið Elvar Már Friðriksson á minnið en hann
átti fínan leik í gær og greinilegt að mikið býr í strákn-
um sem er fljótur og áræðinn. Spádómar um að Njarð-
vík muni falla rætast ekki ef þeir byggja ofan á góða
leikkafla í gær og góða byrjun. Hvort Njarðvík geti
tekið „Hraðlestar“-viðurnefnið af Keflavík kemur svo í
ljós.
Hraðlestin
staðnæmd-
ist í Vestur-
bænum
Morgunblaðið/Golli
Góðir Hreggviður Magnússon býr sig undir að skjóta að körfu Njarðvíkinga og hinn ungi Ólafur
Helgi Jónsson fylgist með honum. Þeir áttu báðir fínan leik með liðum sínum í gærkvöld.
Leggið Elvar Má
Friðriksson á minnið
Á ÁSVÖLLUM
Kristinn Friðriksson
sport@mbl.is
Bláklæddir Stjörnumenn sóttu
Haukamenn heim að Ásvöllum í
gærkveldi og leituðu að þriðja
sigri sínum í deildinni á meðan
heimamenn vildu koma auga á
sinn fyrsta. Jafntefli er bless-
unarlega ekki valkostur í þessari
íþrótt og því verður annað liðið að
halda áfram leit sinni. Í þetta sinn
urðu Haukar að lúta í parket fyrir
töluvert sterkari liði Stjörnu-
manna, lokatölur 89:68 og Stjarn-
an á toppi deildarinnar ásamt
Grindavík.
Bæði liðin byrjuðu leikinn ágæt-
lega; spiluðu stífa líkamlega vörn
og sóttu að körfunni. Keith Cot-
hran og fráköst gestanna voru
munurinn á liðinum eftir fyrsta
leikhluta, en Cothran skoraði 10
stig og rændi Hauka þrisvar sinn-
um, og staðan 18:24.
Eftir rúma mínútu í öðrum leik-
hluta var staðan orðin 18:31 og
virtust Stjörnumenn vera að gera
út um leikinn. Haukamennirnir
Sævar Haraldsson og Emil Barja,
sem höfðu verið góðir í fyrsta leik-
hluta lentu í villuvandræðum og
þurftu að sitja þennan leikhluta,
eitthvað sem Haukar máttu alls
ekki við. Ekki hjálpaði það Hauk-
um að skotprósentan tók slæma
dýfu; þeir virtust ekki geta hitt
hliðina á stórri hlöðu. Gestirnir
spiluðu hinsvegar eins og sá sem
valdið hefur; þeir hittu vel, spiluðu
hratt, köstuðu vel frá og héldu
Haukum í 17 stigum í leikhlut-
anum með fínni vörn. Pétur þjálf-
ari setur á svæðisvörn sem virkaði
ágætlega á köflum en heimamenn
þurftu að skora líka, og þrátt fyrir
góð og opin skot þá var þetta ekki
þeirra dagur. Staðan í hálfleik
35:47 og Jovan Zdravevski og Cot-
hran með 33 stig af stigum gest-
anna.
Fundu svar við
svæðisvörninni
Fyrstu mínútur seinni hálfleiks
voru rothöggið sem Stjarnan
þurfti til þess að loka þessum leik.
Þeir fundu svarið við svæðisvörn-
inni og juku muninn í 19 stig
fyrstu 5 mínúturnar. Barja og
Sævar fengu sínar fjórðu villur og
þrátt fyrir dug og kraftmiklar
dauðateygjur flugu Stjörnumenn
einfaldlega í allt öðru farrými á
öllum vígstöðvum tölfræðinnar;
Stjörnumenn voru með fleiri tap-
aða bolta en allt annað var þeim í
vil. Niðurstaðan 68:89 og sigur
Stjörnunnar aldrei í hættu.
Stjarnan sýndi mikla yfirburði
og þrátt fyrir að sýna ekki sinn
besta leik var þægilegum sigri
landað. Allir skiluðu góðum mín-
útum; Fannar Helgason, Sigurjón
Lárusson, Marvin Valdimarsson
og Justin Shouse mjög góðir, Jov-
an og Cothran enn betri og með
góðum sóknarleik þeirra í fyrri
hálfleik náðu gestirnir að byggja
„sigurgrunninn“.
Hittni Haukanna sorgleg
Haukarnir spiluðu á móti ofur-
efli og áttu alltaf undir högg að
sækja. Þeir hættu hinsvegar aldr-
ei, gáfust aldrei upp en þeir lentu
greinilega í „einum af þessum dög-
um“. Hittnin var sorgleg, og oft úr
opnum skotum, sendingarnar voru
undarlegar á köflum og villuvand-
ræði lykilmanna var ekki að hjálpa
þeim. Emil og Sævar spiluðu vel,
Helgi Einarsson og Örn Sigurð-
arson voru fínir og Jovanni Shuler
skoraði og kastaði ágætlega frá.
Steinar Aronsson kom sterkur inn
á í seinni hálfleik og skilaði 10
stigum. Haukarnir fundu sig ein-
faldlega aldrei í þessum leik; hittni
þeirra á líklega ekki eftir að verða
mikið verri í vetur en á móti liði
eins og Stjörnunni þurfa Hauk-
arnir að eiga einn af sínum topp-
leikjum til að eiga raunhæfan
möguleika.
Dómararnir stjórnuðu ekki
leiknum nægilega vel; hörð vörn
og mikið af villum sem ekki voru
dæmdar. Slepptu augljósri
óíþróttamannslegri villu en dæmdu
eina slíka sem var undarleg í alla
staði. En höfðu aldrei áhrif á úrslit
leiksins; eins og það á að vera.
Stjarnan var á allt öðru farrými
Þægilegur sigur Garðbæinga á Ásvöllum, 89:68 Með sex stig á toppnum en Haukar án sigurs
KÖRFUBOLTI